Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1999, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1999
Fréttir
Skoðanakönnun DV um flutning Reykjavikurflugvallar:
Meirihluti vill
flytja flugvöllinn
- SkerjaQörður oftar nefndur en Keflavíkurflugvöllur
Á að flytja flugvöllinn?
Meirihluti kjósenda vill flytja
Reykjavíkurflugvöll úr Vatnsmýr-
inni. Meðal þeirra sem vilja flutn-
ing er Skerjafjörður oftar nefndur
en Keflavíkurflugvöllur þegar kem-
ur að því að velja Reykjavíkurflug-
velli nýjan stað. Þetta eru helstu
niðurstöður skoðanakönnunar DV
sem gerð var á mánudagskvöld.
Úrtakið í könnuninni var 600
manns, jafnt skipt milli höfuðborg-
ar og landsbyggðar sem og kynja.
Spurt var: Ertu fylgjandi eða and-
vígur flutningi Reykjavíkurflugvall-
ar? Þeir sem voru fylgjandi voru
síðan spurðir hvort þeir vildu að
flugvöllurinn yrði fluttur 1 Skerja-
fjörð eða á Keflavíkurflugvöll.
Af öllu úrtakinu voru 49,2% fylgj-
andi flutningi Reykjavíkurflugvall-
ar en 30,3% andvíg. 15,8% voru óá-
kveðin meðan 4,7% svöruðu ekki
spurningunni.
Ef einungis er litið á þá sem af-
stöðu tóku voru 61,8% fylgjandi
flutningi en 38,2% andvíg.
Þegar afstaða kynjanna er skoðuð
kemur í ljós að 63% kvennanna
voru fylgjandi flutningi en 60,7%
karlanna. Ekki var marktækur
munur á afstöðu milli íbúa höfuð-
borgarsvæðis og landsbyggðar.
Fleiri vilja Skerjafjörð
50,2% þeirra sem voru fylgjandi
flutningi Reykjavíkurflugvallar
nefndu Skerjafjörð meðan 42,7%
nefndu Keflavíkurflugvöll þegar
spurt var um hvert fólk vildi að
flugvöllurinn yrði fluttur. í þessum
hópi voru 5,1% óákveðin og 2%
svöruðu ekki.
Af þeim sem tóku afstöðu til
framhaldsspurningarinnar nefndu
54% Skerjafjörð en 46% Keflavíkur-
flugvöll.
Lítill munur er á afstöðu kynj-
anna varðandi nýja staðsetningu.
52,4% karla nefndu Skerjafjörð en
55,7% kvenna.
Munurinn er meiri þegar afstaða
er geind eftir búsetu. 56,9% íbúa á
landsbyggðinni nefndu Skerjafjörð
meðan 51,1% íbúa höfuðborgar-
svæðisins nefndu þann kost.
Ummæli
Fram kom í ummælum fólks í
könnuninni að ekki væri gott að
vera með flugvöll i miðri borg. Karl
á Norðurlandi sagði: „Ef það kemur
að stóra slysinu munum við kenna
sjálfum okkur um. Það getur enginn
sagt mér að flugvélar sem fljúga
þvers og kruss yfir borginni geti
ekki hrapað eins og aðrar flugvél-
ar.“ Kona i Vestmannaeyjum sagði:
„Ég vil ekki þurfa að keyra frá
Keflavík í 40 mínútur eftir 15-20
mínútna flugferð." Maður á Austur-
landi sagði: „Það er ekki gott ef
ferðalagið hjá manni er lengt meira
en nú er, því vil ég frekar sjá flug-
völlinn í Skerjafirði." -hlh
Nýtt hættumat skilgreinir helming Bolungarvíkur á hættusvæði:
Þetta er hneyksli
- engar sagnir um snjóflóð, segir Valdimar Lúðvík Gíslason
„Mér flnnst bara eitt orð til yfir
þetta: Fáránlegt," sagði Valdimar
Lúðvík Gíslason, íbúi í Bolungarvík,
um nýtt hættumat og tillögur að snjó-
flóðavömum sem nú er búið að setja
fram i áfangaskýrslu fyrir byggðina í
Bolungarvík. Þar kemur fram að allt
að 500 Bolvíkingar búi á hættusvæði
vegna snjóflóða.
