Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Síða 6
6
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2000
I>V
Fréttir
Ingimundur gamli HU-65:
Haffærisskírteini í lagi
- engar vísbendingar um hvers vegna gúmbátur losnaði ekki
Ingimundur gamli
Sjálfvirki sieppibúnaðurinn mun hafa verið yfírfarinn í maí.
Engar vísbendingar hafa komið
fram sem varpað geta ljósi á hvers
vegna björgunarbátur i sjálfvirkum
losunarbúnaði skipsins virkaði ekki
þegar Ingimundur gamli sökk á
Húnaflóa 8. október.
í DV á fimmtudag sagði Garðar
Garðarsson hjá Sigmund hf. í Vest-
mannaeyjum, sem framleiddi bún-
aðinn, það eitthvað skrýtið ef bún-
aðurinn virkaði ekki. Upplýsti hann
að skipta þarf um lofthylki og pillu
sem ræsir sjálfvirkan sleppibúnað í
brúnni einu sinni á ári. Vísaði hann
til Siglingastofnunar sem hefur með
eftirlit að gera. Fram hefur komið
að skip fá ekki haífærisskirteini
nema sjálfvirkur slepppibúnaður,
sem nú er skyldur í flestum íslensk-
um skipum, sé í lagi. Samkvæmt
upplýsingum DV mun búnaðurinn í
Ingimundi gamla hafa verið yfirfar-
inn í maí og mun skipið hafa verið
með gilt haffærisskírteini til 31. des-
ember nk.
Jón Bemódusson, forstöðumaður
skipasviðs á Siglingastofnun, segir
að allur viðurkenndur sleppibúnað-
ur hafi farið í gegnum prófunarferli
hjá Iðntæknistofnun og staðist þær
kröfur sem þar hafi verið settar.
„Síðan er Iðntæknistofnun með út-
tekt samkvæmt ákveðnum gæða-
staðli á fyrirtækjunum sem fram-
leiða búnaðinn. Það er því mikil
áhersla lögð á að þessi búnaður sé í
lagi.“
Samkvæmt nýjum lögum um
meðferð sjóslysa þá er slysið á
Húnaflóa nú alfarið í höndum rann-
sóknamefndar sjóslysa, sem aftur
heyrir undir samgönguráðuneytið.
Þegar niðurstöður liggja fyrir úr
þeirri rannsókn tekur Siglingastofn-
un málið til efnislegrar umfjöllunar.
Nýskipaður formaður rannsóknar-
nefndar sjóslysa er Ingi Tryggva-
son, lögfræðingur í Borgarnesi.
Hann sagði rannsókn vegna sjó-
slyssins á Ingimundi gamla standa
yfir en að öðru leyti gæti hann ekki
tjáð sig um málið.
Samkvæmt þessum reglum er öll-
um skipum, sem eru 15 metrar eða
minni og notuð em í atvinnuskyni,
skylt að vera með losunarbúnað.
Skip sem eru 15 metrar og stærri og
notuð í atvinnuskyni eiga að vera
með bæði sjósetningar- og losunar-
búnað.
Sveinn Garðarsson skipbrotsmað-
ur lýsti í DV atburðarásinni þegar
skipið sökk. Er hann í viðtalinu
nefndur vélstjóri en hann mun hafa
verið skráður stýrimaður á skipið.
Þetta leiðréttist hér með. -HKr.
Aödáunarvert frumkvæöi
Auðarverðtaunin voru á fímmtudag veitt þremur konum en þetta er í fyrsta sinn sem þau eru veitt. Verðlaunin eru
hvatningarverðtaun Auðar í krafti kvenna. Verðiaunahafarnir eru Bergljót Arnatds framkvæmdastjóri, Guðrún Stella
Gissurardóttir, forstööumaöur Svæðismiðlunar Vestfjaröa, og Erla Sólveig Óskarsdóttir húsgagnahönnuður. Þær eru
verðlaunaðar fyrir að vera frumkvöölar hver á sínu sviði og fyrir að hafa sýnt aðdáunarvert frumkvæði við nýsköpun
og virkjun hugvits.
