Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1999, Page 30
LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1999 3D’V H>"V LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1999
Margrét Frímannsdóttir
Margrét er í forsvari fyrir Samfylkinguna.
Nafnið er komiö úr
grísku og
merkir
perla.
Finnur Ingólfsson
Merking nafnsins Finnur er ósköp ein
föld: finnskur maður. Kannski Finnur
stundi gufubaðið stíft, stökkvi á
skíðum, aki eins og raliökumaður
og hlusti á m
Síbelíus. u ^
Hjálmar Árnason
Hjálmar Jónsson
Þeir eru báðir skeggjaðir og
^ heita báðir Hjálmar. Nafnið
lgj|k merkir hermaður með
nT\ hjálm.
VAI
Björn Bjarnason
Það vita allir hvað Björn merkir. Það merkir
einfaldlega björn.
Siv Friðleifsdóttir
Nafn Sivjar merkir brúður eða
eiginkona.
Agúst Einarsson
Nafnið Ágúst er upphaflega úr latínu og
merkir virðulegur eða göfugur. Upphaflega
var það heiðurstitill og muna fiestir eftir
Ágústusi keisara.
Páll Pétursson
í þetta sinn er erfitt að færa
rök fyrir því að nafnið lýsi
manninum algjörlega. Páll
þýðir lítill.
Árni R. Árnason
Árni Johnsen
Árni Mathiesen
Algengasta nafnið á Alþingi ásamt nafninu Guðmundur
er Árni og það merkilega er að þeir eru allir sjálfstæð-
ismenn. Það er þó kannski ekki óeðlilegt
þar sem merki flokksins er tignar-
legur fugl. Þrátt fyrir að margir
tengi Árna Johnsen við
iunda þýðir nafnið Árni Jsév
örn. JJvZf .mtt. *
Bryndís Hlöðversdóttir
Bryndís merkir brynjuð dis. Það er líklega
raunin að menn þurfa að vera dálítið
brynjaðir til að sitja á þingi. Það er þó
ekki verra að vera dts innan við brynjuna.
I húsi við Austurvöll vinna 63 menn. Þar dunda þeir sér við að setja lög og ræða um landsins gagn og nauðsynj-
ar. Þeir rifast stundum en stundum eru þeir bestu vinir og félagar. Þeir halda mislangar ræður um misjöfn málefni
og berja í borðið á viðeigandi stöðum. Þeir eru þingmenn, kjörnir til setu á Alþingi til að setja lög og spá í framtíð-
ina. Blessaðir þingmennirnir eru sumir hverjir í fjölmiðlum á hverjum degi. Andlit þeirra eru inngreipt í augnbotna
okkar og nöfnin í undirmeðvitundina.
Lengi hefur verið sagt að nöfn manna segi nokkuð til um eðli þeirra. Ekki verður hér úr því skorið hvort svo er
en engu að síður er fróðlegt að skoða þýðingu nafna þingmannanna.
Það er athyglisvert ef nöfn þingmannanna eru skoðuð að fjölmennur nafnahópur íslenskra karlmanna verður að
liggja óbættur hjá garði. Það eru allir Sigurðarnir sem eiga engan nafna á þingi. Einnig verður að teljast athyglis-
vert að engin Guðrún situr á þingi.
Það er vonandi að þessi yfirferð hafi veitt einhverjum ánægjublik í auga. -sm
Davíð Oddsson
Þaö halda örugglega margir að Davíð þýði konungur en svo er ekki.
Nafn vinsælasta og um leiö óvinsælasta stjórnmálamanns íslands
kemur úr hebresku og merkir elskaður eða ástvinur.
Einar K. Guðfinnsson + Einar O. Kristjánsson
Þeir koma báðir að vestan og eru báðir sjálfstæðismenn en þeir virðast grúppa sig saman í nafna-
vali. Þorgeir Hávarsson og Gísli Súrsson voru líka að vestan og miklir hermenn og
er það viöeigandi því að nafnið Einar þýðir einstæður eða frábær her-
maður.
Tómas I. Olrich
Nafn Tómasar er komið úr
hebresku og merkir tvíburi.
Geir H. Haarde
Nýi fjármálaráðherrann er kannski beittur;
nafnið Geir merkir einfaldlega spjót.
v