Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1999, Qupperneq 28
LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999 DV
2« %étta!jós
Samhent hjón í Sautján reka fjórtán verslanir í Reykjavík:
Hagnaður af Stöð 2
gerði gæfumuninn
NTC ehf. (Sautján)
V e.a ^
galleri '
Ctl.M PANY
CeflRUM
Umsvif hjónanna Ásgeirs Bolla
Kristinssonar og Svövu Þorgerðar
Johansen, eða Svövu og Bolla í
Sautján, í sölu tískufatnaðar hafa
aukist hröðum skrefum undanfar-
in ár. Fyrr í vikunni stækkaði fyr-
irtæki þeirra í einu lagi um ríflega
íjórðung þegar hjónin keyptu Evu
hf. og innlimuðu í fyrirtæki sitt,
NTC hf. Áður en að kaupunum
kom átti Bolli tæp 74% í NTC en
Svava tæp 26%. Marta Bjarnadótt-
ir, eigandi Evu, er sögð hafa fengið
í sinn hlut 25-30 prósent hlutaijár í
hinu sameinaða félagi og segist
hún ánægð með þau skipti.
Þá er NTC einmitt að opna tvær
verslanir í nýju Kringlunni og þá
rekur fyrirtækið verslanirnar
Sautján, Deres, Smash, Morgan, In
Wear og nú einnig Evu, Gallery,
Centrum og húsgagnaverslunina
Company eftir kaupin á Evu hf.
Samtals er um að ræða 14 verslan-
ir á snærum NTC, auk heildsölu og
umfangsmikillar saumastofu.
Lítill hagnaður hjá Evu
Fyrirtæki Ásgeirs Bolla og
Svövu Þorgerðar bar lengi vel
nafnið Sautján ehf. þar til því var
breytt í NTC árið 1996 en eigend-
unum þótti óeðlilegt að fyrirtækið
héti Sautján þar sem það rak þá
þegar verslanir undir ýmsum öðr-
um nöfnum. NTC stendur fyrir
Northem Trading Company.
Á árinu 1994 velti Sautján 427
milljónum króna og óx veltan
stöðugt ár frá ári fram til ársins
1998 að hún hafði nær þrefaldast
en þá var hún um 1.023 milljónir
króna. Eftir kaupin á Evu má gera
ráð fyrir að heildarvelta NTC á ár-
inu 1999 verði yfir 1.500 milljónir
króna, ríflega 1.200 milljónir hjá
NTC-arminum og rúmar 300 millj-
ónir í verslunum Evu.
Fyrirtæki Mörtu Bjarnadóttur,
Eva hf., er talsvert smærra í snið-
um en NTC og á undanfömum
ámm hefur vöxtur þess heldur
ekki verið eins hraður og hjá NTC
en veltan jókst þó úr 164 milljónum
króna árið 1994 í 268 milljónir í
fyrra. Þá hefur rekstur Evu cills
ekki skilað sambærilegum hagnaði
og NTC hefur gert á þessu tímabili
og reyndar var 898 þúsund króna
tap á fyrirtækinu árið 1996. Ann-
ars hefur hagnaðurinn verið frá
tæplega 900 þúsund krónum upp í
1.500 þúsund krónur á þessum
ámm. Sömuleiðis hefur eiginfjár-
staða Evu verið sýnu lakari en hjá
NTC. Þannig námu eignir Evu um-
fram skuldir aöeins 9,3 milljónum
króna um síðustu áramót en heild-
arskuldir fyrir-
tækisins voru
þá 88 milljónir.
Eina verulega
eignin, utan
vörulagers,
sem færð er til
bókar hjá Evu
hf. um sl. ára-
mót er hluti af
húseigninni að
Laugavegi 42
sem metinn er
á 9 milljónir.
Eignir NTC
námu hins veg-
ar 353 milljón-
um króna um-
fram 359 millj-
óna króna
skuldir í lok
ársins 1998.
Milljónir kr.
Ásgeir Bolli Kristinsson og Svava Þorgerður Johansen opnuðu tískufataverslun í nýju Kringl-
unni á fimmtudag.
Græddu 100 milljónirá
Stöð 2
Miklar breytingar urðu hjá
Sautján ehf. á árinu 1995. Þá voru
seld hlutabréf sem félagið hafði
keypt í íslenska útvarpsfélaginu á
árinu 1990. Taldi stjóm fyrirtækis-
ins sig hafa fengið mjög gott verð
fyrir bréfin, eða um 178 milljónir
króna, að frádreginni söluþóknun,
og nam hagnaður af sölunni 103
milljónum fyrir tekjuskatt.
Þessa fjármuni
afréðu Bolli og
Svava að nota til
framtiðarupp-
byggingar á félag-
inu og festu kaup
á húsinu númer
Umsvif Evu/Sautján
1.200
1.000
800
400
200
Eva hf.
319
168
-1.541 milij. kr
1994 1995 1996 1997 1998 1999*
*Velta ársins 1999 er áætluö miöaö viö hlutfallslega veltuaukningu áranna 1997 og 1998
Sautján skór, Laugavegi 89, og Sautján, Laugavegi 91.
Smash, Laugavegí 89.
Centrum í Kringlunni 8-12.
Sautján skór, Kringlunni 8-12.
Sautján í nýju Kringlunni, opnuð 4. nóvember.
89 við Lauga-
veg, við hlið-
ina á Sautján,
Laugavegi
númer 91. Þá
keypti Sautján
leighúsnæði
verslunarinn-
ar í Kringl-
unni og þá einingu sem næst henni
stóð sömuleiöis.
í apríl 1995 opnaði Sautján versl-
unina Smash í leiguhúsnæði í
Kringlunni. Þótti hún ganga mjög
vel og síðar var opnuð Smash-
verslun á Laugavegi 89. Að auki
tók Sautján þá við rekstri verslun-
arinnar 4YOU á Laugavegi 51 en sú