Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2000, Side 57
IXV LAUGARDAGUR 11. MARS 2000
^agsönn «
Saga Jónsdóttir leikur Rósu.
Skækjan Rósa
Skækjan Rósa eftir José Luis Martín
Descalzo er nú að renna sitt skeið á
enda í Samkomuhúsinu á Akureyri og
verður brátt að víkja fyrir Tobacco
Road næsta verki Leikfélags Akureyr-
ar. Síðasta sýning á Skækjan Rósa
verður þann 25. mars næstkomandi.
Sýningin hefur fengið mjög góða dóma
og viðtökur áhorfenda með miklum
ágætum. Helga E. Jónsdóttir er leik-
stjóri, Edward Fuglö gerir leikmynd og
búninga, lýsingu annast Ingvar Bjöms-
son og hljóðmynd gerir Kristján
Edelstein. Saga Jónsdóttir leikur
eina hlutverk leiksins, skækjuna Rósu
sem býr ein á háalofti og ræðir sin
hjartans mál við Kristslikneski sem
þar er. Hún lætur ýmislegt flakka á
hispurslausan og skemmtilegan hátt.
Leikhús
Jónatan
Halaleikhópurinn, leikhópur fatl-
aðra og ófatlaðra mun frumsýna nýtt
íslenskt leikrit í kvöld kl. 20 í Halan-
um, Hátúni 12. Leikritið sem ber nafn-
ið Jónatan og undirtitilinn Reyndu að
hysja þig upp og bíta báðum gómum í
borð lífsins og hanga þar er eftir Eddu
V. Guðmundsdóttir og er hún jafn-
framt leikstjóri.
Jónatan býr í Hátúni og er á leið
þaðan að fara að búa sjálfstætt. Hann
er orðinn nokkuð hress eftir slys sem
olli því að hann er nú í hjólastól,
lamaður upp að mitti. Hann hefur ver-
ið lengi að ná þeirri heilsu sem hann
býr nú að og hefur verið langt niðri,
vonlaus og reiður. Það var ekki fyrr en
nýlega að aðeins tók að birta til. Hann
fékk óvænt verkefni sem er að þýða
vissan málaflokk en hann er mikill
tungumálamaður. Fram að þessu þótti
honum hann einskis nýtur. En þetta
verkefni vekur honum von, að hann
geti ennþá ýmislegt og þar með líklega
spjarað sig í líflnu. Leikritið fjallar um
hvernig hann eina kvöldstund reynir
að taka þátt í lífinu fyrir utan, hvernig
hann kemur sér á milli staða og hvað
verður á vegi hans, hvað hann sér og
hvað hann upplifir.
r
Islandsklukkan í Brautartungu
í kvöld kl. 21 frumsýnir leikdeild Ung-
mennafélagsins Dagrenningar leikritið
íslandsklukkuna eftir Halldór Laxness í
Félagsheimilinu Brautartungu í Lundar-
reykjadal.
Leikstjóri er Halla Margrét Jóhannes-
dóttir en aðalhlutverk eru í höndum Sig-
urðar Halldórssonar sem leikur Jón
Hreggviðsson og Hildar Jósteinsdóttur
sem leikur Snæfríði íslandssól. Nítján
leikarar taka þátt í sýningunni og að
henni koma um fjörutíu manns sem er
tæpur helmingur íbúa Lundarreykjadals.
Spumingakeppni
Hin árleea Spur
Ragnheiöur Erla
Bjarnadóttir stjórn-
ar keppninni og
semur spurning-
arnar.
in árlega Spum-
ingakeppni átt-
hagafélaga á höfuð-
borgarsvæðinu
hefst á morgun.
Alls munu 14 átt-
hagafélög senda
keppnislið og fer
keppnin fram í
Breiðfirðingabúð
sunnudagskvöldin,
12., 19. og 26. mars.
Sjálf úrslitakeppnin fer síðan fram
laugardagskvöldið 1. apríl ásamt
skemmtidagskrá og dansleik. Þetta
er í þriðja —----;--------
sínn sem Samkomur
keppnin fer---------------
fram, og eins og i fyrri skiptin þá er
það hin landsþekkta og bráðhressa
Ragnheiður Erla Bjamadóttir sem
gerir allt í senn, semur spumingar,
stjómar keppni og dæmir.
Söngskólinn í Reykjavík:
Rauða tjaldið
Nemendur Söngskólans í Reykja-
vík sýnir Rauða tjaldið - Óperuslett-
ur úr ýmnsum áttum á morgun kl.
