Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1999, Side 21
20
FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1999
FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1999
21
íþróttir
Latrell Sprewell, hinn nýi liðsmaö-
ur New York í NBA-deildinni i körfu-
knattleik, er kominn á sjúkralistann
og verður frá naestu 6 vikurnar vegna
meiðsla í hæl. Sprewell er frægastur
fyrir að hafa slegið þjálfara Golden
State i andlitið á æfingu liðsins fyrir
tveimur árum og fékk fyrir vikið 14
mánaða keppnisbann.
Miami Heat varð lika fyrir áfalli i
vikunni þegar Voshon Leonard og
Jamal Mashburn urðu báðir fyrir
meiðslum. Mashburn verður frá i
tvær vikur en Leonard í 8-10 vikur
þar sem hann þarf að fara í upp-
skurð.
Faruk Hadzibegic var í gær ráðinn
landsliðsþjálfari Bosníumanna í
knattspymu. Hadzibegic var fyrirliði
landsliðs Júgóslaviu sem náði langt á
HM á Ítalíu 1990.
Bjarni Magnússon og Brynjar Sig-
urösson eru hættir að spila með ÍA í
úrvalsdeildinni í körfuknattleik.
Skagamenn sögðu upp samningum
sínum við þá vegna fjárhagserfið-
leika.
Anders Giske, þjálfari norska knatt-
spymuliðsins Brann, var ekki ánægð-
ur með frammistöðu Stefáns Þ.
Þóröarsonar þegar liðið gerði 2-2
jafntefli við Stabæk á Spáni í fyrra-
dag. Giske sagði við Bergensavisen
aö Stefán hefði átt að skora funm
mörk i fyrri hálfleik, svo illa hefði
hann farið með tækifærin. Stefán
gerði eitt mark í leiknum.
Valur Fannar
Gíslason, knatt-
spymumaður hjá
Strömsgodset i
Noregi, lék
reynsluleik með
Örgryte i Svíþjóð
í gær en liðið
vann þá Hacken,
6-1. Valur lék
bæöi á miðju og í vöm og stóð sig
vel.
Gunnar Einarsson knattspyrnumaö-
ur, sem hefur leikið með MVV
Maastricht í Hollandi, er kominn á
ný til Roda, þriðja efsta liðsins í hol-
lensku A-deildinni. Gunnar hefur
verið á leigu hjá MVV í tvö ár, eða-
siðan hann samdi við Roda í ársbyrj-
un 1997.
föjjj ENGLAND
B-deildarlióiö Watford, lið Jóhanns
B. Guómundssonar, hefur fengið
liðsstyrk fyrir lokasprettinn í B-deild-
inni. Tony Daley, útheijinn snjalli
sem lék með Aston Viila og Wolves,
hefur samiö viö Watford út þessa
leiktíð. Daley hefur gengið í gegnum
mikil meiðsli á sínum ferli en er all-
ur að braggast. Hann mun verða
Watford góður styrkur enda félagið í
harðri baráttu um að komast í A-
deildina.
Marcel Desailly, franski landsliös-
maðurinn hjá Chelsea, sagði i samtali
við blaðið L’Equipe í gær að það væri
of mikil harka í ensku knattspyrn-
unni. „Ég verð sjálfur að spila af
hörku, annars er bara valtað yfir
mig,“ sagði Desailly, sem hefur ekki
verið þekktur fyrir neina linkind til
þessa.
Franck Leboeuf, félagi Desaillys í fé-
lagsliði og landsliði, lét lika til sín
heyra og sagði i viðtali við France
Football að hann vildi fá hærri laun
hjá Chelsea. „Ken Bates segist hafa
gert bestu kaup ævinnar þegar hann
fékk mig. Ég fékk góðan samning þeg-
ar ég kom, hann hefur veriö hækkað-
ur um helming, og ég vonast til þess
að fá aðra heimingshækkun innan
skamms. Ef ekki, fer ég að hugsa mér
til hreyfings," sagði Leboeuf.
