Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.1998, Qupperneq 50
myndbönd
LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1998 O t
MYHDBAHDA
Oscar and Lucinda:
Allt lagt að veði
irki-. Oscar er afar trúrækinn prestur en hald-
inn ólæknandi spilaflkn. Lucinda er sveita-
stúlka sem neyðist til að flytja til stórborgar-
innar en þar fellur hún fyrir sjarma spilamennskunnar. Það er svo vel
við hæfi að tilviljun skuli ráða því að þau hittast um borð í flutninga-
skipi nokkru en samvistir þeirra þar reynast aðeins fyrsta ævintýrið af
mörgum.
Þessi kvikmynd er gerð eftir mikilli skáldsögu ástralska rithöfundar-
ins Peters Careys og hlaut hann fyrir hana Booker-verðlaunin árið
1988. Þetta er í annað skiptið á skömmum tíma sem leikstjórinn Gilli-
an Armstrong ræðst í flytja skáldsögu yfir á kvikmyndatjaldið en hún
gerði kvikmyndina Little Women árið 1994. Líkt og þá hefur hann með
sér einvalalið leikara. Fyrirferðarmest eru þó Ralph Fiennes og Cate
Blanchett er leika spilafíklana. Nýstirnið Blanchett fer vel með hlut-
verk sitt og verður spennandi að fylgjast með henni á næstu árum en
hún hefur þegar tryggt sér fjölda hlutverka. Fiennes er með betri leik-
urum samtímans og er ekkert út á frammistöðu hans að setja, þó mér
þyki gervi hans full „fuglahræðulegt". Þá er myndin vissulega nokkuð
langdregin en brosleg og áhrifamikil atriði á víxl halda áhorfendum við
efnið.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Gillian Armstrong. Aðalhlutverk: Ralph Fienn-
es og Cate Blanchett. Áströlsk/bandarísk, 1997. Lengd: 130 mín. Bönnuð
innan 16 ára (I). -bæn
Appetite:
Kostulegt persónugallerí
★★Á Miðpunktur myndarinnar er æði dularfullt
hótel en á því á öll atburðarás hennar sér stað.
Hver gesturinn öðrum sérstæðari sækir hótelið
heim í upphafi myndarinnar og ekki er starfsfólk
hótelsins hversdagslegra. Ekki líður á löngu þar
til mikil spenna magnast á milli persóna en vart
er á bætandi innri spennu þeirra. Það er snemma
ljóst að mikið á eftir að ganga á.
Styrkur myndcirinnar er fyrst og fremst fólginn í frábærri útlitssköp-
un. Mætti einna helst líkja henni við Delicatessen þótt Appetite sé
fjarri því að var jafn „súrrealísk". Persónurnar falla vel inn í sviðsum-
gjörðina og flestir leikaranna leysa hlutverk sín vel af hendi. Söguþráð-
urinn er spennandi og áhugaverður framan af en þegar á að fara leysa
úr hinni miklu flækju myndarinnar fer heldur að síga á ógæfuhliðina.
Lausn myndarinnar er vægast sagt ódýr og fer forvitnileg uppbygging
hennar fyrir lítið. Eftir stendur að myndin er kjörin tilbreyting frá
þorra þeirra kvikmynda sem alla jafna er að finna á hvíta tjaldinu. Er
það ekki síst við áhorf myndbanda sem þessa að maður þakkar fyrir
tilvist myndbandstækisins.
Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: George Milton. Aðalhlutverk: Ute Lemper,
Trevor Eve og Christien Anholt. Lengd: 102 mín. Bönnuð innan 12 ára.
-bæn
Dead Stop:
Hrærigrautur
★Á Samkvæmt samningi bandarísku leikstjóra-
samtakanna mega leikstjórar ekki afneita myndum
sínum þótt þeir séu óánægðir með útkomuna. Til
er sú undantekning á þessari reglu að þeir geta
skotið máli sínu til samtakanna, og ef þau meta
það svo að gerðar hafa verið svo miklar breytingar
á klippiborðinu að myndin sé gjörbreytt frá því sem leikstjórinn ætlaði,
þá má stroka leikstjórann út af kreditlistanum og setja dulnefnið Alan
Smithee í staðinn. Þessi margrómaði Alan Smithee er skráður sem leik-
stjóri myndarinnar Dead Stop, sem er undarleg mynd. Svo virðist sem
leikstjórinn hafi ætlað sér að búa til dularfullan Lynchískan smábæjar-
hrylling með slettum af Cronenberg og jafnvel smá pervertísku blóðbaði
a la Kevin J. Lindenmuth (Addicted to Murder). Myndin er hins vegar
fremur ruglingsleg og afkáraleg og nær engan veginn áhrifum í sam-
ræmi við metnaðinn, hvort sem leikstjóranum eða öðrum er um að
kenna. Hún hefði svosum aldrei oröið neitt meistaraverk, því versti
galli hennar er hinn ævintýralega lélegi leikhópur. Það má þó hafa lúm-
skt gaman af sumum atriðunum.
