Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2000
DV
Fréttir
Fjölbýlishús með félagslegum íbúðum á Akranesi boðið upp:
Sýslumaður heimtar
að blokkin verði rýmd
- bæjarstjóri segir að leysa verði vanda 14 fjölskyldna sem verða á götunni
DV-MYND DANIEL.
Sagt upp húsnæðinu
íbúöarblokk aö Höföabraut 14-16 veröur tæmd og húsiö endurnýjaö. íbúöirn-
ar hafa veriö ieigöar út, aöallega til skjólstæöinga bæjarins sem nú hefur
veriö gert aö rýma íbúöir sinar. Þar meö veröa þeir á götunni.
PV, AKRANESI:______
Rörutlu manns í 14 félagslegum
íbúðum húsnæðisnefndar Akraness
verða í húsnæðisvanda þegar gömul
íbúðarblokk að Höfðabraut 14-16
verður tæmd og húsið endumýjað.
íbúðimar hafa veriö leigðar út, að-
allega til skjólstæðinga bæjarins.
íbúarnir eru flestir ungir að árum
og nærri helmingur þeirra er böm
og unglingar. Bæjarstjórinn, Gísli
Gíslason, segir að leysa verði vanda
fólksins. Vandamálið er hins vegar
ærið því engar ibúðir eru á lausu í
bænum. Ibúðalánasjóður er kominn
með klæmar í húsið og yfirvofandi
er uppboð á þessum eignum hús-
næðisnefndar vegna vanskila sem
munu nema háum fjárhæðum.
„Lán á milli bæjarsjóös og íbúða-
lánasjóðs eru í vanskilum og þrjár
af íbúðunum í þessum tveim stiga-
göngum hafa verið boðnar upp á
framhaldsuppboði. Ég kný á um
efndir og ætlast til að sveitarfélög
axli sínar skyldur. Það er þar af
leiðandi hreyfing á þessu máli,“
sagði Ólafur Þór Hauksson, sýslu-
maður á Akranesi. I kjölfarið hefur
bænum verið sent bréf þess efnis að
salan hafi átt sér stað og vísað til
forkaupsréttarákvæðis bæjarins,
sem ber skylda til að kaupa eignina.
„Viðhald á húsinu hefur því mið-
ur ekki verið upp á marga fiska og
húsið hrömað býsna mikið með ár-
unum,“ sagði Gísli Gíslason bæjar-
stjóri, en milli bæjar og íbúðalána-
sjóðs hefur staðið styr um kostnað
við endurnýjun ibúðanna.
„Við höfum verið að leita leiða
gagnvart íbúðalánasjóði og félags-
málaráðuneyti að fá þá til að viður-
kenna vandann og taka á honum
með okkur. Þess vegna höfum við
ekki farið út í að selja íbúðirnar,
heldur notað þær til bráðabirgða til
að leigja þær, en erum í þeim far-
vegi núna að fmna einhverja al-
menna lausn á þessum húsavanda
og koma húsinu í skikkanlegt horf,“
sagði Gísli. Hann segir uppsagnar-
frest langan, 6-12 mánuði, og hann
þurfi að samræma. Losa verður allt
húsið þannig að endurbætur geti átt
sér stað.
Fyrir skömmu sendi sýslumaður-
inn á Akranesi bréf til húsnæðis-
nefndar bæjarins varðandi húsið að
Höfðabraut. í kjölfar bréfs sýslu-
manns var fjölskyldunum fiórtán
sagt upp leigu í húsinu. Á fundi
húsnæðisnefndar Akraness þann 27.
september síðastliðinn var félags-
málastjóra falið að segja öllum leigj-
endum að Höfðabraut 14-16 upp
leigusamningum. Sólveig Reynis-
dóttir, félagsmálastjóri og starfs-
maður húsnæðisnefndar, sagði:
„Bæjaryfirvöld hafa af því miklar
áhyggjur hvemig til tekst að leysa
húsnæðisvanda þeirra fiölskyldna
sem ekki geta fengið annað leigu-
húsnæði í þeim mikla skorti á slíku
sem nú ríkir á Akranesi. Ef umsókn
bæjarstjórnar Akraness um viðbót-
arlán fyrir árið 2001 gengur eftir
ættu einhverjir sem búa á Höfða-
brautinni og sækja um það að hafa
möguleika á að fá úthlutað viðbótar-
láni og kaupa íbúð á hinum frjálsa
markaði," sagði Sólveig Reynisdótt-
ir félagsmálastjóri.