-GH/VS
Þór A. Fylkir 14 14 11 10 2 3 1 369-263 24 1 389-274 23
Vikingur 12 8 3 1 335-234 19
Breiöablik 13 6 1 6 326-310 13
Fjölnir 14 5 2 7 334-320 12
Hörður 13 3 1 9 263-334 7
Völsungur 12 3 1 8 246-320 7
Ögri 14 0 1 13 227-434 1
KR 15 15 0 1124-695 30
ÍS 15 11 4 897-750 22
Keflavík 15 9 6 864-828 18
Njarðvík 15 4 11 763-1058 8
Grindavík 15 4 11 746-870 8
ÍR 15 2 13 766-959 4
Linda Stefánsdóttir skoraði 13 stig fyrir KR sem vann ÍR af
öryggi en þó með minni mun en búast mátti við.
DV-mynd Hilmar Þór
1. deild kvenna í körfuknattleik:
ÍS aftur á ról
- öruggir sigrar KR, ÍS og Keflavíkur
ÍS komst aftur á ról í 1. deild
kvenna eftir bikartapið gegn
KR með því að
vinna 20 stiga sig-
ur, 67-47, i Njarðvík
en 3 efstu liðin
unnu öll í gær ör-
ugglega og staða
deildarinnar breytt-
ist ekkert.
ÍS vann sinn sjö-
unda KR-lausa leik
í röð og allir leik-
menn liðsins fengu
að njðta sín í Njarð-
vík. Sjö leikmenn
skoruðu 5 stig eða
meira. Hin úkra-
ínska Liliya Sushko
Signý Hermanns-
dóttir lék vel með ÍS í
Njarðvík.
kann
greinilega best við sig á Suður-
nesjum en hún gerði 18 stig í
gær. Signý Hermannsdóttir
var einnig sterk, gerði 11 stig,
tók 14 fráköst og gaf 5
stoðsendingar. Alda Leif Jóns-
dóttir átti 6 stoðsendingar, stal
6 boltum og varði 3 skot auk 8
stiga. Hjá Njarðvík snerist
leikur heimamanna um Kerri
Chatten og Rannveigu Rand-
versdóttur sem gerðu 35 af 47
stigum og tóku 35 af 52 skotum
Njarðvíkur í leiknum. Chatten
tók 14 fráköst og hitti úr 15 af
18 vítum sínum í leiknum en
hún fiskaði 13 af 22 villum sem
ÍS fékk á sig.
Stig Njarðvíkur: Kerri Chatten
25, Rannveig Randversdóttir 10,
Eva Stefánsdóttir 4, Arndís Sigurð-
ardóttir 3, Pálína Gunnarsdóttir 3,
Berglind Kristjánsdóttir 2.
Stig ÍS: Liliya Sushko 18, Signý
Hennannsdóttir 11, Kristjana
Magnúsdóttir 11, Alda Leif Jóns-
dóttir 8, Lovísa Guðmundsdóttir,
María Leifsdóttir 6, Georgia Kristi-
ansen 5.
Átjándi sigurinn í röð
KR vann sinn 18. sigur í röð
á ÍR í Seljaskóla, 78-53. KR-lið-
ið lék án hins ísraelska leik-
manns Limor
Mizrachi sem er
heima í fríi en ÍR-
stóð nokkuð í hin-
um nýkrýndu bik-
armeisturum. Guð-
björg Norðfjörö
var mjög góð, skor-
aði 23 stig, tók 12
fráköst og stal 6
boltum í leiknum.
Stig ÍR: Sóley Sig-
urþórsdóttir 15, Gréta
Grétarsdóttir 13, Hild-
ur Sigurðardóttir 13,
Guðrún Sigurðardótt-
ir 10, Jófríöur Hall-
dórsdóttir 2.
Stig KR: Guðbjörg Norðfjörð 23,
Hanna Kjartansdóttir 17, Linda
Stefánsdóttir 13, Sigrún Skarphéð-
insdóttir 10, Helga Þorvaldsdóttir 9,
Kristín Jónsdóttir 2, María Guð-
mundsdóttir 2, Sólveig Ragnars-
dóttir 1, Þóra Bjamadóttir 1.
Margar efnilegar
Keflavík sigraði Grindavík
nokkuð örugglega, 56-32, þegar
liðin mættust í Keflavík í gær-
kvöldi.
