Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1999, Qupperneq 18
18
LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999 TIV
m á mér draum___________________________________________
Hjörtur Magni Jóhannsson á sér bæði starfsdrauma og aðra drauma:
Fleiri tíma í sólarhrínginn til að sinna fjölskyldunni
- dreymir líka um að fara með íslendinga á söguslóðir Biblíunnar
Stóri draumur Hjartar Magna var alltaf að ferðast um allan heiminn og blund-
aði það fljótt í honum. DV-mynd Hilmar Þór
Hjörtur Magni Jóhannsson er
prestur Fríkirkjunnar í Reykjavík og
hefur verið það um nokkra hríð.
Hann hefur komið víða við þótt ungur
sé og er því tilvalið að hann segi að-
eins frá sér og draumum sinum.
„Já, ég er prestur í Fríkirkjunni
hér í Reykjavík og er búinn að vera
það í eitt og hálft ár. Fríkirkjusöfnuð-
urinn er hundrað ára í ár og helstu
væntingar mínar og draumar í dag
eru mikið í tengslum við að sjá Frí-
kirkjuna sem blómstrandi söfnuð. Hér
í Fríkirkjusöfnuðinum er játuð ná-
kvæmlega sama trúin og gert er í
þjóðkirkjunni en okkar sérstaða felst
meðal annars í því að við erum óháð
ríki. Fyrir einni öld náðum við því
markmiði sem hægt og mjakandi er
verið að vinna að hjá ríkisstyrktu
þjóðkirkjunni, þ.e.a.s. aö greina alveg
á milli ríkis og kirkju, eins og reynd-
ar hefur þegar verið gert víðast hvar í
heiminum. Söfnuðurinn er líka
þannig að fólk getur tilheyrt honum
óháð því hvar það býr á landinu. Stór-
ijölskyldur geta til dæmis sameinast í
sama söfnuðinum þótt búseta sé
dreifð. Minn stóri draumur er því að
skapa blómlegt og lifandi safnaðar-
starf hér í Fríkirkjunni. Allar ytri að-
stæður eru til fyrirmyndar, kirkjan er
nú eftir endurbætur einhver sú al-
glæsilegasta í borginni og nýlegt safn-
aðarheimili býður upp á kröftuga
starfsemi. En ímynd Frikirkjusafnað-
arins hefur því miður ekki alltaf vitn-
að um sátt og gagnkvæmt traust. Þess
vegna er mikið innra uppbyggingar-
og endurnýjunarstarf fram undan og
við það eru draumar mínir bundnir.
Ein vísbending um að sá draumur
minn sé að rætast er að á þessu eina
og hálfa ári sem ég hef starfað hér
hafa hátt i 300 manns bæst í söfnuð-
inn og nú eru í honum vel á sjötta
þúsund meðlimir. Það er trú mín að
fríkirkjufyrirkomulagið sé það fyrir-
komulag trúmála sem hentar best í
nútímasamfélagi og þar að auki er
það einnig langtrúverðugast. Þegar
fólk hugsar um trúmál eða áleitnar
tilvistarspumingar sækja að, þá á það
alls ekki að vera svo að ríkisrekin
stofnun eða svartklæddir embættis-
menn leiti fyrst á hugann. Kirkjan á
heldur að vera grasrótarhreyfmg og
það er í samræmi við væntingar fólks-
ins.“
Róandi áhrif að hugsa til stríðs-
hrjáðra söguslóða Biblíunnar
Hvar hefur Hjörtur Magni alið
manninn fram til dagsins í dag?
„Ég lauk guðfræðinámi frá Háskóla
íslands en var einnig við nám í Mið-
Austurlöndum um tveggja ára skeið.
Auk prestsþjónustu á Suðurnesjum í
u.þ.b. áratug dvaldi ég í þrjú ár ásamt
fjölskyldu minni í Edinborg í
Skotlandi. Þar vann ég að doktorsrit-
gerð á sviði guðfræði og fjölmiðlunar
við Edinborgarháskóla. Að ljúka
þeirri vinnu er einn minn heitasti
draumur. En til þess hefur gefist sára-
lítili tími.“
Hvernig var dvölin í Mið-Austur-
löndum?
„Ég var við nám m.a. við hebreska
háskólann í Jerúsalem, borginni
helgu, í tvö ár. Þetta var mjög
skemmtileg lífsreynsla og mikið ævin-
týri. Þar samtvinnaðist í eitt framandi
menningarheimar, spennandi mannlíf
og heillandi fræði. Svo eru þetta auð-
vitað söguslóðir Biblíunnar og þriggja
stærstu eingyðistrúarbragða veraldar.
