Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.1999, Side 33
X>"V LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1999
IFramundan...
Mars:
27. marsmara|)on
Hefst kl. 10.00 og 11.00 við
Ægisíðu, Reykjavík. Fyrri tíma-
: setningin er fyrir þá sem ætla
sér að vera yfir 4 klst. og 15
mín. að hlaupa vegalengdina.
Vegalengd: maraþon með tíma-
töku. Allir sem ljúka keppni fá
Iverðlaunapening. Paraboð-
hlaup þar sem hvor aðili (verð-
ur að vera kona og karl) hleyp-
ií ur hálfmaraþon. Upplýsingar
; Pétur I. Frantzson í síma 551
4096 og símboða 846 1756.
Apríl:
3. Flóahlaup UMF Samhygðar
Hefst kl. 14.00 við Félagslund,
| Gaulverjarbæjarhreppi. Vega-
| lengdir: 3 km, 5 km og 10 km
með tímatöku. Flokkaskipting,
; bæði kyn: 14 ára og yngri (3
km); konur: 39 ára og yngri, 40
I ára og eldri (5 km), opinn flokk-
I ur kvenna (10 km); karlar: 39
| ára og yngri, 40-49 ára, 50 ára
og eldri (10 km), opinn flokkur
karla (5 km). Verðlaun fyrir
þijá fyrstu í hverjum flokki.
j Upplýsingar Markús Ivarsson í
I síma 486 3318.
22. Víðavangshlaup ÍR og Elkó
Hefst kl. 13.00 við Ráðhús
Reykjavíkur. Vegalengd: 5 km
með tímatöku. Flokkaskipting,
bæði kyn: 12 ára og yngri, 13-15
I ára, 16-18 ára, 19-39 ára, 40-49
ára, 50-59 ára, 60 ára og eldri.
0 Keppnisflokkar í sveitakeppni
■ eru íþróttafélög, skokkklúbbar
I og opinn flokkur. Allir sem
ljúka keppni fá verðlaunapen-
| ing. Verðlaun fyrir 1. sæti í
hverjum aldursflokki. Boðið
; verður upp á kaffihlaðborð eftir
■ hlaup. Skráning í Ráðhúsinu
: frá kl. 11.00. Upplýsingar: Kjart-
I an Ámason í síma 587 2361 og
Gunnar Páll Jóakimsson í síma
565 6228.
22. Víðavangshlaup Hafnarfjarðar
Hefst kl. 13.00 á Víðistaðatúni
í Hafnarfirði. Vegalengdir: 1
; km, 1,4 km og 2 km með tíma-
| töku. Flokkaskipting, bæði kyn:
5 ára og yngri (200 m), 6-7 ára
I (300 m), 8-9 ára (400 m), 10-12
Iára (1 km), 13-14 ára (1,4 km),
15-18 ára, 19-29 ára; konur: 30
ára og eldri; karlar: 30-39 ára,
40 ára og eldri (2 km). Sigurveg-
ari í hverjum flokki fær farand-
bikar. Upplýsingar Sigurður
Haraldsson í síma 565 1114.
22. Víðavangshlaup Vöku
Upplýsingar: Fanney Ólafsdótt-
ir í síma 486 3317.
22. Víðavangshlaup Skeiðamanna
I Upplýsingar: Valgerður Auð-
| unsdóttir í sima 486 5530.
24. ísfuglshlaup UMFA
Hefst við iþróttahúsið að
| Varmá, Mosfellsbæ. Skráning
j og búningsaðstáða við sundlaug
j Varmár frá kl. 11.30. Vegalengd-
j ir: 3 km án tímatöku, hefst kl.
j 13.00 og 8 km með tímatöku og
S sveitakeppni, hefst kl. 12.45.
j Sveitakeppni: Opinn flokkur, 3
I eða 5 í hverri sveit. Allir sem
Iljúka keppni fá verðlaimapen-
ing. Útdráttarverðlaun. Upplýs-
ingar: Kristín Egilsdóttir í síma
566 7261.
Maí:
11.1.-maíhlaup UFA
Hefst kl. 13.00 við Sportver.
Vegalengdir: 4 km og 10 km
meö tímatöku. Flokkaskipting,
bæði kyn: 6 ára og yngri (1 km),
j 7-9 ára, 10-12 ára, 13-14 ára,
15-16 ára (2 km), 17-39 ára, 40
[ ára og eldri (4 km eða 10 km).
Verðlaun fyrir þrjá fyrstu í öll-
um flokkum og allir sem ljúka
j keppni fá verðlaunapening. Út-
j dráttarverðlaun. Skólakeppni.
Upplýsingar: UFA, pósthólf 385,
| 602 Akureyri.
flMtWaBMWIIHWIIilBBIIMMMWaaBgaaaBBBBaMailWMBHWMMl
tnmmt
ikik
Skráðu sig á skokknámskeið hjá Námsflokkum Reykjavíkur fyrir 6 árum:
Stefna á London-maraþon í vor
Hjónin Áslaug Guðjónsdóttir og
Kristján Gunnarsson eru meðal fjöl-
margra íslendinga sem hyggja á þátt-
töku í London-maraþoninu í vor. Þau
hafa æft með skokkhópi Námsflokka
Reykjavíkur síðastliðin 6 ár. „Við
hjónin höfum alltaf gengið mjög mik-
ið og haft áhuga á heilbrigðri útivist,
en það var ekki fyrr en í janúar árið
1993 sem við byrjuðum að skokka,"
segir Áslaug.