Keflavík spilaði sterkan
vamarleik allan leikinn og þá
sérstaklega í fyrri hálfleik og
leiddi þá 24-15. Allir leikmenn
beggja liða fengu að spreyta
sig í þessum leik og var gaman
að sjá hve margar ungar og
efnilegar stelpur eru í þessum
liðum.
Stig Keflavíkur: Birna Val-
garðsdóttir 12, Anna María Sveins-
dóttir 11, Tanya Sampson 10, Krist-
ín Blöndal 9, Kristín Þórarinsdóttir
6, Marín Karisdóttir 2, Svava Stef-
ánsdóttir, Birna Guðmundsdóttir 1.
Stig Grindavíkur: Stefanía Ás-
mundsdóttir 11, Sólný Pálsdóttir 7,
Sólveig Gunnlaugsdóttir 7, Rósa
Ragnarsdóttir 5, Alexandra Sini-
akova 2. -ÓÓJ/BG
Yfirburðir
- tvö frá Anelka og auðveldur sigur Frakka á Wembley
Frönsku heimsmeistaramir sýndu sitt til að ákveða sem fyrst hver yrði með liðið undir getu. Anelka sýndi að hann
Frönsku heimsmeistaramir sýndu sitt
rétta andlit á Wembley-leikvanginum í
London í gærkvöld þegar þeir unnu tiltölu-
lega auðveldan sigur á Englendingum, 0-2.
Nicolas Anelka, miðherjinn ungi frá Ars-
enal, skoraði bæði mörkin með sjö mínútna
millibili eftir miðjan síðari hálfleik. Rétt
áður hafði hann átt þrumuskot í þverslána
og niður og sjónvarpsmyndir sýndu að bolt-
inn fór inn fyrir ensku marklínuna.
Englendingar ógnuðu aðeins til að byrja
með. Fabian Barthez varði naumlega frá
Michael Owen og Martin Keown skaut yfir
úr góðu færi, en þar með var það búið.
Frakkar tóku völdin og réðu ferðinni til
leiksloka.
Fyrsti og síðasti leikur
Wilkinsons?
Howard Wilkinson stýrði enska liðinu í
fyrsta skipti, og ekki er ólíklegt að það hafi
um leið verið það síðasta. Eftir leikinn
hvatti hann enska knattspymusambandið
til að ákveða sem fyrst hver yrði með liðið
áfram því geysilega mikilvægur Evrópu-
leikur væri fram undan gegn Pólverjum
þann 27. mars. „Við vorum lakari aðilinn í
kvöld. Stundum verður maður að viður-
kenna slíkt og segja að betra liðiö hafi sigr-
að,“ sagði Wilkinson.
Erfiðir í fyrri hálfleik
Frakkar höfðu aldrei áður unnið Eng-
lendinga á Wembley og aldrei áður skorað
mark í fimm viðureignum liðanna á þess-
um velli.
„Við börðumst vel fyrir þessum sigri.
Englendingar voru erfiðir í fyrri hálfleik en
við vorum einfaldlega betri. Við erum stolt-
ir af okkar leik í kvöld,“ sagði Franck Le-
boeuf, franski varnarmaðurinn hjá Chel-
sea, eftir leikinn.
Vonbrigði með Englendinga
„Við spiluðum frábærlega en ég varð fyr-
ir vonbrigðum með enska liðið sem spilaði
undir getu. Anelka sýndi að hann á heima
í fremstu víglinu hjá okkur,“ sagði
Zinedine Zidane, sem lék mjög vel á
miðjunni hjá Frökkum og átti drjúg-
an þátt í báðum mörkunum.
Lið Englands: Seaman (Mar-
tyn 46.) - Dixon (Ferdinand
72.), Adams, Keown (Wil-
cox 85.), Le Saux - Beck-
ham, Ince, Redknapp
(Scholes 85.), Anderton
- Owen (Cole 66.), She-
arer.
Lið Frakklands:
Barthez - Thuram,
Blanc (Leboeuf 46.),
Desailly, Lizarazu -
Deschamps (Candela
90.), Petit, Zidane,
Djorkaeff - Pires
(Dugarry 46.), An-
elka (WUtord 83.) j
-VS
Iþróttir
Bikarúrslitin
í handbolta
Bls. 22 og 23
Nicolas Anelka, hinn 19 ára gamli sóknarmaður frá Arsenal,
sýndi og sannaði að hann er síðasti hlekkurinn sem vantaði í
hið sterka franska heimsmeistaralið. Frakkar urðu
heimsmeistarar án þess að vera með afgerandi
markaskorara, en nú er hann fundinn,
væntanlega í eitt skipti fyrir öll.
