Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2000, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2000, Page 2
2 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000 DV Fréttir Rannsókn á sumarexemi hrossa: Tilraunabólusetn framsækið verkefni" sagði Vil- hjálmur Svansson, dýralæknir og veirufræðingur, sem vinnur að átakinu, „og kannski meðal þess al- fremsta sem er að gerast á þessu sviði i heiminum í dag“. Bylting fyrir útflutning Eins og áður er komið fram dreg- ur sumarexemið úr möguleikum á útflutningi íslenskra hesta en ís- lenskir hestar sem fæddir eru á ís- landi eru þeir sem viðkvæmastir eru fyrir ofhæminu en allt að 30% þeirra sýna ofnæmisviðbrögð. Hest- ar af annarri eða þriðju kynslóð virðast hafa heldur meiri mótstöðu en eru þó til muna viðkvæmari en erlendir hestar. DV hafði samband við Gunnar Arnarson hestaútflytj- anda og spurði hann hvaða þýðingu hugsanlegt bóluefni myndi hafa fyr- ir útflutning á íslenskum hestum. „Það myndi hafa nánast byltingu í for með sér,“ sagði Gunnar. „Það er alltaf smábeygur í erlendum kaup- endum vegna hættunnar á að hross frá íslandi geti fengiö sumarexem, auk þess sem sumarexem hefur jafnvel verið notað í áróðursskyni gegn íslenskum hrossum". Að sögn Gunnars myndi það auðvelda allan útflutning á hestum frá íslandi til muna ef hægt yrði að komast fyrir sumarexemið og hægt væri að gera ráð fyrir allt að 30-40% aukningu útflutnings. -hds Sumarexem í hrossum er umtals- vert vandamál fyrir þá er standa að útflutningi íslenskra hesta. Á Til- raunastöð Háskóla íslands á Keldum er nú unnið að því að rannsaka sum- arexem í samvinnu við rannsóknar- hóp í Bem í Sviss, en vonir standa til þess að hægt verði að hefja til- raunabólusetningar á hrossum er verkefninu lýkur, eftir þrjú ár. Sumarexem er ofnæmisviðbrögð við ákveðnum prótínum sem berast í hross við bit mýflugna af ættkvísl- inni Culicoides. Þar eð þessi tegund mýflugna liflr ekki á íslandi er sum- arexem óþekkt vandamál hér á landi en við útflutning hefur komið í ljós að íslenskir hestar eru í mun meiri hættu á að fá sumarexem en hestar af öðrum kynjum. Rann- sóknarátakið er meðal stærstu verk- efna Tilraunastöðvarinnar um þess- ar mundir og ef vel tekst til má reikna með að útflutningur á ís- lenskum hestum geti stóraukist. Metnaðarfullt verkefnl Stefnt er að því að skilgreina helstu ofnæmisvaka mýflugunnar sem exeminu valda og einangra og raðgreina gen þeirra, skera úr um hvers konar ofnæmissvar er að ræða og þróa aðferðir til að meta ónæmissvör í hestum og mótefna- myndun gegn ónæmisvökunum. Einnig stendur til að búa til DNA- bóluefni með genum helstu ofnæm- isvakanna og að meta frumubundin ónæmis- og mótefhasvör gegn þeim og að lokum er vonast til þess að hægt verði að búa til prótínbóluefni úr helstu ofnæmisvökunum og prófa þau með völdum ónæmisglæð- um og meta þau svör er við þeim fást. „Þetta er mjög metnaðarfullt og Vilhjálmur Svansson dýralæknir ,,Þetta er mjög metnaðarfullt og framsækið verkefni og kannski meðal þess alfremsta sem er að gerast á þessu sviði í heiminum í dag. “ ingar eftir þrjú ár — meðal stærstu verkefna Tilraunastöðvarinnar að Keldum Landsmót hestamanna: 2000 hesta hópreið - sú stærsta hér á landi Það verður mikið um dýrðir í Víöidal á þriðjudaginn þegar Lands- mót hestamanna verður sett. Meðal annars mun fara fram mesta hópreiö sem haldin hefur verið hér á landi en alls taka 2000 hestar þátt í henni. Riðið verður sem leið ligg- ur frá Rauðavatni inn á skeiðvöll- inn í Víðidal. í broddi fylkingar verður Edda Rún Ragnarsdóttir á gæðingnum Fjölva og mun hún sitja í söðli að fomum sið. Erlendar sjónvarpsstöðvar sýna áhuga: Þrír þættir um Island Líkt og landinn varð vitni að komu menn frá bandarísku sjón- varpsstöðinni CNN til landsins og dvöldust hér nokkra daga í júni. Af- raksturinn er þrir ólíkir þættir og verður sá fyrsti frumfluttur í dag en endurfluttur á morgun og mánudag. Nefnist