Umsjón
Isak Öm Sigurðsson
18" með 3 áleggjum, s+ór skamm+ur af
brauðs+öngum <& 2L gos
1890.-
Hlýbýlavegi f 4
Gnocfarvogi 44
Gullu“ á sunnudögum hka í Laugar-
dalnum. Ég prófaði reyndar einu
sinni að skrá mig í annan hlaupahóp
og þar var ágætis fólk, en það leið
ekki langur tími þar til ég fékk heim-
þrá og kom aftur í skokkhópinn hjá
Námsflokkunum,“ segir Áslaug.
Áslaug og Kristján erum búin að
láta skrá sig til þátttöku í London-
maraþoni í vor og fara með stórum
hópi fólks úr Námsflokkum Reykja-
víkur. „Ég hef hlaupið maraþonhlaup
nokkrum sinnum áður og fór reyndar
Laugaveginn síðasta sumar og ætti
því að geta hætt mér í þetta hlaup. Ég
er ekki smeykur við þessa vega-
lengd,“ segir Kristján.
Áslaug var heldur ekki smeyk við
London-maraþon, þó að hún hefði
aldrei áður hlaupið svo langa vega-
lengd. „Ég er búin að prófa að hlaupa
um 30 km á æfingum og hef áður tek-
ið þátt í hálfu maraþoni. Ég hef því
engar sérstakar áhyggjur af heilu
maraþoni, ætla að klára hlaupið svo
fremi sem ég lendi ekki í einhveiju
óhappi á leiðinni. Hlaupastillinn hjá
mér er á rólegri nótunum - en ég
klára alltaf hlaupin."
Mývatn í uppáhaldi
Áslaug og Kristján voru spurð að
því hvort þau ættu sér ekki einhver
uppáhalds hlaup. „Það er engin spum-
ing að Mývatn hefur sérstakt aðdrátt-
arafl fyrir okkur, það er nánast eins
og jólahátíð þegar það hlaup fer fram.
Öll umgjörðin í kringum það hlaup er
svo skemmtileg. Héðan úr bænum fer
stór hópur fólks saman í rútu, gistir á
Skútustöðum og tekur þátt í skemmti-
legasta hlaupi ársins. Við endum
alltaf Mývatnshlaupið á því að skrá
okkur í næsta hlaup að ári,“ sögðu
Áslaug og Kristján.
W&M jg$
!
SWli
9" með 3 áleggjum
590.-
18" með 3 áleggjum
1190.-
AFMÆLISTILBOfc
16" með 3 áleggjum
16" með 2 áleggjum
16" með 1 áleggi
9" hví+lauksbrauð,
9" margaríta eða lí+ill
skamm+ur af brauðs+öngum
fylgir hverri pizzu
SENT HEIM
lágmark 5 pízzur
990.-
900.-
850.-
„Vinahjón okkar hafa alla tíð
skokkað mjög mikið og segja má að
þau hafl platað okkur út í þetta. Ann-
ars væri hægt að halda því fram að
upphafið megi rekja til sumarsins
1992 þegar við skráðum okkur til þátt-
töku í 7 km skemmtiskokki í Reykja-
hlaupi. Við fórum alveg óundirbúin í
það hlaup, gengum og skokkuðum til
skiptis. Kristján hélt reyndar góðum
hraða alla leiðina og náði svo góðum
tíma að ég hef ekki getað komist þessa
vegalengd á jafn góðum tíma enn, þó
hátt í 7 ár séu liðin. Það fmnst mér al-
veg skelfileg tilhugsun," segir Áslaug.
„Ég hélt reyndar áfram að skokka
eitthvað sjálfur eftir það hlaup, en svo
rákumst við hjónin á auglýsingu frá
Námsffekkum Reykjavíkur í janúar
1993 og ákváðum að taka þátt í einu
námskeiði. Það varð nú eitthvað
lengra og við erum ennþá héma hjá
Námsflokkunum,“ segir Kristján.
Góður andi hjá NR
„Hlaupin gera okkur afskaplega
gott, við erum mikið betur á okkur
komin og hraustari að öllu leyti. Ekki
spillir það fyrir að okkur finnst ein-
staklega gaman að skokkinu og það
ríkir sérlega góður andi héma hjá
Pétri Frantzsyni hjá Námsflokkum
Reykjavíkur. Við getum ekki hugsað
okkur að missa af æfingum hópsins
og skiptir þá veðrið litlu máli. Það
eina sem stöðvar okkur frá æfingum
er suðaustan 10 vindstig, en allt undir
því er nægjanlega gott til þess að
mæta,“ segir Áslaug.
„Við hjónin æfum saman 4 sinnum
í viku hjá Námsflokkunum en Krist-
ján hleypur reyndar með „Vinum
mssm
-
12" með 3 áleggjum & lí+ill skamm+ur
af brauðs+öngum eða 9" hví+lauksbrauð
1290.-
16" með 3 áleggjum & ei++ af eftirfarandi:
2L kók, 12" margarí+a, 12" hví+l.brauð
1480.-
Tvaer 16" pizzur, báðar með 2 áleggjum
1890.-
18" með 3 áleggjum <&
16" margaríta eða 16" hvítlauksbrauð
1790.-
12" með 3 áleggjum
790.-
SÉRTTLBOÖ* í TAKT'ANA HEIM
16" með 3 áleggstegundum &
9" hvítlauksbrauð eða
lítill skammtur af brauðstöngum
990.-
* gildir ekki á föstudögum og laugardögum
18" með 3 áleggjum <&
12" margarítu eða
12" hví+lauksbrauð
1490.-
Hjónin Áslaug Guðjónsdóttir og Kristján Gunnarsson eru meðal fjölmargra íslendinga sem hyggja á þátttöku í
London-maraþoni í vor, en þau hafa æft með skokkhópi Námsflokka Reykjavíkur síðastliðin 6 ár.
Áslaug og Kristján æfa 4 sinnum í
viku hjá Námsflokkum Reykjavíkur,
alit árið um kring.
DV-myndir: Pjetur