Anelka gerði bæði mörk Frakka í
gærkvöld og var óheppinn
að skora ekki þrennu því
löglegt mark hans var
ekki tekið gilt.
Reuter
Þýski handboltinn:
Essen og Magde-
burg í undanúrslit
íslendingaliðin Essen
og Magdeburg komust i
gærkvöld í undanúrslit
þýsku bikarkeppninnar í
handknattleik ásamt
Essen og Kiel. í undanúr-
slitum í Hamborg 27.
mars leikur Magdeburg
við Kiel og Essen við
Lemgo og sigurvegaram-
ir mætast í úrslitaleik á
sama stað daginn eftir.
Essen marði sigur á B-
deildarliði Nordhom,
29-28, eftir tvær fram-
lengingar. Stefan Hecker tryggði
Essen sigurinn þegar hann varði
vítakast á lokamínútunni en hann
varði 22 skot í leiknum og þar af
þrjú vítaköst. Páll Þórólfsson skor-
aði ekki fyrir Essen og Patrekur Jó-
hannesson er enn frá vegna meiðsla.
Magdeburg burstaði B-deiIdarlið
Ólafur Stefánsson
skoraði 4 mörk í
gærkvöld.
Dormagen, 26-17, eftir að
hafa komist í 11-2. Ólafur
Stefánsson skoraði 4
mörk fyrir Magdeburg en
Héðinn Gilsson gerði 4
fyrir Dormagen og Daði
Hafþórsson 1.
Kiel vann Dutenhofen,
29-22, og Lemgo vann B-
deildarlið Bielefeld,
34-25.
í A-deildinni gerðu Nett-
elstedt og Niederwúrz-
bach jafntefli, 28-28, og
Gummersbach vann
Schutterwald, 28-23.
Hameln, lið Alfreðs Gíslasonar,
burstaði Herdecke, 28-14, og er efst í
norðurriðli B-deildarinnar með 47
stig í 24 leikjum. Nordhom er með
46. Hameln er eina taplausa liðið í
tveimur efstu deildimum.
-VS
Sparaði 210 milljónir
- eru umboðsmenn óþarfir?
Bakvörðurinn Ray Allen hefur
skrifað undir sex ára samning við
Milwaukee Bucks.
Allen fær um 500 milljónir króna
á samningstímanum en hann er tal-
inn með efnilegri mönnum í NBA-
deildinni í körfubolta um þessar
mundir.
Allen verður launahæsti leikmað-
ur Milwaukee frá upphafi. Samning-
ur hans við Milwaukee er sérstakur
EM kvenna:
Byrjað í
Úkraínu
Samið hefúr verið um leik-
daga í Evrópukeppni kvenna-
landsliöa í knattspymu en þar er
ísland í 3. riðli með Úkraínu,
Italíu og Þýskalandi.
Dagsetningarnar á leikjum ís-
lenska liðsins em sem hér segir:
Úkraína-Ísland..22. ágúst 1999
Ísland-Ítalía ... 22. september 1999
Þýskaland-ísland .. 14. október 1999
Italía-Ísland.....7. júní 2000
Ísland-Þýskaland .... 17. ágúst 2000
Ísland-Úkraína .22. ágúst 2000
Efsta liðið fer beint í úrslita-
keppni EM sem fram fer um
mánaðamótin júni-júlí árið 2000
en liðin í 2. og 3. sæti leika auka-
leiki um laus sæti í úrslita-
keppninni við lið í riðli 2 en þar
eiga sæti Noregur, England,
Portúgal og Sviss. Liöið sem
hafnar í neðsta sætinu leikur
aukaleiki um fall í annan styrk-
leikaflokk við sigurvegarann úr
riðli 7 en þar eiga sæti Hvíta-
Rússland, Rúmenía, Eistland,
ísrael og Slóvakía. -GH
fyrir þær sakir að umboðsmaður
kom þar hvergi nærri. Stráksi sá
einn og sér um samningaviðræðum-
ar við Herb Kohl, eiganda
Milwaukee. Þessi fyrirhyggja spar-
aði leikmanninum litlar 210 milljón-
ir króna. Allen hefur getið sér gott
orð i kvikmyndaleik en hann skor-
aði 19,5 stig að meðaltali fyrir
Milwaukee á síðustu leiktíð.
