Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1999, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1999, Síða 14
14 LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1999 DV Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjómarfomnaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI BJÖRN KÁRASON Aðstoðarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjóm, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLT111,105 RVÍK, SIMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Fijálsrar flölmiðiunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskrftarverð á mánuði 1900 kr. m. vsk. Lausasöluverð 170 kr. m. vsk., Helgarblað 230 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Illa undirbúnar hvalveiðar Á tíðum ferðum um heiminn hafa íslenzkir ráðherrar víða þreifað á viðbrögðum við endumýjun íslenzkra hvalveiða og hvarvetna fengið fálegar viðtökur. Þennan kalda veruleika hafa forsætis- og utanríkisráðherra ver- ið að reyna að segja sjávarútvegsnefnd Alþingis. Það er ekki nægur undirbúningur hvalveiða, að ráð- herrar boði fagnaðarerindið í Mexíkó og Malasíu, Mó- sambík og Malaví. Það er heldur ekki nóg að efna til enn einnar skoðanakönnunarinnar og leita að þessu sinni álits helztu viðskiptamanna okkar erlendis. í skoðanakönnunum erlendis hefur komið í ljós mun- ur á viðbrögðum eftir orðalagi spuminganna. Óundir- búnir em flestir Vesturlandabúar andvígir hvalveiðum, en geta með ákveðnum skilyrðum, sem tilgreind em í spumingunni, failizt á takmarkaðar hrefnuveiðar. Ef menn heyra þær röksemdir, að hrefnustofninn sé ekki í hættu, heldur telji eina milljón dýra, að kjötið fari til manneldis, að veiðamar séu hluti þjóðmenningar, að Alþjóða hvalveiðiráðið ákveði aflakvóta og tryggi stærð stofnsins, fara hinir spurðu að verða jákvæðari. Yfirveguð viðhorf af slíku tagi ráða hins vegar ekki ferðinni. Ef við hefium hvalveiðar að nýju án þess að hafa breytt viðhorfum fólks í viðskiptalöndum okkar, munum við verða fyrir dýrkeyptum hliðarverkunum, sem hvalveiðitekjur munu ekki standa undir. Ef það er í alvöru ásetningur þings og þjóðar að hefja hvalveiðar að nýju, er nauðsynlegt að efna til stórfelldr- ar herferðar í viðskiptalöndum okkar, þar sem reynt verði að sýna fram á, að röksemdir okkar í málinu eigi að vega þyngra á metunum en tilfinningasemin. Til spamaðar er brýnt að hafa um þetta samráð við aðra aðila, sem hafa svipaðra hagsmuna að gæta, til dæmis í Noregi. Eðlilegt er, að hugsjónaöfl hvalveiða, með meirihluta þjóðanna að baki, efni til fjársöfnunar til að standa undir slíkri herferð á Vesturlöndum. Eðlilegt er, að ríkin taki einhvem þátt í þessum kostn- aði, sem fyrst og fremst ætti þó að hvíla á herðum hug- sjónaafla hvalveiðanna. Fyrsta skynsamlega skrefið í átt til hvalveiða felst í að tryggja fjármögnun slíkrar her- ferðar á hendur almenningálitinu á Vesturlöndum. Þegar skoðanakannanir hafa leitt í ljós, að tekizt hafi að milda þetta álit nægilega, er hægt að fara að stíga næstu skref, en fyrr ekki. Það er til dæmis óráðlegt að vera með miklar yfirlýsingar um hvalveiðar, meðan við- horfin em eins neikvæð og raun ber vitni. Einnig ber hinum hyggnari í röðum hvalveiðisinna að láta minna bera á fyndnum kenningum róttæklinga um, að veiðar á 250 hrefhum úr 1.000.000 dýra stofni muni létta veiðimönnum samkeppnina við hvalinn og auka aflaverðmæti okkar um milljarða króna á ári. Þegar reynt verður að hafa vit fyrir útlendingum með upplýsingum og áróðri, er mikilvægt að velja sér vopn rökhyggju og raunhyggju, en skilja fyndnustu fullyrðing- amar eftir heima, því að dreifing þeirra á alþjóðamark- aði mun ekki flýta fyrir hvalveiðum. Það sýnir innihaldsleysi hinnar árvissu æfinga alþing- ismanna