Samningur um samskipti lækna og lyfjafyrirtækja:
Óháðir í einu og öllu
Barðastrandarsýsla:
Bíll á steini
Lögreglan á Patreksfirði var köll-
uð að tveimur umferðaróhöppum á
miðvikudag. Ökmnaður annars bíls-
ins hafði stöðvað bil sinn í Skála-
nesi í Barðastrandarsýslu til þess að
skoða landakort en gleymdi að
ganga þannig frá sjálfskiptum bíln-
um að hann færi ekki af stað. Bíll-
inn rann aftur á bak út af veginum
og niður þriggja metra háan bakka
þar sem hann stöðvaðist svo ofan á
tveimur stórum steinum með öll
fjögur hjólin á lofti. Bílstjórinn, sem
var einn í bílnum, slapp ómeiddur
en bíllinn er mikið skemmdur.
Hinn bíllinn valt uppi á Hálfdáni.
Ökumaðurinn slapp með skrámur
en bíllinn er ónýtur. -SMK
Yfir á rauðu:
Fimm á dag
Myndavélar sem taka myndir af
fólki sem ekur yfir á rauðu ljósi á fjöl-
fómum gatnamótum í Reykjavik taka
myndir af um fimm ökumönnum á
dag sem eru að flýta sér of mikið.
Þetta kemur fram í fréttatilkynn-
ingu frá lögreglunni í Reykjavík.
Lögreglan í Reykjavík byrjaði að
nota þessar myndavélar fyrir tveim-
ur árum og eru þær við átta gatna-
mót. Fljótlega verður tekin í notkun
níunda myndavélin sem tekur bæði
myndir af þeim sem fara yfir á
rauðu Ijósi sem og þeim sem aka of
hratt yfir á grænu. -SMK
Konu misþyrmt
Lögreglumenn í eftirliti óku fram
á konu á Laugavegi um hálfsexleyt-
ið í gær. Konunni hafði verið mis-
þyrmt, var hún nefbrotin og með
aðra áverka. Hún var flutt á slysa-
deild þar sem læknar gerðu að sár-
um hennar. Konan sagði lögreglu að
ráðist hefði verið á hana í íbúð við
Laugaveginn og þekkti hún árásar-
aðilann sem er karlmaður. -SMK
Læknafélag íslands og Samtök
verslunarinnar, f.h. lyfjafyrir-
tækja, undirrituðu á fimmtudag
samning um samstarf lækna og
fyrirtækja sem framleiða og flytja
inn lyf. Það voru þau Sigurbjöm
Sveinsson, formaður Læknafélags-
ins, og Guðbjörg Alfreðsdóttir, for-
maður lyfjahóps Samtaka at-
vinnulífsins, sem undirrituðu
samninginn og þau fagna því bæði
að búið sé að setja ákveðinn
ramma varðandi samskipti þess-
ara aðila.
Sigurbjörn segir að markmið
samningsins sé því að stuðla að
sjálfstæði lækna og lyfjafyrirtækja..
í samskiptum sín á milli. Samn-
ingsaðilar eru sammála um að
samskiptmn lækna og lyfjafyrir-
tækja skuli vera háttað á þann veg
hverju sinni að hvor aðili sé hin-
um óháður i einu og öllu. í samn-
ingnum er meðal annars að finna
ákvæði um fræðslu og kynningu á
lyfjum og rannsóknarsamstarf.
-MA
Einstök rannsókn á eitrunarslysum:
Rannsókn sem nær til allrar þjóðarinnar
- verður framkvæmd hér á landi á næsta ári
Á næsta ári fer í gang umfangs-
mikil rannsókn á eitrunarslysum
á íslandi. Það er Eitrunarmiðstöð
Landspítalans í Fossvogi, Rann-
sóknarstofa i lyfiafræði við Há-
skóla íslands og Sigurður Guð-
mundsson landlæknir sem standa
að rannsókninni en hún mun
standa yfir í eitt ár. Að sögn Guð-
borgar A. Guðjónsdóttur, lyfia-
fræðings hjá Eitrunarmiðstöð-
inni, er markmiðið með rann-
sókninni að fá heildarmynd yfir
eitrunarslys á landinu og áhrif
þeirra.
Allar heilsugæslustöðvar og
sjúkrastofnanir verða beðnar um að
skila gögnum um öll eitrunarslys í
sínum umdæmum sem siðan verða
notuð við rannsóknina.
„Við munum meðal annars skoða
tíðni eitrunarslysa, hvaða efni
koma við sögu og hvaða afleiðingar
slysin hafa,“ segir Guðborg. Hún
segir að það sé von þeirra sem
standa að rannsókninni að með
henni verði hægt að efla forvamar-
starf varðandi eitrunarslys og
þannig fækka þess konar slysum á
landinu.
