Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2000, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2000, Síða 23
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000 23 DV Helgarblað Baðfatatískan sumarið 2000: Bíkinið blífur Bíkinin eru að verða meira og meira áberandi í sundlaugum lands- ins og það ekki bara á góðum sól- skinsdögum. Fleiri og fleiri islensk- ar konur eru einfaldlega famar að kjósa bíkinið fram yfir hinn hefð- bundna sundbol. Bíkinið leit fyrst dagsins ljós árið 1946 en það voru tveir franskir hönnuðir sem fundu upp á því að klippa hinn hefðbundna sundfatnað í tvennt og skýrðu verkið eftir eyj- unni Bikini Atoll þar sem Banda- ríkjamenn stunduðu kjarn- orkurannsókn- ir. Það var þó ekki fyrr en á sjöunda ára- tugnum að bíkinið sló verulega í gegn. Efnisminni bíkini Þrátt fyrir að bíkinið sé ekki efnismikil flik hefur það gengið í gegnum ýmsar breytingar í gegnum árin, bæði hvað form og efni varðar. „Mér sýnist sem bíkinin séu að verða efn- isminni," segir Richard Krist- insson. Richard veit vel um hvað hann er að tala þar sem hann hefur gott útsýni yfír Laugardalslaugina þar sem hann vinnur sitt áttunda sumar sem sundlaugarvörður. Bíkiníbrjóstahöld meö vírum eru á undanhaldi. Á meðan yngstu stelpurnar velja þríhyrningstoppa kjósa eldri konur þó enn þá vírana. „Litimir í ár eru bjartari en ver- ið hefur. Blátt og svart hefur vikið fyrir hressari litum og mér sýnist sem appelsínugulur eigi vinning- inn,“ segir Richard. Fyrir átta árum síðan segir hann að bíkinin hafi verið lítið áberandi í laugunum og aðeins litið dagsins ljós á allra bestu dögunum. Nú þurfl hins vegar veðr- ið ekki að vera eins gott til þess að stelpurnar mæti í bíkininum í laug- arnar en þó eru bíkinin enn sjald- séð sjón að vetri til. Þríhyrng- arnir vin- sæiastir „Konur eru farnar að taka bíkini til jafns við sundbolina. Þetta er gífurleg breyting frá því þegar ég var unglingur og cillir voru bara í Speedo- sundbol- um,“ segir Sigrún Guðný Mark- úsdótt- ir, versl- unar- stjóri í Top Shop, sem finnst já- kvætt hvað stelpur í dag eru miklu ófeimnari. „Fjölbreytileiki bíkina sumarsins er mikill. Litirnir fylgja fatatísk- unni og því er t.d. túrkisblár og bleikur áberandi. Þó selst svart alltaf best,“ segir Sigrún og bendir á að snákaskinnið, sem hefur verið svo vinsælt að undan- förnu, sé einnig komið í sundfotin. „í ár eru bíkinin í skærum litum en þó ekki í neonlitun- um. Rósamynstur er einnig áberandi og það snið sem er hvað vinsælast eru „string-bíkini" sem eru samansett úr þríhyrningum bæði í toppi og brók. Brókin er bundin saman á hliðunum og toppurinn á bak- inu,“ segir Jak- obína Þráinsdóttir, eigandi verslunar- innar Knickerbox. A g-streng í Nauthólsvíkina? Sviösljós Islenskar konur hafa ekki spókaö sig mikió um í g-streng-baófötum en hver veit nema þaö fari aö breyt- ast með tilkomu baöstrandarinnar í Nauthólsvík? „G-strengurinn hefur slegið vel í gegn hvað undirfotin varðar en kannski á hann eftir að verða vin- sæll í baðfatnaðinum líka með til- komu nýju Nauthóls- víkur- inn- / A / ar. Mér finnst þannig baðfot alla vega passa betur á ströndinni en í sundlaug- unum,“ segir Sigrún Guðný f/ sem efast ekki um að Bíkinin hafa verið ómissandi á sólarströndum erlendis en sjást nú í ríkari mæli í sundlaugum hérlendis. Naut- hóls- víkin eftir að njóta vinsælda meðal bikiniaðdá- enda. -snæ Járnspengur í bíkinitoppum eru ekki lengur algeng sjón. „Alla vega ekki í ófylltum toppum. Það eru yf- irleitt spengur í toppum með svampfyllingum og eru þau bíkini aðallega keypt af eldri konum með- an stelpurnar kaupa þríhyminga með bandi,“ segir Sigrún í Topshop. Það er ýmsar skemmtilegar bík- iniútgáfur að flnna í verslunum þetta sumarið, m.a. er að finna bík- ini í Knickerbox með glæru plasti á hliðunum þannig að það virðist sem fram- og afturhlutinn standi einn og sér. Verslunin hefur einnig selt tangabuxur með bandi í rassinn sið- astliðin sumur og verður ekki breyting á því í ár. „Fólk sem er á leiðinni á erlendar baðstrendur kaupir oftast þessi djörfu bíkini en þau eru reyndar líka notuð hér á ís- landi. Maður sér stundum konur í svona bíkini á góðum degi í sund- laugunum og svo era margir sem vilja hafa það notalegt í garðinum hjá sér,“ segir Jakobína. Þríhyrningarbíkinin eru pottþéttur vinningshafi sumarsins. x ' //I í ' // y ' Mfí Angelina loksins hamingjusöm Ástin hefur gjörsamlega breytt lífl hinnar 25 ára gömlu leikkonu, Ange- linu Jolie. Hin fyrrum taugaveiklaða Angelina lýsir nú af hamingju og innri ró sem aldrei fyrr. Ástæðan er hinn 44 ára gamli Billy Bob Thomton sem hún giftist í maí. Margir héldu að giftingin, sem fór fram í flýti, myndi ekki vara lengi en stúlkan segir að hún hafi fundið sína einu og sönnu ást. Hún er meira að segja búin að láta tattóvera nafn eiginmannsins á handlegginn á sér. Angelina og Billy Bob léku hjón í fyrra í kvikmyndinni Pushing Tin en þá voru þau bæði í sambandi með öðrum aðilum. Þau hittust fyrst i lyftu í Toronto þar sem kvik- myndin var tekin upp og Ang- elina segist hafa fallið fyrir honum á stundinni. Þar sem þau voru bæði á fóstu létu þau vinskapinn duga. Þegar þau svo voru bæði á lausu fyrir nokkrum mánuðum létu þau ekki segja sér það tvisvar að byrja að vera saman. Margir urðu hissa á sambandinu þar sem Billy Bob er svo miklu eldri en Angelina og hefur verið giftur fjórum sinnum áður og á þrjá syni. Angelina segir aldurinn hins vegar ekki vera neitt vandamál og henni finnst ekkert agalegt að vera fimmta konan hans. „Ef ég væri eldri hefði ég örugg- lega verið búin að gifta mig mörgum sinnum áður en ég hefði fundið hann,“ segir hún í viðtali við blaðið. -VG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.