-SK
Fylkir fellur í 2. deild
- óháð stigafjölda liðsins í vetur
Nú liggur það ljóst fyrir að lið
Fylkis fellur úr 1. deild karla í körfu-
knattleik í vor, óháð því hversu
mörg stig félagið fær í deildinni.
Eins og fram hefur komið hefur
körfuknattleiksdeild Fylkis átt í erf-
iðleikum. Allt stefndi í að starf
deildarinnar legöist af en eftir viö-
ræður aðalstjómar Fylkis og KKÍ
var ákveðiö að þessir aðilar tækju
saman höndum til að tryggja rekstur
deildarinnar fram á vor.
Eftir þann tíma verður rekstur og
skipulag deildarinnar endurskoðað.
Stuðningur KKÍ felst í því að lána
Jón Kr. Gíslason landsliðsþjálfara til
Fylkis fram á vor og mun hann stýra
liðinu í þeim leikjum sem eftir era
ásamt því að stjórna æfingum.
Körfuknattleiksdeild Fylkis hefur
samþykkt það skilyrði KKÍ fyrir
veittri aðstoð að deildin muni ekki
senda lið í 1. deild að ári heldur taka
þátt í 2. deild. Ástæðan fyrir skilyrði
sem þessu af hálfu KKÍ er að sam-
bandið getur ekki hjálpað einu félag-
inu sem er í fallbaráttu við önnur lið
innan KKÍ. -GH
Skíðagöngukennsla SKI:
Mikill áhugi á
Austurlandi
Skíðagöngukennarar Skíða-
sambands íslands hafa undanfar-
ið verið á Austurlandi og ljóst að
áhugi fyrir skíðagöngu er mikill
í þeim landshluta.
SKÍ hefur boðið upp á skíða-
göngukennslu í grunnskólum
landsins imanfamar vikur. Hafa
viðtökur krakkanna verið frá-
bærar og SKÍ stefnir að því að
gera þetta aö langtímaverkefni.
Mikill áhugi hefur verið sunn-
anlands á skíðakennslunni og
margar fyrirspurnir borist til
SKÍ. Ef nægur snjór verður til
staðar síðari hluta febrúar og í
mars verða kennaramir á ferð-
inni sunnanlands á ofangreind-
um tíma.
Dagskráin fram undan:
11. febr.....Stöðvarfjörður og
.........Breiðdalsvlk kl. 20.00
13. febr... Skíðadagur í Oddsskarði
18. febr.....Akranes kl. 20.00
20. febr. .. . Skíðahelgi i Reykjavik
21. febr. .. .Skiðahelgi i Reykjavík.
-SK
Þórey og Vala yfir 4,10
Þórey Edda Elísdóttir, FH, og Vala
Flosadóttir, ÍR, stukku yfir sömu hæð í
stangarstökki á innanhússmóti í Malmö í
gærkvöld. Þær stukku báðar yfir 4,10
metra. Vala notaði færri tilraunir og
hafnaði því í 3. sæti á mótinu en Þórey
Edda í fjórða sæti.
Vésteinn Hafsteinsson frjálsíþrótta-
frömuður var á áhorfendabekkjunum í
Malmö í gærkvöld:
„Þær áttu báðar mjög góðar tilraunir
við 4,20 og það var hrein óheppni að þær
stukku ekki hærra. Mér sýnist þær báð-
ar vera á réttri leið og ef Vala stekkur
4,20 metra á næsta móti held ég að hún
fari verulega i gang. Þórey Edda er enn í
mikilli framfor og að mínu áliti á hún að
geta stokkið yfir 4,30 metra mjög fljót-
lega. Hún er mikið efni og er alltaf að öðl-
ast meiri reynslu. Hún keppir á mörgum
mótum á næstunni og það kemur sér vel
fyrir hana,“ sagði Vésteinn Hafsteinsson
í samtali við DV í gærkvöld.
