Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1999, Blaðsíða 14
14
LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999 JjV
Reykjavíkurmærin ingibjörg Ólöf Isaksen er:
Fimmti ættliðurinn sem býr í sama húsinu
- langafi byggði húsið og síðan hefur það gengið manna á milli í fjölskyldunni
Ingibjörg Ólöf Isaksen með son sinn, Ragnar Ágúst. Hún hefur búið í íbúðinni
hún var barn.
Nú er þetta stórt hús, hefur fjöl-
skyldan alltaf búið í sömu íbúðinni?
„Nei. Afi og amma hófu t.d. bú-
skap uppi í risi og fluttu sig svo nið-
ur um eina hæð. í gamla daga var
þessi hæð sem við erum núna á ein
íbúð en svo var þessu skipt niður í
tvær íbúðir. Önnur íbúðin er mjög
lítil og er ég í henni en amma er í
stærri íbúðinni.
Einar Pétursson, langafi minn,
var trésmiður og fór hann í fram-
haldsnám í húsasmíðum úti í Dan-
mörku. Þetta hús héma er til dæm-
Húsið á Hverfisgötu 59 sem fjöl-
skylda Ingibjargar hefur búið í frá
því langafi hennar byggði það árið
1928. DV-mynd E.OL.
is allt mjög hátt til lofts og með list-
um og komst hann upp á lagið með
það úti í Danmörku eins og tíðkað-
ist þá. íbúðin er frekar gamaldags
og t.d. er íbúðin hennar ömmu með
tveimur stofum eins og öll hús voru
þá.
Lóðin héma sem langafi keypti
og húsið stendur nú á var með litlu
timburhúsi. Hann færði húsið aftur
í bakgarð og byggði sökkulinn og
þetta hús út frá gamla húsinu.
Gamla bakhúsið brann svo fyrir
nokkuð mörgum árum.“
Nú eru verslanir i húsinu, hefur
það alltaf verið?
„Já. Ríkey og Hraðmyndir eru
hérna á neðri hæðinni þar sem einu
sinni var fatahreinsun sem frændi
minn rak í fjölda ára, og mjólkur-
búð, en nú em sem sagt verslanir á
jarðhæð en íbúðir á hinum hæðun-
umJt-x
V
síðan í ágúst í fyrra en einnig þegar
DV-mynd Pjetur
Hvað gerir þú svo þegar þú dvel-
ur ekki í húsinu góða?
. „Ég er að vinna í Seðlabankanum
og æfi og þjálfa sund með sundfélag-
inu Ægi. Það er yfirdrifið nóg að
gera og kem ég því oft seint heim á
kvöldin."
Er gott að búa á Hverfisgötu 59?
„Þetta er rosalega þægilegt. Ég
hef auðvitað verið hérna af og til í
mörg ár og alltaf þekkt þetta, farið í
heimsókn til ömmu og þekkt hverf-
ið.“
Nú er oft talað um háreysti í mið-
borginni. Verður þú ekkert vör við
það?
„Nei, maður finnur voðalega lítið
fyrir því. Svefnherbergið snýr aftur
í bakgarð en þegar ég fæ gesti er oft
kvartað yfir umferðinni en ég er al-
veg hætt að taka eftir því. Maður
venst þessu mjög fljótlega." -hdm
Það verður að teljast nokkuð al-
gengt hér á íslandi að ýmsir munir
séu lengi í vörslu sömu fjölskyld-
unnar; erfist kynslóða á milli. Er þá
um að ræða ýmsa innanstokks-
muni, eins og lampa eða borðbúnað
og þar fram eftir götunum. Hitt er
þó líklega ekki eins algengt að hús
eða íbúðir gangi í erfðir til langs
tíma en þess finnast þó enn dæmi.
Húsið á Hverfisgötu 59, sem byggt
var árið 1928, hefur þjónað mörgum
en afkomendur mannsins sem
byggði það búa enn í því. Ingibjörg
Ólöf Isaksen er fjórði ættliðurinn
sem býr í húsinu og sonur hennar
sá fimmti. Við báðum hana að segja
okkur frá húsinu og sögu þess.
„Ég flutti hingað inn í ágúst i
fyrra en ég bjó héma að vísu líka
þegar ég var lítil með mömmu og
pabba þannig að þetta er í raun í
annað sinn sem ég flyt inn í þessa
íbúð. Langafi minn byggði húsið
árið 1928 og bjó héma í fjögur ár en
þá dó hann. Börnin hans þrjú héldu
eftir lát hans áfram að búa í húsinu.
Svo fluttist eitt þeirra út en hin
bjuggu áfram í húsinu og er afi
minn annað þeirra. Afi á tvö böm,
mömmu og frænda minn, og hafa
þau bæði búiö héma. Nú bý ég svo
hérna með syni mínum, Ragnari
Ágústi sem er eins árs.“
i&iðsljós
\
\
Skringilegt par
Frá Hollywood berast þær
fréttir að hið ólíklega par Eliza-
beth Taylor og Michael Jackson
hafi farið saman í blaðaviðtal
sem mun birtast á næstunni. Þar
er sagt að þau séu afskaplega
opin um samband sitt sem felur í
sér rómantískar lautarferðir og
letidaga á hinum einkennilega
búgarði Michaels. Ennfremur
kemur fram að sú gamla er með
mynd af söngvaranum hangandi
inni í stofu hjá sér og hann hefur
áritað: „Til minnar einu sönnu
ástar, Elísabetar, ég mun að ei-
lífú elska þig.“ í viðtalinu lýsir
Michael frúnni sem „hlýrri,
mjúkri ábreiðu sem ég elska að
hjúfra mig upp að og breiða yfir
mig. Um tilfinningar Liz segir
hann: „Hún er manneskja sem
elskar mig, elskar mig í raun og
veru.“ Samhliða öllum þessum
yfirlýsingum Michaels um að
hún elski hann ver Liz hann með
kjafti og klóm, mótmælir harð-
lega öllum aðdróttunum um að
pilturinn sé eitthvað einkenni-
legur og segir: „Allt töfrandi fólk
hlýtur að hafa hrænræktaða sér-
visku til að bera.“ Þeim í
Hollywood finnst hann hins veg-
ar ekkert sérvitur, bara stórund-
arlegur.