Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1999, Side 6
LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999 JLlV
e»jfréttir
Tillaga meirihluta bæjarstjórnar í Hverageröi um kattahald:
Köttur verði tryggður
fýrir minnst 10 milljónir
- bæjarfulltrúi talar um reglugerö um kanarífugla
DV, Hveragerði:
Til umræðu er nú tillaga meiri-
hluta bæjarstjómar Hveragerðis,
L-lista, um kattahald í bænum. í
tillögunni er gert ráð fyrir því, að
kattahald verði bannað í Hvera-
gerði. Þó megi veita undanþágur
en með um 25 skilyrðum. Meðal
annars er sú kvöð að hver kötttur
skuli tryggður fyrir að lágmarki
tíu milljónir króna. Þess er einnig
getið að ekki megi vera fleiri en
tveir kettir eldri en þriggja mán-
aða á sama heimili. Heimilt verði
auk þess að „eyða“ köttum séu
þeir ómerktir.
Fjörugar umræður urðu á fundi
bæjarstjórnar um tillöguna en
Knútm- Bruun, fulltrúi Sjálfstæð-
isfélagsins, var sá eini sem gerði
athugasemdir við tillöguna og
gerði óspart grin að innihaldi
hennar. Örlaði fyrir brosi á vör
flestra fundarmanna. Knútur
kvaðst eiga einn kött, Hvera að
nafni, hvað annað, 10 ára, sem
engan skaða gerði nema að veiða
einstöku mýs og meira að segja
einu sinni mink. Ef tryggja yrði
hvern kött fyrir 10 milljónir sagð-
ist hann búast við því að í tillögu
um endurskoðun reglugerðar um
Hveri, hefðarköttur Knúts Bruuns, á heimili sínu í gær. Hveri veiðir af og til mýs og hefur einu sinni veitt mink.
DV-mynd Eva
hundahald, sem liggur fyrir, yrði
væntanlega gert ráð fyrir a.m.k.
sexfaldri tryggingu fýrir hvern
himd. Síðar þyrfti væntanlega að
athuga með reglugerð og trygg-
ingar á kanarifuglum og fleiri
heimilisvinum.
Svo vill til að nokkrir kettir úr
Hveragerði eru nú um helgina á
kattasýningu í Kópavogi. Einn
eigandi þriggja þeirra, sem eru á
sýningunni, er Maria Isabel. Hún
og fjölskylda hennar urðu nýlega
fyrir stórtjóni af völdum bruna í
húsi þeirra og búa nú i sumar-
húsi í Ölfusborgum. Fjölskyldan,
hjón og tvö böm, áttu hund en
honum þurfti að lóga því ekki má
hann dvelja með fjölskyldunni f
sumarhúsinu. Fjölskyldan á auk
þess fimm ketti sem fengu inni í
Kattholti í Reykjavík á meðan
þau hjón reyna að leysa úr hús-
næðismálum. Þrír kattanna verða
á sýningimni í Kópavogi. Maria
Isabel sagði í samtali við DV að
hún væri aldeilis forviða og
hneyksluð á þessari tillögu og að
hér væri verið að taka fram fyrir
hendur fjölskyldunnar til þess að
stjórna sínu eigin heimili.
-eh
Rafveita Hvergeröinga til sölu:
Bæjarstjórnarfundur ógiltur
- þar sem fundarboð kom klukkutíma of seint
Langar þig í skemmtilegan
skóla eitt kvöld í viku?
□ Langar þig aÖ vita allt um handanheimana, um hvar
látnir vinirþínir og vandamenn hugsanlega og líklegast
eru í dag og hversu öruggt meint samband við þá og
þessa undarlegu heima er með aðstoð miðla og hvaða
merkilegar rannsóknir hafa verið gerðar á því í
veröldinni í dag?
□ Og langar þig að setjast í skemmtilegan og svo
sannarlega spennandi skóla í glaðvœrum og jákvœðum
hópi nemenda eitt kvöld í viku, þar semfarið er ítarlega
í máli og myndum, sem og í námsefni, yfir allt sem
lýtur að framhaldslífi okkar jarðarbúa eins og mest
og best er vitað um það á hnettinum í dag,fyrir hófleg
skólagjöld?
