Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1999, Qupperneq 23
FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1999
23
Iþróttir
Einu sinni samherjar — nú mótherjar. Magnús Árnason, markvörður FH-inga, og Bergsveinn Bergsveinsson, markvörður Aftureldingar, halda hér á milli sín á bikarnum sem liðin munu
kljást um á laugardaginn. Bergsveinn stóð í marki FH-inga þegar þeir urðu bikarmeistarar fyrir 5 árum þegar FH lagði KA í úrslitaleik. DV-mynd Hilmar Þór
Bikarpunktar
Afturelding og FH mætast nú 1 sín-
um fyrsta bikarleik frá upphafl. Mos-
fellingar eru að leika sinn fyrsta bik-
arúrslitaleik en FH-ingar að jafna
met Víkinga með því að leika sinn ti-
unda frá upphafi.
Afturelding veröur 14. félagiö til að
komast í bikarúrslitin en 8 af 13 lið-
um hafa tapað frumraun sinni í bik-
arúrslitum, þar af 6 af síðustu 8. Að-
eins Haukar (1980) og ÍBV (1991) hafa
unnið sinn fyrsta leik frá 1979.
FH-ingar hafa fimm sinnum orðið
meistarar og vinni þeir á laugardag
geta þeir jafnað árangur Vikinga sem
hafa oftast allra orðið meistarar eða 6
sinnum, þar af fjórum sinnum i röð,
1983-86.
Valsmenn hafa náð bestum árangri
þeirra liða i bikarúrslitum sem hafa
náð að leika 3 leiki. Valsmenn hafa
náð 62,5% árangri, unnið 5 af 8, en
Víkingar eru í öðru sæti með 60% ár-
angur, 6 sigra í 10 leikjum. FH gæti
náð Víkingum á þessum lista með
sigri á laugardaginn.
FH-ingar eiga markametið i bikarúr-
slitaleiknum en þeir skoruðu 30 mörk
gegn KA1994. Stærstu sigra eiga síðan
Vikingar á KR-ingum 1983 og Vals-
menn á Blikum 1988 eða 10 mörk.
Valdimar Grímsson er markahæsti
leikmaðurinn í bikarúrslitaleik frá
upphafi. Valdimar hefur gert 36 mörk
fyrir Val og KA í þeim 5 bikarúrslita-
leikjum sem hann hefur leikið. Næst-
ur er Siguröur Gunnarsson með 26
mörk og Páll Björgvinsson kemur
þriðji með 24 mörk.
Þetta er 26. bikarúrslitaleikurinn
frá upphaft en sá fyrsti fór fram 1.
maí 1974 þegar Valur vann Fram,
24-16. Fyrstu 17 bikarúrslitaleikirnir
fóru fram eftir að íslandsmótinu lauk
en þetta verður sjötti bikarúrslita-
leikurinn sem fram fer 1 febrúar.
Fimm leikmenn FH-liósins í dag
urðu bikarmeistarar með félaginu
fyrir 5 árum. Það eru: Kristján Ara-
son, Gunnar Beinteinsson, Hálfdán
Þóröarson, Guöjón Árnason og
Knútur Sigurösson. -GH/ÓÓJ
FH og Afturelding leika til úrslita í bikarkeppninni á laugardag:
Erfitt fyrir FH
- segir Guömundur Guömundsson, þjálfari Fram
„Ef maður lítur á stöðu
liða í deildinni á Aftureld-
ing að vinna yfirburðasig-
ur og auðvitað eru meiri
líkur á sigri Mosfellinga í
þessum leik,“ sagði Guð-
mundur Guðmundsson,
þjálfari Framara, þegar
hann var beðinn að spá
fyrir um bikarúrslitaleik
FH og Aftureldingar sem
fram fer á laugardaginn.
Sérstakir leikir
„Það er alveg ljóst að
lið Aftureldingar er mun
sterkara og staða liðsins í
deildinni undirstrikar
það. En bikarleikir hvað
þá úrslitaleikir eru sér-
stakir leikir og oftar en
ekki hefur liðið sem er
sigurstranglegra lent í
miklu basli. Ég man til að
mynda eftir leik KA og
Víkings fyrir nokkrum
árum. Þá var KA i topp-
baráttunni en Víkingar
við það að falla en þrátt
fyrir það þurfu KA-menn
svo sannarlega að hafa
fyrir hlutunum því þetta
var mjög jafn leikur."
Er það ekki FH-ingum
til tekna í þessum leik
að þeir hafa reynslu af
þvf að spila svona leiki?
„Innan raða FH-liðsins
eru margir leikmenn sem
þekkja þessa stöðu og auð-
vitað hjálpar það þeim en
þó svo að Afturelding hafl
ekki leikið fyrr til úrslita í
bikamum eru menn í lið-
inu sem hafa staðið í þess-
um sporum. Bergsveinn,
Sigurður Sveinsson, Bjarki
Sigurðsson og Einar
Gunnar hafa allir spilað
bikarúrslitaleik og Lithá-
amir hafa báðir mikla
reynslu svo ég held að það
sé lítill munur á liðunum
upp á þetta að gera,“ segir
Guðmundur.