Anzhela Balahkonova sigraði á mótinu
og stökk 4,30 metra. Hún átti ágætar til-
raunir við 4,40 metra en tókst ekki að
fara yfir þá hæð. Kínversk stúlka varð í
öðra sæti á mótinu og stökk 4,20 metra.
Vala Flosadóttir tekur næst þátt í móti
í Þýskalandi en Þórey Edda keppir næst
í Svíþjóð.
Jóhann Már Marteinsson, ÍR, keppti í
60 metra hlaupi á mótinu í gærkvöld.
Hann var í riðli með ekki ómerkari
hlaupara en Linford Christie frá Bret-
landi. Startblokkin gaf sig í upphafi
hlaupsins hjá Jóhanni. Hann kom í mark
á 6,99 sekúndum sem dugði ekki til að
halda áfram keppni. -SK
Brynjar í viðræðum
- dvelur hjá Örgryte fram aö helgi
Brynjar Gunnarsson, landsliðsmaður í
knattspyrnu, kom til Gautaborgar í gær og hóf
viðræður við Örgryte um að ganga til liðs við
félagið. Hann æflr hjá Örgryte í dag og á morg-
un en ljóst er að Erik Hamrén, þjálfari Örgryte,
hefur mikinn áhuga á Brynjari. Hamrén þjálf-
aði AIK þegar liðið mætti KR í Evrópukeppn-
inni fyrir tveimur áram og sagði við DV að þar
hefði hann í raun séð nóg til hans.
„Mér líst vel á það sem ég hef þegar séð. Ég
á ekki von á því að það verði mikið vandamál
fyrir mig að losna frá Válerenga því það er ljóst
að Egil „Drillo” Olsen, þjálfari liðsins, ætlar
ekki að nota mig,“ sagði Brynjar við DV í gær-
kvöld.
Olga Einarsdóttir, unnusta Brynjars, var
með í fór en hún hefur verið íslandsmeistari
með KR tvö undanfarin ár. Líkur era á að hún
gangi til liðs við Öxaback eða Jitex, sem era
tvö af sterkari félögum Svíþjóðar, ef Brynjar
semur við Örgryte.
Brynjar æfði hjá Sheffield United og Sout-
hampton í Englandi og leist vel á sig hjá Sout-
hampton. „Þeir þurftu vamarmann sem gat
byrjað að spila strax og ég var ekki í nægri
æfingu til þess,“ sagði Brynjar. -EH/VS
Sendur til
baka úr
Hólminum
Portúgalski körfu-
knattleiksmaöurinn Gil-
borto Darcio Dias
Baptista var í gærkvöld
sendur til baka með rútu
frá Snæfelli í Stykkis-
hólmi eftir aðeins rúm-
lega sólarhringsdvöl hjá
félaginu. Hann fór þang-
að til reynslu eftir að
Grindvíkingar höfðu
prófað hann og ákveðið
að bjóða honum ekki
samning. -VS
Arnar ekki með í deildabikarnum:
Ekki á Wembley
- ef Leicester kemst í úrslitaleikinn
Arnar Gunnlaugsson
með boltann í fyrsta
leik sínum með Leic-
ester.
Amar Gunnlaugsson, sem nú
dvelur með félögum sínum í
Leicester á Kanaríeyjum, leikur
ekki með liðinu gegn Sunder-
land næsta miðvikudag en það
er síðari leikur liðanna í undan-
úrslitum deildabikarsins.
Arnar hefur leikið einn leik
með Bolton í þeirri keppni og er
þar með ekki löglegur með
Leicester. Hann fær þvi ekki að
spila úrslitaleikinn á Wembley
þó liðið komist þangað en mögu-
leikarnir á því era góðir því
Leicester vann fyrri leikinn við
Sunderland á útivelli, 2-1.
„Það er mjög svekkjandi að fá
ekki að vera með því ég er hand-
viss um að Leicester kemst á
Wembley. Ég er sannfærður um
að strákarnir gera alit sem þeir
geta til að vinna keppnina og
tryggja okkur Evrópusæti á
næsta tímabili," sagði Amar í
viðtali á heimasíðu Leicester I
gær.
