Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1999, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1999, Síða 18
i8 &ygarðshornið LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1999 J3"V Pólitísk ákvörðun „Þetta er pólitísk ákvörðun mín,“ segja ráðherrar alltaf þegar þeir gera eitthvað af sér - og vita af því sjálfir. Orðalagið „pólitísk ákvörðun“ jafngildir í huga ís- lenskra stjórnmálamanna réttin- um til að ganga í berhögg við al- mannahagsmuni þegar ríkari hagsmunir eru í húfi - það er að segja hagsmunir þeirra sjálfra. Frasinn „pólitísk ákvörðun min“ þýðir beinlínis þetta í hinni sérís- lensku pólitísku hugtakanotkun: ég veit að þetta er rangt hjá mér en það er ég sem ræð og reyniði bara að breyta þessu ef þið getið. Þetta er orðalag valdsmannsins sem með þessu segir: þetta er ekki til um- ræðu, ég þarf ekki að rökstyðja ákvarðanir mínar, ég er búinn að ákveða að hafa þetta svona, dixi. Munið: alltaf þegar þið heyrið ráðherra segja þetta er annaðhvort von á því að vanhæfur flokksbróð- ir sé tekinn fram yfir hæft fólk til einhvers starfa i almannaþágu eða að flutt sé stofnun með manni og mús á einhvern útkjálka í kjör- dæmi ráðherrans - eða kjördæmi einhvers sem á hönk upp í bakið á ráðherranum. ****** Aldrei heyrir maður borgar- stjórann í Reykjavík tala svona, enda starfar meirihlutinn hér í bæ í þágu þess almennings sem trúði honum fyrir starfa sínum. Eins og raunar víðast hvar í sveitarstjórn- um - þaö er bara þegar yfir okkur dynja „sterkir leiðtogar“ að von getur verið á „pólitískum ákvörð- um mínum“ sem í tilviki slíkra manna felast ævinlega i stórbrotn- um minnisvörðum yfir styrk þeirra. í sveitarstjórnarkosningum er nefnilega lýðræði. Þar nýtist at- kvæöi hvers og eins þeim sem kos- inn er hverju sinni, sem veitir stjórnmálamönnunum aðhald og knýr þá til að starfa í þágu þeirra sem þeir þiggja vald sitt frá - okk- ur. Það sést best hve farsæll meiri- hlutinn og borgarstjórinn eru í störfum sínum á hinu hlálega þvargi minnihlutans um fundar- sköp sem einkennt hefur leiðtoga- tíð Ingu Jónu Þórðardóttur sem er mesti formalisti sem enn hefur lit- ið dagsins ljós í íslenskri pólitík og sýnir okkur hversu málefnalegur Ámi Sigfússon i raun var. Borgarstjórans í Reykjavík bíö- ur hins vegar ein raunveruleg pólitísk ákvörðun, sem að þessu sinni væri í þágu okkar borgarbúa en kann að vera andstæð hagmun- um annarra. Ingibjörg Sólrún þyrfti að fara að taka af skarið um þennan endemis flugvöll sem rist hefur Reykjavík í sundur að ósekju um árabil, komið í veg fyr- ir eðlilega þróun byggðar hér, hrakið fólk upp á reginheiði og í hinn afskekkta fossvogsdal í stað þess að það geti hlýjað hvert öðru í þéttri byggð, eyðilagt margan sól- ríkan sunnudag fyrir okkur vest- urbæingum með gengdarlausum fretum í leikfangaflugvélum. ****** Það er alls ekki viðunandi fyrir okkur Reykvíkinga að það skuli vera í höndum fyrsta þingmanns Norðurlandskjördæmis eystra að taka ákvarðanir um flugvöllinn í Reykjavík, af þeim sökum einum að sá þingmaður sinnir ráðherra- störfum samgöngumála samhliða störfum sínum fyrir kjördæmi sitt. Ekki eru Reykvíkingar að rekast í því hvar þeir hafa flugvöllinn á Egilsstöðum. Sú röksemd að þeir sem leið eiga til Reykjavíkur eigi Guðmundur Andri Thorsson ekki að þurfa að ferðast um langan veg til borgarinnar í rútu eða bíl er ekki nægilega þung á metunum til þess einu sinni að hún sé rædd, hvað þá látin ráða ákvörðun um uppbyggingu borgarinnar. Því verður heldur ekki að óreyndu trúað að búið sé að reikna endanlega út að hagkvæmara sé hafa flugvöllinn áfram inni í miðri borg en reisa ný íbúðarhverfi þess í stað einhvers staðar í Kjósinni. Einhvem tímann eftir þrjátíu ár mun einhver labba um á sólríkum