„Ég myndi segja að FH-
ingar hafi allt að vinna í
þessum leik. Það er miklu
minni pressa á þeim enda
reikna flestir með að Aft-
urelding vinni.“
Útiloka ekki FH
„Þetta verður mjög erf-
iður leikur fyrir FH og
það kæmi mér mjög á
óvart ef titillinn færi ekki
upp i MosfeUsbæ. Hins
vegar vil ég aUs ekki úti-
loka FH-liðið í þessum
leik. FH er stemningarlið
sem á góðum degi getur
leikið mjög vel,“ sagði
Guðmundur að lokum.
-GH
Kristján Arason, þjálfari FH-inga:
Getur jafnaö og slegið met
- takist FH aö leggja Aftureldingu að velli
Kristján Arason, þjálfari og leikmaður FH, stjórnar
nú liði í bikarúrslitum í þriðja sinn. Hann stýrði
einnig FH tU sigurs 1992 og 1994. Ef Kristján og félagar
vinna á laugardag slær Kristján bæði og jafnar met.
í hóp með Reyni og Kowalsczyk
Kristján kemst þá í hóp með ekki ómerkari
þjálfurum en Reyni Ólafssyni og Bogdan Kowalczyk
sem báðir hafa stjórnað liði tU sigurs í þremur
bikarúrslitaleikjum, Reynir með Val 1974 og FH 1976
og 1977 og Bogdan með Víkinga 1979, ‘83 og ‘85.
Metið sem Kristján myndi slá er að hafa oftast
unnið bikarinn sem spUandi þjálfari en Alfreð
Gíslason og Kristján eiga metið nú saman. Alfreð
stýrði KA-mönnum tU sigurs innan sem utan vaUar
bæði árin 1995 og 1996. Kristján hefur nýlega tekið
fram skóna að nýju og átti stóran þátt í að koma FH í
úrslitaleikinn þegar FH sigraöi lið Gróttu-KR.
17 ár frá fyrsta úrslitaleik Kristjáns
Annað met sem Kristján mun örugglega hrifsa af
Alfreð er að vera sá leikmaður sem á að baki lengsta
bikarúrslitaleikjasögu. Þegar Kristján spilar á
laugardaginn verða 17 ár liðin frá því að hann lék
fyrst í HöUinni með FH gegn KR. Hjá Alfreð liðu 15 ár
frá þeim sama leik þar til hann spUaði gegn Haukum
1997.
-ÓÓJ/GH
Bikarpunktar
1999 ^
FH og Afturelding leika til úrslita í
bikarkeppninni í Höllinni kl.16 á
Iaugardaginn.
Bikarúrslitaleikurinn í fyrra milli
Valsmanna og Framara var sá þriðji
i sögunni til aö verða framlengdur en
árið 1980 fór reyndar fram aukaleik-
ur. 12 af þessum 26 bikarúrslitaleikj-
um hafa endaö með 0-2 marka mun
en 8 sinnum hefur munurinn orðið
meiri en 5 mörk.
Þaö liö sem hefur haft yfir í hálfleik
hefur unnið i 17 skipti af þessum 25
en 6 sinnum hefur liðið sem er undir
náð að vinna, þar á meðal í fyrra.
Skúli Gunnsteinsson, þjálfari Aftur-
eldingar, getur orðið einn af górum
mönnum í sögu bikarúrslitaleiksins til
að fagna sigri bæði sem fyrirliði og
þjálfari. Skúli, sem var fyrirliði
Stjömunnar 1989, kæmist þá í hóp með
Gunnari Einarssyni (fyrirliöi FH1975
- þjálfari Stjömunnar 1989), Páli
Björgvinssyni (fyrirliði Vikings 1978
og 79 - þjálfari Stjömunnar 1987) og
Ólafi H. Jónssyni sem er sá eini sem
náði þessu sama árið með Þrótti 1981.
Valur Arnarson FH-ingur er einnig á
leiðinni í sögubækur bikarúrslitaleiks.
Hann spilar nú sinn fimmta bikarúr-
slitaleik með sínu þriðja liði. Valur lék
með Val gegn FH 1992 og gegn Selfossi
1993, KA gegn FH 1994 og gegn Val
1996. Valur hefur tvisvar tapað úrslita-
leik gegn FH en nú fær hann tækifæri
til að vinna með félaginu. Faðir hans,
Örn Hallsteinsson, stjómaði FH í bik-
arúrslitaleiknum 1978 en þá tapaði FH
fyrir Vikingi.
Valur kemst þá í hóp með Sigmari
Þresti Óskarssyni sem hefur leikið
Qóra bikarúrslitaleiki með þremur fé-
lögum og unnið þóá af þeim. Sigmar
var meistari með Stjömunni 1987, ÍBV
1991 og KA 1995 en tapaði einnig úr-
slitaleik með KA 1994.
Fjórir leikmenn Aftureldingar hafa
spilað leikið til úrslita í bikamum en
það eru Bjarki Sigurösson (Vikingi
‘86, ‘90 ‘91), Einar G. Sigurösson
(Selfoss ‘93), Siguröur Sveinsson
(‘92, ‘94) og Bergsveinn Bergseinsson
(‘89, ‘92, ‘94). -ÓÓJ/GH