Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2000, Side 47

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2000, Side 47
LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2000 55 I>V Tilvera l Göngutúr á tunglinu. Armstrong og Aldrin stigu fyist- ir manna fæti ð tungli 1969. œxmÍ!Zimii*s*:Ævusa Tungliö Væntanlegur áfangastaöur feröamanna í framtíöinni. Golf og gígaskoðun - Spennandi áfangastaður Gistiheimiliö aö Engimýri í Öxnadal hefur veriö opnaö sumargestum Siglingar á Skagafirði: Gullni þríhyrning- urinn Ferðaþjónustan Lónkoti býður í sumar upp á daglegar eyjasigling- ar á Skagafirði. Ferðin gengur undir nafninu Gullni þríhyming- urinn en það er sú þrenning sem setur mestan svip á Skagafjörð; nefnilega Þórðarhöfði, Drangey og Málmey. Siglt er hjá svipmiklu 200 metra háu og þverhníptu berginu í Þórðarhöfða, þá að klettinum Kerl- ingu við Drangey og farið í land í eyjunni. Á heimleiðinni er svo siglt umhverfis Málmey. Farið er klukkan 10 að morgni og komið til baka um tvöleytið. Sjóstöngin er ætíð höfð um borð. Einnig er hægt að komast í siglingu um perlur Skagafjarðar frá Hofsósi og Sauð- árkróki. Bryddað upp á nýjungum Gistiheimilið að Engimýri í Öxnadal hefur verið opnað sumar- gestum og stendim til að brydda upp á ýmsum nýjungum í sumar. Gistiheimilið hefur rými fyrir 12 manns en auk þess er í boði svefn- pokapláss auk tjaldstæðis. Tjald- búðargestir njóta aðstöðu í hús- inu, svo sem salemis- og sturtuað- stöðu auk matsalsins. Frá Engimýri er stutt í ýmiss konar þjónustu og á bænum er rekin hestaleiga. Þá er stutt í veiði í Hraunsvatni og á Þelamörk er simdlaug. Fallegar gönguleiðir eru í nágrenninu og sögufrægir staðir við hvert fótmál. DV-MYND Hl Úr skóla í hótel Breytingarnar hafa tekist einstaklega vel og heimavistarskólinn er oröiö glæsilegt hótel. Kom með hót- el heim í heiðardalinn DV, BREIÐDALSVÍK: Nýtt hótel var formlega tekið í notkun í aflögðum skóla í Breið- dal í seinustu viku. Staðarborgar- skóli sem var byggður sem heima- vistarskóli á sjötta áratugnum og stóð ónotaður um árabil hefur því fengið nýtt hlutverk. Kristján Sigurðsson, 73 ára og uppalinn i Breiðdal, festi kaup á skólanum í fyrra og hefur síðan unnið að viðgerðum og gagnger- um endurbótum. Hæð var reist ofan á hliðarálmu og þar eru nú 20 herbergi með og án baðs. Á neðri hæð er eldhús, matsalur, snyrtingar og herbergi og þá er koníaksstofa á efri hæð með út- sýni til fegurstu fjalla á íslandi. Hótel Staðarborg er umvafiö gróðri því það stendur í landi Skógræktóufélagsins sem byrjaði að gróðursetja þar fyrir 50 árum og eru margar skemmtilegar gönguleiðir í nágrenninu. Einnig er heitur pottur á lóð hótelsins. Við hlið þess stendur samkomu- hús sveitarinnar og hyggst Krist- ján nýta það í tengslum við hótel- ið. -HI Flesta hefur líklega einhvem timann dreymt um að ferðast til tunglsins og ekki er ólíklegt að sá draumur geti orðið að veruleika í nánustu framtíð. Yuri Gagarin fór fyrstur manna á spor- baug kringum jörðu árið 1961en það voru þeir Armstrong og Aldrin sem fyrstir mann stigu fæti á tunglið árið 1969. Fram til þessa hafa tólf menn notið þeirra gæfú að fá að ferðast til tunglsins. Allir þessir menn eiga það sameiginlegt aö vera bandarískir þegnar og opinberir starfs- menn þar að auki. Þeir sem vilja halda áfram eðlilegum rannsóknum úti í víðáttum geimsins og á fjarlægum hnöttum hafa kvartað sáran yfir minnkandi áhuga og um leið fjár- magni til þessa málaflokks. Það er því ekki óeðlilegt að þeir horfi með opnum hug á þann möguleika að bjóða ahnenn- ingi skemmtiferðir til tunglsins og um ieið að afla fiár til áframhaldandi rann- sókna. Hótel á teikniborðinu Til þess að hægt sé að bjóða ferðir ttt tunglsins þarf náttúrlega vera aðstaða ttt gistingar. Eins og stendur er ekki búið að reisa hótel á tunglinu en áætlanir eru upp um að byggja þar stöð á næstu árum. Árið 1998 stóð Hilton-hótelkeðjan fyrir hönnunarsamkeppni meðal arkitekta um hótel á tunglinu. Allmargar tillögur bár- ust en hugmynd Peters Instons þótti bera af. Inston gerir ráð fyrir aðstöðu fyrir 5000 manns í háhýsi sem teygir sig 325 metra upp í himininn. Þar verða veit- ingahús, verslanir og likamsræktarstöðv- ar. Hann gerir einnig ráð fyrir stórri sundlaug en það kann þó að reynast ein- hveijum vandkvæðum bundiö þar sem ekkert vatn hefur enn fundist á tunglinu. Tunglstöðin sem ttt stendur að reisa fyrst mun þó áreiðanlega nýtast sem ferðamannamiðstöð