Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2000, Qupperneq 50

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2000, Qupperneq 50
58 LAUGARDAGUR 11. MARS 2000 viðtal Jóhann segir kaffihús borgarinnar vera vinnustað sinn og skrifstofu en þar situr hann yfirleitt allan daginn og skrifar á ferðatölvuna. Hann bendir á að þetta hafi hann alltaf gert og nefnir í þessu sambandi þegar hann vann að gerð handritsins fyrir Veggfóður og notaði við það stílabók - ekki ferðatölvu. Frumsýnir nýjustu mynd sína, Óskabörn þjóðarinnar, í sumar: Myndi fremja sjálfsmorð - Jóhann Sigmarsson leikstjóri segir fró lífinu á bak við linsuna Jóhann Sigmarsson er þrítugur leikstjóri sem kom fyrst fram á sjónarsviðiö með kvikmyndina Veggfóður en Jóhann var annar tveggja leikstjóra og framleiðenda myndarinnar ásamt því að skrifa handrit hennar að mestu. Þetta er mynd númer tvö í röðinni frá leik- stjóranum unga, Ein stór fjölskylda, sem sýnd var í Háskólabíói árið 1995, átti hins vegar ekki eins miklu fylgi að fagna og sú fyrri en nú horf- ir í að þriðja mynd Jóhanns, Óska- böm þjóðarinnar, líti dagsins ljós seinni part sumars eftir erfiða fæð- ingu en kvikmyndin hefur verið i vinnslu síðan 1995. DV lék hugur á að fræðast um vinnuna að baki kvikmyndinni, viðhorf Jóhanns til íslenskrar kvikmyndagerðar ásamt hugmyndum hans og væntingum til framtíðarinnar. Smákrimmamynd „Þetta er eins konar raunsæis- gamanmynd sem fjallar um smá- krimma út frá sjónarhóli smá- krimmans til sjálfs síns og annarra. Það má þó segja að þetta séu fyrst og fremst sjúkir einstaklingar ekki smákrimmar enda myndu þeir aldrei fremja afbrot nema í þeim til- gangi að afla fé til að svala fikn- inni,“ segir Jóhann þegar hann er spurður um hvers konar mynd Óskabömin séu. í aðalhlutverkum myndarinnar eru Óttarr Proppé, Grímur Hjartar- son, Ragnheiður Axel, Davíð Þór Jónsson, Jón Sæmundur Auðarson, Þröstur Leó Gunnarsson, Björk Jak- obsdóttir og Pálína Jónsdóttir en auk þeirra bregður fjölmörgum þekktum andlitum fyrir í myndinni í aukahlutverkum, s.s. Sigurði Páls- syni ljóðskáldi, Árna Tryggvasyni leikara, Friðrik Þór Friðrikssyni, sem er einn af framleiðendum myndarinnar, og Hjalta Úrsusi, svo einhverjir séu nefndir. Gerði fullt af mistökum Þegar talið berst að síðustu mynd hans, Einni stórri fjölskyldu, sem fékk fálegar viðtökur segir Jóhann: „Ætli mér hafl ekki tekist að gera eina af ódýrustu myndum íslenskr- ar kvikmyndagerðar frá upphafl sem kostaði á bilinu 5 til 6 milljón- ir. Auðvitað geta slíkar myndir aldrei orðið fullkomnar. Ég sé hins vegar ekki eftir neinu. Ég gerði að visu fullt af mistökum en þetta var góður skóli og þessi mynd á alltaf eftir að verða hluti af mér. Ég er stöðugt að prófa mig áfram og þessi mynd var bara hluti af því ferli. Ég á eftir að gera margar lélegar mynd- ir í framtíðinni en ég á líka eftir að gera margar góðar sem vega upp á móti. Þegar ég var 19 ára, ungur, efni- legur og óskemmdur, og var að skrifa handritið að Veggfóðri sagð- ist ég ætla að vera búinn að gera 3 myndir um þrítugt en enginn trúði mér. Ég hefði sjálfur örugglega litið á mig sem sjúkan draumóramann. Ég var bara heppinn þó að ég hafi þurft að skapa mér þetta tækifæri sjálfur þá hefur einhver annar haft trú á mér líka. Það þarf allavega tvo til, til að getnaður geti átt sér stað en þama var fullt af réttu fólki fyr- ir mig.“ Var í sjóræningjaútgáfu Jóhann hefur fengist við kvik- myndir í samtals 12 ár, eða síðan 1988, en kvikmyndaáhugi hans rist- ir þó mun dýpra. „Ég er barn af svokallaðri víd- Í9 eókynslóð, ég var bara smákrakki þegar vídeóið kom fyrst til sögunn- ar. í fyrstu fékkst ég mikið við að fjölfalda kvikmyndir með því að tengja snúru á milli tveggja mynd- bandstækja og taka upp af einni spólu yfir á aðra. Með þessu móti kynntist ég fjöldanum öllum af kvikmyndum, auk þess að lesa mik- ið um kvikmyndir sem er gott fyrir andann og mjög nauðsynlegt öllum kvikmyndagerðarmönnum. Ég lék líka í einhverjum stutt- myndum á unglingsárunum og allt veitti þetta mér góðan innblástur og grunn fyrir kvikmyndagerð. Ég held t.d. að mikið af ungu fólki i dag, sem er að gera sjónvarpsþætti og fleira í þeim dúr, viti allt of lítið um stíla og stefnur í kvikmyndasög- unni. Þetta fólk er oft að gera góða hluti en veit ekkert hvort þetta byggist á gömlum grunni eða hvort um er að ræða eitthvað alveg nýtt í heimi kvikmyndanna." Hef orð á mér fyrir að gera ódýrar myndir Jóhann segir auðveldara að gera bíómyndir í dag en var fyrir 8 árum þegar hann vann að gerð Veggfóð- urs. I þá daga var digital-tæknin Úr nýjustu mynd Jóhanns, Óskabörn þjóðarinnar, en Óttar Proppé leikur eitt af aðalhiutverkunum í þeirri mynd.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.