Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2000, Blaðsíða 12
12
____________________________LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000
Fréttir I>V
Mikilvægar forsetakosningar í Mexíkó á sunnudag:
tækja fjórum dögum síðar. At-
hafnamennirnir fyrirlíta banka-
stjórana sem neita að lána fyrir-
tækjum þeirra fé með þeim afleið-
ingum að mörg þeirra hafa orðið
gjaldþrota.
Fox tók undir gagnrýni á banka-
kerflð og greindi í löngu máli frá
áformum sínum um að lögsækja
alla þá sem voru grunaðir um fjár-
svik.
Labastida og Cardenas kölluðu
hann hræsnara.
„Einn daginn segir hann svart
og þann næsta hvítt,“ sagði
Labastida nýlega við fréttamenn
um borð i flugvél sinni. „Einn dag-
inn segir hann bankastjórum að
þeir séu ekki sekir um neitt og síð-
ar segir hann iðnrekendum að
hann ætli að fangelsa bankastjór-
ana. Hann er spurningamerki í
stígvélum."
Vicente Fox gengur einmitt í
stígvélum til að minna kjósendur á
uppruna sinn á hrjóstrugri bújörð í
Guanajuato.
Krossferð gegn spillingu
Fox hóf afskipti af stjórnmálum
árið 1988 þegar hann fór í framboð
til þings fyrir PAN. Flokkurinn var
stofnaður 1939, til höfuðs Lazaro
Cardenas forseta, föður Cu-
auhtemocs frambjóðanda, sem
margir töldu sósíalista.
Fox bauð sig síðan fram til emb-
ættis ríkisstjóra heima í Guanaju-
ato árið 1991. Hann sneri kosninga-
baráttu sinni upp í krossferð gegn
spillingu innan stjómarflokksins
og stóð fyrir margra vikna mót-
mælaaðgerðum eftir að úrslitin
lágu fyrir og hann vann ekki. Fjór-
um árum síðar bauð hann sig aftur
fram og sigraði með miklum yfir-
burðum.
Stjórnvöld í Mexíkó hafa lofað að
forsetakosningamar á sunnudag
verði þær heiðarlegustu sem
nokkru sinni hafa verið haldnar.
En atburðir að undanförnu benda
þó til þess að harðlínumenn innan
stjórnarflokksins PRI telji að kosn-
ingasvik geti fært þeim sigur.
Emesto Zedillo forseti, yfirmað-
ur kjörstjórnar Mexíkós, og fjöl-
margir aðrir ráðamenn hafa vísað
því alfarið á bug að kosningaúrslit-
in gætu ráöist af svindli. Þeir
benda á ýmsar varúðarráðstafanir,
svo sem gegnsæja kjörkassa og
tjöld fyrir kjörklefum.
Frambjóðendur stjórnarandstöð-
unnar og virtir menntamenn hafa
áhyggjur af því að verði mjótt á
mununum kunni stjórnarflokkur-
inn að grípa enn á ný til kosninga-
svika, eins og hann hefur svo oft
gert áður.
Byggt á Reuter, Jyllands-Posten
og New York Times.
Indíánar mótmæla
Indíánar I þorpinu Amador Hernandoz í Chiapas-héraöi í Mexíkó kenna stjórn-
arflokki iandsins, sem hefur fariö meö völdin síöan 1929, um félagslegt
óréttlæti sem grasserar í héraöinu.
Sinnaskipti um bankamenn
Annað gott dæmi um sinnaskipti
Fox eru ummæli hans um banka-
kerfið og stjórnendur þess í vor.
Á fundi með bankamönnum í
sumarleyfisborginni Acapulco bar
frambjóðandinn lof á stjórnendur
bankanna fyrir að halda þeim á floti
í umrótinu sem fylgdi í kjölfar geng-
islækkunar mexíkóska gjaldmiðils-
ins árið 1994. Hann rétt tæpti á þvi
Kerfiskallinn til í slaginn
Francisco Labastida, forsetaframbjóðandi stjórnarflokksins í Mexíkó, setti
upp boxhanska á kosningafundi í borginni Cuernavaca á þriöjudag. Labastida
þykist viss um aö sigra, enda ekki hefö fyrir ööru /' Mexíkó.
Eitt sameinar mexíkósku þjóðina
kannski umfram annað um þessar
mundir, fátæka jafnt sem ríka. Það
er óskin um breytingar í kjölfar for-
setakosninganna á sunnudag eftir
71 árs valdasetu eins og sama
flokksins.
Talað er um að forsetakosning-
arnar geti orðið eins konar upphaf
nýrrar byltingar í þessu næstfjöl-
mennasta ríki Rómönsku Ameríku.
