Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1998, Síða 37
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1998
Ásta Vilhjálmsdóttir er lærður klæðskeri. Hún saumar og afgreiðir í nýju
búðinni sinni.
Nælon og jarðarber
Á þriðjudagskvöld stóð verslunin
Nælon og jarðarber fyrir nýstárlegri
tískusýningu. Módelin voru ekki
stúlkur sem líkjast leikkonunum í
Baywatch. Þær voru að sjálfsögðu foxi
og sætar en það var eitthvað alvarlega
mikið á milli eyrnanna á þeim og
meira á milli handanna. í höndunum
höfðu þær nefnilega nýútkomin verk
sín. Þetta var landslið kvenna í skáld-
sagnagerð. Allur aldur leyfilegur. Al-
vöru íslenskar konur með sín sérein-
kenni hvað útlit og klæðaburð varðar.
Eina sem þær áttu sameiginlegt var
að vera módel í eitt kvöld. Þeir fengu
að ganga ganginn, eins og ef-
laust er sagt í bransanum.
Bak við sýninguna stóð eins
og fyrr sagði ný verslun sem
greinilega fer ótroðnar slóðir
hvað kynningu á búðinni
varðar.
Hvaöan kemur nafnið,
Nælon og jarðarber?
„Það er nú svolítið erfltt
að segja frá því,“ segir Ásta
Vilhjálmsdóttir, einn aðal-
eigandi búðarinnar, sem er
beint fyrir aftan Búnaðar-
bankann við Hlemm. „Við
vorum búin að vera að vand-
ræðast með nafn og þau
vandræði enduðu á þvi að við skrifuð-
um nokkrar tillögur á miða og svo dró
dóttir mín þessa tillögu úr bunkan-
um.“
Hvernig búð er þetta?
„Þetta er saumastofa og verslun fyr-
ir framan hana. í versluninni erum
við að selja það sem við búum til hér
í bland við innflutt fót.“
Er hægt að mæta og fá saumað á sig
eftir pöntun?
„Já. Hér er hægt að fá allt gert. Ég
er klæðskeramenntuð og við saumum
fót á alla, líka eftir pöntunum."
En hvernig kom það til að þú fórst
út í atvinnurekstur?
„Siðan ég kláraðf að læra hefur
þetta verið draumurinn. Það eru held-
ur ekki mörg atvinnutækifæri í þessu
fagi hér á landi. Áður var ég að vinna
hjá Kápusölunni og þegar hún, eig-
andinn, fór að draga saman hjá sér þá
ákvað ég að slá til og opna mína eigin
verslun."
Búðin var opnuð í lok nóvember en
Ásta hefur verið að sauma þarna frá
því í febrúar.
„Hér er saumað fyrir kóra, sak-
sóknara, einstaklinga og jafnvel fyrir
aðrar búðir,“ segir Ásta og þarf að
drífa sig aftur að vélinni. Augljóst að
Nælon og jarðarber samanstendur af
iðnum konum. -MT
Skáldkonurnar Vigdís Grímsdóttir, Kristín
Ómarsdóttir og Auður Jónsdóttir sýndu föt frá
Næloni og jarðarberjum í Kaffileikhúsinu síð-
astliðið þriðjudagskvöld.
^OO^n^ningarsalur
Opið virka daga 9-18
Laugardaga 10-16
Sunnudaga 14-16
TM - HÚSGÖGN
Síðumúla 30 - Sfmi 568 6822
W
HAGKAUP
í stofu
HAGKAUP(öý vísir.is
GEFST LITILL TIMI TIL AD VE
Þá er lausnin hér.
Þú ferð inn á www.visir.is og
velur að versla í netverslun
Hagkaups, skoðar úrvalið,
pantar það sem hugurinn
girnist og færð vörurnar
sendar heim.
Gerðu innkaupin á einfaldan
og skjótan hátt.
Þú færð úrval bóka,
geisladiska, myndbanda,
spila og tölvuleikja á
Hagkaupsverði.
FÍ Karfa
Meira úrval
betra verð!
HAGKAUP@WÍS i r. Í
www.visir.is