Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Page 4
4
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2000
x>v
Fréttir
Vaxtahækkanir og milliuppgjör hafa gríöarleg áhrif á hlutabréfamarkaði:
deCODE fylgir öðr-
um fyrirtækjum
- segir framkvæmdastjóri VÍB - óvissan ekki yfirstaöin
DV-MYND GVA
Lágt gengi
Lækkanir hlutabréfa sem oröið hafa á bandaríska hlutabréfamarkaöinum, Nasdaq, aö undanförnu hafa valdiö titringi.
Hluturinn í deCODE fór lægst niöur í 16,2 dollara en var kominn upp í 18 dollara í gærdag. Óvissan er ekki alveg yfir-
staöin, aö sögn Siguröar B. Stefánssonar framkvæmdastjóra. Myndin er úr höfuöstöövum íslenskrar erföagreiningar.
„Ástæðuna fyrir lækkun hluta-
bréfa deCODE á bandarískum hluta-
bréfamarkaöi tel ég vera þá að það
fylgir öðrum tæknifyrirtækjum. Ég
er þess fullviss að vísitalan mun
hækka aftur. Þó er svo að sjá sem
þessi óvissa er verið hefur á mark-
aðinum sé ekki alveg yfirstaðin,"
sagði Sigurður B. Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri VÍB, um þær lækkan-
ir hlutabréfa sem orðið hafa á
bandaríska hlutabréfamarkaðinum,
Nasdaq, að undanförnu. Hluturinn í
deCODE fór lægst niður í 16,2 doll-
ara en var kominn upp í 18 dollara
í gærdag.
Nasdaq-hlutabréfavísitalan virð-
ist vera að rétta heldur við eftir að
hafa lækkað um 22 prósent sl. þrjá
mánuði. Þá hafa orðið lækkanir á
Easdaq, evrópska hlutabréfamark-
aðinum. Á Verðbréfaþingi Islands
hafa orðið verulegar lækkanir að
undanfomu, í kjölfar 56 prósenta
hækkunar sem varð á níu mánaða
tímabili.
„Það sem vegur þyngst í lækkun-
um hlutabréfa á bandaríska verð-
bréfamarkaðinum að undanfórnu er
tvennt,“ sagði Sigurður. „Annars
vegar eru vaxtahækkanir Seðla-
bankans i Bandaríkjunum sem riðið
hafa yfir síðustu mánuði. Hins veg-
ar hafa milliuppgjör fyrirtækja fyr-
ir þriðja ársfjórðung verið að koma
í október. Fáein fyrirtæki hafa ver-
ið að birta afkomuviðvaranir eða
niðurstöður hafa verið undir vænt-
ingum. Þegar markaðurinn er mjög
viðkvæmur eins og nú leiða slíkar
fréttir til gríðarlegra viðbragða. Eitt
af öflugustu fyrirtækjum veraldar,
IBM, hefur t.d. lækkað í október-
mánuði um heil 28 prósent. Þetta
dæmi er ekki einstætt.“
Sigurður sagði að lækkunin á
Bandaríkjamarkaði nú væri heldur
meiri en oft áður. Minna mætti á að
um þessar mundir væru liðin ná-
kvæmlega 13 ár frá „svarta mánu-
deginum" 19. október 1987. „Árið
2000 er miklu líkara árinu 1994 í
Bandaríkjunum. Þá var bandaríski
seðlabankinn búinn að hækka vexti
allt frá árinu 1993 fram á haust ‘94.
Það bremsaði alla hækkun af á
hlutabréfamarkaði þannig að það
varð lækkun allt það ár fram í des-
ember. Þá hófst þessi hækkana-
hrina sem stóð alveg fram á þetta
ár.