á sviði þingsályktana um hvalveiðar, að málið skuli ekki vera lagt fyrir eins og hér hefúr verið lýst. Það sýnir, að billegir þingmenn em að gæla við fávísa kjós- endur sína, án þess að meina neitt með því. Við höfum áður lent í að fóma hagsmunum hvalveiða fyrir meiri hagsmuni og munum áreiðanlega lenda í því aftur, ef jarðvegurinn hefur ekki verið undirbúinn. Jónas Kristjánsson Hermálastefna NATO fremstir í flokki, en mið-vinstri stjómir Þýskalands og Ítalíu vilja heldur ekki að NATO veröi of háð stefnu Bandaríkjanna í þessum heimshluta. Skemmst er að minnast þess að stjómvöld í ýmsum Evrópuríkjum töldu að Á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Washington í apríl verður þess minnst að 50 ár eru liðin frá stofnun NATO, auk þess sem bandalagsaðild þriggja fyrrverandi Varsjárbandalagsþjóða, Pólverja, Tékka og Ungverja, verður staðfest. NATO stendur þó frammi fyrir mörgum vandamálum, eins og Kosovo-deilan sýnir, og nú er tekist á um nýja hermálastefnu bandalags- ins. Á myndinni má sjá frá upphafi fundar varnarmálaráðherra NATO-ríkj- anna. Þegar fufltrúar NATO-rikjanna hittast á leiðtogafundi Atlantshafs- bandalagsins í Washington í lok apríl má ganga út frá því vísu að komist verði að óljósri málamiðlun um hermálasteftiu bandalagsins (“Strategic Concept"). Um það er ekki deilt að fundurinn hefur bæði sögulegt og táknrænt gildi. Leiðtog- amir munu ekki aðeins minnast þess að 50 ár eru liðin ffá stofnun NATO, heldur einnig staðfesta bandalagsaðild Pólverja, Tékka og Ungverja og fylla þar með upp i það hemaðarlega tómarúm, sem mynd- aðist við hmn Sovétríkjanna og Varsjárbandalagsins í Mið-Evrópu. Enn á þó eftir að svara ýmsum lykilspumingum um framtíðarhlut- verk og markmið bandalagsins. NATO var stofnað til að halda Sov- étríkjunum í skefjum og það sem batt aðildarríkin saman á kalda- stríðstímanum var baráttan gegn kommúnismanum. Það gefur augaleið að ekki er unnt að réttlæta tilvist bandalagsins með þeim rökum lengur. Og þar sem mikil áhersla verður lögð á það í Washington að NATO sé ekki beint gegn Rússlandi hlýtur það að skipta miklu máli að skflgreina stefnu bandalagsins við breyttar aðstæður í alþjóðamálum. Fyrir ári var talið hugsanlegt að NATO-ríkin kæmu sér saman um frekari stækkun bandalagsins. Ljóst er að öflum slíkum vangaveltum verður slegið á frest í Washington, enda engin sátt um málið. Það sama má segja um hugmyndir um að marka skýra steftiu varðandi hemaðaraðgerðir og fr iðargæslustörf utan NATO-svæðisins. Öll NATO-ríkin styðja friðar- gæslustaríið í Bosníu og þá ákvörðun bandalagsins að senda 30 þúsund manna herlið til Kosovo til að standa vörð um hugsanlegt ffiðarsamkomulag í hér- aðinu. Eftir að NATO-þjóðimar gerðu sér grein fyrir því að trúverðugleiki bandalagsins væri í húfi í Kosvo komust þær að þeirri óhjákvæmilegu niður- stöðu að grípa yrði í taumana eins og í Bosníu. And- staða Serba við beina hemaðaríhlutun í Kosovo gæti þó sett strik í reikninginn: Hún gæti ekki aðeins leitt til hemaðarátaka í Kosovo, held- xu- einnig truflað hátíðarsam- komuna í Washington. Erlend tíðindi Valur Ingimundarson Bandaríkjamenn hefðu gengið of langt með eldflaugaárásum sínum á Súdan og Afganistan í ágústmánuði sl. til að hefna fyrir hryðjverk, sem Osama bin Laden og samtök hans vora sögð standa fyrir. Annað deilu- efni snýst um rétt NATO til hemað- aríhlutunar án formlegs umboðs Sameinuðu þjóðanna. Bandaríkja- menn og Bretar segja að ekki sé unnt að reiða sig á Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna vegna andstöðu Rússa og Kínverja við hernaðaraðgerðir NATO. Frakkar og Þjóðverjar éra tregari til að sniðganga Sameinuðu þjóðirnar, enda þótt þeir styðji þá ákvörðun að senda herlið til Kosovo