Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Side 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2000
DV
Hugaö að afbrotaunglingum
Poul Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráöherra Danmerkur, og aðrir ráöa-
menn skoöa leiöir til aö taka á barn-
ungum glæpamönnum.
íhuga að stofna
barnadómstól
Meirihluti þingmanna í danska
þjóðþinginu íhugar nú að setja á
laggirnar sérstakan barnadómstól
sem á að gera kleift að dæma ung-
linga undir fimmtán ára aldri til
vistar á sérstökum betrunarhælum
fyrir börn. Þar með stefnir í uppgjör
við þá grundvallarreglu að ekki eigi
að setja unglinga undir flmmtán ára
aldri á bak við lás og slá.
Lissa Mathiasen, formaður dóms-
málanefndar þingsins, segir að
nauðsyn sé á slíkum dómstóli til að
hægt sé að tryggja réttaröryggi ung-
linganna og jafnframt svipta þá
frelsi sem fremja mjög alvarlega
glæpi.
Eva Smith lagaprófessor, formað-
ur sérstakrar forvarnanefndar, er
mjög efins um ágæti þess að koma á
fót slíkum dómstól.
Barsebáck verði
lokað á áætlun
Umhverfisverndarsamtökin Green-
peace eru mjög óhress með að Björn
Rosengren, umhverfisráðherra Svi-
þjóðar, skuli hafa hafnað því á fundi
með danska innanríkisráðherranum,
Karen Jespersen, að loka Barseback
kjamorkuverinu þann 1. júlí 2001,
eins og áformað hefur verið. Græn-
friðungar skora á dönsku stjómina
að standa fast við upprunalega kröfu
um lokun.
Talsmaður Greenpeace segir að
fyrir hvert ár sem dregst að loka
kjarnorkuverinu hlaðist upp mörg
tonn af mjög geislavirkum úrgangi.
Rosengren sagði Jespersen að ver-
inu yrði lokað i fyrsta lagi á árinu
2003. Orkuskortur yrði í sunnan-
verðri Sviþjóð ef lokað yrði á næsta
ári, eins og fyrirhugað var.
Jeltsín á bókamessu
Fyrrum Rússlandsforseti staldraöi
stutt viö á bókamessunni í Frankfurt
í gær þar sem bók hans var kynnt.
Jeltsín hálfslapp-
ur á bókamessu
Bórís Jeltsín, fyrrum Rússlands-
forseti, var hálfslappur og stífur
þegar hann kom á bókamessuna í
Frankfurt í Þýskalandi í gær til að
kynna nýju endurminningabókina
sína, Miðnæturdagbækurnar.
Jeltsín staldraði ekki við nema í
tæpa mínútu og aflýsti síðan fyrir-
huguðum blaðamannafundi.
Þýskur forleggjari Jeltsíns gaf
enga skýringu á þvi hvers vegna
fundinum var aflýst.
1 bókinni segir Jeltsín frá síðustu
árunum sinum á forsetastóli og
hvers vegna hann sagði óvænt af
sér á gamlársdag í fyrra.
Tíu Palestínumenn féllu í átökum við ísraela í gær:
Samkomulag um
vopnahlé fyrir bí
Tíu Palestínumenn féllu i átökum
við ísraelska hermenn á Vesturbakk-
anum í gær og verður nú ekki annað
séð en að vopnahléið, sem Bill Ciint-
on Bandaríkjaforseti hafði milligöngu
um, sé fyrir bí.
Nachman Shai, talsmaður ríkis-
stjómar ísraels, sagði á fundi með
fréttamönnum undir kvöld i gær að
Palestínumenn hefðu ekki virt loka-
frestinn sem veittur var til að stöðva
átökin. Þá sagði hann að Ehud Barak,
forsætisráðherra ísraels, vildi taka
sér hvíld frá friðarferlinu og hugsa
málið alveg upp á nýtt.
