Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1999, Page 26
26
FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1999
Keppnis-
brot
Gettu betur í 15 ár
Spurningakeppni framhalds-
skóla, Gettu betur, hefst í sjón-
varpi á morgun þegar lið
Menntaskólans í Reykjavík og
Verslunarskóla íslands mætast í
átta liða úrslitum keppninnar. í
ár hófst keppnin eins og áður
með þvi að lið skólanna hófu
keppnina á rás 2. Þar var keppt í
tveimur umferðum og eru nú
átta lið eftir sem mætast í út-
sendingu á ríkissjónvarpinu.
Auk áðumefndra liða mætir lið
Menntaskólans við Hamrahlíð
liði Menntaskólans í Kópavogi,
Menntaskólinn á Egilsstöðum
sækir heim Fjölbrautaskóla Suð-
urlands á Selfossi og Mennta-
skólinn á Akureyri býður
Menntaskólanum við Sund í
heimsókn í síðasta leik umferð-
arinnar. Að þessari umferð lok-
inni verða fjögur lið eftir sem
mætast í undanúrslitum.
Nýtt starfslið
Nokkrar breytingar hafa orð-
ið á starfsliði keppninnar frá
síðasta ári. Gunnsteinn Ólafsson
lét af störfum sem dómari
keppninnar og við starfi hans
tók Illugi Jökulsson rithöfund-
ur. Spyrill keppninnar í ár er
sjónvarpsfréttamaðurinn Logi
Bergmann Eiðsson en Davið Þór
Jónsson var spyrill keppninnar
í fyrra. Stigavörður er útvarps-
konan Þóra Amórsdóttir sem
tók við starfi Katrínar Jakobs-
dóttur. Þá er ónefndur Andrés
Indriðason, sem hefur borið hit-
ann og þungan af skipulagi
keppninnar undanfarin ár.
Gettu betur
1999
12. febr.
Menntaskólinn í Reykjavík
Verslunarskóli íslands
19. febr.
Menntaskólinn í Kópavogi
Menntaskólinn viö Hamrahlíö
26. febr.
Fjölbrautaskóli Suöurlands (Seifossi)
Menntaskólinn á Egilsstöðum
5. mars
Menntaskólinn á Akureyri
Menntaskólinn viö Sund
gga
Menntaskólinn í Reykjavík:
Hefðin skapar sigurinn
kLið Menntaskólans i' Reykjaví ásamt liðsstjórum.
DV-mynd Hilmar Þór
Menntaskólann í Reykjavík ber
oftar en ekki á góma þegar minnst er
á spumingakeppni framhaldsskóla.
Þeir eru ótvíræðir sigurvegarar
keppninnar undanfarin sex ár og
hefur engu öðra liði tekist að jafna
þann árangur. Þeir slaka þó ekkert á
undirbúningnum fyrir keppnina í ár
og hafa æft stíft að undanfórnu enda
ekkert öruggt í keppninni. „Við höf-
um verið að lesa undanfarið ár og
við teljum að okkar undirbúningur
sé mjög góður,“ segja þeir Sverrir
Guðmundsson, Amar Þór Stefánsson
og Hjalti Snær Ægisson sem skipa
keppnislið MR í ár. „Þetta er sterkt
lið. Tvímælalaust jafnsterkt og í
fyrra, ef ekki sterkara." En hvernig
fer undirbúningurinn fram fyrir
keppnina? „Við höfum verið að lesa
undanfarið ár. Förum á bókasöfn eða
lesum heima og svo núna síðustu
dagana þá æfum við hraðaspuming-
amar og lesum. Þetta hefur sinn
vanagang," segja þeir. En á keppnis-
daginn sjálfan taka þeir sér frí frá
skólanum, fara í sund og svo í bak-
aríið áður en þeir halda á keppni-
stað. Hjalti Snær er nýliðinn í hópn-
um en Sverrir tekiu nú þátt í keppn-
inni í þriðja sinn og Arnar Þór er
þátttakandi öðra sinni. Þeir segja
mikið skipulag í kringum liðið og
fiöldi fólks undirbúi liðið fyrir
keppni. Liðsstjórar era þeir Sverrir
Teitsson og Svanur Pétursson en
þeir stefna báðir á að verða í liðinu
að ári liðnu þegar Arnar Þór Stefáns-
son og Sverrir Guðmundsson hætta.
Auk þeirra eru þjálfarar liðsins
nokkrir en þeir eru íýrram liðsmenn
spurningaliðs MR og þekkja því ekk-
ert annað en sigur í keppninni. En
hvemig leggst keppnin í liðið i ár
miðað við árið í fýrra? „Keppnin er
að breytast til hins betra. Það hefur
t.d. núna verið ákveðið að úrslita-
keppnin fari fram í stóra íþróttahúsi
sem er mjög gott þvi oftar en ekki
hafa færri komist að en vilja til að
horfa á keppnina. Svo hefur verið
stofnaður sérstakur stýrihópur, skip-
aður fulltrúum framhaldsskólanna,
sem skipuleggjendur keppninnar
leita til þegar þeir taka stærri
ákvaröanir," segir spurningaliðið.
En hvemig stendur á þessari ótrú-
legu velgengni liðsins? „Það er fyrst
og fremst hefðin sem er rik. Hér eru
svo haldnar spumingakeppnir milli
bekkja. Og síðast en ekki síst era það
nemendur skólans sem mæta og
styðja liðið enda er alltaf rúmlega
hálfur salur þegar MR keppir,“ segja
MR-ingar.
