Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1999, Page 34
34
FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1999
Afmæli
Guðjón Þ. Viggósson
Guðjón Þráinn Viggósson,
útvegsbóndi í Rauðanesi II, Borgar-
hreppi, verður sextugur á morgun.
Starfsferill
Guðjón fæddist í Rauðanesi og
ólst þar upp í foreldrahúsum. Hann
var í barnaskóla að Brennistöðum
þar sem nú er félagsheimili sveitar-
innar og stundaði síðan nám við
Héraðsskólann í Reykjanesi við
Djúp en þá voru þar jafnframt
kenndar verklegar greinar, s.s.
smíðar, bókband og vélfræði. Þá tók
Guðjón hið meira ökupróf 1958 auk
þess sem hann sótti námskeið og
lauk prófum til skipstjómarréttinda
fyrir þrjátíu tonna skip 1998.
Guðjón hóf búskap í Rauðanesi
1958. Fyrst stundaði hann búskap í
samvinnu við foreldra sína en stofn-
aði síðan nýbýlið Rauðanes II. Þar
hefur hann stundað búskap síðan og
frá 1965 í samvinnu við konu sína
og síðar böm.
Guðjón stundaði akstur hjá
Loftorku um skeið, samhliða bú-
skapnum. Þá hefur hann stundað
sjómennsku frá bamæsku, einkum
laxnetaveiðar sem tíðkuðust á hans
heimaslóðum til 1996.
Á yngri árum var Guðjón virkur
í félagsstarfi, þ.á m. í
ungmennafélagshreyfmg-
unni og í Félagi far-
stöðvaeigenda á íslandi.
Þá hefur hann verið virk-
ur í kórstarfi um árabil
og syngur nú með Sam-
kór Mýramanna og
Kirkjukór Borgarnes-
kirkju.
Fjölskylda
Guðjón kvæntist 22.8.
1965 Oddnýju Kristjáns-
dóttur, f. 2.2. 1935, hús-
freyju. Hún er dóttir Kristjáns Guð-
mundssonar og Veroniku Narfadótt-
ur. Kristján og Veronika hófu bú-
skap í Grísatungu í Stafholtstung-
um 1920, fluttu þaðan að Akurholti í
Eyjahreppi og loks að Fáskrúðar-
bakka í Eyja- og Miklaholtshreppi
1946.
Börn Guðjóns og Oddnýjar eru
Guðbjörg, f. 30.6. 1965, húsmóðir á
Dalvík, gift Birni Bjömssyni, kenn-
ara og skólastjóra, og eiga þau þrjú
börn; Kristján Viggó, f. 2.3.1967, raf-
eindavirki; Inga Lóa, f. 8.7. 1969,
verslunarmaður í Kópavogi og á
hún eitt bam; Fjóla Veronika, f.
20.8.1971, búfræðingur en sambýlis-
maður hennar er
Francois Claes húsasmið-
ur; Ómar Hafberg, f.
10.12. 1973, húsasmiður.
Systkini Guðjóns era Sig-
urbjörg, f. 1940, bóndi og
verslunarmaður i Rauða-
nesi III; Herdís, f. 1945,
læknaritari á Akranesi;
Rósa Margrét, f. 1949,
bóndi í Rauðanesi I;
Steinar Bragi, f. 1950,
skipatæknifræðingur, bú-
settur í Hafnarfirði.
Foreldrar Guðjóns: Viggó
Jónsson, f. 27.12. 1908, bóndi í
Rauðanesi, og Ingveldur Rósa, f. 2.8.
1916, húsfreyja.
Ætt
Viggó er sonur Jóns, steinsmiðs
og rafvirkja í Reykjavík, Ólafsson-
ar, b. á Efri-Hömrum í Holtahreppi,
Einarssonar. Móðir Jóns var Ragn-
hildur Filippusdóttir. Móðir Viggós
var Ólöf Sigurðardóttir frá Suður-
koti á Vatnsleysuströnd.
