Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2000, Blaðsíða 46
'54
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000
Tilvera
i>v
Norska
hafmeyjan!
Aðalsteinn Ingólfsson skrifar:
Á sögufrægum
slóðum í Virginiu
Það er óhætt að segja að Norð-
**• menn séu famir að fara ótroðnar
slóðir i ferðamennskunni. Túristi á
ferð um Lýsufjörð stökk úr bát sín-
um af forundran og ákafa er hann
sá hafmeyju svamla um í fírðinum.
Þetta reyndist vera Line Oexnevad,
tveggja bama móðir á fertugsaldri,
allsnakin að undanskilinni siðri
hárkollu og löngum fisksporði. í
nokkur ár hefur hún verið ráðin
sem hafmeyja til að hrista óvænt
upp í túristum sem fara i siglingar
um firði í Vestur-Noregi. Hún við-
urkennir að þetta geti orðið ansi
kalt spaug en er stolt af því að
vera eina hafmeyjan í heiminum
ásamt þeirri dönsku. Norðmenn!
^Túlkar
í leigubíla
Ósjaldan geta samræður við
leigubílsstjóra á erlendri grund
reynst ansi erfiðar. Ferðamálayfir-
völd í Seúl telja sig komna með
lausnina. Komið hefur verið fyrir í
tilraunaskyni rafrænum tungu-
málatúlkum í 2500 leigubifreiðum.
Til að byrja með munu þeir geta
þýtt ensku, japönsku og kínversku
en þegar er unnið að því að bæta
við þýsku, frönsku og rússnesku.
Gefi þetta góða raun verður kerf-
inu komið fyrir í öllum 70.000
a leigubílum Seúl fyrir 2002 en þá
heldur Kórea einmitt heimsmeist-
arakeppnina i knattspymu. íslensk-
ir boltaáhugamenn sem eru slark-
færir i ensku ættu því að geta
komist auðveldlega á milli valla.
Að lokum má geta þess að á síð-
asta ári heimsóttu tæpar flmm
milljónir ferðamanna Suður-Kóreu
en flestir þeirra munu vera Japan-
ir og Kínverjar.
Misheppnaðar
útgöngur
Samkvæmt bandarískri rann-
sókn mistakast útgöngur úr flug-
vélum í neyðartilvikum alltof oft.
Kemur m.a. fram að í sjö tilvikum
af þeim nítján sem skoðuð voru
áttu farþegar og áhöfn í miklum
erfiðleikum með að nýta sér upp-
lásna útgöngurennibraut sem beitt
er þegar eldur eða reykur kemur
upp í vélum á jörðu niðri. í tveim-
ur tilvikanna mistókst það með
öllu. Við flugvélaárekstur i Quincy
í Ulinois tókst björgunarmönnum
ekki að opna dyr annarrar vélar-
innar með þeim afleiðingum að 14
manns létust af völdum bruna eða
reykeitrunar.
*
Býrðu í Kaupmannahöfn?
Ertu ú leiðinni ???
www.islendingafelagid.dk
á\
Nú þegar orðið er fáránlega ódýrt
fyrir íslendinga að ferðast til Banda-
ríkjanna eru þeir æ fleiri sem ekki
láta sér nægja að þvælast þar um
kringlur heldur nota tækifærið og
aka um sveitir landsins. I flestum
tilfellum er sveitin nær en flestir
halda. Séu menn að erindast í New
York tekur ekki nema klukkutima
að aka neðan úr mannhafmu í Man-
hattan upp í skógi vaxin héruð þar
sem mannlífið hefur furðu lítið
breyst frá því um miðja öldina.
Og séu menn í skreppitúr í
Baltimore/Washington þá er einnig
hægðarleikur að komast til fegurstu
og sögufrægustu héraða austur-
strandarinnar þar sem menn bárust
á banaspjótum, bæði í Frelsisstríð-
inu og Þrælastríðinu.
Um daginn ákvað sá sem þetta
skrifar að láta rætast gamlan
draum, eða réttara sagt tvo gamla
drauma, að komast til Gettysburg,
þar sem háð var ein mannskæðasta
orrusta Þrælastríðsins og Abraham
Lincoln flutti snilldarlega ræðu, og
ganga daglangt eftir Appalaciu-slóð-
anum (Appalacian Trail), lengstu og
vinsælustu gönguleið í Bandaríkj-
unum.
Út af fyrir sig er auðvelt að koma
þessu til leiðar. Á Netinu mátti fá
upplýsingar um sögufræga bæi ná-
lægt Shenandoah-dalnum þar sem
auðvelt væri að fmna áðurnefndan
slóða. Með útilokunaraðferðinni
varð fyrir valinu Harper¥s Ferry,
lítill bær þar sem hugsjónamaður-
inn ofstopafulli, John Brown,
hleypti af stokkunum sínu prívat
þrælastríði og galt fyrir með lífi
sínu. Um þann atburð eru margar
frásagnir og söngvar.
Og í Harper¥s Ferry var auglýst-
ur Briscoe Bed & Breakfast (s. 001-
304-535 2416) þar sem staðarhaldarar
buðu upp á heila svítu og ríflegan
morgunverð fyrir 75 dollara á dag.
Gististaðurinn hafði einnig þann
kost að hann var ekki nema 100
metra frá AT slóðanum. í gegnum
Netið var gengið frá bókun á
nokkrum mínútum.