Það er gamaÚ draumur að fara með ís-
lenska hópa þangað í menningar- og
skemmtiferðir. Ég fer reyndar á næsta
ári með hátt í 100 manna hóp til Eg-
yptalands og ísraels í hálfan mánuð.
Og ferð Fríkirkjufólks er fyrirhuguð."
Er þetta hollt hvet'jum manni að
fara þangað?
„Mjög svo. Þetta er náttúrlega vett-
vangur heimsviðburðanna í dag og
þama eru söguslóðir og vettvangur at-
burða Nýja testamentisins. Þetta er
mjög spennandi og tilvalið að eiga
svona áhugasvið sem er langt utan er-
ilsins hér á íslandi. Ég hef það svona
sem einkadagdraum að láta hugann
reika þangað og eins mótsagnakennt
og það hljómar þá hefur það róandi
áhrif að hugsa til þessa stríðshrjáða
heimshluta."
Gekk aldrei með prestinn
í maganum
Dreymdi þig alltaf um að verða
prestur?
„Ég gekk nú aldrei með prestinn í
maganum eins og sumir kollegar mín-
ir gerðu. Það réðst aftur á móti þegar
ég var í guðfræðideUdinni. Annars er
ég kominn af nokkuð trúrækinni fjöl-
skyldu þannig að þetta kom lUdega að
hluta með móðurmjólkinni."
Var eitthvað annað sem þig
dreymdi um þegar þú varst yngri? Þú
hefur ekki ætlað að verða flugmaður
eins og margir aðrir strákar?
„Minn stóri draumur var að ferðast
um aUan heiminn en það blundaði
mjög fljótt í mér. Ég hef þvælst nokk-
uð víða en áhugasvæðið mótaðist
nokkuð fljótt, með allri þeirri sögu og
menningu sem þar er að fmna.“
Það er kannski draumur, sem ekki
hefur enn ræst, að ferðast meira?
„Ja, bæði og. Að hluta tii hefur
hann ræst en það eru vissar óuppfyUt-
ar vonir og væntingar sem enn
blunda á því sviði."
Hefur þann fæðingargalla að
hafa aldrei verið með bfladellu
Heldurðu einhveijum tengslum við
fólk úti í ísrael?
„Já, ég á góða vini úti í ísrael, bæði
strangtrúaða gyðinga og svo meðal
arabanna sem eru ýmist múslímar
eða kristnir."
Er algengt að prestar taki hluta af
námi sínu þarna úti?
„Nei, það er ekki algengt en þeir
eru nokkrir sem hafa farið þama á
eftir mér. í raun ætti það að teljast
eðlilegt að menn fari á þessar slóðir
þvi þetta eru söguslóðir þeirra bóka
sem verið er að rannsaka í guðfræð-
inni.“
Eru ekki einhverjir litlir draumar
sem hafa fylgt þér, eins og að eignast
jeppa eða sumarbústað?
„Ég er nú fæddur með þann fæðing-
argaUa að ég hef aldrei verið með bUa-
deUu né heldur þráð að eignast ver-
aldiegan auð í formi timburs eða
steinsteypu. En annars hafa aUir
draumar í mínum einka- og fjöl-
skyldumálum ræst blessunarlega.
Eini dagdraumurinn er líklegast sá að
það mættu bætast fleiri klukkutímar í
sólarhringinn svo ég geti sinnt fjöl-
skyldunni betur.“
-hdm
fimm breytingar
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur er
að gáð kemur í ljós að á myndinni
til hægri hefur fimm atriðum ver-
ið breytt.
Finnir þú
þessi
fimm at-
riði
skaltu
merkja
við þau
með
krossi á
myndinni til hægri og senda okk-
ur hana ásamt nafni þinu og
heimUisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigur-
vegaranna.
1. verðlaun:
United-simi með
símanúmerabirti frá
Sjónvarpsmiðstöðinni,
Síðumúla 2,
að verðmæti kr. 6.990.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur aö verðmæti
kr. 1570, Sekur eftir Scott Turow og
Kólibrísúpan eftir David Parry og
Patrick Withrow.
Vinningarnir veróa sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm
breytingar? 537
c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík
Rnnur þú fimm breytingar? 537
Ekki gætir þú verið svo væn að lána mér eins og einn
bolla af bensíni?
