Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2000 DV Fréttir Fjölbýlishús með félagslegum íbúðum á Akranesi boðið upp: Sýslumaður heimtar að blokkin verði rýmd - bæjarstjóri segir að leysa verði vanda 14 fjölskyldna sem verða á götunni DV-MYND DANIEL. Sagt upp húsnæðinu íbúöarblokk aö Höföabraut 14-16 veröur tæmd og húsiö endurnýjaö. íbúöirn- ar hafa veriö ieigöar út, aöallega til skjólstæöinga bæjarins sem nú hefur veriö gert aö rýma íbúöir sinar. Þar meö veröa þeir á götunni. PV, AKRANESI:______ Rörutlu manns í 14 félagslegum íbúðum húsnæðisnefndar Akraness verða í húsnæðisvanda þegar gömul íbúðarblokk að Höfðabraut 14-16 verður tæmd og húsið endumýjað. íbúðimar hafa veriö leigðar út, að- allega til skjólstæðinga bæjarins. íbúarnir eru flestir ungir að árum og nærri helmingur þeirra er böm og unglingar. Bæjarstjórinn, Gísli Gíslason, segir að leysa verði vanda fólksins. Vandamálið er hins vegar ærið því engar ibúðir eru á lausu í bænum. Ibúðalánasjóður er kominn með klæmar í húsið og yfirvofandi er uppboð á þessum eignum hús- næðisnefndar vegna vanskila sem munu nema háum fjárhæðum. „Lán á milli bæjarsjóös og íbúða- lánasjóðs eru í vanskilum og þrjár af íbúðunum í þessum tveim stiga- göngum hafa verið boðnar upp á framhaldsuppboði. Ég kný á um efndir og ætlast til að sveitarfélög axli sínar skyldur. Það er þar af leiðandi hreyfing á þessu máli,“ sagði Ólafur Þór Hauksson, sýslu- maður á Akranesi. I kjölfarið hefur bænum verið sent bréf þess efnis að salan hafi átt sér stað og vísað til forkaupsréttarákvæðis bæjarins, sem ber skylda til að kaupa eignina. „Viðhald á húsinu hefur því mið- ur ekki verið upp á marga fiska og húsið hrömað býsna mikið með ár- unum,“ sagði Gísli Gíslason bæjar- stjóri, en milli bæjar og íbúðalána- sjóðs hefur staðið styr um kostnað við endurnýjun ibúðanna. „Við höfum verið að leita leiða gagnvart íbúðalánasjóði og félags- málaráðuneyti að fá þá til að viður- kenna vandann og taka á honum með okkur. Þess vegna höfum við ekki farið út í að selja íbúðirnar, heldur notað þær til bráðabirgða til að leigja þær, en erum í þeim far- vegi núna að fmna einhverja al- menna lausn á þessum húsavanda og koma húsinu í skikkanlegt horf,“ sagði Gísli. Hann segir uppsagnar- frest langan, 6-12 mánuði, og hann þurfi að samræma. Losa verður allt húsið þannig að endurbætur geti átt sér stað. Fyrir skömmu sendi sýslumaður- inn á Akranesi bréf til húsnæðis- nefndar bæjarins varðandi húsið að Höfðabraut. í kjölfar bréfs sýslu- manns var fjölskyldunum fiórtán sagt upp leigu í húsinu. Á fundi húsnæðisnefndar Akraness þann 27. september síðastliðinn var félags- málastjóra falið að segja öllum leigj- endum að Höfðabraut 14-16 upp leigusamningum. Sólveig Reynis- dóttir, félagsmálastjóri og starfs- maður húsnæðisnefndar, sagði: „Bæjaryfirvöld hafa af því miklar áhyggjur hvemig til tekst að leysa húsnæðisvanda þeirra fiölskyldna sem ekki geta fengið annað leigu- húsnæði í þeim mikla skorti á slíku sem nú