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Allan Smithee. Aðalhlutverk: Robert
McFaul, Chris Chinchilla, Tina Mosner og Gina Brunton. Bandarisk, 1995.
Lengd: 90 mín. Bönnuð innan 16 ára. -pj
Traveler:
Svindlarar
★★ Hér segir frá stórfjölskyldu nokkurri sem lifir
á því að svíkja fé út úr fólki með alls kyns bellig-
brögöum. Þau safnast saman i heimabæ sínum um
jólin og meðan úrslitin i hafnaboltanum standa
yfir, en annars eru þau á ferðinni að stunda sín við-
skipti“. Mark Wahlberg leikur ungan fjölskyldu-
meðlim í læri hjá Bill Paxton. Vegna fjárhagsvand-
ræða konu sem hann er hrifinn af (Julianna Margulies úr ER) samþykk-
ir Paxton djcufa áætlun gamals svikahrapps sem á vegi þeirra verður,
en það á eftir að koma þeim i koli. Þetta er sæmileg svindlaramynd sem
slík, en líöur fyrir skort á ferskum hugmyndum og tilraunamennsku.
Söguþráður, persónusköpun, kvikmyndataka og klipping er algjörlega
hefðbundin og myndin er svolítið langdregin. Þó má alltaf hafa svolítið
gaman af bellibrögðunum sem svikahrapparnir beita. Einnig standa áð-
umefndir leikarar sig mjög vel, miðað við aðstæður, en James Gamm-
on stelur þó senunni í hlutverki gamla svindlarans.
Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Jack Green. Aðalhlutverk: Mark Wahlberg,
Bill Paxton og Julianna Margulies. Bandarísk, 1997. Lengd: 101 mín. Bönn-
uð innan 16 ára. Pétur Jónasson
Martin Scorsese (borið
fram Skorsessí) er einhver
virtasti leikstjóri samtím-
ans og hefur haft gríðarlega
mikil áhrif á kvikmynda-
gerð undanfarinn aldar-
fiórðung. Hann kann manna
best að nota myndmál og
hefur skapað sinn eigin stíl
sem er afar sjónrænn. Jafn-
framt er hann mikill sögu-
maður og eitt af aðals-
merkjum hans er mikil
áhersla á persónusköpun en
þaðeru jafnan persónumar
sem drífa söguþráðinn
áfram hjá honum frekar en
aðstæður sem þær lenda í.
Þessar persónur eru gjarn-
an einfarar og/eða á skjön
við umhverfi sitt og standa
stöðugt í einhvers konar
innri baráttu.
Stíll hans er sennilega
sprottinn upp úr klassísk-
um Hollywood-kvikmynd-
um, frönsku nýbylgjunni
og neðanjarðarmenningu
sjöunda áratugarins í New
York, heimaborg Scorsese.
Margar mynda hans gerast í
New York og ófáar í Litlu-
Ítalíu, hverfinu sem hann
ólst upp í. Hann hefur aldrei
fylgt hefðbundnum gildum
HoOywood og alltaf búið til
persónuleg stílverk fremur
en myndir sem gætu höfðað
til fiöldans en þrátt fyrir
það hefur hann náð meiri
frægð en flestir þeirra sem
reyna hvað þeir geta að
þóknast fiöldanum.
Kannski er það þess vegna
sem hann hefur aldrei hlot-
ið óskarsverðlaun þrátt fyr-
ir þrjár tilnefningar fyrir
leikstjórn (Raging Bull,
Tha Last Temptation of
Christ, GoodFellas) og tvær
fyrir handrit (GoodFellas,
The Age of Innocense).
Martin Scorsese við gerð nýjustu kvikmyndar sinnar, Kundum.
Hætti við prestinn
Martin Scorsese fæddist 17. nóv-
ember 1942 í Flushing í New York.
Hann er sonur ítölsku innflytjand-
anna Charles og Catherine Scorsese
(sem ásamt honum sjálfum hafa
bæði oft komið fram í litlum hlut-
verkum í myndum hans. Margir
muna eftir móður hans í hlutverki
móður Joe Pesci í GoodFellas og
leikstjórinn sjálfur er eftirminnileg-
ur í hlutverki farþega sem hefur í
hyggju að myrða einkonu sína í
Taxi Driver). Hann ólst upp í Litlu-
ítaliu en asmi og fleiri kvillar komu
í veg fyrir að hann gæti tekið þátt í
íþróttum og hann náði því aldrei að
mynda tengsl við krakkana í hverf-
inu. Hann leitaði því á náðir kvik-
myndahúsanna í hverfinu og fékk
mikinn áhuga á kvikmyndum.