Ingveldur Rósa var dóttir Guð-
jóns, bónda á Ferjubakka, bróður
Gróu, móður Helga Sigurðssonar
hitaveitustjóra. Bróðir Guðjóns var
Teitur, afi Teits Jónassonar lang-
ferðabílstjóra. Hálfbróðir Guðjóns,
sammæðra, var Vilhjálmur, húsa-
smíðameistari í Reykjavík, faðir
Óskars, garðyrkjustjóra Reykjavík-
urbæjar, og Guðrúnar, húsmóður
og kennara í Reykjavík. Guðjón var
sonur Jóns, b. á Hvanneyri, Jóns-
sonar, b. á Ausu, Pálssonar, b. í Ár-
túni, bróður Tómasar, b. í Auðs-
holti, langafa Hannesar Þorsteins-
sonar, ritstjóra og þjóðskjalavarðar,
Þorsteins Þorsteinssonar hagstofu-
stjóra og Tómasar Guðmundssonar
skálds. Móðir Guðjóns á Ferjubakka
var Ingibjörg Teitsdóttir, b. á
Hvanneyri og ættföður Teitsættar,
Símonarsonar, bróður Jóns, b. í
Efstabæ, langafa Magnúsar skálds,
Ingimundar, fræðimanns á Hæli, og
Leifs prófessors Ásgeirssonar. Jón
var einnig langafi Péturs Ottesens
alþm. og Jóns Helgsonar ritstjóra.
Teitur var sonur Símonar, b. á Hæli
í Flókadal, Roða-Teitssonar og Ingi-
bjargar Sveinsdóttur.
Móðir Ingveldar Rósu var Sigríð-
ur Ingibjörg Kristjánsdóttir, b. í
Haukadal í Dýrafirði, Össurarson-
ar, og Ragnheiðar Pétursdóttur.
Guðjón og fjölskylda verða með
opið hús í félagsh. Valfelli eftir kl.
20.00 á afmælisdaginn, 12.2.
Guðjón Þráinn
Viggósson.
Ellen Sighvatsson
Ellen Henriette Sighvatsson, hús-
móðir og fyrrv. formaður Skíðaráðs
Reykjavíkur, Amtmannsstíg 6,
Reykjavík, er níræð í dag.
Starfsferill
Ellen fæddist á Udlejer, búgarði
á Ölstykke á Sjálandi í Dan-
mörku, um þrjátiu og fimm kíló-
metra norður af Kaupmannahöfn,
og ólst þar upp i foreldrahúsum.
Ellen lét fljótt að sér kveða í
íþróttum, keppti m.a. í handbolta
fyrir Ölstykke Idrætsforening,
sýndi fimleika og vann til verð-
launa í fimmtarþraut kvenna.
Ellen lauk barna- og imglinga-
námi frá Svestrupskóla og hélt
síðan til Englands i enskunám en
þar starfaði hún um tíma á
Bowingden-House, herragarði í
Hertfordshire, þar sem hún var
verkstjóri yfir fjölmennu þjón-
ustuliði.
Ellen kom fyrst til íslands i
stutta heimsókn 1929 en síðan al-
komin hingað sumarið 1930. Iþrótt-
ir, ferðalög og útivist hafa alla tíð
verið helsta hugðarefni Ellenar.
Hún hefur ferðast mikið um há-
lendi íslands og þekkir landið mjög
vel.
Er Ellen missti eiginmann sinn,
tók hún við rekstri fyrirtækis
þeirra hjóna og starfrækti það til
1975 er það var selt.
Ellen átti lengi sæti í Skíðaráði
Reykjavíkur og var formaður þess
í tíu ár, fyrsta konan sem gegndi
því starfi. Þá starfaði hún mikið
með Ferðafélagi íslands í fjölda
ára. Ellen hefur lengi verið félagi í
Zonta-klúbbnum, alþjóðlegri
kvennahreyfingu, sem starfar að
líknarmálum en hún var
formaður klúbbsins
1953-54. Þá hefur hún
unnið ötult starf fyrir
Anglíu og verið í stjórn
þess félags.
