Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2000, Page 64

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2000, Page 64
Fjórhjóladrifinn SUBARU LEGACY ... draumi líKartur wFRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 1550 5555 LAUGARDAGUFt 11. MARS 2000 Jóhanna hætti við: Áhyggjulaus maður - segir Össur „Ég var búinn undir hörð átök og er enn í þeim stellingum," sagði Össur Skarphéðinsson í gærkvöldi eftir að ljóst var að Jó- hanna Sigurðar- dóttir ætlaði ekki í formannsslag gegn honum í Sam- fylkingunni. Áður hafði Guðmund- ur Árni Stefánsson tekið sömu ákvörðun. „Ég er áhyggjulaus mað- ur og bíð þess sem verður," sagði Össur. - Þorir enginn í þig? „Um það verður þú að spyrja aðra en ég er þakklátur fyrir þann stuðn- ing sem ég finn,“ sagði Össur Skarp- héðinsson. -EIR ^ ^ UV Skotaras? Lögreglan kannar hvort skotið hafi verið á bifreið sem kona ók neðst í Ártúnsbrekkunni í Reykja- vik um kvöldmatarleytið í gær. Konunni brá mjög þegar hliðarrúða bifreiðarinnar brast rétt við kinn hennar þar sem hún ók eftir hrað- brautinni en lögreglan útilokar ekki að kenna megi um aðskotahluti sem skotist hafi undan annarri bifreið. brother P-touch 9200PC Prentaðu merkimiða beint úr tölvunni Samhæft Windows 95, 98 og NT 4.0 360 dpi prentun 1 til 27 mm letur Strikamerki Rafport Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport Erum flutt í Skipholt 50 d __- l— Skipholti 50 d Bílllnn á bólakafi undir snjófargi Þorsteinn Ingólfsson, bílasali á Akureyrí, veit aö hann selur ekki bíla sem ekki sjást vegna þess aö þeir eru á kafi í snjó. Þess vegna lagöi hann þaö á sig, sem viö sjáum á myndinni, aö grafa upp einn afbílunum sem hann var meö til sölu. Þjóðminjaverði tryggð laun í 2 ár eftir afsögn: Harmþrungin stund - á starfsmannafundi í Garðabæ Þór Magnússon boðaði alla starfsmenn Þjóðminja- safnsins á sinn fund í höf- uðstöðvum safnsins við Lyngás í Garðabæ klukkan 9 í gærmorgun og tilkynnti þar afsögn sina. Að sögn starfsmanna var þetta harmþrungin stund. „Það er farsælast fyrir Þjóð- minjasafnið að ég hætti,“ sagði Þór á fundinum. Þór Magnússon Settur í sérverkefni. Fólki brá „Þetta var fyrirsjáanlegt en samt var eins og fólki brygði því öllum þykir okkur vænt um Þór Magnús- son,“ sagði einn starfsmannanna sem var á fundinum. „Nokkrir stóðu upp og þökkuðu þjóðminja- verði vel unnin störf en lýstu um leið harmi sínum yfir þeim aðstæð- um sem upp væru komnar." Fundurinn var stuttur enda að- eins þetta eina mál á dagskrá. Við svo búið sneru starfsmenn aftur til sinna starfa í óvissu um framhaldið. Ljóst er að skorið verður niður í starf- semi safnsins en enginn veit hvar hnífnum verður beitt. Eins er óljóst hver tekur við stjómartaumun- um á Þjóðminjasafninu eftir næstu mánaðamót þegar Þór Magnússon hættir. Átti 5 ár eftir „Það þarf að auglýsa starfið," sagði Gunnar Jó- Birgisson, formaður þjóð- í gær en samkvæmt hann minjaráðs, heimildum DV verður einhver sett- ur í starf þjóðminjavarðar á meðan þær breytingar ganga yfir sem nú hafa kristallast í áfsögn Þórs Magn- ússonar. Samkvæmt lögum skipar forseti íslands í starf þjóðminja- varðar til fimm ára en Þór Magnús- son var ráðinn eftir eldri lögum og átti fimm ár eftir af starfstíma sín- um áður en hann færi á eftirlaun. Höfuðstöövar Þjóöminjasafnsins í Garöabæ Þarna tilkynriti Þór Magnússon afsögn sína meö þeim oröum aö þaö væri farsælast fyrir safniö aö hann hætti. Starfslokasamningur Áður en Þór Magnússon tilkynnti afsögn sína var gerður við hann starfslokasamningur sem tryggir honum laun þjóðminjavarðar í tvö ár og mun hann gegna sérverkefn- um fyrir safnið á þeim tíma. -EIR Samningur ríkisins við bændur: 12 milljarðar í beingreiðslur Samkvæmt samningi á milli samninganefndar bænda og ríkisins um nýjan búfjársamning munu ein- greiðslur nema rúmum 12 milljörð- um króna á sarpningstímanum sem nær frá 1. janúar 2001 til 31. desem- ber 2007. Forráðamenn Bændasam- takanna telja samninginn fyrst og fremst efla starfsöryggi sauöfjár- bænda. Búist er við að framleiðsla sauðfjárafurða dragist saman um 10% á samningstímanum. Um einn milljarður króna mun verða nýttur til að styrkja þá sem vilja hætta í greininni og um leið eru veittir styrkir til þeirra sem vilja efla og stækka bú sín. Árið 2004 verður heimilt að fram- selja beingreiðslur ef rikið hefur þá ekki lokið uppkaupum á 45 þúsund ærgiidum. Bóndi með 250 ærgilda greiðslumark sem vill hætta bú- skap, fær 5,5 milljónir króna eða 22 þúsund krónur á ærgildið gegn því að bóndinn stundi ekki fjárbúskap á jörð sinni næstu 7 ár. Skiptar skoðanir voru meðal bænda um samninginn. í dag verður væntanlega veitt umboð til frekari samningaviðræðna. -HKr. Opin kerfi veita umbun: Allir fá hlutabréf Stjórn Opinna kerfa hefur sam- þykkt að umbuna öllum starfs- mönnum fyrirtækisins vegna góðs árangurs fyrirtækisins á síðasta ári. Hver starfsmaður fær hlutabréf í Opnum kerfúm að verðmæti 200 þúsund krónur á markaðsverði. Ákvörðunin var kunngerð á aðal- fundi í fyrradag. „Þessi umbun er skilyrt á þann máta að menn fá hlutabréfin afhent eftir tvö ár á því gengi sem var á aðalfundardegi í fyrradag," sagði Frosti Bergsson, stjómarformaður Opinna kerfa. „Þeir þurfa því að vera áfram í starfi hjá félaginu þann tíma.“ Starfsmenn Opninna kerfa era um 60. Allir fengu sama skammt. -JSS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.