Fimm þeirra sem féllu voru skotn-
ir til bana í bardögum í borginni
Nablus, daginn eftir að ísraelskir her-
menn beittu þungvopnuðum þyrlum í
sjö klukkustunda löngum skotbar-
daga við Palestínumenn á svipuðum
slóðum. Mótmælendur féllu einnig i
Ramallah, Jenin, Tulkarm, Qalqilya
og í þorpinu Salfit þar sem þrettán
ára drengur var skotinn í hjartað.
Átökin i gær voru þau mannskæð-
ustu í 2 vikur.
Shai sagði greinilegt að ofbeldinu
hefði ekki linnt og að Barak myndi
tilkynna eftir tveggja daga leiðtoga-
fund arabaríkja, sem hefst í Kaíró í
Egyptalandi í dag, að hann myndi
gera hlé á friðarumleitunum í bili.
Kylfur í Jerúsalem
Saeb Erekat, aðalsamningamaður
Palestínumanna, sakaði ísraelsk
stjórnvöld um að senda hermenn og
landnema inn á palestínsk landsvæði
tU að æsa tU átaka og hann skoraði á
Clinton að kveða upp úr um hvor
deilenda bryti samkomulagið sem
gert var í Sharm el-Sheikh í Egypta-
landi.
„ísraelsk stjómvöld standa sig vel í
því að drepa friðarferlið á eindreginn
hátt,“ sagði Erekat við fréttamann
Reuters.
ísraelskir lögregluþjónar beittu
kylfum i Jerúsalem í gær til að
koma í veg fyrir allir undir fertugu
gætu sótt bænahald í al-Aqsa mosk-
unni á MusterisfjaUi, einhverjum
mesta helgidómi múslíma. fsraelar
báru við öryggisástæðum.
Hundruð Palestínumanna fóru í
mótmælagöngu utan við múra
gömlu borgarinnar og sungu „guð
er mestur“ og slagorð um að þeir
myndu verja Jerúsalem.
Talsmaður bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins sagði í gær að stjórn-
völd í Washington gerðu sér enn
vonir um að ástandið ætti eftir að
róast og að friðarviðræður yrðu
teknar upp að nýju.
Harðlínumúslímar og vinstri-
sinnaðir arabar hvöttu leiðtoga
arabaríkja til að slíta stjórnmála-
tengsl við ísrael og nota „olíuvopn"
sitt til að aðstoða Palestínumenn.
Leitað skjóls á berangri
Paiestinskur piltur reynir aö finna eitthvert skjól í sandinum i átökum palestínskra mótmælenda og ísraelskra her-
manna í bænum Khan Yones á sunnanveröri Gazaströndinni i gær. Víöa sauð upp úr miiii Palestínumanna og ísraela
á heimastjórnarsvæöunum i gær og féllu tiu Paiestínumenn. Bardagarnir voru þeir mannskæöustu í tvær vikur.
Al Gore vill hafa Clin-
ton í hæfilegri fjarlægð
A1 Gore, varaforseti Bandaríkj-
anna og forsetaefni demókrata,
sagði í gær að Bill Clinton forseti
myndi taka þátt í lokaspretti kosn-
ingabaráttunnar. Aðstoðarmenn
Gores gerðu þó lýðum ljóst að vara-
forsetinn vildi halda Clinton í hæfi-
legri fjarlægð.
Clinton hefur sjálfur sóst eftir því
að taka meiri þátt í að reyna að
koma Gore í Hvíta húsið, til dæmis
með því að koma fram á fjáröflunar-
samkomum. Ekki eru þó uppi nein
áform um að Gore og Clinton komi
saman fram á kosningafundum.
„Ég stjóma þessari kosningabar-
áttu sjálfur og eins og ég hef sagt við
önnur tækifæri er ég sá sem ég er,“
sagði Gore við fréttamenn um borð
í flugvél varaforsetaembættisins.
Ekki er nema hálf þriðja vika til
Hittust við jaröarför
Forsetahjónin og varaforsetahjónin i
Bandaríkjunum hittust í gær við jarö-
arför ríkisstjórans i Missouri.
kosninganna og fylgi Gores og
keppinautar hans, Georges W.