-DVÓ-JBP
Framkvæmdastjóri ráöinn yfir Flugstöðinni:
Þyrftum fleiri
flugstöðvar
- fyrir umsækjendur, segir stjórnarformaður
Höskuldur Ásgeirsson
rekstrarhagfræðingur hefur
verið ráðinn framkvæmda-
stjóri Flugstöðvar Leifs Eiriks-
sonar hf. og frihafnarinnar í
flugstöðinni. Höskuldur var
valinn úr stórum hópi um-
sækjenda en stjóm flugstöðv-
arinnar var lengi með fióra
einstaklinga i sigtinu og
reyndist erfitt að ná samstöðu
um þann eina rétta:
„Margir umsækjendanna voru svo
hæfir að við þyrftum fleiri flugstöðvar
til að nýta starfskrafta þeirra," sagði
Gísli Guðmundsson, stjómarformaður
flugstöðvarinnar, eftir að geng-
ið hafði verið frá ráðningu
Höskuldar sem áður starfaði
sem framkvæmdastjóri Iceland
Seafood í Frakklandi og Evr-
ópu og var síðar framkvæmda-
stjóri markaðssviðs íslenskra
sjávarafurða. Frá því á haust-
dögum 1997 og fram í febrúar
á þessu ári var Höskuldur for-
stjóri Gelmer-Iceland Seafood
í Frakklandi. Hinn nýi framkvæmda-
stjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar er
48 ára að aldri, kvæntur Elsu Þóris-
dóttur og hefur störf í flugstöðinni á
næstu dögum. -EIR
Höskuldur
Ásgeirsson.
Borgarbyggð:
Bærinn vann bæjarstjóramálið
DV. BORGARBYGGD:
Borgarbyggð hefur verið
sýknuð í héraðsdómi Vest-
urlands af öllum kröfum Óla
Jóns Gunnarssonar fyrrver-
andi bæjarstjóra í Borgar-
byggð. Málavextir eru þeir
að Óla Jóni var sagt upp
sem bæjarstjóra eftir að óli Jón
meirihluti sjálfstæðismanna Gunnarsson.
og framsóknarmanna sprakk á fyrir
fundi bæjarstjórnar þann 15. apríl með
1999 vegna gámastöðvar i
Borgarbyggð. Óli Jón taldi
að hann væri með samning
sem tryggði honum laun
bæjarstjóra í eitt ár til við-
bótar eða til júní árið 2000.
Á það féllst héraðsdómur
Vesturlands ekki. Jón Stein-
ar Gunnlaugsson hæstarétt-
arlögmaður fór með máliö
hönd Óla mun án efa fara
málið fyrir Hæstarétt. -DVÓ
Halldor og skermurinn
Halldór Ásgrímsson vígöi í gær nýja jaröstöö Íslandssíma sem tekin var / notk-
un á árs afmæli fyrirtækisins. Stööin getur annaö 1400 símtölum samtimis
og er tengd beint viö Ijósleiöarakerfi Íslandssíma. Jaröstööin er viö Bústaöa-
veg, rétt hjá Veöurstofunni, og kostaöi 70 milljónir króna.
Kaup prentsmiðjunnar Odda á Gutenberg:
Risasamsteypa á prentmarkaði
- er komin með 70-80 prósenta markaðshlutdeild
Prentsmiðjan Oddi keypti á
fimmtudag nær allt hlutafé í Stein-
dórsprenti Gutenberg og er þar með
komin með yfirburðastööu á prent-
markaði hérlendis.
Búnaðarbanki Islands hafði milli-
göngu um kaupin, en hann keypti
90% hlutafiár í Steindórsprenti
Gutenberg í síðustu viku. Áður
hafði Búnaðarbankinn keypt 7%
hlut í fyrirtækinu.