„Það em engar sagnir til um það í
Bolungarvík að þama hafi fallið snjó-
flóð. Það hafa aldrei komið snjóflóð
ofan úr fjalli. Þetta kemur niður úr
miðri hlíðinni þegar lausamjöll sest á
harðan snjó. Þá geta dottið þama nið-
ur þrepahlaup, sem við köllum. Það
man ekki nokkur maður eftir flóðum
fyrir ofan Ufsir,“ segir Valdimar.
í skýrslunni er gert er ráð fyrir að
grafa þurfi risaskurð fyrir allt að
milljarð króna ofan viö byggðina til
að tryggja öryggi íbúanna.
„Hver á að halda honum opnum?
Þetta fyllist strax af snjó á haustin.
Það hefur ekki tekist að halda rásun-
um fyrir ofan veginn í Óshlíðinni
hreinum og ég hef enga trú á að það
verði hægt þama. Ég held að þetta sé
það mesta ólán sem maður hefur séð
frá opinberri stofnun. Hver stendur í
stórhrið og mokar þennan skurð þeg-
ar hættan er mest? Maður er bara
orðlaus," segir hann.
„Fyrir ofan Bolungarvík í Traðar-
hymunni yfir byggðinni er flallsegg
sem hægt er að sitja klofvega á. Þar
myndast aldrei hengjur og það hefúr
enginn maður séð. Um leið og hreyfir
vind hreinsar hann alla hlíðina. Við
erum búnir að vera þama með skíða-
land nú sennilega í tuttugu ár og það
eru alltaf vandræði vegna snjóleysis.
Ég ræddi við menn sem búið hafa
þarna í áratugi og þeir hafa aldrei
heyrt talað um þetta. Það er engin snjó-
Valdimar Lúðvík Gíslason er síður
en svo ánægður með matið.
DV-mynd Hörður
flóðahætta í Bolungarvík utanvert við
Tröð. Þá getur sigið úr hhðinni snjór
undan eigin þunga en það em engin
snjóflóð í mínum skilningi," sagði
Valdimar Lúðvík Gíslason. -HKr.
Sala Olíufélagsins og VÍS á Búlandstindi:
Gegn anda samkomulags
- segir Jóhann Þór Halldórsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri
„Með sölu meirihluta Búlandstinds
til Grindavíkur er verið að ganga gegn
anda þess samkomulags sem menn
gerðu þegar Búlandstindur keypti
hraðfrystihúsið á Breiðdalsvík og
kvóta 1995. í því samkomulagi fólst að
vinnslu skyldi haldið áfram á staðnum
og útgerð frekar efld en hitt þegar fram
liðu stundir."
Þetta segir Jóhann Þór Halldórsson
sem var framkvæmdastjóri Bú-
landstinds þegar fyrirtækið keypti
kvóta og frystihús Breiðdælinga. í
sama streng hafa margir viðmælenda
DV á Breiðdalsvík tekið.
Eins og fram kom í um-
fjöllun DV i gær róa Breið-
dælingar nú lífróður til að
koma atvinnu á staðnum
varanlega af stað á nýjan
leik. Hún stöðvaðist þegar
nýir meirihlutaeigendur Bú-
landstinds ákváðu að hætta
að landa afla á Breiðdalsvík.
Það voru Vátryggingafélag
íslands og Olíufélagið sem
seldu Vísi í Grindavík hlut í
Búlandstindi þannig að Vís-
ir á nú meirihluta fyrirtæk-
isins.
Jóhann Þór
Halldórsson,
fyrrverandi
framkvæmda-
stjóri Bú-
landstinds.
Tilgangurinn með sölu
Hraðfrystihúss Breiðdals-
víkur til Búlandstinds á sín-
um tíma var að veija svæð-
ið, að sögn Jóhanns. Fyrir
hefði legið að selja kvóta og
skip í burtu. Því hefði verið
um neyðarráðstöfun aö
ræða.