Varðandi deCODE benti Sigurður
á að um væri að ræðá nýtt fyrirtæki
sem væri að vinna í hátækni. Þess
vegna þyrfti að meta það út frá öðr-
um sjónarmiðum heldur en rótgróin
fyrirtæki. „deCODE er að þróa nýja
tækni og aðferðir og gera spennandi
hluti. En óvissan hlýtur að teljast
vera eitthvað meiri. Áhættan er
mest í nýjum fyrirtækjum i há-
tæknigreinum, þar sem menn eru
meira að veðja á framtíðina, heldur
en í öðrum tilvikum. Á síðasta ári
voru fjárfestar tilbúnir til að borga
gríðarlega hátt verð fyrir liftækni-
fyrirtæki, internetfyrirtæki eða ým-
iss konar tæknifyrirtæki sem menn
töldu að væru að gera nýja og
spennandi hluti. Svo kemur í ljós að
sumt gengur upp, annað ekki. Það
er í þessum geirum sem menn eru
að leggja mest undir.“
Sigurður kvaðst ekki sammála
þvi sjónarmiði að hálfgert gullgraf-
araæði hefði gripið um sig hér á
landi í fjárfestingum í hlutabréfum.
„Mér finnst menn ekki hafa gengið
of djarflega fram, nema ef undan
eru skildar fjárfestingar fyrir láns-
fé. Að öðru leyti finnst mér mjög
eðlilegt að íslenskri íjárfestar, allt
frá einstaklingum upp í lifeyris-
sjóði, séu að færa sig meira og
meira yfir í hlutabréf. Það leikur
enginn vafi á því að lífeyrissjóðir
eru að stíga rétt skref með því að
færa sig yfir á alþjóðlegan hluta-
bréfamarkað. Fyrir fimm árum gat
ekki heitið að íslenskir lífeyrissjóð-
ir ættu nein hlutabréf nema á ís-
landi. Nú eru þeir búnir að koma
25-30 prósentum að meðaltali af
eignum sínum í alþjóðleg hlutabréf.
Það er ekki aðeins að þeir hafi feng-
iö mjög góða ávöxtun á þessum
árum heldur eru flestir sammála
um að þessi áhættudreifmg sé af
hinu góða þótt hún hafi einhverjar
eignasveiflur í för með sér.“ -JSS
Heppinn viðskiptavinur
hreppti milljónir.
Þriggja barna faðir:
Vann 4,6
milljónir
- bauö í glas
Þriggja barna faðir á Seltjarnar-
nesinu datt heldur betur í lukku-
pottinn á fimmtudaginn þegar hann
vann 4,6 milljónir í spilasjálfsala á
Rauða ljóninu á Eiðistorgi. Um var
að ræða Gullpott í spilakassa á veg-
um Háskóla íslands. Að sögn starfs-
manns á Rauða ljóninu var vinn-
ingshaflnn að vonum ánægður með
vinninginn og bauð öllum á staðn-
um upp á drykk í tilefni hans. -MA
Hafnarfjörður:
Ók inn um
glugga mynd-
bandaleigu
Ökumaður bíls missti stjóm á
honum við Fjarðarvídeó í Fjarðar-
götu í Hafnarfirði seint á miðviku-
dagskvöldið með þeim afleiðingum
að bíllinn fór yfir umferðareyju og
inn um glugga myndbandaleigunn-
ar. Viðskiptavinir leigunnar stóðu
sem betur fer ekki nálægt gluggan-
um og slasaðist enginn við atvikið.