Nafn: _
Heimili:
Vinningshafar fyrir getraun
númer 535 eru:
1. verðlaun: Ósk Davíðsdóttir. Réttarbakka 9.109
Reykjavík.
2. verðlaun: Guðrún Angantýsdóttir, Hólabraut 3,545
Skagaströnd.
BRETLAND
SKÁLDSÖGUR - KIUUR:
1. Tom Clancy: Rainbow Six.
2. Danlelle Steel: The Klone and I.
3. Dick Francls: Fieid of Thirteen.
4. Ruth Rendell: A Sight for Sore
Eyes.
5. Sebastlan Faulks: Charlotte Grey.
6. James Patterson: When the Wind
Blows.
7. Elvl Rhodes: Spring Music.
8. Charlotte Blngham: The Kissing
Garden.
9. Nlcholas Evans: The Loop.
10. Jane Green: Mr Maybe.
RIT ALM. EÐLIS - KIUUR:
1. Amanda Foreman: Georgina,
Duchess of. Devonshire.
2. Chris Stewart: Driving over
Lemons.
3. Tony Adams o.fl.: Addicted.
4. Anthony Beevor: Stalingrad.
5. Frank McCourt: Angela’s Ashes.
6. Bill Bryson: Notes from a Small
Island.
7. John Gray: Men Are from Mars,
Women Are from Venus.
8. Rlchard Branson: Losing My
Virginity.
9. Simon Winchester: The Surgeon
of Crowthome.
10. Tony Hawks: Around Ireland with
a Fridge.
INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR:
1. Dlck Francis: Second Wind.
2. Thomas Harris: Hannibal.
3. Danielle Steel: Granny Dan.
4. Roddy Doyle: A Star Called Henry.
5. Penny Vlncenzi: Aimost a Crime.
6. Ruth Rendell: Harm Done.
7. laín Banks: The Business.
8. Jlll Cooper: Score!
9. Kathy Reichs: Death Du Jour.
10. Ellzabeth George: In Pursuit of
the Proper Sinner.
INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS:
1. Alex Ferguson: Managing My Life.
2. John Humphrys: Devil’s Advocate.
3. Simon Singh: The Code Book.
4. Bob Howltt: Graham Henry;
Supercoach.
5. Brian Keenan o.fl.: Between
Extremes.
6. Lenny McLean: The Guv’nor.
( Byggt á The Sunday Times)
BANDARIKIN
SKÁLDSÖGUR - KIUUR:
1. Anlta Shreve: The Pilot’s Wife.
2. Tom Clancy: Rainbow Six.
3. Penelope Fltzgerald: The Blue
Bower.
4. Arthur Golden: Memoirs of a
Geisha.
5 Judy Blume: Summer Sisters.
6. Patrlcia Cornwell: Point of Origin.
7. Rebecca Wells: Divine Secrets of
the Ya-Ya Sisterhood.
8. Margaret Truman: Murder at
Watergate.
9. Sidney Sheldon: Tell Me Your
Dreams.
10. Tami Hoag: Still Waters.
RIT ALM. EÐLIS - KIUUR:
1. Robert C. Atklns: Dr. Atkins’ New
Diet Revolution.
2. Frank McCourt: Angela’s Ashes.
3. John Berendt: Midnight in the
Garden of Good and Evil.
4. Mlchael R. Eades o.fl.: Protein
Power.
5. John E. Sarno: Healing Back Pain.
6. Jared Dlamond: Guns, Germs and
Steel.
7. Sebastian Junger: Thé Perfect
Storm.
8. Adeline Yen Mah: Falling Leaves
9. Wllllam L. Ury: Getting Past No.
10. Gary Zukav: The Seat of the
Soul.
INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR:
1. Pairicla Cornwell: Black Notice
2. Thomas Harris: Hannibal.
3. Melissa Bank: The Girl’s Guide to
Hunting and Fishing
4. Jeffery Deaver: The Devil’s
Teardrop.
5. Tim F. LaHaye: Assasins.
6. Catherine Coulter: The Edge.
INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS:
1. Suzanne Somers: Suzanne
Somers’Get Skinny on Fabulous
Food.
2. Mltch Albom: Tuesdays with
Morrie.
3. Chrlstopher Andersen: Bill and
Hillary: The Marriage
4. Bill Phllips: Body for Life.
5. H. Lelghton Steward o.fl: Sugar
Busters.
6. Sally Bedell Smlth: Diana, In
Search of Herself.
( Byggt á The Washington Post)