„Slík rannsókn sem nær til heill-
ar þjóðar hefur aldrei áður verið
framkvæmd hér á landi og örugg-
lega hvergi annars staðar í heimin-
um svo vitað sé,“ segir Guðborg að
lokum. Á næstunni verður unnið að
því að kynna rannsóknina á heilsu-
gæslustöðvum og sjúkrastofnunum
á landsbyggðinni. -MA
Sandkorn
Pft'. > Umsión:
Gylfi Kristjánsson
nctfang: sandkorn@ff.is
Flygillinn
Vægast sagt haUærislegt mál er
komið upp norður á Akureyri en
þar í bæ er hvergi
aðstaða til að geyma
og nota heilmikinn 6
milljóna króna flygil
sem keyptur var fyr-
ir nokkrum árum til
minningar um tón-
listarmanninn ást-
sæla, Ingimar Ey-
dal, og gefmn bæn-
um. Flygillinn hefur verið geymdur
i safnaðarheimili Akureyrarkirkju
og ekki aðgengilegur nema endrum
og eins. Nú á að flytja flygilinn út í
sveit þangað sem menn verða að
leggja leið sína vilji þeir æfa sig.
Kostar það síðan stórfé þegar flytja
þarf flygilinn til notkunar á Akur-
eyri. Sagt er að þetta neyðarlega
mál kalli á að tekið verði boði rík-
isstjórnarinnar um að byggt verði
menningarhús í bænum...
Óvíst meö spóluna
í síðustu viku voru menn að
funda um persónuvemd í viðskipt-
um og stjórnsýslu
og var m.a. rætt
um notkun á
kennitölum. Fjöl-
miðlar gerðu
þessari ráðstefnu
einhver skil, og á
einhverri sjón-
varpsstöðinni fór
einn snillingur-
inn af stað. Sá fann Hallgrím
Snorrason hagstofustjóra og
spurði hann merkilegrar spuming-
ar. Sú fiallaði um það hvort sjón-
varpsmaðurinn hefði heimild til
að neita að gefa upp kennitölu
sína ef hann færi á myndbanda-
leigu til að leigja sér myndbands-
spólu. Svar hagstofustjóra var
snjallt, nefnilega það að fiölmiðl-
ungurinn mætti neita að gefa upp
kennitölu sína en þá væri óvíst
hvort hann fengi afhenta mynd-
bandsspólu...
Qui Gong eða Ping Pong
Heilsugarður Gauja litla ætlar
að opnaði líkamsræktarplan á Ing-
ólfstorgi í Reykjavík
á fostudaginn. Sagt
er að með þessum
gjömingi hafi Gaui
ætlað að lyfta hug-
takinu heilbrigði og
hreyfing upp á
hærra plan. Það
plan er að bjóða
upp á nýjung I
heilsuræktinni sem er svokallað
Qui Gong. Verða slíkir ókeypis
Qui Gong-tímar á hverjum föstu-
degi í allan vetur. Gamall maður
sem leið átti hjá, en aldrei hefur
bragðað annað en alíslenskan
kjamgóðan mat, var því ekki viss
hvort hann væri gjaldgengur í
hópinn. Spurði hann því alvarleg-
ur í bragði: „Þarf maður svo ekki
að éta hrísgrjón til að stunda
þetta Ping Pong...?“
Pappalögguráðherra
Ferils Sólveigar Pétursdóttur
dómsmálaráðherra verður trú-
lega lengi minnst
á pappaspjöldum
sögunnar. Ráð-
herrann hefur
legið xmdir
stöðugri skothríð
að undanfomu,
bæði utan þings
og innan. Ekki
varð pistill Hl-
uga Jökulssonar á Skjá einum
heldur til að mýkja ferilmynd
Sólveigar, en þa.r minnti hann á
fina dýra klósettið í ráðuneytinu
sem varð að blaðamáli, tilefnis-
lausa blaðamannafundi, kostnað-
inn við embætti ríkislögreglu-
stjóra, nýja fangelsið í Reykjavík,
pappalöggur og margt fleira. Að
sögn gárunga er nú talið líkleg-
ast að eftir þetta kjörtímabil
verði Sólveigar helst minnst sem
fyrsta „pappalögguráðherra“ ís-
lands...
I