ríkir á Akranesi. Ef umsókn bæjarstjórnar Akraness um viðbót- arlán fyrir árið 2001 gengur eftir ættu einhverjir sem búa á Höfða- brautinni og sækja um það að hafa möguleika á að fá úthlutað viðbótar- láni og kaupa íbúð á hinum frjálsa markaði," sagði Sólveig Reynisdótt- ir félagsmálastjóri. -DVÓ-JBP Framkvæmdastjóri ráöinn yfir Flugstöðinni: Þyrftum fleiri flugstöðvar - fyrir umsækjendur, segir stjórnarformaður Höskuldur Ásgeirsson rekstrarhagfræðingur hefur verið ráðinn framkvæmda- stjóri Flugstöðvar Leifs Eiriks- sonar hf. og frihafnarinnar í flugstöðinni. Höskuldur var valinn úr stórum hópi um- sækjenda en stjóm flugstöðv- arinnar var lengi með fióra einstaklinga i sigtinu og reyndist erfitt að ná samstöðu um þann eina rétta: „Margir umsækjendanna voru svo hæfir að við þyrftum fleiri flugstöðvar til að nýta starfskrafta þeirra," sagði Gísli Guðmundsson, stjómarformaður flugstöðvarinnar, eftir að geng- ið hafði verið frá ráðningu Höskuldar sem áður starfaði sem framkvæmdastjóri Iceland Seafood í Frakklandi og Evr- ópu og var síðar framkvæmda- stjóri markaðssviðs íslenskra sjávarafurða. Frá því á haust- dögum 1997 og fram í febrúar á þessu ári var Höskuldur for- stjóri Gelmer-Iceland Seafood í Frakklandi. Hinn nýi framkvæmda- stjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar er 48 ára að aldri, kvæntur Elsu Þóris- dóttur og hefur störf í flugstöðinni á næstu dögum. -EIR Höskuldur Ásgeirsson. Borgarbyggð: Bærinn vann bæjarstjóramálið DV. BORGARBYGGD: Borgarbyggð hefur verið sýknuð í héraðsdómi Vest- urlands af öllum kröfum Óla Jóns Gunnarssonar fyrrver- andi bæjarstjóra í Borgar- byggð. Málavextir eru þeir að Óla Jóni var sagt upp sem bæjarstjóra eftir að óli Jón meirihluti sjálfstæðismanna Gunnarsson. og framsóknarmanna sprakk á fyrir fundi bæjarstjórnar þann 15. apríl með 1999 vegna gámastöðvar i Borgarbyggð. Óli Jón taldi að hann væri með samning sem tryggði honum laun bæjarstjóra í eitt ár til við- bótar eða til júní árið 2000. Á það féllst héraðsdómur Vesturlands ekki. Jón Stein- ar Gunnlaugsson hæstarétt- arlögmaður fór með máliö hönd Óla mun án efa fara málið fyrir Hæstarétt. -DVÓ Halldor og skermurinn Halldór Ásgrímsson vígöi í gær nýja jaröstöö Íslandssíma sem tekin var / notk- un á árs afmæli fyrirtækisins. Stööin getur annaö 1400 símtölum samtimis og er tengd beint viö Ijósleiöarakerfi Íslandssíma. Jaröstööin er viö Bústaöa- veg, rétt hjá Veöurstofunni, og kostaöi 70 milljónir króna. Kaup prentsmiðjunnar Odda á Gutenberg: Risasamsteypa á prentmarkaði - er komin með 70-80 prósenta markaðshlutdeild Prentsmiðjan Oddi keypti á fimmtudag nær allt hlutafé í Stein- dórsprenti Gutenberg og er þar með komin með yfirburðastööu á prent- markaði hérlendis. Búnaðarbanki Islands hafði milli- göngu um kaupin, en hann keypti 90% hlutafiár í Steindórsprenti Gutenberg í síðustu viku. Áður hafði Búnaðarbankinn keypt 7% hlut í fyrirtækinu. Um 60-70 manns hafa starfað hjá Gutenberg en fyrirtækið hefur verið með