sunnudegi og segja við samferðar- mann sinn: já Reykjavíkurlistinn, það var hér Reykjavíkurlisti fyrir þrjátíu árum sem ríkti - hvað gerði hann? Þá mun samferðamað- urinn sem er glöggur og greinar- góður sagnfræðingur og væn manneskja segja: Hann lyfti grettistaki í leikskólamálum og skólamálum almennt og svo má ekki gleyma því að hann flutti flugvöllinn og endurreisti þar með borgina. Það var víst pólitisk ákvörðun. dagur í lífi Bikardagur í lífi Davíðs B. Sigurðssonar, guðföður Aftureldingar: Dagurinn byrjaði mjög rólega hjá mér og ég upplifði hann ein- ungis eins og hvern annan venju- legan dag. Ég tygjaði mig þó tím- anlega af stað og var mættur upp í höll klukkutíma fyrir leik og upplifði stemninguna þar sem allir biðu í anddyrinu. Síðan fór ég inn í sal og sat ég meðal ann- arra áhorfenda og beið eftir leikn- um. Það ríkti viss eft- ~ fyrr en búið er að landa irvænting því að stórtíðindi gátu átt sér stað, meistaraflokk- ur Aftureld- ingar átti möguleika á að vinna sinn fyrsta stóra titil. Reynd- ar höfðum við unnið deildar- meistara- titil áður og það fannst mér stór stund, en ekki eins og sú sem í vændum var. Bikar- titill sem þessi er auðvitað gífurlegur sigur fyr- ir bæj- arfélag. Bæjar- búar hafa þá eitt- hvað til að sameinast um. Aftur- elding er sameiningar- tákn fyrir fólk sem flutt hefur til Mosfellsbæj- ar víða að og Davíð B. Sig- urðsson er sigurreifur eftir að hafa landað bikarmeistaratitii. DV-mynd E.ÓI það gerir bænum mikið gagn að eiga íþróttalið í fremstu röð. Hált ró minni Það er stór kjami sem fylgist vel með Aftureldingu, en sá kjami er breytilegur. Hann er sífellt að stækka og verða öflugri. Sá kjami var mjög vel sýnilegur þennan dag. Afturelding byrjaði leikinn ekki vel og það fór að fara um einstcika áhorfendur. Þrátt fyrir að byrjim- in hafi ekki verið glæsileg misst- um við þá aldrei langt frá okkur, ekki lengra en þrjú-fjögur mörk. Ég hef svo oft gengið í gegnum þetta ferli að ég hélt alveg ró minni. Ég sá að liðið var ekki að spila þann handknattleik sem því er eiginlegur. Sóknarleikurinn var ómarkviss, skotin voru tekin á vit- lausum tíma og það vantaði yfir- vegun. Vörnin hökti einnig örlítið og þeir voru að fá ódýr mörk. Það var ekki bara lið Aftureld- ingar sem var óöruggt í byrjun. Dómararnir voru líka nokkuð „nervusir" við hvar ætti að draga mörkin. Leikurinn snerist við í leikhléi sátum við og spjölluð- um um leikinn, en þá var tveggja marka munur. Ég ræddi við gaml- an Aftureldingarkappa og vorum við sammála um að þetta væri ekki eins og það ætti að vera, en það hlyti að lagast. Það reyndist rétt því við náðum fljótlega að jafna, 14-14. Síðan kom Bergsveinn með eitt af sínum löngu köstum sem var ekki til samherja heldur fór í markið hjá andstæðingimum. Þá varð ákveð- inn vendipunktur í leiknum og hægt og bítandi fóru hjólin aö snú- ast okkur í hag. Það var greinilegt á öllu að liðið hafði ekki farið inn á völlinn til annars en að vinna leikinn. Þegar leið á leikinn sýndi það sig að Aftureldingarmenn voru likamlega betur á sig komnir og að liðið bjó yfir betri einstak- lingum. Leikurinn endaði 24-19 og síð- ustu mínútumar voru ekki mjög erfiðar. Gripurinn handleikinn Þegar leiknum lauk fagnaði ég óspart með mínum mönnum. Ég fór niður í klefa til minna gömlu vina og félaga og þar fékk ég að handleika gripinn. Síðan tók ég þátt í gleðskapnum með þeim fram undir morgun. í klefanum voru þau orð látin falla að viö yrðum að taka allt í réttri röð, næst yrði það deildar- meistaratitillinn og síðan íslands- meistaratitillinn. Það getur þó allt gerst. Það er ekkert í höfn fyrr en búið er að landa því - það þarf líka að hafa kvóta fyrir því. Ekkert í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.