Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2000, Qupperneq 30
30
Helgarblað
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000
DV
Sérstæð sakamál
Eiginmaðurinn stakk upp á siglingu um Karíbahafið:
Morðingi
á skemmti-
siglingu
Julie, Katie og Tim
Julie saknaöi einhvers sem hún fann ekki í faömi fjölskyldunnar.
Julie Scully hafði næstum allt til
að bera sem kona getur óskað sér.
Hún var falleg, hún var fagurlega
vaxin og hún átti eiginmann sem
tilbað jörðina sem hún gekk á.
Henni gekk einnig vel, að minnsta
kosti að eigin mati, í starfi sínu sem
fyrirsæta og sjónvarpskona. En
ekki var þó allt með felldu og lík-
lega mátti rekja vandann til
bernskuáranna. Það hafði verið
mikið áfall fyrir Julie þegar faðir
hennar yflrgaf móður hennar og
hana er hún var 10 ára gömul. Julie
var ekki nema 17 ára þegar hún gift-
ist nær tvöfalt eldri kaupsýslu-
manni, Roy Sondy. Talið er að það
hafi verið foðurmissirinn sem fékk
hana tO að stíga það skref. Julie
hafði heillast af glæsilegu útliti
Roys og þægulegu tilverunni og
fallega heimilinu sem hann bauð.
Hún þurfti ekki að hafa neinar
áhyggjur af framtíðinni.
Drykkfelldur lygari
Það leið þó ekki á löngu þar til í
ljós kom að Roy var drykkfelldur
lygari sem þar að auki beitti eigin-
konu sína ofbeldi þegar hann var
drukkinn. Julie var illa brugðið.
Hún krafðist skilnaðar og fékk
hann.
Julie var orðin 23 ára þegar hún
hitti Tim Nosh, 35 ára gamlan vin-
sælan landslagsarkitekt í Trenton í
Jew Jersey. Hann var algjör and-
stæða fyrri eiginmanns Julie. Þegar
Julie hafði eignast dótturina Katie
1995 var hún orðin vinsæl fyrirsæta
og sjónvarpskona.
Innst inni saknaði hún þó ein-
hvers sem hún öðlaðist ekki í
rólegum faðmi fjölskyldunnar. Árið
1997 varð hún alvarlega þunglynd.
Hún trúði bæði vinkonum sínum og
áhyggjufullum eiginmanni sínum
fyrir líðan sinni. Hann stakk upp á
að þau færu í skemmtisiglingu um
Karíbahafið í nóvember. Eiginmað-
urinn vonaðist til að Julie hresstist
andlega við siglinguna. Hún
hresstist svo um munaði.
Lagt var í ferðina frá Flórída og
stefnan tekin til Dómíníska lýðveld-
isins. Þar átti fjölskyldan góðar
stundir á sólheitri ströndinni og í
hlýjum sjónum. Tim tók svo sem
eftir því að Julie þótti gaman að
ræða við ungan, sólbrenndan mann.
Hún sagði hann heita George
Skidopoulos og vera 24 ára gamlan
Grikkja. Hann var vélstjóri á
skemmtiferðaskipinu sem litla fjöl-
skyldan sigldi með.
Tim Nosh greindi síðar frá því að
hann hefði ekki verið afbrýðisamur,
að minnsta kosti ekki í byrjun. „Það
er ekki hentugt þegar maður á
glæsilega konu sem gengur vel í
starfl. Maður ætti heldur að vera
stoltur af henni,“ sagði hann.
Tók ekki eftir
viðvörunarbjöliunum
Hann tók ekki eftir viðvörunar-
bjöllunum þó að það heyrðist hátt í
þeim. Þegar þau voru komin heim
til Trenton trúði Julie vinkonu
sinni fyrir því að kynni hennar við
George hefðu leitt til þess að henni
leið eins og fiðrildi sem sloppið
hefði úr púpu sinni. „Ég öðlaðist
sjálfsvirðingu og mér fannst ég vera
elskuð og þráð,“ sagði hún.
Siminn hringdi án afláts dag og
nótt þegar þau voru komin heim.
Það var George sem hringdi. Julie
gerði ekkert tii að vísa honum frá.
Hún naut tilbeiðslu hans.