Ökumanninum var brugðið en hann
var ómeiddur. -SMK
Holtavörðuheiði:
Tveggja bíla
árekstur
Tveir fólksbílar, sem voru að
koma úr gagnstæðum áttum í
brekku á norðanverðri Holtavörðu-
heiði, fyrir ofan Grænumýrartungu,
rákust saman um fimmleytið á
flmmtudaginn. Engin slys urðu á
fólki enda var allt fólkið sem í bil-
unum var spennt í bílbelti en bíl-
arnir báðir voru óökufærir eftir
áreksturinn. -SMK
AKUREYRI rigning 2
BERGSSTAÐIR skýjaö 2
BOLUNGARVÍK alskýjaö 2
EGILSSTAÐIR 6
KIRKJUBÆJARKL. léttskýjaö 6
KEFLAVÍK skýjaö 4
RAUFARHÖFN súld 2
REYKJAVÍK skýjaö 4
STÓRHÖFÐI þokumóöa 7
BERGEN léttskýjaö 11
HELSINKI skýjaö 9
KAUPMANNAHÖFN þokumóöa 12
ÓSLÓ skýjaö 9
STOKKHÓLMUR þokumóöa 13
ÞÓRSHÖFN alskýjaö 10
ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö 13
ALGARVE skýjaö 18
AMSTERDAM þokumóöa 15
BARCELONA skýjaö 20
BERLÍN þokumóöa 13
CHICAGO heiðskírt 13
DUBLIN léttskýjaö 10
HALIFAX alskýjaö 7
FRANKFURT skýjað 14
HAMBORG þokumóða 12
JAN MAYEN súld 4
L0ND0N alskýjaö 14
LÚXEMBORG skýjaö 13
MALLORCA skýjaö 23
MONTREAL heiöskírt 6
NARSSARSSUAQ skýjað -5
NEW YORK heiöskírt 11
ORLANDO þokumóöa 20
PARÍS skýjaö 15
VÍN hálfskýjaö 13
WASHINGTON þokumóöa 5
WINNIPEG heiöskírt 1
Vcðríö i kvöld
Urkomulítið suövestan til
Norðan 5 til 10 m/s og dálitlar skúrir eða
slydduél norðanlands, lítils háttar rigning
suðaustanlands en úrkomulítið suðvestan til.
Hiti 0 til 7 stig, hlýjast sunnan til.
Solar^íiii^ur og, sjavarföll
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 17.47 17.25
Sólarupprás á morgun 08.40 08.32
Síðdegisflóð 13.01 17.34
Árdegisflóð á morgun 01.52 06.25
Sfcýrfcigar á veöurtáknum
^♦^.VINDÁTT —HiTI
-10°
^sVINDSTYRKUR V„„CT HEIDSKIRT
í metrum á sekúndu x 1
•$> ^3 33
IÉTTSKÝJAD HÁLF- SKÝJAD AtSKÝJAO
SKÝJAÐ
SLYDDA SNJÓKOMA
Vcðríö a inorflmi
ÉUAGANGUR ÞRUMU- SKAF- ÞOKA
VEÐUR RENNINGUR
Goðsögnin um eldingar
Þrumur og eldingar hafa oft verið taldar
vera vopn hina ýmsu guða. Grikkir bæði
umdruðust og hræddust eldingar sem
þeir töldu vera komnar frá Zeus.
Víkingar töldu hins vegar aö þaö væri
Þór sem byggi til eldingarnar með því
aö lemja hamrinum sínum í steðja á
leiö sinni í gegnum skýin. í Austur-
löndum eru til styttur af búdda sem
heldur á eldingu með örvum.
''
Þurrt norðvestan til
Austlæg átt, 13 til 18 m/s með suðurströndinni, en 8 til 13 annars
staðar. Rigning veröur sunnan- og austanlands en þurrt norðvestan til.
Hiti 2 til 8 stig, hlýjast sunnan til.
mímHm
Vindur: A (—
8-13 m/s \ /
Hiti 2° «18°
Norðaustlæg átt 8 tll 13
m/s norðvestanlands en
hægarl annars staðar. Viða
rlgnlng , elnkum norðan
tll, og áfram fremur mllt.
•IfWHiJa
Vindur: (
8-13 m/sV.
Hiti 1° iil 6°
Noröan og norövestan 8
tll 13 m/s og rlgnlng
norðan tll, en þurrt
sunnanlands. Heldur
kótnandi veður.
lyil&vihi'i!
Vindur; C
5-10 m/.\ -í -í \
Hiti 1° tit 6°
Fremur hæg norðanátt og
styttlr upp norðanlands.