Stutt á orrustuvellina
Reyndist þetta ákjósanleg tilhög-
un. Harper¥s Ferry er fallegt bæjar-
stæði á hæð á mörkum ánna Potom-
ac og Shenandoah, í 150 ára timbur-
húsi þeirra Hale-hjóna, Jean og Lin,
var tekið á móti íslendingunum sem
væru þeir endurheimtir ættingjar
og á innan við klukkutíma mátti
aka á staði sem margir þekkja af
kvikmyndum og bókum um Þræla-
stríðið, orrustuvellina við
Manassas, Antietam og Gettysburg.
Hefðu menn meiri tíma og áhuga
fyrir ýmsum stórmennum banda-
rískrar sögu, til að mynda Thomas
Jefferson, var hægt að aka niður til
seturs hans, glæsivillunnar Mont-
icello, á 11/2 klukkustund.
Að vísu þykir mörgum óþægilegt
að aka langan veg í þeim hitum sem
þama eru algengir en á móti kemur
að krökkt er af áningar-og veitinga-
stöðum í fallegum þorpum víða í
héraðinu þar sem allt frá hamborg-
arafæðu og upp í sjávarrétti fyrir
matgæðinga má fá við vægu verði.
Svo ekki sé minnst á þverhandar-
þykkar steikur sem jafnvel mat-
lystugir íslendingar eiga erfitt með
að torga. Á flestum stöðum mátti fá
riflega útilátnar tví- eða þríréttaðar
máltíðir fyrir 30 dollara á mann.
Þess ber einnig að geta að sjálfir
eru Bandaríkjamenn sér mjög með-
vitandi um sögu sína og flykkjast á
sögustaði á borð við þá sem hér
hafa verið nefndir. Til dæmis eru
miklar biðraðir við Monticello um
helgar, auk þess sem kaupahéðnar
Hús betri borgara
Þetta reisulega timburhús, Briscoe House, er einkennandi fyrir hús í eigu betri borgara í Virginiu á 18. og 19. öld.
Hér lifðu höfundur og feröafélagar hans í vellystingum meðan á ferð þeirra stóð.
Síðasta lest frá Gettysburg
Þó var öllu áhrifameira að standa á sama stað og
Lincoln stóð þegar hann flutti ræðu sina í Gettysburg, á
ás efst í kirkjugarði þar sem stór hluti þeirra 50.000
hermanna ergrafinn sem féll í bardaganum
þar árið 1863.
eru alls staðar og hamast við að
selja gestum þjónustu og minja-
gripi.
Undirritaður ákvað að ganga
fyrst og geyma sér bílferðir. Ferða-
félagar hans og gestgjafar slepptu
honum lausum uppi í fjöllum þar
sem hann gat gengið AT-slóðann til
Harper¥s Ferry úr tveimur áttum.
Nokkur orð um AT: Slóðinn er rúm-
lega 2300 mílur og liggur frá Georg-
íu í suðri og upp til Maine í norðri
og mun samfelld ganga taka meðal-
menn um 6 mánuði. Um 300 manns
Appalacia-slóöin
Höfundur á Appalacia-slóð sem hér
er mjög svo ógreinilegur troðningur.
(Ljósm. VÓ)
eru sögð ljúka þessari maraþon-
göngu á ári hverju.
Breiður bautasteina
Þessi gönguhrólfur lét sér hins
vegar nægja að ganga 34 kílómetra
annan daginn en 12 hinn, mest-
megnis í sumarrigningu og logni.
Þetta er fráleitt erfiður gönguvegur
akkúrat á þessum stað en í öðrum
fylkjum liggur hann bæði um
myrkviði og eftir háfjöllum, stund-
um óþægilega nálægt grimmari dýr-
um merkurinnar. Það sem gerir
þennan hluta slóðans áhugaverðan
er nálægðin við atburði Þrælastríðs-
ins sem eru tíundaðir á skiltum á
leiðinni, smábardagar jafnt sem
hetjudáðir. Á leiðinni varð á vegi
undirritaðs eina minnismerkið sem
nokkru sinni hefur verið reist í
minningu blaðamanna og ljósmynd-
ara, þeirra sem hættu lffi sínu við
að koma fréttum af orrustum Þræla-
striðsins til almennings. Við þenn-
an mjög svo óvænta fund sló hjarta
gangandi blaðamanns eilítið hrað-
Þó var öllu
áhrifámeira að
standa á sama
stað og Lincoln
stóð þegar hann
flutti ræðu sína
i Gettysburg, á
ás efst í kirkju-
garði þar sem
stór hluti þeirra
50.000 hermanna
eru grafnir sem
féllu í bardagan-
um þar árið
1863. Að auki er
mikill fjöldi her-
manna úr báð-
um heimsstyrj-
öldum grafinn í
garðinum.
Að horfa yfir
þessar breiður
bautasteina yfir
meira og minna
nafnlausa
sveitadrengi af
írskum, skosk-
um og þýskum
uppruna, fóm-
arlamba fyrsta
nútímastríðsins,
og hafa um leið
yflr stutta og
snilldarlega orð-
aða ræðu
Lincolns, sem er
óður til þeirra háleitu hugsjóna sem
Bandaríkin voru reist á, vekur með
gestinum blendnar tilfmningar.
Vissulega setur að manni eftirsjá
eftir þeim samansöfnuðu mannkost-
um sem þarna töpuðust bandarískri
þjóð en einnig þá óþægilegu tilhugs-
un að margt af því sem þarna var
barist um hafi Bandaríkjamönnum
ekki enn tekist að útkljá.
Mikió er til af leidarvísum um
þessar slóðir og bókum um Þræla-
strióið. Uhdirritaður getur mœlt með
þremur „öðruvísi“ bókum, eirmi
ferðasögu og tveimur skáldsögum: A
Walk in the Woods eftir gárungann
Bill Bryson, The Killer Angels eftir
Michael Shaara og Cold Mountain
eftir Charles Frazier