1 febrúar á næsta ári tilkynnti
Julie eiginmanni sínum að hún
vildi fara i aðra skemmtisiglingu
um Karíbahafið. Þessi ferð átti að
Julie
Hún var falleg og henni gekk vel í
starfi.
vera nákvæmlega eins og sú fyrri,
hún vildi fara á sama
ákvörðunarstað og með sama skipi.
Hún hafði engan áhuga á öðrum
möguleikum sem í boði voru.
Tim var undrandi og skildi ekki
kröfur Julie. Það var einn vina hans
sem útskýrði fyrir honum hver
væri raunveruleg ástæða fyrir
áhuga Julie á einmitt þessari ferð.
Ástæðan var George Skidopoulos.
Það var ekki fyrr en hjónin komu
heim aftur eftir seinni
„Síminn hringdi án af-
láts dag og nótt þegar
þau voru komin heim.
Það var George sem
hringdi. Julie gerði
ekkert til að vísa hon-
um frá. Hún naut til-
beiðslu hans. í febrúar
á næsta ári tilkynnti
Julie eiginmanni sínum
að hún vildi fara í aðra
skemmtisiglingu..."
skemmtisiglinguna sem Tom
viðurkenndi að hjónaband hans
væri að fara út um þúfur. Hann
fékk reikning upp á þúsundir
dollara fyrir símtöl Julies viö
George um borð í
skemmtiferðaskipinu. Sama haust
yfirgaf Julie eiginmann sinn og
dóttur. Hún tók upp fyrra eftirnafn
sitt og flutti í litla íbúð í Trenton.
Þangað flutti George eftir að hann
hafði afskráð sig af skipinu.
Það leið ekki á löngu þar til
George þóttist eiga Julie með húð
og hári. Hann bannaði henni að
umgangast aðra, meira að segja
gömlu vinkonumar hennar. I
desember fór hann til Aþenu og
Julie fylgdi fljótt á eftir. Hún hafði
orðið við kröfu hans um að skilja
Katie litlu eftir í Trenton. Hann
hafði sagt henni að fjölskylda hans
myndi ekki sætta sig við að hún
ætti barn með öðrum manni.
Julie kom til Aþenu 6. desember.
Þann 10. janúar fékk vinkona
hennar fréttir sem ollu áhyggjum.
George Skidopoulos hringdi og
sagði að Julie væri horfin.
Sendi einkaspæjara til
Grikklands
Fregnin barst strax til Tim Nosh.
Hann réði til sín einkaspæjara og
sendi hann til Grikklands. Með
aðstoð grísku lögreglunnar hleraði
einkaspæjarinn síma Georges.
Skömmu síðar heyrðu þeir George
segja félaga sínum að hann hefði
myrt Julie þegar hún ætlaði að snúa
heim til Ameríku. Hún átti ekki að
fá að flugsast um með öðrum.
George var strax handtekinn og
kærður fyrir morðið á Julie Scully.
George sagði hrokafullur og
kuldalega frá því hver örlög ungu
fallegu konunnar heíðu orðið. Hann
hafði farið með hana á eyðiströnd
þar sem hann hafði kyrkt hana. Því
næst hafði hann höggvið höfuðið af
búknum og fleygt því í hafið.
Búknum hafði hann troðið í
pappakassa og sökkt honum í fen
eftir árangurslausar tilraunir til að
kveikja í honum. Höfuðið fannst
aldrei en búkurinn fannst á þeim
stað sem George Skidopoulos benti
á. Fjölskylda Georges fékk áfall og
vildi ekkert hafa með hann að gera.
George var dæmdur í
lífstíðarfangelsi án nokkurra
mögulega á náðun.
„Ég mun aldrei skilja hvað hin
fallega dóttir mín sá við svona
ruddalegan, eigingjarnan og
hrokafullan mann eins og þessi
Grikki var,“ segir móðir Julie. „Það
er aðeins hægt að útskýra með þvi
að andstæður dragist hvor að
annarri, að það sé hægt að upplifa
ævintýrið um Fríðu og dýrið í
raunveruleikanum."
Bréf frá morðingja
Stefanie Dertz var aðeins 14 ára þegar hún var
myrt á grimmilegan hátt.