16 í hinu nýja tónlistarhúsi Ými við
Skógarhlíð. Sýningin er gamansöm
og sett saman á nýstárlegan hátt úr
Skemmtanir
Bastiana og Bastiano, Töfraflaut-
unni og Brúðkaupi Fígarós eftir
Mozart, öðru brúðkaupi, Leynibrúð-
kaupinu eftir Cimarosa, Sögu af
Falstaff eftir Verdi og Nicolai, Bó-
hemunum eftir Pucini og rúsínan í
pylsuendanum er Valkyrjurnar eft-
ir Wagner. Atriðin eru bæði leikin á
nútímavísu með íslenskum texta og
sungin í sinni upphaflegu mynd á
viðeigandi tungumáli. þetta gerir
sýninguna aðgengilega þar sem er-
lendir óperutextar vilja oft fara fyr-
ir ofan garð og neðan hjá hinum al-
menna hlustanda.
Tónlistarundirbúningur og píanó-
leikur er í höndum Claudios Rizzi.
Leikgerð og leikstjóm: Ása Hlín
Svavarsdóttir.
Nokkrir þátttakendur
í sýningunni
Rauða tjaldiö.
María Katrín Jósefsdóttír sem var kosin ungfrú Suðurland:
r
Markmiðið er ungfrú Island
„Ég tók þátt í fegurðarsamkeppn-
inni af því að ég vissi að ég mundi
breyta mataræði, taka mig á í lík-
amsræktinni og lifa heilbrigðara lífi
á eftir,“ sagði María Katrfn Jósefs-
dóttir sem var kosin ungfrú Suður-
land á Hótel Selfossi. María segir að
þessu takmarki sé hún nú búin að
ná og að hún stefhi á að halda því
áfram til framtíöar.
María Katrín var bjartsýn þegar
hún ákvað aö taka þátt í keppninni
um ungfrú Suðurland. „Ég taldi mig
eiga alveg jafngóða möguleika á titl-
inum og allar hinar,“ sagði María
Katrín. Hún segir að titillinn hafi
breytt ýmsu fyrir hana. „Það er
margt sem breytist við að ná þess-
um titli en það er kannski ekki síst
gaman að hafa þetta til að geta sagt
bamabörnunum frá einhvem tím-
ann í framtíðinni," sagði María
Katrín.
Það verður í nógu að snúast hjá
henni fram á vorið. Keppnin um
ungfrú ísland verður í lok maí og
María Katrín fer í hana ásamt
tveim öðrum stúlkum af Suður-
landi. „Ég held áfram af krafti að
halda mér í góðu formi fram að
keppninni og ég ætla að reyna að
gera mitt besta í þeirri keppni,"
sagði María Katrín. Hún starfar nú
sem versl-
unar- og DV-mynd Njörður
framkvæmdastjóri Suðurlandssólar
á Selfossi.
María Katrin hefur nóg á prjón-
unum þegar kemur að því að skipu-
leggja framtíðina þó að hún verði að
hafa varnagla á öllu um stundarsak-
ir ef hún nær titlinum ung-
frú ísland og verður
fulltrúi Islands í
fegurðarsam-
keppni erlendis.
„Ég ætla mér að
læra viðskipta-
og hagfræði og
mig langar að
fara og læra í skóla úti í Kalifomíu
sem er sérhæfður til kennslu í
markaðsfræði í tískugeiranum. Síð-
an stefni ég á að opna tískuverslun
á Selfossi og búa þar því hér er best
að vera.“ Hún stefnir að því að ná
góðum árangri i keppninni um ung-
frú ísland. „Ég stefni að því að ná
sæti í keppninni, markið er fyrsta
sæti, en ég ætla að reyna að standa
mig sem best í keppninni og gera
mitt besta þar fyrir Suöurland."
María Katrín er á fostu, hún á
kærasta og er búin að vera meö
honum í ellefu mánuði. Foreldrar
hennar og tvö systkini búa á
Selfossi og þar stefiiir hún á
að búa þrátt fyrir aö hún
eigi ef til vill eftir að fara
víða um heim áður en hún
sest þar að til framtíðar.
„Ég sé engan tilgang í
að þurfa að búa i
útlöndum þó að
maður verði
ungfrú heimur
eða fari í nám
erlendis. Mað-
ur ferðast bara
meira meðan
á því stend-
ur,“ sagði
þessi unga feg-
urðardís.
