Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2000, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2000, Síða 29
3>V LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 29 %-idge Bridgehátíð 2000: Gulltoppur í tvímenningnum Oft hafa fleiri erlendar bridgestjörnur sótt Bridgehátíð heim en í þetta sinn. Gæði þeirra sem komu efast hins vegar enginn um. Á hitt ber þó að líta að þá gefst innlendum bridgemeisturum betra færi á að láta ljós sitt skína, eins og sannaðist með sigri Magnúsar E. Magnússonar og Sævars Þorbjöms- sonar i tvímenningnum. í síðustu setunni spiluðu þeir við Svíana, Gullberg og Anderson. Við skulum skoða eitt spil úr henni. N/A-V * G64 •* D9872 4- G9 * DG3 * AD9 •* Á10 * D1062 * Á1097 N V A S * K108752 •* 5 * Á854 * 62 Guömundur Sveinsson. * 3 •* KG643 * K73 * K854 Þar sem Magnús og Sævar sátu n- s gengu sagnir á þessa leið : Norður Austur Suður Vestur 1 grand pass 2 ♦ pass 2 •* pass 3 * pass 3 grönd pass pass pass Austur kom út meö fjórða hæsta spaðann, þristur, gosi og drottning. Nú var laufið brotið og vestur spil- Umsjón Stefán Guðjohnsen aði spaða. Magnús gaf og drap síðan þriðja spaðann. Þegar austur átti síðan tígulásinn var spilið tvo nið- ur. Það sama skeði hjá mörgum öðr- um, enda var þessi árangur nálægt meðalskor. En hvað er svona merkilegt við þetta spil. Bíðum við. Á næsta borði sat gamall refur með spil norðurs, Guðmundur nokkur Sveinsson. Sjáum hvemig hann fór að. Sagnir gengu þannig : Norður Austur Suður Vestur 1 grand 2 4-(l) dobl 2 •* 2 grönd pass 3 grönd pass pass pass (1) Sexlitur í hálit Austur kom út með spaða og Guð- mundur drap gosa vesturs með drottningu. Það var nauösynlegt að ná út tígulásnum og Guðmundur taldi líklegt að austur ætti hann. Hann spilaði því tíguldrottningu. Austur vildi halda í innkomuna og gaf. Þá kom lítill tígull, lítið og kóngur. Síðan spilaði Guðmundur litlu hjarta og svínaði tíunni. Nú kom hjartaás og austur kastaði spaða. Spilið var nú eins og opin bók fyr- ir Guðmund. Hann spilaði spaðaníu og hallaði sér afturábak i sætinu. Austur gat lítið annað gert en að spila spaða aftur og Guðmundur átti slaginn á ásinn. Nú var einfalt verk að spila ás og kóngi í laufi og þriðja laufi. Vestur átti slaginn og varð að spila upp hjartagaffalinn í blindum. Ellefu slagir og algjör toppur. Er bridge ekki einfalt spil! )essur Árbæjarkirkja: Guðsþjónusta kl. 11 árdegis. Organleikari: Pavel Smid. Vænst er þátttöku ferming- arbarna og foreldra þeirra í guðs- þjónustunni. Stuttur fundur með foreldrum fermingarbarna eftir guðsþjónustuna. Barnaguðsþjón- usta kl. 13. Bænir-fræðsla-söngv- ar-sögur og leikir. Foreldrar, afar og ömmur boðin velkomin með börnunum. Prestarnir. Áskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. KafFi eftir messu. Árni Bergur Sigurbjöms- son. Breiðholtskirkja: Barnaguðsþjón- usta kl. 11 Messa á sama tíma. Alt- arisganga. Létt máltíð í safnaðar- heimilinu að messu lokinni. Org- anisti: Daníel Jónasson. Gísli Jón- asson. Bústaðakirkja: Barnamessa kl. 11. Léttir söngvar, biblíusögur, bænir, umræður og leikir við hæfi bam- anna. Foreldrar hvattir til að koma með bömum sínum. Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Guðni Þ. Guð- mundsson. Pálmi Matthíasson. Digraneskirkja: Messa kl.ll Létt- ur hádegisverður eftir messu í safnaðarsal. Prestur: sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur. Organisti: Kjartan Sigurjónsson. Dómkirkjan: Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Hjalti Guðmundsson. Dómkórinn syngur. Organleikari Marteinn H. Friðriksson. Guðs- þjónusta kl. 14. Sr. Hjalti Guð- mundsson þjónar. Ræðumaður Ólína Þorvarðardóttir. Marteinn H. Friðriksson leikur á orgelið og Dómkórinn syngur. Einsöngur Ólafur Kjartan Sigurðsson. Eftir messu er kaffisala á vegum Kirkju- nefndar kvenna Dómkirkjunnar í safnaðarheimili Dómkirkjunnar. Allur ágóði rennur til líknarmála. Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl. 10.15. Organisti Kjartan Ólafs- son. Sr. Hreinn S. Hákonarson. Fella- og Hólakirkja: Guðsþjón- usta kl. 11. Prestur sr. Hreinn Hjartarson. Kór Fella- og Hóla- kirkju syngur. Organisti: Kári Þormar. Barnaguðsþjónusta á sama tíma. Umsjón: Margrét Ó. Magnúsdóttir. Prestamir. Fríkirkjan í Reykjavík: Guðs- þjónusta kl. 14.' Allir hjartanlega velkomnir. Sr. Hjörtur Magni Jó- hannsson. Grafarvogskirkja: Bamaguðs- þjónusta kl. 11 í Grafarvogskirkju. Prestur: Sr. Anna Sigríður Páls- dóttir. Umsjón: Hjörtur og Rúna. Barnaguðsþjónusta kl. 11 i Engja- skóla. Prestur: Sr. Sigurður Amar- son. Umsjón: Signý, Guðrún og Guðlaugur. Jazzguðsþjónusta í Grafarvogskirkju kl,14:00. Dr. Sig-. urjón Ámi Eyjólfsson héraðsprest- ur prédikar og þjónar fyrir altari. Guitar Islandico leikur. Björn Thoroddsen, gítar, Gunnar Hrafns- son, gítar, og Jón Rafnsson, bassi. Prestarnir. Grensáskirkja: Barnastarf kl. 11. Guðsþjónusta kl. 11. