Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1998, Qupperneq 28
28
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1998
0lönd
Þegar Hollywood og raunveruleikinn renna saman í eitt:
Sprengt vegna augn-
anna hennar Monicu
„Þeir réðust á Afganistan og Súdan
fyrir Monicu Lewinsky. Og núna gera
þeir árásir á Bagdad vegna augnanna
á Monicu.“
Þannig mæltist fréttaskýranda ar-
abískrar gervihnattarsjónvarpsstöðv-
ar aðfaranótt flmmtudagsins síðastlið-
ins þegar bandariskar og breskar flug-
vélar voru í óðaönn að senda flug-
skeyti á Bagdad, höfuðborg íraks. Yf-
irlýstur tilgangur þeirrar árásar var
auðvitað að eyðileggja alla möguleika
íraka á að framleiða gereyðingarvopn
og refsa þeim fyrir að neita að vinna
með vopnaeftirlitsmönnum Samein-
uðu þjóðanna. Því trúa þó ekki allir.
Nei, það þarf ekki að fara alla leið
til Mið-Austurlanda til að finna máls-
metandi menn sem leyfa sér að draga
í efa að opinberar ástæður Bills Clint-
ons Bandaríkjaforseta fyrir flug-
skeytaárásunum sé hin eina.
í hæsta máta grunsamlegt
„Það er mjög grunsamlegt að svona
mál skuli komast á úrslitastig daginn
fyrir atkvæðagreiðslu um hvort
ákæra eigi forsetann fyrir embættis-
glöp,“ sagði repúblikanaþingmaður-
inn Bob Barr á miðvikudagskvöld.
Barr þessi er einn harðasti andstæð-
ingur Clintons forseta í fulltrúadeild-
inni og hefur lengi hvatt til þess að
hann verði ákærður og sviptur emb-
ætti.
Ekki fer hjá því að enn einu sinni
rifjist upp Hollywoodkvikmyndin
Wag the Dog sem sýnd var í reykvísk-
um kvikmyndahúsum fyrr á árinu.
Þar segir frá kvensömum forseta sem
lendir í svo miklum ógöngum vegna
kvennamálanna að eitthvað róttækt
verður að gera til að dreifa athygli al-
mennings. Spurningin er því þessi:
Var eins komið fyrir Clinton nú og
Hollywoodforsetanum?
í kvikmyndinni fá aðstoðarmenn
forsetans sérfræðing i að bjarga
klúðri stjórnmálamanna til að gera
það sem þarf. Sérfræðingurinn, sem
leikinn var af þeim ágæta Robert De
Niro, fær til liðs við sig aðra sérfræð-
inga í fjölmiðlun og saman búa þeir
til stríð við Albaníu handa forsetan-
um. Hér er áherslan á sögnina að búa
til, því stríðið var hvergi til nema í
myndveri brellumeistaranna og á
sjónvarpsskjám borgaranna. En það
dugði.
„Maður skyldi aldrei vanmeta frá-
vita forseta,“ sagði repúblikaninn
Gerald Solomon í yfirlýsingu sem
hann sendi frá sér sama kvöld og
árásimar hófust. „Hvað er hægt að
gera til að koma ákærunni til embætt-
ismissis af forsíðum dagblaðanna og
hugsanlega að fá henni frestað?"
Það er nú einmitt það sem gerðist.
Fulltrúadeildin ákvað að fresta um-
ræðum og atkvæðagreiðslu um
ákæruna á hendur forsetanum vegna
atburðanna í Bagdad.
Joe Lockhart, talsmaður forsetans,
vildi lítið segja um orð Solomons.
Ekki annað en það að ekkert fengi
hann til að tjá sig um það hvemig for-
setinn tekur ákvarðanir sínar.
Henry Hyde, formaður dómsmála-
nefndar fulltrúadeildar Bandaríkja-
þings, nefndarinnar sem samþykkti á
dögunum fjögur ákæraatriði á hendur
Clinton, var hins vegar ekki á sömu
skoðun og áðumefndir flokksbræður
hans.
„Ég tel ekki að hér sé á ferðinni
eitthvert kaldranalegt kænskubragð,"
sagði Hyde. Hann vísaði þar með til
fóðurhúsanna getgátum um að sömu
hvatir lægju að baki ákvörðun Clint-
ons um flugskeytaárásimar á Bagdad
og ákvörðun kvikmyndarforsetans
um að búa til stríð.
Kvikmyndin Wag the Dog var
frumsýnd í Bandaríkjunum fyrir ná-
kvæmlega einu ári og tveimur dögmn
betur. Hneykslismálið sem kennt er
við lærlinginn Monicu Lewinsky
komst svo í hámæli mánuði síðar.
Gerð kvikmyndarinnar lauk hins veg-
ar hálfu ári fyrr og segir talsmaður
Roberts De Niros, sem framleiddi
kvikmyndina jafnframt því að leika
aðalhlutverkið, að það væri algjör til-
viljun að hægt væri að finna líkindi
með myndinni og hneykslismálinu í
Hvíta húsinu.
Sprengt hér og þar
Engu að síður var þegar farið að
tala um tengsl raunveruleikans og
skáldskaparins í febrúar á þessu ári
Bill Clinton Bandaríkjaforseti var brúnaþungur eftir að hann hafði skýrt
þjóðinni og heimsbyggðinni frá því að hann hefði fyrirskipað flugskeyta-
árásir á Bagdad, höfuðborg íraks, á miðvikudagskvöld.
þegar Clinton var borinn þungum
sökum um að hafa gerst sekur um
meinsæri í tengslum við kynlifsævin-
týri sín. Á sama tíma vofðu líka árás-
ir yfir írökum vegna þess hve þeir
vora ósamvinnuþýðir við vopnaeftir-
litsmenn Sameinuðu þjóðanna. Ekk-
ert varð þó af árásum þá.
Sömu sögu er ekki að segja í ágúst.
Þá var rykið dustað af myndinni eina
ferðina enn. Um það leyti hafði Clint-
on borið vitni fyrir ákærukviðdómi
Kenneths Starrs, sérlegs saksóknara í
málinu, og um fátt var annað talað í
fjölmiðlum og á mannamótum. Og
hvað gera bændur þá? Jú, grípa til
hemaðaraðgerða.
Hvort sem það er nú tilviljun eður
ei, réðust bandariskar flugvélar á
bækistöðvar hryðjuverkamanna, eins
og það var kallað, í bæði Afganistan
og Súdan nokkrum dögum eftir vitnis-
burð Clintons. Þær árásir vom sagðar
gerðar í hefndarskyni fyrir mjög
mannskæð sprengjutilræði við sendi-
ráð Bandaríkjanna í bæði Keníu og
Tansaniu.
Byggt á Reuter o.fl.
Borð og 6 stólar......kr. 69.000
Skenkur...............kr. 29.700
Glerskápur............kr. 28.800
T I L B 0 Ð
Skrifborð
TILBOÐ
48.500)
Fallegir
sjónvarpsskápar 378
fyrir stór tæki
TOLVIJBORÐ
H -79
B-95 Jgg
D-55 1 „
'kr. 12.900)
Tölvuborð á hjólum þar sem
allt er á einum stað
Fáanlegur með örmum.
Níðsterkur vinnuþjarkur með
' mjóbaksstuðningi, gaslyftu
íkr~9 500) 09 stillanleðu baki-
B-159/153
Beykilinan P ~ 61/dS_
H0RNSKR1FB0RÐ
,kr. 18.700)
Hirzlan
Verö á tilboðum miöast viö staögreiöslu
DIF