Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1999, Qupperneq 39
LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999
'fe/ð/
*★*
Hvítá í Borgarfirði:
18 punda maríulax
- veiðimaðurinn varð afi í fyrsta sinn sama daginn
Veiðitíminn er að
taka enda þetta árið
en sjóbirtingurinn er
ennþá veiddur og
veiðist víst vel af
honum. Sjóbirtingur-
inn virðist vera
vænni í ár og fLeiri
bíta á hjá veiðimönn-
um þetta árið. Og
laxinn er ennþá að
taka. „Þetta var
meiri háttar, ég var
við veiðar í Hvítá við
Bjamastaði um síð-
ustu helgi og þá
veiddi ég maríulax-
inn minn. Þetta var
18 punda lax og hann
tók grænan tóbí,“
sagði Guðni Þórir
Walderhaug sem
þennan sama dag og
hann veiddi maríu-
laxinn sinn varð
Guðni afi í fyrsta
sinn.
„Baráttan við fisk-
inn stóð yfir i næst-
um klukkutíma og
þetta var feikna-
skemmtilegt. Lax
kemur seint þarna
upp í Hvítá en þarna
veiðist líka silungur
og þá sjóbirtingur,"
sagði Guðni í lokin.
Veiddist
tvisvar sami
laxinn - fyrst
í Grímsá, svo í
Fláku?
Guðni Þór Walderhaug með maríulaxinn sem hann veiddi í Hvítá fyrir landi Bjarnastaða í
Borgarfirði um síðustu helgi, fiskurinn tók grænan tóbí. Með Guðna er faðir hans, Karl Wald-
erhaug.
Það er ýmislegt
sem gerist í veiði-
skapnum á hverju
sumri en snemma í
sumar veiddist lax í
Grímsá í Borgarfirði
sem var merktur.
Þessi sami lax veidd-
ist skömmu seinna í
Flókadalsá í Borgar-
firði sem er í næsta
nágrenni Grímsár.
„Þetta er rétt, lax-
inn veiddist fyrst í Grímsá og var merkur þar en
veiddist síðan hérna í Flóku hjá okkur í Hjálmsfoss-
inum,“ sagði Ingvar Ingvarsson, veiðivörður og
bóndi á Múlastöðum, í vikunni.
„Það hefur gerst áður hérna í Flóku að lax veiðist
fyrst í Grímsá og svo hjá okkur. Ég held þetta sé
vegna þess að fiskurinn fer í vitlausa veiðiá til að
byrja með,“ sagði Ingvar ennfremur.
Hundurinn var ekki með byssuleyfi
Srnnir hundar hafa gaman af því að veiða minka
DV-mynd Fer
eða kannski eru minkarnir bara alltaf að þvælast fyr-
ir þeim og enda aldur sinn þannig. Það gæti verið
örnun- skýring.
Fyrir fáum dögum náði hundur einn í Víðidal i
mink og drap hann. Fór eigandi hundsins með skott-
ið af minknum og ætlaði að fá borgað fyrir. Var eig-
andinn spurður um byssuleyfí en hann sagðist ekki
vera með það. Fékk hann þá þau svör að fyrst hann
væri ekki með leyfi fengi hann skottið ekki borgað.
Fór eigandi hundsins að malda i móinn og sagðist
ekki þurfa byssuleyfi heldur hundiu-inn. Hann væri
alltaf að veiða minka. Eigandinn fékk skottið ekki
borgað og heldin ekki hundurinn. Skrýtið.
3*1 FUJIFILM WWW.fUjifllm.iS
VEIOU BESIU FRAMKÖLUININA
FUJIFILM CRYSTAL ARCHIVE
ENGINGARBESTI
UÓSMYNDAPAPPÍR
SEMTILER
FUJIFILM
FRAMKÖLLUN
UM ALLT LAND
Skipholti 31, sími 568 0450 Kaupvangsstræti 1, sími 461 2850
Mottudagar IKEA
Mikiö úrvol af mottum með
fjölbreyttri hönnun sem
koma til móts við þínar óskir.
Opið: Virka ciagcil 0-18:30, laugardagal 0-1 7, sunnudagal 2-1
7.
-21. október