Um 60-70 manns hafa starfað hjá
Gutenberg en fyrirtækið hefur verið
með aðsetur í Síðumúla. Hjá Odda
störfuðu áöur um 260 manns. Gert
er ráð fyrir að fyrirtækin veröi rek-
in með líku sniði og áður en verði
nú með sameiginleg innkaup.
Talið er að Oddi og dótturfyrir-
tæki ráði nú yfir á milli 70 og 80
prósentum af prentmarkaðnum
hérlendis. Hefur Oddi keypt nokk-
ur fyrirtæki að undanfomu og eru
þar langstærst kaupin á Gutenberg
nú og Kassagerð Reykjavikur.
Kassagerðin sameinaðist fyrir
skömmu Umbúðamiðstöðinni sem
Oddi átti fyrir en stofnuö var að
frumkvæði Sölumiðstöðvar Hrað-
frystihúsanna. Þá á Oddi einnig
prentsmiðjuna Grafik í Kópavogi,
en inn í hana rann Prentsmiðja G.
Ben. fyrir nokkrum árum. Fleiri
fyrirtæki eru í eigu þessEU-ar sam-
steypu. Samkeppnisstofnun hefur
ekki Qallað um kaupin. -HKr.
Kristín vann brons
Kristín Rós Hákonardóttir vann í
dag til bronsverð-
launa í 200 m fiór-
sundi á Ólympíu-
móti fatlaðra í
Sydney. Hún synti
á tímanum 3 mín.
20,28 sek., sem er
rúmum fimm sek-
úndum frá hennar
besta tíma í greininni.
Mikill netaðgangur
77,8% landsmanna hafa aðgang
að tölvu meö nettengingu, 77,9%
kvenna og 77,7% karla. Síðustu 12
mánuði hefur aðgengi aukist um
tæpa tíu af hundraði. 64,7% lands-
manna á aldrinum 16 til 75 ára hafa
aðgang að Netinu á heimilum. Vís-
ir.is greindi frá.
Blokkirnar burt
Ólafur F. Magnússon, borgarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins í Reykja-
vík, lagði í gær fram tillögu um
frestun á fyrirhuguðum bygginga-
framkvæmdum í landi Kópavogs
við Elliðavatn. Vísir.is greindi frá.
Styrkir Háskólann
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg-
arstjóri afhenti Páli Skúlasyni, rekt-
or Háskóla íslands, ávisun að upp-
hæð 62,5 milljónir króna í gær.
Þetta er helmingur þess Qár sem
Reykjavíkurborg fékk fyrir að selja
íslenskri erfðagreiningu land undir
nýjar höfuðstöðvar. Bylgjan greindi
frá.
Kæra útboð
Breiðafjarðarferjan Baldur hf.
hefur ákveðið að leita úrskurðar
Samkeppnisráðs um hvort útboð
Vegagerðarinnar um rekstur
Breiðafiarðarferju hafi verið rétt-
mætt.
Var of opið ákvæði
„I ljósi þess sem gerðist held ég
að þetta hafi verið of opiö ákvæði,“
segir Birgir ísleifur
Gunnarsson Seðla-
bankastjóri um
heimild aðila á
gjaldeyrismarkaði
til að stöðva við-
skipti með krónuna
tímabundið, en
ákvæðið var
afnumið með nýjum reglum frá
Seðlabanka í gær. Vísir.is greindi
frá.
Kanni stöðu sína
Fjármálaeftirlitið hefur beint
þeim tilmælum tU viðskiptavina
FÍB-trygginga sem eru komnir aö
endurnýjun samninga að þeir kanni
stöðu sína. Sem kunnugt er hefur
Fjármálaeftirlitið fylgst með máli
tryggingafélagsins, sem hefur misst
samninga við baktryggjendur sína
hjá Lloyd’s og ekki tekist að afla
nýrra í þeirra stað. Vísir.is greindi
frá.
Til í að hjálpa
Þingvallanefnd er reiðubúin að
aðstoða kirkjunnar menn við að
finna húsnæði fyrir Þingvallaprest.
Það skipulag hefur hins vegar verið
lagt af að presturinn sé einnig þjóð-
garðsvörður og því breyttar aðstæð-
ur frá því sem áður var. Rikisút-
varpið greindi frá. -bþg