-hb
Verzlunarskóli íslands:
Syngjum fyrir keppni
Spumingaliði Verzlunarskóla ís-
lands hefur fram að þessu ekki tek-
ist að sigra í Gettu betur. Verzlunar-
skólanemar hafa þó fióram sinnum
keppt til úrslita í keppninni. Þeir
era þó bjartsýnir fyrir komandi
keppnisár og láta engan bilbug á sér
finna. „Við höfum engar áhyggjur af
þessu. Við höfum gaman af þessu og
tökum þessu alvarlega um leið,“
segja þeir Ágúst Flygenring, Óli
Njáll Ingólfsson og Hallur Öm Jóns-
son. Þetta er í þriðja sinn sem Óli
Njáll tekur þátt í keppninni, Hallur
Öm tekur þátt i annað sinn en
Ágúst þreytir frumraun sína á
morgun. En hvemig leggst það í þá
að mæta liði MR sem hefur verið
nær ósigrandi í keppninni fram að
þessu? „Það er ekki sagan sem
skiptir máli. Við eram mjög ánægð-
ir með að mæta MR strax i átta liða
úrslitum. Þá kemur bara strax í ljós
hvort við eram nægilega vel undir-
búnir fyrir keppnina eða ekki. Við
höfum verið að keppa æfingaleiki
gegn þeim og liðin gjörþekkja þvi
hvort annað. Einnig mættum við
þeim í átta liða úrslitum í fyrra og
töpuðum þá sem kemur ekki til
greina núna,“ segja Verzlingar. Þeir
hafa undirbúið sig vel að undan-
fomu en formlegur undirbúningur
hófst síðasta vor. „Já, við höfum
verið að lesa okkur til meira og
minna frá því að síðustu keppni
lauk. Núna síðustu dagana höfum
verið að ferðast á milli bókasafna og
lesa. En á
sjálfan keppn-
isdaginn hitt-
umst við á Öl-
veri og syngj-
um karaoke,“
segja þeir.
„Það er mikil
stemning fyrir
keppnina
héma í skól-
anum. Það
hefur verið
nær fullt á all-
ar keppnir
okkar í út-
varpinu og við
ætlum okkur
að fylla salinn
gegn MR.“
Þeir segja að allir nýnemar í skólan-
um hafi þreytt próf þegar þeir hófu
nám í haust og þeir bestu hafi svo
verið valdir úr og prófaðir betur.
Svo eru þrjú sem bíða eftir því að
komast í liðið og era liðsstjórar í ár.
Þau heita Óli Gunnar Hakansson,
Þórir Gunnarsson og Sigríður Reyn-
isdóttir sem yrði þá jafnframt fyrsta
stúlkan til að keppa fyrir hönd
Verzlunarskólans. En hvað verður
það sem færir Verzló sigm’ á morg-
un? „Við höfum mjög góðan þjálfara
sem var jafnframt í liðinu í fyrra.
Við höfum sömuleiðis meiri reynslu
en í fyrra og svo höfum við fengið
öflugan nýliða,“ segja þeir að lok-
um. -hb
Spurningarnar
Eins og fyrri ár hefst hver keppni með hraðaspuming-
um sem bæði lið spreyta sig á í tvær mínútur. Annað
liðið víkur úr salnum meðan hitt tekst á við spuming-
amar. Eitt stig er gefið fyrir hveija spumingu sem liðið
svarar rétt. Því næst taka við vísbendingaspumingar.
Sú fyrsta er með mynd og era þrjár vísbendingar gefn-
ar. Svari lið rétt eftir að ein vísbending hefur verið gef-
in fær liðiö þrjú stig o.s.frv. Næsta vísbending er svo í
oröum og gildir sama stigagjöf fyrir hana. Bjölluspum-
ingamar era 15 talsins þar sem þaö liö sem hringir á
undan fær svarréttinn og er eitt stig gefið fyrir hvert
rétt svar. Því næst er ein vísbendingarspurning í orðum
en að lokum hin svokallaða þríþraut. Þá birtast þrjár
myndir sem eru á einhvem hátt tengdar og reyna liðin
að komast að þvi á hvaða hátt þær era tengdar. -hb
F-1500M
• Faxtæki, sími, símsvari,
Windows prentari, skanni,
tölvufax.og Ijósriti í einu tæki
• Sjálfvirkur deilir fax/sími
• Hitafilmu prentun
• Prentar á A4 pappír
• 20 blaða frumritamatari
• 300 blaða pappírsbakki
FO-1460
• Innbyggðursími
• Sjálfvirkur deilir fax/simi
• Símsvara tengimöguleiki
• Hitafilmu prentun
• Prentar á A4 pappír
• 20 blaða frumritamatari
• 200 blaða pappírsbakki
faxfjölskyldan
Betri faxtæki eru
vandfundin!
BRÆÐURNIR
cmissíM
L á g m ú I a 8 • S í m i 5 3 3 2 8 00
Umbobsmenn u m I a n d aI I t
FO-2600
• Innbyggður sími
• Prentar á A4 pappír
• Sjálfvirkur deilir fax/sími
• Símsvara tengimöguleiki
• Laserprentun
•512 kb minni
• 20 blaða frumritamatari
• 100 blaða pappirsbakki
FO-4500
• Prentar á A4 pappír
• Laserprentun
• 1 mb i minni (ca 50 síður)
• 50 blaða frumritamatari
• 650 blaða pappírsgeymsla