„Tilgangur heimamanna
með þessari ráðstöfun var
að treysta byggð í sínu hér-
aði. Ég vann alla tíð í anda
þeirra samtala sem fóru á
milli manna á þessum tíma,
sem var að halda áfram rekstri á
Breiðdalsvík. Jafnframt myndu
menn efla útgerðina þegar tækifæri
gæfist til. Stjóm Búlandstinds stað-
festi þessa stefriu i sumar þegar ný
stefnumótum var samþykkt fyrir fyr-
irtækið. Sú stefrmmótim fól m.a. í sér
að bolfiskvinnsla á Breiðdalsvík yrði
efld og skip og kvóti keypt til þeirra
verka. Jafnframt átti að sérhæfa
frystihúsið á Djúpavogi í uppsjávar-
fiski og saltfiski. Hvers vegna menn
gripu til þess óyndisúrræðis að selja
meirihlutann í Búlandstindi suður er
gjörsamlega óskiljanlegt." -JSS
Stuttar fréttir i>v
Flateyrarskýrsla á Vísi
Skýrsla Guð-
jóns Petersens,
fyrrum forstjóra
Almannavama,
Hið þögla stríð
með óbærilegum
biturleika biðar-
innar, er birt í
heild sinni á Net-
miðlinum Visir is. Skýrslan fjallar
mn eftirköst snjófljóðanna á Flateyri
fyrir fómarlömb hörmunganna. Sagt
var frá innihaldi hennar í DV fyrir
nokkru. Slóðin er www.visir.is.
Garðar Thor á West End
Hinn ungi íslenski söngvari, Garð-
ar Thor Cortes, hefur fengið hlutverk
í söngleik sem fluttur er í West End í
Lundúnum. Garðar Thor söng meðal
annars í óperunni Carmen Negra í ís-
lensku Óperunni í sumar og i söng-
leiknum West Side Story í Þjóðleik-
húsinu fyrir fáum árum.
Kafbátur
Rannsóknaráö veitti í gær Hafmynd
6 miiljóna króna styrk til að þróa
áfram lítinn fjarstýrðan rannsóknakaf-
bát. Hann er ætlaður til að rannsaka
ástand sjávar og lífrikis hans.
Minkur og hænsnahús
Davið Oddsson forsætisráöherra
sagði í gær á fundi á vegum Versl-
unarráðs ekki óhætt að fela land-
stjómina öflum sem lofa öllum öllu.
Það væri eins og að gefa mink lykla
að hænsnahúsi. Góðærið yrði að
varðveita umfram allt.
Páll víttur
Páll Pétursson
félagsmáiaráð-
herra sætti mik-
illi gagnrýni á
Alþingi í gær
vegna ummæla
hans um kenn-
ara á þingi á dög-
unum inn að
framganga þeirra í kjaramálum
hefði komið sveitarfélögum í gár-
hagsvanda.
Vilja skoða ESB
49% íslendinga vilja að hafiiar
verði viðræður við Evrópusamband-
ið um aðild íslands að þvi. Þetta
kemur fram í skoðanakönnun sem
Verslunarráð íslands lét gera og birt
var á ráðstefhu þess í gær. Einungis
20% vom ósammála eða mjög ósam-
mála þvi að hefja viðræður. Yngra
fólk ög háskólamenntað vill fremur
en aðrir að aðfld að ESB verði könn-
uð. Bylgjan sagði frá.
Bjarni Thor til Wiesbaden
Bassasöngvarinn Bjami Thor
Kristinsson hefur veriö ráðinn til að
syngja hlutverk Ochs baróns í Rósa-
riddaranum eftir Strauss í óperunni
í Wiesbaden í Þýskalandi á næsta
leikári. Morgunblaðið sagði frá.
Dulbúinn Rússafiskur
Ríkislögreglusfjóri hefur höfðað
mál á hendur þremur fyrrverandi
stiómendum Fiskiðju Sauðárkróks
fyrir að hafa skráð Rússafisk sem is-
lenskan fisk í útflutningsskýrslur og
losnað þannig við að greiða um 10
mflljónir króna í aðflutningsgjöld
inn á EES-markað. Morgunblaðið
sagði frá.
Sjónvarpsver
Bjöm Emilsson, dagskrárgerðar-
maður hjá Sjónvarpinu, o.fl. hyggj-
ast reisa 5000 fermetra sjónvarpsver
á lóð Ríkisútvarpsins við Efstaleiti.
Áætlaður kostnaður er 5-600 millj-
ónir króna. Innlendir og erlendir að-
ilar leggja fé í verkefnið. Sjónvarpið
sagði frá.
Fá að
Ákveðið hefur
verið að leyfa
Leiklistarkóla ís-
lands að vera
áfram í Lindar-
bæ til 15. maí, en
til stóð að Hag-
stofan flytti
þangað inn. Eftir
það er ætlunin að koma honum fyr-
ir í kjallara Landssmiðjunnar við
Sölvhólsgötu. Skólinn getur því lok-
ið starfsári sínu og sett upp lokasýn-
ingu sina í húsinu. Þetta kom fram í
máli Bjöms Bjamasonar mennta-
málaráðherra á Alþingi í gær.
-SÁ
vera