Frá þvi Ellen flutti til
íslands bjó hún á Amt-
mannsstíg 2 í Reykjavík
en það hús þekkja flestir
skíðamenn sem komnir
em til vits og ára enda
var það um árabil nokk-
urs konar skíðaheimili
Reykjavíkur.
Fjölskylda
Ellen kvæntist 15.4. 1930 Sigfúsi
Pétri Sighvatssyni, f. 10.10. 1903, d.
3.7. 1958, tryggingafræðingi og for-
stjóra Vátryggingastofu Sigfúsar Sig-
hvatssonar. Hann var sonur Sig-
hvats Kristjáns Bjarna-
sonar, f. 25.1. 1859, d. 30.8.
1929, jústitsráðs og
bankastjóra í Reykjavík,
og k.h., Ásgerðar Ágústu
Sigfúsdóttur húsmóður, f.
9.1. 1864, d. 30.5. 1932, hús-
móður.
Dóttir Ellenar og Sigfúsar
er Ágústa Guðrún Sigfús-
dóttir, f. 21.6. 1941, sjúkra-
þjálfari við Elli- og hjúkr-
unarheimilið Grund í
Reykjavík en dætur henn-
ar er Valdís Vífilsdóttir, f.
26.8. 1969, innanhúsarkitekt, búsett í
Mexíkó; Brynja Xochitl Vífilsdóttir,
f. 13.4. 1973.
Foreldrar Ellenar vora Jens Peter
Mortensen, smiður, bóndi og hrepp-
stjóri, og Anna Mortensen húsfreyja.
Ellen Henriette
Sighvatsson.
Ingibjörg Guðmundsdóttir
Ingibjörg Guðmundsdóttir hús-
móðir, Syðri-Gunnólfsá í Ólafsfirði,
verður sjötug á morgun.
Starfsferill
Ingibjörg fæddist í Berghyl í
Austur-Fljótum og ólst upp í Fljót-
unum. Hún var í Barnaskóla á
Siglufirði, stundaði nám við
kvöldskóla í einn vetur á vegum
Iðnskólans og við Húsmæðraskól-
ann Ósk á ísafirði 1948-49.
Ingibjörg fór fimmtán ára í vist
til Siglufjarðar og stundaði síðan
vinnu á Siglufirði og á Akureyri
fram að giftingu. Hún vann tvö
sumur við sumardvalarheimili í
Ljósavatnsskarði, 1951 og 1952, og
vann hjá Fötum hf. í Reykjavík
veturinn 1953-54.
Ingibjörg hóf störf hjá Hraðfrysti-
húsi Ólafsfjarðar 1955 og starfaði
þar að meira eða minna leyti á
hverju ári til 1996 eða í rúma fjóra
áratugi.
Hún vann í síld á sumrin frá 1955,
lengst af við gæðaeftirlit hjá H.Ó.,
en hafði þá unnið flest önnur störf
hjá fyrirtækinu, frá fiskaðgerð til
verkstjómar.
Ingibjörg sat í stjórn Hraðfrysti-
húss Ólafsfjarðar í tólf ár eða þar til
Sæberg yfirtók reksturinn, vann
mikið að verkalýðsmálum, sat í
stjóm Einingar, Ólafsfjarðardeild,
er félagi í slysavarnardeild kvenna,
var ritari í kvenfélagi Kvíabekkjar-
kirkju og situr í stjórn Félags eldri
borgara í Ólafsfirði.
Fjölskylda
Ingibjörg giftist 27.8. 1953 Jóni
Árnasyni, f. 27.6. 1928, bónda og
hljóðfæraleikara. Hann er sonur
Árna Jónssonar, útvegsbónda á
Syðri-Á, og Ólínu Sigvaldadóttur
húsfreyju.
Systkini Ingibjargar eru Unntu-
Guðmundsdóttir, f. 17.12. 1921,
ekkja, en synir hennar eru Þórólf-
ur Sveinsson, á Ferjubakka í Borg-
arfirði, varaformaður Bændasam-
taka íslands, og Reynir Sveinsson,
bóndi í Mýrarkoti við Hofsós; Guð-
rún Ólöf Guðmundsdóttir, f. 28.9.