„Mitt takmark á þessu tíma-
bili er að ná fótfestu hjá félaginu
og að spila eins marga leiki og
mögulegt er. Þegar ég lék með
Bolton í efstu deildinni í fyrra
fékk ég bara að vera tvisvar í
byrjunarliði og ég vil reyna að
bæta það sem fyrst,“ sagði Am-
ar.
-VS
9
NBA-DEILDIN
Charlotte-Cleveland......77-87
Coleman 16, Wesley 16, Phills 12 -
Kemp 20, Sura 15, Knight 14.
New Jersey-Orlando.......81-89
Van Hom 17, Burrell 17, Gill 12 -
Anderson 21, Hardaway 21, Grant 15.
New York-Washington . . . 101-88
Johnson 18, Ewing 16, Ward 16 -
Howard 29, Richmond 25, Jackson 9.
Houston-Sacramento .......92-82
Olajuwon 19, Barkley 16, Price 16,
Pippen 12 - Webber 21, Williamson
16, Williams 16.
Denver-LA Lakers ........98-103
Lafrentz 24, Mcdyess 21, Billups 13 -
O’Neal 29, Bryant 21, Jones 21.
Golden State-Seattle.....82-89
Starks 32, Mills 19, Cummings 12 -
Payton 24, Schrempf 17, Ellis 16.
Portland-Indiana ........100-92
Rider 26, Stoudamire 23, Williams 14
- Smits 23, Best 20, Rose 13.
Vancouver-LA Clippers . . 105-99
Rahim 35, Bibby 18, Parks 10 - Murry
21, Olowokandi 17, Piatkowski 15.
Seattle hefur unnið alla sína
fjóra leiki í NBA og fara verður
sex ár aftur til að finna hlið-
stæða byrjun.
Denver stóð í Lakers en liðið
hefur tapað öllum fjórum leikj-
unum til þessa. Shaquille O’Neal
skoraði aðeins eitt stig í fjórða
leikhluta. Nýliðinn Lafrentz hjá
Denver hefúr komið geysilega á
óvart með framgöngu sinni fram
að þessu.
Vancouver fagnaði sínum
fyrsta sigri í vetur þar sem Ra-
him skoraði 35.
-JKS
EVRÓPUKEPPNIN
6. riðill
Kýpur-San Marino.............4-0
1-0 Melanarkitis (18.), 2-0 Constantin-
ou (32.), 3-0 Constantinou (45.), 4-0
Christodoulou (88.)
Kýpur 4 3 0 1 8-5 9
Austurríki 3 2 1 0 8-2 7
ísrael 3111 7-3 4
Spánn 2 10 1 4-4 3
San Marino 4 0 0 4 1-14 0
8. riðill
Malta-Júgóslavia.............0-3
0-1 Nad (22.), 0-2 Nad (55.), 0-3
Milosevic (90.)
Irland 3 2 0 1 7-1 6
Makedónía 3 2 0 1 8-4 6
Júgóslavía 2 2 0 0 4-0 6
Króatía 3 2 0 1 7-5 6
Malta 5 0 0 5 2-18 0
Vináttuleikir
Albanía-Makedónia............2-0
1-0 Vata (48.), 2-0 Bogdani (90.)
Pólland-Finnland (á Möltu) . . 1-1
1-0 Kowalczyk (1.), 1-1 Johansson (20.)
Króatía-Danmörk .............0-1
0-1 Sand (45.)
Portúgal-Holland.............0-0
Írland-Paraguay .............2-0
1-0 Irwin (39.), 2-0 Connolly (73.)
Ítalia-Noregur...............0-0
England-Frakkland............0-2
0-1 Anelka (69.), 0-2 Anelka (76.)
Oman-Sviss...................1-2
0-1 Comisetti (9.), 0-2 Comisetti (33.),
1-2 Mubarak (90.)
Túnis-Svíþjóð ...............0-1
0-1 Alexandersson.
Ikvöld
Úrvalsdeildin í körfubolta:
ÍA-Tindastóll .... 20.00
Skallagrímur-Snæfell . . . .... 20.00
Grindavík-Keflavik .... 20.00
Haukar-KR .... 20.00
Valur-Þór A . . . . 20.00
1. deild karla í körfubolta:
ÍR-Þór Þ.....................19.00
Undanúrslit karla í blaki
Þróttur N.-KA................19.30
Stjarnan-ÍS..................19.30