Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1999, Blaðsíða 24
24
FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1999
Sviðsljós
Sambandi Fergie og
ítalska greifans lokið
Ástarsambandi hertogaynjunnar
af Jórvík, sem kölluð er Fergie, og
ítalska greifans Gaddo deilla Gher-
ardesca, er lokið. Vinir Fergie segja
að ástin hafi fjarað út en turtildúf-
umar fyrrverandi séu þó enn mjög
góðir vinir. Breska blaðið Sunday
Mirror hefur það einnig eftir vinum
Fergie að það sé að vissu leyti
einnig Elisabetu drottningu og Fil-
ippusi prins að kenna að Fergie og
greifinn skuli ekki lengur vera par.
Drottningin og prinsinn hafi þver-
tekið fyrir það að dætur Fergie og
Andrésar prins, þær Beatrice og Eu-
gene, byggju erlendis. Sjálfur vildi
greifinn, sem er vellauðugur og enn
kvæntur þó hann hafi ekki búið
með konunni sinni í þrjú ár, ekki
flytja til Englands.
Fergie hefur ekkert hitt Gaddo
síðan um jólin og er sögð hafa sætt
sig við að átján mánaða ástarsam-
bandi þeirra sé lokið.
Sambandsslit Fergie og greifans
eiga sér stað samtímis því sögusögn-
um fjölgar um að hertogaynjan og
Andrés prins séu að taka saman á
Orðrómur er á kreiki um að Fergie og Andrés prins kunni að taka saman á
ný. Símamynd Reuter
ný. Þau em sögð ætla saman í róm-
antískt skíðafrí til Verbier í Sviss.
Sunday Mirror hefur það eftir þeim
sem þekkja Andrés vel að hann
myndi taka við Fergie á stundinni
samþykkti hún að reyna aftur.
Prinsinn og hertogaynjan búa
enn undir sama þaki þar sem hún
hefur neitað að flytja í húsið sem El-
ísabet drottning útvegaði henni.
Segist Fergie ekki hafa efni á því.
Vinir Fergie og Andrésar eru á
þeirri skoðun að þau elski enn
hvort annað og að hún myndi jafn-
vel giftast Andrési sinum á ný ef
hirðfólkið í Buckinghamhöll væri
ekki til staðar. Það gerði henni líflð
leitt á sínum tíma. Heimildarmaður
innan hallarinnar segir hins vegar
að það sé ekki bara hirðfólkið held-
ur einnig drottningin og prinsinn
sem séu andvíg því að Fergie og
Andrés taki saman. „Þau myndi
hrylla við tilhugsuninni um að
Fergie kæmi aftur að hirðinni."
Þótt einkennilegt megi virðast
lagði eiginkona greifans blessun
sína yfir samband hans og Fergie.
Slater verður
bráðum pabbi
Þvílík umskipti. Ekki er nema
tæpt ár liðið frá því leikarinn
Christian Slater losnaði úr stein-
inum þar sem hann sat inni fyrir
að berja fyrrum kærustu sína,
slást við lögguna og fyrir að vera
undir áhrifum fíkniefna. Nú á
kappinn hins vegar von á barni
með kærustunni. Frægur slúður-
dálkahöfundur segir að bamið sé
væntanlegt með vorinu.
Erfitt hjá Bond
James Bond stendur frammi
fyrir erfiðu verkefni í nýjustu
mynd sinni. í henni taka
nefnilega þátt næstum því allar
fyrrverandi Bondbrúðirnar sem
hann hefur forfært síðastliðin 37
ár. Tökur á nýju myndinni, The
world is not enough hófust í janúr
í Englandi og Tyrklandi. Fjórtán
Bondbrúðir hafa tekið boði um að
leika í myndinni.
Þýska fyrirsætan Heidi Klum gat ekki stillt sig um að smella léttum kossi á kinn stallsystur sinnar, hinnar kalifornísku
Rebeccu Romijn-Stamos. Stúlkurnar eiga það sameiginlegt, fyrir nú utan að vera glæsilegar og fallegar, að koma
fram í sundfatahefti íþróttatímaritsins Sports lllustrated. Sala á þessu vinsæla hefti hefst í dag vestanhafs og þess
verður vafalaust ekki langt að bíða að það reki á fjörur okkar.
DV
Hanks er stoltur
af tilnefningunni
Stórleikarinn Tom Hanks er í
hópi þeirra útvöldu sem voru til-
nefndir til óskarsverðlauna í
fyrradag. Hanks fékk tilnefning-
una að sjálfsögðu fyrir leik sinn í
Björgun óbreytts Ryans eftir Spi-
elberg. Hann er að vonum kátur.
„Það var dýrmæt reynsla fyrir
okkur öll að gera þessa mynd. Það
er mikill heiður að vera tilnefnd-
ur til óskarsverðlauna og þeim
mun meiri fyrir Björgun óbreytts
Ryans. Ég er að sjálfsögðu mjög
kátur og ég er líka ákaflega stolt-
ur,“ sagði Tom Hanks.
lífsins á ný
Uma Thurman ætlar ekki að
láta klúðrið sem kvikmyndin
Avengers var spilla meira fyrir
sér en orðið er. Leikkonan er aft-
ur farin á stjá. Um næstu helgi
verður frumsýnt leikrit Moliéres
um mannhatarann þar sem Uma
leikur eitt aðalhlutverkanna. „Ég
er skithrædd,“ segir Uma sem er
vön því að geta endurtekið leik-
inn ef illa fer fyrir framan mynda-
vélamar. Annars hefur Uma var-
ið drjúgum tíma með bónda sín-
um og barni upp á síðkastið.
Paltrow kann að
gera stólpagrín
Breska leikkonan Gwyneth Pal-
trow skildi ísdrottninguna í
sjálfri sér eftir heima þegar hún
kom fram í vinsælum grínþætti í
amerísku sjónvarpi um helgina.
Gwyneth sýndi það og sannaði að
hún hefur kímnigáfuna í lagi þeg-
ar svo ber undir og gerði stólpa-
grin að öllu og öllum, allt frá fyrr-
um elskhuga sínum Ben Affleck
til kynbombunnar og tískudrósar-
innar Sharon Stone. Viðstaddir
höfðu gaman af. Best var þó þeg-
ar Ben reis á fætur í áheyrenda-
skaranum eftir einræðu frökenar-
innar. Hún þóttist ekki þekkja
hann.
Uma vaknar til