Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2000, Síða 8
8
__________________________________________________________________________________________________LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000
Útlönd I>V
Kanslari Austurríkis
Wolfgang Schussel ætlar aö starfa
meö vitrlngunum þremur.
Vonast til að
einangrun verði
brátt aflétt
Wolfgang Schiissel, kanslari Aust-
urríkis, kveöst vona að pólitískri
einangrun Evrópusambandsins,
ESB, gegn Austurríki verði aílétt
innan þriggja mánaða. Kanslarinn
vonar að ekki þurfi að halda þjóðar-
atkvæðagreiðslu um afstöðuna til að-
gerða ESB vegna stjómarþátttöku
Frelsisflokksins, flokks Jörgs
Haiders. Schiissel útilokar þó ekki
að þjóðaratkvæðagreiðslan verði
hafdin. Kanslarinn kveðst ætla að
starfa með vitringunum þremur sem
sendir verða til Austurríkis til að
rannsaka mannréttindamál þar.
500 ferjufar-
þegar taldir af
Skip og flugvélar leituðu í gær ár-
angurslaust að farþegum ferjunnar
Cahaya Bahari sem saknað hefur
verið frá því á fimmtudaginn. Ferjan
var á leið frá eyjunni Halmahera sem
er ein Mólúkkaeyja til eyjunnar
Sulawesi. Um borð voru 492, flestir
flóttamenn. Hörð átök hafa að undan-
förnu verið á Halmahera milli
múslíma og kristinna. Undanfarna
daga hafa 150 fallið í átökunum.
Ferjan hafði leyfi til að flyta 270
farþega. Rúmlega 200 flóttamenn til
viðbótar, fullir örvæntingar, tróðu
sér um borð þegar ferjan hélt frá
landi.
Jacques Chirac
Tillaga forsetans á ekki upp á
pallboröið hjá Jospin.
Forsetinn og
stjórnin deila um
framtíð Evrópu
Ágreiningur er milli forseta
Frakklands, Jacques Chiracs, og
stjórnar Lionels Jospins forsætis-
ráðherra um ummæli forsetans um
evrópska stjómarskrá á þinginu í
Berlín síðastliðinn þriðjudag. Tals-
maður forsetans sagöi hann hafa
talað fyrir munn allrar frönsku
þjóðarinnar og að leggja ætti
áherslu á þörfina fyrir stjórnarskrá
nú þegar það tekur við formennsku
í Evrópusambandinu. Jospin hafn-
aði því að samin yrði evrópsk
stjórnarskrá í formennskutíð
Frakka.
Hörð gagnrýni
fyrir hrokann
Fundir Helmuts Kohls, fyrrver-
andi kanslara Þýskalands, og
flokksfélaga hans í sérstakri rann-
sóknarnefnd þingsins fyrir yfir-
heyrslu nefndarinnar á fimmtudag-
inn hafa valdið miklu uppnámi í
Berlín. Höfundar forystugreina
þýskra dagblaða gagnrýna einnig
kanslarann fyrrverandi harðlega.
Formaöur rannsóknarnefndar-
innar, jafnaðarmaðurinn Volker
Neumann, sagði í gær að þeir félag-
ar í Kristilega demókrataflokknum,
sem hefðu átt fundi með Kohl,
kynnu að verða útilokaðir frá
nefndarstörfum kæmi í ljós að þeir
hefðu samið við Kohl. Nefndin
rannsakar leynilega sjóði kristi-
legra demókrata og falsaða reikn-
inga flokks þeirra auk meintrar
mútuþægni kanslarans fyrrverandi.
Aðalritari Jafnaðarmannaflokks-
ins í Þýskalandi, Franz Múntefer-
Helmut Kohl
Kanslarinn fyrrverandi fær þaö
óþvegiö vegna hrokans sem hann
sýndi viö yfirheyrsluna.
ing, sagði í gær að afstaða Kohls til
rannsóknarinnar á hneykslinu væri
hrokafull. Tekið var undir þessa
skoðun hans í mörgum forystu-
greinum þýsku dagblaðanna í gær.
„Kohl var fullur af hroka þegar
hann sat fyrir framan
rannsóknamefndina. Hann sýndi
hvemig sá verður sem er kanslari í
16 ár og flokksleiðtogi í 25 ár,“
skrifaði Súddeutsche Zeitung.
Blaðið skrifaði jafnframt að Kohl
hefði þegar verið heiðraður vegna
árangurs síns. Nú þyrfti hann að
borga fyrir mistök sín. Berliner
Zeitung skrifaði að Kohl gæti ekki
vanið sig við það að vera ekki
lengur við völd.
Mörg dagblaðanna sögðu nauðsyn
á aö þingnefndir fengju meiri völd
eftir að Kolil hafði neitað að gefa
upp nöfn þeirra sem gáfu fé í
leynisjóði flokks hans.
A dráttarvél til réttarhaldanna
Um 30 þúsund manns söfnuöust í gær saman í bænum Millau í Frakklandi til aö lýsa yfir stuöningi viö franska
fjárbóndann Jose Bove sem oröinn er tákn mótmæla gegn alheimsvæöingu. Bove og níu félagar hans voru leiddir
fyrir rétt í gær fyrir árás á McDonald’s veitingastað í bænum í fyrrasumar. Voru þeir að mótmæia bandarískum tollum
á franskar tandbúnaöarafuröir. Bove, sem einnig vakti athygli á ráöstefnu Heimsviöskiptastofnunarinnar í Seattie í
fyrra, á yfir höföi sér 5 ára fangelsi. Hann kann einnig aö veröa dæmdur til aö greiöa háar sektir.