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Organisti Árni Arinbjamarson. Sr. Ólafur Jóhannsson. Hallgrímskirkja: Fræðslumorg- unn kl. 10. Biblían og bókmenntirn- ar: Dr. Gunnar Kristjánsson, pró- fastur. Messa og barnastarf kl. 11. Kammerkór Tónlistarháskólans I Piteaa í Svíþjóð syngur undir stjóm Erik Westberg. Sr. Jón Dal- bú Hróbjartsson. Kantötuguðsþjón- usta kl. 17. Schola cantorum, kammersveit Hallgrímskirkju og einsöngvarar flytja kantötu nr. 131 eftir J.S. Bach. Prestur sr. Jón Dal- bú Hróbjartsson. Háteigskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11. Bryndís Valbjörnsdóttir. Messa kl. 14. Organisti Douglas A. Brotchie. Sr. Tómas Sveinsson. Hjallakirkja: Messa kl. 11. Sr. Hjörtur Hjartarson þjónar. Félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safnaðarsöng. Organisti: Jón Ólaf- ur Sigurðsson. Bamaguðsþjónusta i kirkjunni kl.13 og í Lindaskóla kl.ll Við minnum á bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl.18. Prestamir. Kópavogskirkja: Messa kl. 11. Alt- arisganga. Fermingarbarna og fjöl- skyldna þeirra sérstaklega vænst og verður samvera með þeim í safnaðarheimili að messu lokinni. Barnastarf í safnaðarheimilinu Borgum kl. 11 Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Ingileif Malmberg. Langholtskirkja, Kirkja Guð- brands biskups: Messa kl. 11. Auð- ur Guðjohnsen syngur einsöng. Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Lára Bryndís Eggerts- dóttir. Kaffisopi eftir messu. Bama- starf í safnaðarheimilinu kl. 11. Umsjón Lena Rós Matthíasdóttir. Laugarneskirkja: Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Hrund Þór- arinsdóttir stýrir. Sunnudagaskól- anum ásamt sinu fólki. Sr. Bjarni Karlssonar þjónar að orðinu og borðinu. Að messu lokinni er árleg kökusala Kvenfélags Laugarnes- kirkju. Aðalsafnaðarfundur kl. 12:30 að loknu messukaffi. Kvöld- messa kl. 20:30. Djasskvartett Gunnars Gunnarssonar leikur. Þorvaldur Halldórsson syngur ein- söng og prestshjónin sr. Jóna Hrönn Bolladóttir og sr. Bjarni Karlsson þjóna. Athugið að djass- inn hefst í húsinu kl. 20 og messu- kaffi við kertaljós bíður í safnaðar- heimilinu á eftir. Lágafellskirkja: Tai-ze fjöl- skylduguðsþjónusta kl. 20.30. Tón- list með léttri sveiflu ásamt Birni Thoroddsen, Gunnari Hrafnssyni, Agli Ólafssyni og kirkjukór Lága- fellssóknar. Barnastarf í safnaðar- heimilinu kl. 1115. Jón Þorsteins- son. Neskirkja: Sunnudagaskólinn kl. 11. Átta til níu ára starf á sama tíma. Messa kl. 14. Organisti Reynir Jónasson. Sr. Örn Bárður Jónsson. Njarðvíkurprestakall: Ytri- Njarðvíkurkirkja: Sunnudagaskól- inn kl. 11 Börn sótt að safnaðar- heimilinu í Innri-Njarðvík kl. 10.45. Baldur Rafn Sigurðsson. Óháði söfnuðurinn: Fjöl- skylduguðsþjónusta kl. 14. Bjargar- kaffisala Kvenfélagsins eftir messu. Seljakirkja: Krakkaguðsþjónusta kl.ll Mikill söngur. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson pré- dikar. Organisti er Gróa Hreins- dóttir. Sóknarprestur. Seltjarnar- neskirkja: Messa kl. 11. Organisti Sigrún Steingrímsdóttir. Prestur sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. Barnastarf á sama tíma. 10% kynningarafsláttur af nýju herralínunni Eldri vörur seldar með góðum afslætti. VERIÐ VELKOMIN Caradon Henrad oínar Afkastamiklii- ofnar á mj góðu verði. 5 ára ábyrg< Vottað af R.b. r HÚSASMIÐJAN Sími 525 3000 • www.husa.is Skráning er hafin á sex vikna barna og unglinganámskeið sem hefjast 20. og 22. mars. Stelpur og strákar sér. Barna og unglinganámskeiðin í Heilsugarði Gauja litla eru ætluð börnum sem eiga við offitu að stríða Unnið er náið með foreldrum sem fá fræðslu og viðtal hjá næringarráðgjafa auk , viðbótarfræðslu hjá lækni. > Dagskráin erfjölbreytt, með skemtilegum nýjungum og uppákomu t.d. Tae Bo, sund, skautum, ganga, yoga, og m.f.r. Námskeið sem s^®r9°J“™ árangri. eykur sialtstraus oglífsgieðibarnsmsþms. Takmarkaðurtjoldiþatt- takendagerirnamskeið persónutegt og ahrifarikara. U Heilsu?arður Gaujd litlð Skráning í síma: 8961298

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.