Þau undur og stórmerki hafa nefni-
lega gerst að frambjóðandi stjórnar-
flokksins PRI er ekki efstur í skoð-
anakönnunum. Ekki bara af því að
kannanir eru ekki lengur gerður á
vegum PRI, heldur hins að aðrir
frambjóðendur hafa meiri aðgang
að fjölmiðlunum en nokkru sinni
fyrr til að koma sér og málefnum
sínum á framfæri.
Fyrrum forstjóri Coca Cola
Maðurinn sem gæti gert draum
margra um breytingar að veruleika
er ekki nein byltingarhetja í anda
þeirra Panchos Villa og Emilianos
Zapata við upphaf tuttugustu aldar-
innar. Nei, hann er fyrrum forstjóri
Coca Cola í Mexíkó og heitir
Vicente Fox, eigandi fjölda iðnfyrir-
tækja og bújarða í Guanajuato-ríki í
miðhluta Mexíkós.
Flokkur Fox, hinn íhaldssami
PAN, er elsti og stærsti stjórnarand-
stöðuflokkurinn i Mexíkó.
Vicente Fox var með heldur
meira fylgi en Francisco Labastida,
frambjóðandi stjórnarflokksins, í
síðustu skoðanakönnunum sem
%
birtar voru. Langt á eftir þeim kom
hinn vinstrisinnaði Cuauhtemoc
Cardenas, fyrrum borgarstjóri í
Mexíkóborg, höfuðborg landsins.
Hann var áður fyrr talinn líklegast-
ur til að rjúfa einokun PRI á forseta-
efninu en fær ekki nema um
sautján prósent atkvæða, ef marka
má skoðanakannanimar.
Fátækt og óstjórn
„Vicente Fox virðist ætla að sigra
með þvi að skella skuldinni fyrir
mikilli fátækt í sjötíu ár á lélega
stjóm,“ segir Lorenzo Meyer, pró-
fessor við Colegio de Mexico háskól-
ann, í viðtali við danska blaðið
Jyllands-Posten.
Prófessorinn bendir á að að PRI
njóti enn mikils stuðnings úti á
landsbyggðinni en styrkur PAN
liggur í borgunum, fyrst og fremst
meðal þeirra sem yngri eru og betur
menntaðir.
Það sem gerir árangur Fox í kosn-
ingabaráttunni enn áhugaverðari
en ella er að stjórnarflokkurinn hef-
ur, eðli málsins samkvæmt, miklu
öflugri kosningavél og miklu meira
umleikis. Fox aftur á móti hefur
einstakan hæfileika til að hrífa al-
menning með sér.
í augum andtæðinga sinna er
Vicente Fox pólitískt kameljón sem
talar tungum tveim.
Stuðningsmenn hans telja hann
aftur á móti snjallan baráttumann
sem hefur tekist að afla sér fylgis
umfram það sem flokkur hans nýt-
ur meö því gefa pólitískum merki-
miðum langt nef.
Fox hefur tekist að afla sér stuðn-
ingsmanna úr öllum áttum, hvort
heldur það eru íhaldssamir landeig-
endur eða stjórnendur fyrirtækja.
En á þessari leið hefur Fox oft ver-
ið ósamkvæmur sjálfum sér i yfir-
lýsingum sínum og hefur Francisco
Labastida nýtt sér það óspart.
Fox viðurkenndi til dæmis í ferð
til New York árið 1996 að hann væri
hlynntur einkavæðingu ríkisolíufé-
lagsins Pemex, tákngervingi
mexíkóskrar þjóðemisstefnu.
Labastida hefur í kosningaauglýs-
ingum sínum á undanfornum vik-
um lýst þeim orðum við landráð.
Fox brást við þeim með þvi að lýsa
því yfir að hann myndi aldrei einka-
væða Pemex.
að fjármálamenn, sem gerðu sig
seka um fjársvik þegar almannafé
var notað til að bjarga bankakerf-
inu, yröu látnir svara til saka.
Bankamenn fognuðu orðum hans
ákaflega, sem vonlegt er.
„Fox sagði okkur það sem við
vildum heyra,“ segir bankastjórinn
Roberto González.
Annað hljóð kom í strokkinn þeg-
ar Fox sat fund eigenda smáfyrir-
stígvélum
Vicente Fox, forsetaframbjóöandi stærsta stjórnarandstööuflokksins í Mexíkó, heilsar stuöningsmönnum sínum á
fjöldafundi í borginni Jalapa. Vicente, sem er fyrrum forstjóri Coca Cola í Mexíkó, gengur um í leöurstígvélum til aö
minna kjósendur á uppruna sinn. Vicente ólst upp á búgaröi í miöhluta landsins. Ef marka má skoöanakannanir gæti
svo fariö aö Fox tækist aö binda enda á 71 árs einokun stjórnarfiokksins PRI á forsetaembættinu.
'