-NH
Amelía Rún
Myndarlega stúlkan á
myndinni heitir Amelía
Rún Pétursdóttir. Hún
Skemmtanir
fæddist 25. október síðast-
liðinn á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri. Við
fæöingu var hún 4170
grömm að þyngd og 52
sentímetrar.' Foreldrar
hennar eru Ingibjörg Hall-
dórsdóttir og Pétur Emil
Gunnarsson. Fjölskyldan
býr á Dalvík.
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 2652:
Myndgátan hér að ofan lýsirorðtaki.
Sunna Gunnlaugsdóttir ásamt
meðlimum kvartettsins.
Djass frá New York
Sunna Gimnlaugsdóttir djasspí-
anisti mun leika með kvartett stn-
um, skipuðum Tony Malaby á saxó-
fón, Drew Gress á bassa og Scott
McLemore á trommur á Múlanum á
morgun og mánudag en Múlinn hef-
ur aðsetur í Sölvasal Sólons ís-
landusar. Á efnisskránni eru lög
eftir Sunnu og útsetningar hennar á
íslenskum lögum. Kvartett Sunnu
hefur m.a. leikið á Knitting Factory
í New York en Sunna hefur einmitt
dvalið að mestu í New York undan-
farin ár við nám og störf. Kvartett-
inn er á tónleikaferð um landið um
þessar mundir en þau hafa nýlokið
upptökum á geisladiski sem kemur
ekki út fyrr en seinna á árinu en
verður fáanlegur á tónleikunum.
Hljómsveitin hefur leik sinn kl.
21:00
Blásaratónleikar
Blásarasveitir Tónmenntaskól-
ans halda tónleika í Ráðhúsi
Reykjavíkur í dag kl. 16. Á tónleik-
unum koma fram yngri og eldri
blásarasveit sem hvor um sig sam-
anstendur af um 30 hljóðfæraleikur-
um á aldrinum 9 -16 ára. Stjómend-
ur hljómsveitanna eru Einar Jóns-
son og Vilborg Jónsdóttir.
Kantata Bachs
Þriðja kantötuguðsþjónusta
Bachársins 2000 í Hallgrimskirkju
verður haldin sunnudaginn 12. mars
kl. 17. Eins og áður er kantata eftir
Johann Sebastian Bach kjölfesta at-
hafnarinnar. Að þessu sinni mun
kammerkór kirkjunnar, Scola
Cantorum, flytja kantötu nr. 131,
Aus der Tiefen rafe ich, Herr, zu dir
undir stjóm Harðar Áskelssonar
kantors.
Kammertónleikar í Garðabæ
Kammertónleikar verða í safnað-
arheimili Vídalínskirkju i Garðabæ
í kvöld kl. 20. Á efnisskránni eru
verk eftir Bach, Mozart, Verdi og
Brahms. Á þessum tónleikum kem-
ur fram í fyrsta sinn Hljómkórinn
undir stjórn Gerrits Schuils og ílyt-
ur meðal annars verk fyrir
kammerkór og fjórhentan píanó-
leik. Píanóleikararnir eru Gerrit
Schuil og Richard Simm.
Esperantodagskrá
I tilefni afmælisdags Þórbergs
Þórðarsonar verður dagskrá í
Esperantohúsinu að Skólavörðu-
stíg 6b á morgun klukkan þrjú eft-
ir hádegi. Fjallað verður um rit
Þórbergs um esperanto og á
esperanto. Þá verður lesið upp úr
óbirtum bréfum meistarans. Dag-
skráin fer fram á íslensku og er
öllum opin.
Hm
KAUP SALA
73,520 73,900
115,920 116,510
3*tkan. dollar 50,390 50,710
j rý bönak kr. 9,4910 9,5440
hfcÖ<o«»kkr 8,7310 8,7790
jSSsansk kr. 8,3860 8,4320
S&l. mark 11,8898 11,9612
1 Fta. franki 10,7771 10,8419
ITkelAfranki 1,7524 1,7630
JSviss. franki 43,9700 44,2100
Qm|. gyllini 32,0792 32,2720
l^^ kýskt mark 36,1449 36,3621
tHtlira 0,036510 0,036730
] v Áust- sek. 5,1375 5,1684
[* P°rt. escudo 0,3526 0,3547
JjSpá. peseti 0,4249 0,4274
0,692300 0,696400
j írskt pund 89,761 90,301
SDR 98,650000 99,240000
70,6933 71,1181