Bush, ríkisstjóra í Texas, er mjög
áþekkt. Ýmsir framámenn í
demókrataflokknum vilja því að
Gore noti forsetann meira í kosn-
ingabaráttunni. Clinton er jú enn
vinsæll meðal alþýðu manna.
Gore og Tipper, eiginkona hans,
hittu Bill og Hillary Clinton síðdeg-
is í gær, í fyrsta sinn frá fundi
þeirra um miðjan ágúst, skömmu
áður en Gore var útnefndur forseta-
efni demókrata. Þau voru öll við út-
fór rikisstjóra Missouri sem fórst í
flugslysi á mánudag.
Jake Siewert, talsmaður Hvíta
hússins, sagði að Clinton hefði rætt
tvisvar við Gore í vikunni. „Þeir
tala enn saman með reglulegu mUli-
bili,“ sagði talsmaðurinn.
Má sækja Gaddafí til saka
Franskur áfrýj-
unardómstóll úr-
skurðaði í gær að
heimilt væri að
sækja Muammar
Gadafi Líbýuleið-
toga til saka í
Frakklandi fyrir
sprengjutilræði
gegn franskri farþegaflugvél yfir
Afríkurikinu Níger á árinu 1989.
Rúmlega eitt hundrað manns týndu
lífi í slysinu.
Rússar blása til sóknar
Rússar eru orðnir svo leiðir á því
slæma orði sem fer af þeim og landi
þeirra á Vesturlöndum að hópur
sérfræðinga hefur ákveðið að blása
til sóknar og reyna að bæta ímynd
Rússlands með ráðstefnum, kynn-
ingarherferðum og fleiru.
Málari fær verðlaun
Færeyska stórmálaranum Ingálvi
av Reyni hafa verið veitt menning-
arverðlaun færeyska ríkisins og
verða þau afhent í Norðurlandahús-
inu í Þórshöfn í októberlok.
Innanríkisráðherrar þýsku fylkj-
anna sextán frestuðu þvi í gær að
taka ákvörðun um hvort leitast eigi
við að banna Þjóðernissinnaða lýð-
ræðisflokkinn, flokk nýnasista.
Ákvörðun verður tekin í næstu
viku í fyrsta lagi.
Mladic er sá seki
Radislav Krstic,
fyrrum hershöfð-
ingi Bosníu-Serba,
sagði fyrir stríðs-
glæpadómstóli SÞ í
Haag í Hollandi í
gær að það hefði
ekki verið hann,
heldur herforing-
inn Ratko Mladic sem stjórnaði
árásinni á Srebrenica árið 1995 og
fjöldamorðunum á bosniskum
múslímum sem fylgdu í kjölfarið.
Innflytjendur I steininn
Tæplega þrír af hverjum fjórum
15 til 18 ára unglingum í Kaup-
mannahöfn sem dregnir eru fyrir
dómara eða úrskurðaðir í gæslu-
varðhald eru af erlendum uppruna.
Þetta kemur fram i gögnum lögregl-
unnar í Kaupmannahöfn.
Enn ein bókin um Díönu
Enn ein bókin
um Díönu sálugu
prinsessu hefur
vakið mikla athygli
á bókamessunni i
Frankfurt í Þýska-
landi þar sem útgef-
endur hafa keppst
við að bjóða í út-
gáfuréttinn. Bókin heitir Sannleik-
urinn og er eftir blaðakonuna Judy
Wade sem skrifar um kóngafólk.
Barninu skolað niður
Saksóknarar í Þýskalandi rann-
saka nú hvort 22 ára gömul kona
hafi drepið bam sitt með því að
skola því niður um klósettið.
Kostunica til Bosníu
Vojislav Kostunica, forseti
Júgóslaviu, hyggst verða við jarðar-
för í Bosníu þrátt fyrir ótta margra
um að heimsóknin gæti aukið
spennu þar á sama tíma og Bosníu-
menn undirbúa kosningar.
i
1