fyrir væntanlega ferðamenn þar ttt hótelið veröur tilbúið. Fyrstu ferðalangamir til tunglsins munu án efa verða fréttamenn frá stórum sjónvarpsstöövum og moldríkir sérvitr- ingar og ævintýramenn. Fljótlega eftir það verða ferðir til tunglsins hafðar sem vinningar í hinum ýmsu happdrættum og samkeppnum. Að lokum munu svo þessar ferðir standa öllum almenningi til boða. Góöur undirbúningur nauðsyn- legur Eins og gefúr að skttja þarf að standa vel að öllum undirbúningi þegar lagt er af stað í langferð eins og ferð til tunglsins. Líkamlegt ástand þarf að vera gott og það þarf að panta ferðina með góðum fyrir- vara. Ferðaskrifstofa Thomas Cook byrjaði að taka niður pantanir árið 1954 og þeir sem þegar hafa pantað far munu njóta forgangs þegar ferðir hefjast. Væntarttegir tunglfarar þurfa að vera í góðu líkamlegu ástandi. Það er nauðsyn- legt að vera með sterkt hjarta og blóð- þrýstingurinn þarf að vera í jafnvægi. Helsta vandamálið hingað ttt er að menn finni ttt ógleði meðan þeir eru í þyngdar- leysi. Lofthræðsla er ekki vandamál. Þeim sem vilja þjálfa sig líkamlega fyr- ir ferðina er bent á að djúpsjávarköfún er talinn góður undirbúningur. Aðstæður eru ekki ólikar og í þyngdarleysi, menn hreyfa sig svipað, búningamir eru svip- aöir og þar venjast menn einnig á að anda að sér hreinu súrefni eins og þeir þurfa að gera á tunglinu. Lagtaf stað Mæting er viku fyrir brottfór. Áður en lagt er af stað þarf að venja ferðafólkið á ýmsar breytingar. Svefiitími verður lag- aður að þeim tilbúna tíma sem er um borð i geimflauginni og einnig þarf að gefa fólki tíma til að aðlagast breyttu mataræði. Sólarhring fyrir brottfór verð- ur farþegum svo skylt að fara í þarma- hreinsun en slíkt mun vera nauðsynlegt vegna þess mikla þrýstings sem þeir verða fyrir við flugtak. Afþreying Þegar til tunglsins er komið verður ferðalöngum séð fyrir fiölbreyttri afþrey- ingu. Það verður hægt að fara í stuttar gönguferðir eða gígaskoðun og svo er ekki ólíklegt að í boði verði að iðka golf. Tunglfarinn Alan Sheparp var fyrstur manna til að spila golf á tunglinu. Honum tókst að hitta kúluna í þriðju tilraun og segir sagan að það sé lengsta högg sög- unnar. Golfkúlan sem hann notaði liggur enn á tunglinu og hver veit nema einhver eigi eftir að rekast á hana á ferð sinni um tunglið. Ógleymanlegt ævintýrí Ferð ttt tunglsins mun án efa verða ógleymanlegt ævintýri fyrir alla sem þangað fara. Það er varla hægt að ímynda sér hvemig sú tilfmning er að hoifa á jörðina utan úr geimnum. Hvað þá að horfa á tunglið frá jörðu eftir að heim er komið og geta sagt: „þama hef ég verið." ... .þrír, tveir, einn, og „Good Luck, Mr. Grosky". Kip WZEEB3BWM Breytingar á Víkurvelli DV, STYKKISHÓLMI: Verið er að leggja lokahönd á breytingar sem hófust á Víkurvelli fyrir þremur árum. Gerðar eru þrjár nýjar brautir og verður völl- urinn við það mun skemmtilegri og fjölbreyttari. Áfram verður um 9 holu golfvöll að ræða. Framkvæmdir hófust með því að ræst var fram mýri en grunnvatns- staða er fremur há á svæðinu. Að tillögu Hannesar Þorsteinssonar hönnuðar voru grafnir skurðir, hálfgerð síki, milli brautanna og uppgröfturinn notaður til að hækka brautimar og þar með lækka grunnvatnsstöðu. Seinasta sumar var svæðið enn blautt en gerðar voru nokkrar lagfæringar og landið hækkað á nokkrum stöðum. Nú er lokafrágangur að hefjast á brautun- um tveimur en sáningu á að vera lokið um miðjan júlí. Framkvæmd- ir við flatir og teiga hefjast næsta vor og vonast er til að hægt verði aö taka brautirnar í notkun seint næsta sumar. Það er EB landmótun í Stykkis- hólmi sem sér um framkvæmdir í samvinnu við stjóm Mostra og er allur framgangur verksins verktak- anum til sóma. Sunnudaginn 2. júlí er opið mót á Vikurvelli, Rækju- nesmótið. Glæsileg verðlaun eru í boði eða 10 Palmpilot-lófatölvur. Veitt verða verðlaun, bæði með og án forgjafar, nándarverðlaun og einnig verður dregið úr skorkortum þeirra sem verða viöstaddir verð- launaafhendingu. -DVÓ/ Ómar SÍMAMYND REUTER Píramídl í viðgerð Mennirnir sem ríöa þessum kameldýrum voru víst aö leita aö feröamönnum viö Kefren-píramídann í Egyptalandi á dögunum. Miklar endurbætur standa yfír á píramídanum, einkum á þremur hvelfíngum þar sem er aö fínna graf- reiti þriggja presta sem þjónuöu egypskum konungum fyrir 4500 árum. Opið mán.-föstud. 08.00-22.00, laug. 10.00-22.00, sun. 13.00-22.00. y . Tt~m$

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.