Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1999, Blaðsíða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1999, Blaðsíða 64
Sölukössum er lokað ^kl. 19.30 í ijp á laugardögum og dregið kl. 19.45 Unglingur kæröi: Fataframleiðandi ákærður fyrir kynferðisbrot ^Fataframleiðandi á höfuðborgar- "A "sFæðinu, karlmaður, hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn 15 ára stúlku í tengslum við starf sitt. Manninum er gefið að sök að hafa sært blygðunarsemi stúlkunnar þegar hann átti viö hana samskipti vegna fataframleiðslu hans. Maðurinn er ákærður fyrir að hafa strokiö fiskroðsprufu um kyn- færi stúlkunnar i því skyni að fá í þau sýni af tíðablóði. Ætlunin hafi verið að kanna áhrif þess á þau efni sem maðurinn hugðist nota til fram- leiðslu á kvennærfatnaði. Stúlkan kærði háttsemi manns- ins til lögreglu. Rannsókn fór síðan fram sem varð til þess að saksókn- ari sá ástæðu til að gefa út ákæru á : "^ffindur manninum. Ákæran hefur verið send Héraðsdómi Reykjaness þar sem málið verður tekið til dómsmeðferðar á næstu mánuðum. Sakborningurinn neitaði sök þegar hann mætti við þingfestingu fyrir dóm. Búist er við að fjölskipaður dómur taki málið til meðferðar þeg- ar dómsyfirheyrslur fara fram. -Ótt FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá f síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1999 Stakk með skærum Lögreglubifreið í viðbragðsstöðu fyrir utan verslun Hagkaups í Skeif- unni í gærmorgun þar sem kom til átaka tveggja manna sem enduðu með því að annar lagði til hins með skærum. Hlaut sá minni háttar jverka á hálsi og var fluttur á slysa- ild en skæramaðurinn var hand- tekinn. Báðir eru mennirnir af er- lendu bergi brotnir og sá sem varð fyrir skærunum er starfsmaður Hag- kaups. DV-mynd S Ársfangelsi fyrir hasssmygl Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í gær fertugan mann í ársfangelsi fyrir að reyna að smygla til landsins tæplega fimm kilóum af hassi. Maðurinn var skipverji á togar- anum Breka frá Vestmannaeyjum. Fíkniefnin fundust þegar skipið kqgn til Eyja í janúar. Maðurinn ját- æn brot sitt og kvaðst hafa átt að flytja það til landsins gegn greiðslu. DV-mynd ÞÖK Helga Sigurjónsdóttir við lestrarkennslu sína í Laufásborg. Hún ætlar að kenna börnunum að lesa með gömlu aðferðinni. Helga Sigurjónsdóttir ætlar að stofna grunnskóla: Kennir börnum að lesa ókeypis með gamla laginu í Laufásborg „Ég ætla að kenna bömunum í Laufásborg að lesa með gamla lag- inu, eins og ég gerði þegar ég var barnaskólakennari fyrir mörgum áram,“ segir Helga Sigurjónsdóttir kennari sem hefur tékið aö sér að kenna fjögurra og fimm ára börnum að lesa í leikskólanum Laufásborg við Bergstaðastræti. „Ég nota hljóð- lestursaðferðina sem ég lærði hjá ísak Jónssyni og hefur reynst mér jafn vel og ýmsar nýrri aðferðir. Staðreyndin er sú að margir ungir kennarar hafa ekki fengið nægjan- lega þjálfun í lestrarkennslu og þurfa jafnvel að fara á námskeið til að ná þessu,“ segir Helga sem einnig ætlar að kenna bömunum á Laufásborg reikning. Helga Sigurjónsdóttir stefnir að því að stofna einkarekinn grunn- skóla sem myndi leggja höfuð- áherslu á kennslu yngstu bamanna: „Það er byrjað óþarflega seint að kenna börnum að lesa hér á landi. Því fyrr sem byrjað er - því betra - því bömin em böðuð í lesmáli hvert sem litið er og hreinn óþarfi að bíða til sex ára aldurs. Þróunin erlendis sýnir okkur einnig að þar eru menn að losa sig við óttann við að byrja of snemma. Sjálf hef ég kennt þriggja ára barni að lesa með góðum ár- angri. Einn kosturinn er aö auki sá að ef lestrarerfiðleikar koma í ljós þá er betra að eiga við þá strax," segir Helga Sigurjónsdóttir sem nú er að leita sér að húsnæði á höfuð- borgarsvæðinu fyrir nýja grunn- skólann sinn. Helga segist vera drif- in áfram af vitneskju sinni og vissu um þá almennu óánægju sem sé í landinu með ríkjandi skólakerfi: „Ég veit ekki hvort mér tekst að byrja næsta haust. Það er flókið mál að stofna grunnskóla," segir Helga sem á meðan ætlar að halda áfram að kenna börnunum í Laufásborg að lesa og reikna með gamla laginu - ókeypis. -EIR I ranabíl Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar- stjóri var hátt uppi í gær þegar hún prófaði nýjan ranabfl sem Slökkvilið Reykjavíkur er að taka í notkun. Ranabíllinn er búinn nýjustu tækj- um á sviði slökkviliðsmála, nær 32 metra í loft upp fullteygður og kost- aði 35 milljónir króna - eða rúma milijón á hvern metra upp í loft. Ingi- björg Sólrún lýsti ánægju sinni með nýja ranabílinn þegar hún sat í körfu hans. DV-mynd S Veðrið á sunnudag og mánudag: Víða létt- skýjað fyrir norðan Austan- og suðaustanátt, 8-13 m/s með suðurströndinni en annars hægari. Skýjað að mestu og súld eða rigning með köflum sunnan og austan til en yfirleitt léttskýjað um landið norðan- og vestanvert. Hiti 5 til 10 stig. Veðrið í dag er á bls. 65 MERKILEGA MERKIVÉLIN bfother PT-12QD.. Islenskir stafir 5 leturstæröir 8 leturgerðir 6, 9 og 12 mm prentborðar| Prentar í tvær línur Verð kr. 6.603 Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.