Ef svo er þá áttu ef til vill samleið með okkur og hundruðum
ánægðra nemenda sl. sex misseri.Síðustu kynningarfundir ársins
eru í skólanum í dag og á morgun, kl. 14 og á mánudagskvöldið,
kl. 20.30.
Hringdu og fáðu allar nánari upplýsingar um mest spennandi
skólann sem í boði er í dag. Yfir skráningardagana er svarað í
síma Sálarrannsóknarskólans alla daga vikunnar, kl. 14 til 19.
És:
Sálarrannsóknarskólinn
- Skemmtilegasti skólinn í bænum -
Síðumúla 31
s. 561 9015 & 588 6050
J
DV, Hveragerði:
Á fundi bæjarstjómar Hveragerðis
fyrir rúmri viku var lögð fram tillaga
meirihluta bæjarstjómar, fuiltrúa
Bæjarmálafélagsins, þess efnis að at-
huga skyldi möguleika á sölu rafveitu
Hveragerðisbæjar til Rafmagnsveitna
ríkisins. í greinargerð með tillögunni
segir að líkur séu á að breytingar í
orkuumhverfmu geti orðið töluverðar
á næstu árum í kjölfar aukinnar sam-
keppni. Auk þess er sagt að það sé
„skoðun bæjarfulltrúa Bæjarmálafé-
lags Hveragerðis, að þeim fjármunum,
sem felast í dreifikerfi rafveitunnar,
sé betur varið, t.d. í þjónustu sem lög-
boðið er að sveitarfélagið annist og í
lækkun skulda, sem leiði til aukins
ráðstöfunarijár sveitarfélagsins til
framtíðar.“
Fulltrúi sjálfstæðismanna, Knút-
ur Bruun, hafði áður lýst yflr
harðri andstöðu sinni við málefnið.
Á umræddum fundi hélt Knútur
þrumuræðu um hversu „vont mál“
þetta væri og að minnsta kosti ætti
að halda borgarafund, þar sem íbú-
ar gætu tjáð sína skoðun. Hann
lagði síðan fram bókvm, þar sem
hann lýsir þá, sem standa að tillög-
unni, bera fulla ábyrgð á stórum
skrefum aftur á bak í orkumálum
Hveragerðisbæjar og, m.a. væntan-
legum taxtahækkunum bæði til
heimila og garðyrkjustöðva.
Þess má geta aö samkvæmt upp-
lýsingum frá RARIK er taxti fyrir
hverja kilóvattstund í Reykjavík
kr. 7,53 en frá veitustofnun Hvera-
gerðis fengust þær upplýsingar, að
þar væri iaxtinn kr. 6,80. Fundar-
hlé var haldið eftir að Knútur hafði
lagt fram tillögu um að allar gerðir
fundarins yrðu gerðar ómerkar,
þar sem gildandi reglum um boðun
fundarins hefði ekki verið fylgt.
Fundarboð hafði borist Knúti
klukkustund síðar en reglugerð
bæjarins segir til um. Eftir hlé
samþykkti fundurinn tillögu Knúts
og teljast því allar samþykktir
fundarins ógildar. Að sögn fróðra
manna um fundarsköp þarf að
framfylgja öllum settum reglum en
þetta mun þó vera einsdæmi í sögu
bæjarstjómarfunda og þótt víöar
væri leitað. Boðað er til aukafund-
ar bæjarstjórnar Hveragerðis
næsta mánudag, þar sem allar sam-
þykktir síðasta fundar verða vænt-
anlega endurteknar og sömu mál
tekin fyrir. -eh
Nýbygging við
Melaskólann
Við Melaskólann í Reykjavík er
risin nýbygging. Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri afhenti
skólastjóra hana formlega í gær.
Melaskólinn varð einsetinn nú í
haust. Hann er einn fjögurra skóla
sem bættust í hóp einsetinna skóla í
Reykjavík. Því eru þrir fjórðu skóla
borgarinnar einsetnir. Áætlað er að
einsetningunni ljúki árið 2002.
Melaskólinn tók til starfa árið
1946 og tók þá við af Skildinganes-
skóla sem var til húsa á ýmsum
stöðum í Skerjafirði og á Gríms-
staðaholti á árunum 1929 til 1946. í
Melaskóla eru nú um 580 börn í 1.-7.
bekk. Við skólann starfa 44 kennar-
ar, auk skólastjóra og aðstoðar-
skólastjóra og á þriðja tug annarra
starfsmanna.