Kínverjar þvoðu tuttugu
milljarða í Frakklandi
Franska lögreglan hefur handtek-
ið 27 manns sem grunaðir em um
peningaþvott Kínverja í Frakklandi.
Talið er að Kínverjamir hafi þvegið
um 20 milljarða íslenskra króna síð-
ustu 18 mánuðina, að því er heim-
ildarmenn í franska réttarkerfmu
greindu frá í gær. Níu manns, sem
taldir eru höfuðpaurar starfseminn-
ar, voru á miðvikudaginn og
fmuntudaginn dæmdir í fangelsi.
Fjárglæframennimir höfðu þveg-
ið tugi milljóna króna frá svarta
markaðnum á hverjum degi undan-
fama 18 mánuði. Kínverjamir
stofnuðu bankareikninga í París og
fluttu frá þeim peninga inn á reikn-
inga í Kina og í Hong Kong.
Peningamir hafa meðal annars
veriö notaðir til að greiða þeim sem
smyglað hafa Kínverjum til Frakk-
lands og annarra evrópskra landa.
Peningamir hafa einnig verið not-
aðir til að greiða svörtu vinnuafli
og til að smygla stómm fórmum af
ódýmm kínverskum vamingi til
Frakklands. Þar var hægt að selja
hann með góðum hagnaði.
Og í Genf var í gær um hálfur
milljarður íslenskra króna gerður
upptækur af bankareikningi fyrr-
verandi utanríkisráðherra Úkra-
ínu, Pavlos Lazarenkos. Samkvæmt
frásögn lögfræðings utanríkisráð-
herrans fyrrverandi var hann
einnig dæmdur í 18 mánaða fang-
elsi vegna peningaþvotts. Lazaren-
ko situr nú í fangelsi í San
Francisco í Bandaríkjunum þar
sem hann er sakaður um að hafa
þvegið um 9 milljarða íslenskra
króna.
Það fé á hann að hafa fært frá op-
inberum sjóðum tfl eigin fyrirtækja
þegar hann var héraðsstjóri í Úkra-
ínu frá 1993 til 1994.
Lazarenko, sem var forsætisráð-
herra Úkraínu frá júní 1996 tO júní
1997, var handtekinn í Sviss í des-
ember 1998 þegar hann kom tfl
landsins með vegabréf frá Panama.
Hann var látinn laus gegn trygg-
ingu en handtekinn i Bandaríkjun-
mn í febrúar 1999.
Vald til að reka
Neðri deild rúss-
neska þingsins
samþykkti i gær
með meirihluta lög
sem heimOa Vla-
dimir Pútín Rúss-
landsforseta að
reka héraðsstjóra
og stjórnir þeirra.
Fyrst verður þó dómstóll að úr-
skurða að brotið hafi verið gegn
stjórnarskránni.
Gísl missti fóstur
Kona frá S-Afríku, sem er einn
gísla uppreisnarmanna á FOippseyj-
um, missti fóstur í vikunni að því er
einn leiðtoga mannræningjanna
greindi frá í gær.
11 ára moröingi
11 ára drengur í Sahibabad ná-
lægt Nýju-Delhi í Indlandi viður-
kennir að hafa drekkt þremur böm-
um, 7 mánaða, 3 ára og 5 ára.
Óttast kosningasvindl
Stjómarflokkurinn í Mexíkó, PRI-
flokkurinn, sem verið hefur við völd
frá 1929, kann að hafa undirbúið
svindl í forsetakosningunum á
morgun samkvæmt orðrómi á Net-
inu. Yfirvöld segja ekkert að óttast.
Vilja fara frá Vesturbakka
Nær helmingur ísraela, eða 49
prósent, er reiðubúinn að afhenda
Palestínumönnum 90 prósent Vest-
urbakkans samkvæmt skoðana-
könnun sem birt var í blaðinu
Yedioth Aharonoth. ísraelar vOja
halda austurhluta Jerúsalem og
byggðum landnema.
Lífstíðarfangelsi
H24 ára gamaO Breti,
sem er aðdáandi
Saddams Husseins og
Adolfs Hitlers og and-
stæðingur samkyn-
hneigðra, var í gær
dæmdur í sexfalt lífs-
tíðarfangelsi. Bret-
inn, David Copeland,
stóð að baki þremur naglasprengju-
árásum í London í fyrra. Þrír létust
í árásunum og yfir hundrað særð-
ust.
Herferð gegn hvalveiðum
Sjónvarpsmynd, sem sýnir hval-
veiðimenn drepa hval með vél-
byssu, verður sýnd í ástralska sjón-
varpinu í næstu viku. Myndin, sem
er upphafið að nýrri alþjóðlegri her-
ferð gegn hvalveiðum, er meðal
annars framleidd af þeim sem gerðu
leikmyndir kvikmyndarinnar Mat-
rix.
Fjölskyldan fjarverandi
Breska konungs-
Sölskyldan var ekki
viðstödd í gær þeg-
ar vígður var leik-
vöOur í Kensington-
garði tO minningar
um Díönu
prinsessu. Bróðir
Díönu, Spencer jarl,
var við athöfnina.
Netanyahu fram úr Barak
Benjamin Netanyahu, fyrrver-
andi forsætisráðherra ísraels,
myndi sigra Ehud Barak forsætis-
ráðherra yrði kosið nú. Samkvæmt
könnunum er Netanyahu með 44
prósenta fylgi en Barak 36 prósent.