1926, ekkja en börn hennar eru
Sigurlína K. Kristinsdóttir, útibús-
stjóri KS í Ketilási, og Guðmundur
Kristinsson, verkstjóri hjá Skipa-
vík í Stykkishólmi.
Fósturbróðir Ingibjargar var
Benedikt Stefánsson, f. 15.4. 1915, d.
5.1. 1999, en böm hans eru Stefán,
bifreiðarstjóri í Minni-Brekku í
Fljótum, og Jóna Ingibjörg, húsmóð-
ir í Vestmannaeyjum.
Foreldrar Ingibjargar vora Guð-
mundur Benediktsson, f. 19.7. 1893,
d. 7.10. 1970, bóndi í Berghyl í Fljót-
um, og k.h., Jóna Kristín Guð-
mundsdóttir, f. 29.12. 1899, fyrrv.
húsfreyja i Berghyl, nú búsett á
Dvalarheimili aldraðra á
Sauðárkróki.
Ingibjörg tekur á móti gestum í
Húsi eldri borgara í Ólafsfirði,
laugardaginn 13.2. frá kl. 18.00.
DV
Til hamingju
með afmælið
11. febrúar
85 ára
Friðrik H. Sigurðsson,
Skógarbæ, Árskógum 2,
Reykjavik.
75 ára
Rósa Kemp Þórlindsdóttir,
Barrholti 7, Mosfellsbæ.
70 ára
Auðunn Bergsveinsson,
Gullsmára 11, Kópavogi.
60 ára
Anna Aöalsteinsdóttir,
Arnarhrauni 22, Hafnarfirði.
Karl Ketill Arason,
Akurbraut 15, Njarðvík.
50 ára
Ásta Sigurðardóttir,
Böðvarsgötu 6, Borgamesi.
Bent Frisbæk,
Birkigrund 25, Kópavogi.
Elín Pálsdóttir,
Kársnesbraut 37, Kópavogi.
Elís Björn Klemensson,
Stafnesvegi 4, Sandgerði.
Haukur Gunnarsson,
Norðurbrún 22, Reykjavík.
Magnús Jónsson,
Minni-Hattardal, Súðavík.
Ólafur Jakobsson,
Keilusíðu 7 F, Akureyri.
Óli Bjöm Gunnarsson,
Garðhúsum 8, Reykjavík.
Þórir Jakobsson,
Njálsgötu 34, Reykjavík.
40 ára
Anna Atladóttir,
Baugstjörn 23, Selfossi.
Berglind Björk Jónasdóttir,
Laufvangi 3, Hafnarfirði.
Bjarki Bjarnason,
Seljalandsvegi 4, ísafirði.
Esther Birgisdóttir,
Áshamri 46,
Vestmannaeyjum.
Halldór Jónasson,
Heiðarvegi 33, Reyðarfirði.
Jóhanna Sigríður
Bjamadóttir,
1145 Skana Drive, Tawwassen,
B.C. Kanada.
Jón Erlingur Jónasson,
Tómasarhaga 40, Reykjavík.
Kári Guðmundsson,
Brekkutanga 14, Mosfellsbæ.
Mendanita Eyrún Cruz,
Miðholti 8, Akureyri.
Sigríður Nanna
Sveinsdóttir,
Huldubraut 34, Kópavogi.
Sigrún Halldórsdóttir,
Hraunbæ 196, Reykjavík.
Sigurður Kristjánsson,
Borgarvegi 36, Njarðvík.
Sigurjón Gunnarsson,
Klapparholti 5, Hafnarfirði.
Sólveig Brynjarsdóttir,
Stafholti 12, Akureyri.
Unnur Ósk Kristjónsdóttir,
Smiðsbúð 10, Garðabæ.
Þórhildur Guðmundsdóttir,
Áshamri 13,
Vestmannaeyjum.