aðsetur í Síðumúla. Hjá Odda störfuðu áöur um 260 manns. Gert er ráð fyrir að fyrirtækin veröi rek- in með líku sniði og áður en verði nú með sameiginleg innkaup. Talið er að Oddi og dótturfyrir- tæki ráði nú yfir á milli 70 og 80 prósentum af prentmarkaðnum hérlendis. Hefur Oddi keypt nokk- ur fyrirtæki að undanfomu og eru þar langstærst kaupin á Gutenberg nú og Kassagerð Reykjavikur. Kassagerðin sameinaðist fyrir skömmu Umbúðamiðstöðinni sem Oddi átti fyrir en stofnuö var að frumkvæði Sölumiðstöðvar Hrað- frystihúsanna. Þá á Oddi einnig prentsmiðjuna Grafik í Kópavogi, en inn í hana rann Prentsmiðja G. Ben. fyrir nokkrum árum. Fleiri fyrirtæki eru í eigu þessEU-ar sam- steypu. Samkeppnisstofnun hefur ekki Qallað um kaupin. -HKr. Kristín vann brons Kristín Rós Hákonardóttir vann í dag til bronsverð- launa í 200 m fiór- sundi á Ólympíu- móti fatlaðra í Sydney. Hún synti á tímanum 3 mín. 20,28 sek., sem er rúmum fimm sek- úndum frá hennar besta tíma í greininni. Mikill netaðgangur 77,8% landsmanna hafa aðgang að tölvu meö nettengingu, 77,9% kvenna og 77,7% karla. Síðustu 12 mánuði hefur aðgengi aukist um tæpa tíu af hundraði. 64,7% lands- manna á aldrinum 16 til 75 ára hafa aðgang að Netinu á heimilum. Vís- ir.is greindi frá. Blokkirnar burt Ólafur F. Magnússon, borgarfull- trúi Sjálfstæðisflokksins í Reykja- vík, lagði í gær fram tillögu um frestun á fyrirhuguðum bygginga- framkvæmdum í landi Kópavogs við Elliðavatn. Vísir.is greindi frá. Styrkir Háskólann Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri afhenti Páli Skúlasyni, rekt- or Háskóla íslands, ávisun að upp- hæð 62,5 milljónir króna í gær. Þetta er helmingur þess Qár sem Reykjavíkurborg fékk fyrir að selja íslenskri erfðagreiningu land undir nýjar höfuðstöðvar. Bylgjan greindi frá. Kæra útboð Breiðafjarðarferjan Baldur hf. hefur ákveðið að leita úrskurðar Samkeppnisráðs um hvort útboð Vegagerðarinnar um rekstur Breiðafiarðarferju hafi verið rétt- mætt. Var of opið ákvæði „I ljósi þess sem gerðist held ég að þetta hafi verið of opiö ákvæði,“ segir Birgir ísleifur Gunnarsson Seðla- bankastjóri um heimild aðila á gjaldeyrismarkaði til að stöðva við- skipti með krónuna tímabundið, en ákvæðið var afnumið með nýjum reglum frá Seðlabanka í gær. Vísir.is greindi frá. Kanni stöðu sína Fjármálaeftirlitið hefur beint þeim tilmælum tU viðskiptavina FÍB-trygginga sem eru komnir aö endurnýjun samninga að þeir kanni stöðu sína. Sem kunnugt er hefur Fjármálaeftirlitið fylgst með máli tryggingafélagsins, sem hefur misst samninga við baktryggjendur sína hjá Lloyd’s og ekki tekist að afla nýrra í þeirra stað. Vísir.is greindi frá. Til í að hjálpa Þingvallanefnd er reiðubúin að aðstoða kirkjunnar menn við að finna húsnæði fyrir Þingvallaprest. Það skipulag hefur hins vegar verið lagt af að presturinn sé einnig þjóð- garðsvörður og því breyttar aðstæð- ur frá því sem áður var. Rikisút- varpið greindi frá. -bþg
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.