hann Artclub og skoðar fjöl- marga listviöburði í höfuðborginni. Rætt verður við aðstandendur Almannavarnir: Ekki fastir starfsmenn Vegna fréttar í blaðinu í gær um Almannavamir ríkisins skal itrekað aö heimildarmenn blaðs- ins eru ekki meðal fastra starfs- manna stofnunarinnar. áCNN menningarborgarprógrammsins og listamenn á borð viö Rögnu Ró- bertsdóttur, Sæmund Valdimars- son, Einar Öm og Braga Ólafsson. Þátturinn Hotspots verður vænt- anlega á dagskrá 5., 6. og 10. ágúst og verður þar í fyrri hluta lögð meg- ináhersla á næturlíf Reykvíkinga en einnig komið viö í Bláa lóninu. í seinni hluta þáttarins verður farið í jöklaferð frá Höfn í Homafirði. Ekki er enn búið að ákveða sýningartíma á lokaþáttinn sem nefnist City Guide og er líkt og nafnið gefur til kynna úttekt á Reykjavík. Anna Rakel leiðir áhorfendur i allan sannleika um borgina, auk þess sem rennt verður fyrir lax. Án efa verð- ur brugðið upp fallegri mynd af landi og þjóð - og þar sem okkur ís- lendingum þykir fátt skemmtilegra er um að gera að kveikja á imban- um kl. 20.30 í kvöld. DV-MYND EINAR J. Æft fyrir landsmót Knaþinn Edda Rún Ragnarsdóttir og Fjölvi ásamt Haraldi Haraldssyni, fram- kvæmdastjóra landsmótsins, á æfingu í Víðidal. mmm Ráðherra gefur grænt Ijós V iðskiptaráðherra hefur, með vísan til laga, veitt samþykki sitt fyrir samruna Samvinnusjóðs ís- lands hf. og Fjár- vangs hf. í Frjálsa fjárfestingarbankann hf. Viðskiptablaðið greindi frá. Búnaðarbankinn 70 ára Búnaðarbanki íslands er 70 ára á dag, 1. júlí. Af því tilefni var í gær, 30. júní, haldin vegleg afmælisveisla í öllum 36 útibúum og afgreiðslum bankans. Dagurinn í dag markar þó aðeins upphafið að miklu afmælis- haldi sem mun standa allt til loka ársins. Vísir.is greindi frá, 500 þúsund fyrir orminn Bæjarstjórn Austur-Héraðs á- kveðið að greiða hverjum þeim sem nær mynd af Lagarfljótsorminum 500.000 krónur en engin mynd er til af orminum. Þá er um að gera að muna eftir myndavélinni ef ferðin liggur austur á land. Fréttavefur- inn.is greindi frá. Sjávarútvegssvið lagt niður Sjávarútvegssvið VMA á Dalvík verður lagt niður og kennurum sagt upp. Ákvörðunin er tekin í ljósi þess að einungis 17 umsóknir bár- ust um nám við skólann á komandi vetri. Vísir.is greindi frá. Rútuferðir á Kristnihátíð Kristnihátíðamefnd hefur fengið 25 til 30 rútur til þess að keyra á milli Reykjavíkur og Þingvalla á meðan Kristnihátíð stendur yfir þrátt fyrir verkfall Sleipnis. Vísir.is greindi frá. 1 Góð kaup hjá Sturlu Sturla Geirsson, framkvæmda- stjóri Lyfiaverslunar, fékk að kaupa hlutabréf Lyfjaverslunar íslands á nafnvirði þrjár miiljónir króna á genginu 3,0. Þessi viðskipti vöktu nokkra athygli þar sem núverandi gengi bréfanna á markaði er 4,65 og markaðsverð í dag því tæpar 14 millj- ónir. Viðskiptablaðið greindi frá. Lágmark atvinnuleysis Meðalfjöldi atvinnulausra á Suð- urnesjum er 59 manns, eöa um 0,7% af áætluðum mannafla á Suðurnesj- um. í apríl var atvinnuleysið 0,9%. Atvinnuleysi er hvergi minna á landinu og er þetta sögulegt lámark atvinnuleysis á Suðurnesjum. Vís- ir.is greindi frá. Nýr bókarisi Vaka Helgafell og Mál og menn- ing tilkynntu i gær sameiningu fyr- irtækjanna tveggja undir nafninu Edda - miðlun og útgáfa hf. Nýr bókarisi hefur því risið hér á landi. Vísir.is greindi frá. Risaskjáir á Þingvöllum Fjórir stórir skjáir, 40 til 50 tomma stórir, verða á planinu fyrir utan Valhöll á morgun. Þetta er gert svo íþróttaþyrstir gestir Kristnihá- tíðarinnar á Þingvöllum geti horft á úrslitaleikinn í EM og Formúlu 1 í beinni útsendingu. Þetta er sam- starfsverkefni Hótel Valhallar og Elkó.Vísir.is greindi frá. Verkfallsverðir á Þingvöll Sleipnismenn telja rútuferðir milli Reykjavíkur og Þing- valla á Kristnihátíð verkfallsbrot. Verk- fallsverðir á vegum Sleipnis munu reyna I að koma í veg fyrir rútuferðirnar um helgina. RÚV greindi frá. -KEE

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.