Upphaflega ætlaði hann að verða
prestur og innritaði sig í presta-
Klassísk myndbönd | Taxi Driver:____★★★★.
Eins manns krossferð leigubílstjóra
HHHH Taxi Dri-
ver markar einn af
þremur hápunktum
ferilsins hjá Martin
Scorsese og er hans
fyrsta meistara-
verk. Myndin hlaut
Gullpálmann kvik-
myndahátiðinni í
Cannes og var til-
nefnd til fernra ósk-
arsverðlauna. Ro-
bert De Niro fékk
tilnefningu sem
besti leikarinn,
Jodie Foster sem
besta leikkonan í aukahlutverki,
Bemard Hermann fyrir bestu frum-
sömdu tónlistina og myndin fékk
einnig tilnefningu sem besta mynd-
in. Þá var myndin valin besta mynd
ársins af landssamtökum gagn-
rýnenda og Robert De Niro og Jodie
Foster verðlaunuð fyrir hlutverk
sín. Myndin komst síðan aftur í
fréttirnar árið 1981 þegar John
Hinckley reyndi að myrða Ronald
Reagan, en morðtilraunin var
sprottin upp úr þráhyggju hans
gagnvart Jodie Foster og myndinni.
Mikið mæðir á Robert De Niro í
aðalhlutverkinu, en hann er í nán-
ast hverri einustu senu í myndinni.
Hann leikur Travis Bickle, sem
keyrir leigubíl á næt-
umar og fyllist við-
bjóði á „soranum" á
strætum borgarinnar.
Hann er einangraður
og á erfitt með að fóta
sig í samfélaginu. Eftir
misheppnaðar tilraun-
ir til að vinna ástir
konu sem hann hrífst
af hrakar honum and-
lega. Hann leggur upp í
eins manns krossferð
gegn sóðalegu um-
hverfi sínu og missir
sig út i draumóra um
að myrða forsetaframbjóðanda og
bjarga 12 ára gamalli vændiskonu
úr klóm hórmangara. Sagan segir
að Robert De Niro hafi unnið tólf
tíma vaktir í einn mánuð sem leigu-
bílstjóri til að búa sig undir hlut-
verkið. Hann skilar magnaðri
frammistöðu sem þessi grátbroslegi
geðsjúklingur sem er gerður að
hetju þegar hann fer endanlega yfir-
um. Þess má geta að framleiðendur
myndarinnar höfðu um tíma í huga
að fá Brian De Palma til að leikstýra
henni, en eftir aö hafa séð Mean
Streets (þar sem Scorsese leikstýrði
De Niro í fyrsta skipti), buðu þeir
Scorsese að leikstýra, með því skil-
yrði að hann fengi De Niro í aðal-
hlutverkið. Óhætt er að segja að
þeir hafi veðjað á rétta hesta.
Myndin er byggð á handriti eftir
Paul Schrader og tekst á við þemu
eins og ofbeldi og einangrun. Travis
Bickle er einmana einstaklingur,
týndur í stórborgarlifinu. Löngun
hans til að vera samþykktur af sam-
félaginu snýst upp i löngun til að
rísa yfir umhverfi sitt og gera eitt-
hvað sem geti talist merkilegt.
Myndin endar á kaldhæðnislegum
tón, þegar hinn sturlaði Travis
Bickle er gerður að hetju fyrir að
bjarga 12 ára vændiskonu, eftir
blóðugan skotbardaga þar sem hann
drepur þrjá menn, en stuttu áður
hafði hann naumlega sloppið undan
lífvörðum forsetaframbjóöanda,
sem hann ætlaði að myrða. Mynda-
taka, klipping, tónlist og leikur
tvinna saman grípandi stemningu
og gefa myndinni mjög truflað, en
þó raunsætt, yfirbragð. Myndin líð-
ur ekki auðveldlega úr minni og
hún er skylduáhorf fyrir alla þá sem
hafa áhuga á klassískum kvikmynd-
um.
Fæst í Vídeóhöliinni. Leikstjóri:
Martin Scorsese. Aðalhlutverk:
Robert De Niro, Jodie Foster, Har-
vey Keitel og Cybil Shepherd.
Bandarísk, 1976.
Lengd: 116 mín.
Pétur Jónasson