án beins stuðnings Öryggisráðsins. Bandaríkin og NATO Forræði Bandaríkjanna í NATO er óumdeilanlegt, ekki síst eftir að van- máttur Evrópuríkjanna kom fram í Bosníustríðinu. Aflan þennan áratug hafa Bretar komið í veg fyrir til- raunir Evrópuríkjanna til að koma á sjálfstæðum ör- yggisarmi af ótta við að það mundi veikja NATO. Nú hefur Blair-stjórnin hins vegar látið af þeirri and- stöðu. Ekki er svo að skilja að Vestur-Evrópusam- bandið hafi öðlast nýjan tilgang; sú stofnun er sem fyrr hvorki fugl né fiskur. En sú ákvörðun breskra og franskra stjómvalda í desember sl. að taka upp nán- ara samband í öryggismálum kom á óvart og gæti gef- ið evópskum sjónarmiðum innan NATO byr undir báða vængi. Hvað sem því líður má búast við því að tvíræðni einkenni hina nýja hermálastefnu NATO, sem sam- þykkt verður á Washington-fundinum. Samkvæmt þeirri málamiðlun, sem rætt hefur verið um, mundi NATO áskilja sér rétt til hemaðaríhlutunar utan NATO-svæðisins, eins og Bandaríkjamenn vilja, án þess að fara nánar út í eðli hennar og umfang í sam- ræmi við óskir ýmissa Evrópuríkja. Ef það verður niðurstaðan, er ljóst að enn á eftir að skilgreina til fulls öryggismarkmið NATO I breyttum heimi. Deilur um markmið Viðkvæmasta málið í Was- hington verður án efa ný her- málastefna bandalagsins. Uppi era miklar efasemdir meðal Evr- ópuþjóðanna um þá tillögu Bandaríkjamanna að gera NATO að eins konar alheimslögreglu, sem unnt væri að beita í Mið- austurlöndum og fleiri átaka- svæðum. Bandaríkjamenn vilja að NATO taki virkan þátt í frið- argæslustörfum í öðrum heims- hlutum og leggi sitt af mörkum i baráttunni gegn hryðjuverka- starfsemi og útbreiðslu gereyð- ingarvopna. Bretar hafa veitt til- lögunni skilyrtan stuðning, en margar Evrópuþjóðir óttast að nái hún fram að ganga mundi NATO þjóna heimsveldishags- munum Bandaríkjanna í Mið- austurlöndum. Hér fara fYakkar skoðanir annarra ------- ik ik Aumt að vera Kúrdi „Af þeim smáþjóðum sem sífellt er verið aö troða á, er eins gott að vera ekki Kúrdi. Betra er að vera j Kosovobúi eða Palestínumaður. í augum Bandaríkj- anna og Evrópusambandsins skipta Kúrdar ekki máli. Þeir era 25 til 30 milljónir, dreifðir um fjögur lönd, tala sama tungumálið, eiga jafiimikinn rétt á sjálfsforræði og Palestínumenn eða Kosovobúar og hafa mátt þola jafnmikiö, ef ekki meira en þeir. En þar sem það er ekki í þágu hagsmuna neins stór- veldis að styðja réttmætar kröfur þeirra og af því að það er ógæfa Kúrda í Tyrklandi að vera undir hæln- um á bandamanni Bandaríkjanna og aðildarríki NATO verður ekki haldin nein Madrídarráðstefna fyrir kúrdísku þjóðina og hún fær enga Dayton- samninga." Úr forystugrein Le Monde 18. febrúar. | Harmleikur „Satt er það að Bandaríkin geta ekki komið i veg fyrir hvaða harmleik sem er hvar sem er. Harm- leikur í Kosovo fellur hins vegar klárlega undir það landfræðilega og pólitíska svæði þar sem Bandarík- in eiga óneitanlega hagsmuna að gæta.“ Úr forystugrein Washington Post 17. febrúar. Tækifæri til sátta „Beiðni írans um kaup á komi og sykri frá Bandaríkjunum býður upp á hentugt tækifæri til sátta. Betri samskipti við íran gætu orðið mikilvæg vegna deilunnar við Saddam Hussein. En stjómvöld hafa réttilega sett skilyrði fyrir því að samskiptin verði eölileg að fúllu. Yfirvöld í Teheran verða að falla frá áætlunum sinum um kjamavopn og önnur óhefðbundin vopn, hætta stuðningi við hryðjuverk og hætta afskiptum af friðartilraunum ísraelskra og arabískra leiðtoga. Bandarikin ættu að fara varlega í sakimar í samskiptunum við íran. En þegar tæki- færi býðst, sem ekki fylgir nein alvarleg áhætta, á að grípa það.“. Úr forystugrein New York Times 16. febrúar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.