Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Side 20
20 Helgarblað LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2000 r>v Siguröur Skúlason segir vinnubrögð og aðferðir Rimasar Tuminas hræra mjög í tilfinningalífinu: Hafsjór hugmynda Sigurður Skúlason er einn þeirra leikara Þjóðleikhússins sem hefur starfað með Rimasi Tuminas að uppfærslu tveggja leikverka Antons Tsjekhovs. í fyrra skiptið fór Sigurður með hlutverk Kulyg- ins í Þremur systrum sem Þjóð- leikhúsið setti upp árið 1997. Um síöustu helgi var Kirsuberjagarð- urinn frumsýndur, en það er fjórða verkið sem Rimas setur upp i Þjóð- leikhúsinu og hið þriðja eftir Tsjekhov. Sigurður fer í Kirsuberjagarðin- um með hlutverk Leoníds Andrejevitsj Gajev, bróður óðals- frúarinnar. Sigurður leikur í hlut- verkinu á jafnt kómíska og tragíska strengi persónu sinnar af sjaldséðri einlægni. Yfirborð sýn- ingarinnar er lygnt en undiraldan er sterk þrátt fyrir að ná aldrei að rjúfa yfirborðið. í leikskrá er vitnað í orð Rimas- ar þar sem segir: „Það er ekki hægt að sýna kirsuberjagarðinn. Hann er innra með okkur sjálfum. Það er okkar að hlú að honum og rækta.“ Hafsjór af hugmyndum Likt og aðrar sýningar sem Rimas hefur stýrt í Þjóðleikhús- inu ber Kirsuberjagarðurinn sterk persónuleg einkenni leik- stjórans. Sigurður segir að megin- einkenni Rimasar sem leikstjóra sé sköpunarkrafturinn. „Rimas er leiksviðsskáld. Hann býr yfir ótrúlegum sköpunarkrafti og hámn listrænum standard. Hann hefur næmt auga fyrir öll- um áhrifsþáttum einnar leiksýn- ingar. Hann er óþrjótandi hafsjór af hugmyndum og sögum um líf persónanna í verkinu, um sam- skipti þeirra jafnt utan sviðs sem innan. Hann spyr endalausra spuminga um líf hverrar einustu persónu.“ Á æfingatímabilinu dregur Rimas upp margvíslegar myndir af heimi verksins og þeir sem fylgjast með æfingum sjá að margar tilraunir eru gerðar en ekki er allt notað. Sumir myndu kalla slíkar aðferðir timasóun en Sigurður er fjarri því sammála því. „Þetta er ekki tímasóun. Rimas elur leikarana á safaríkri fæðu. Og þótt ekki sé allt notað seytlar það inn og hreyfir við manni vits- munalega og tilfinningalega. Aldrei er jafn mikið að brjótast um í manni tilfinningalega og þegar Rimas leikstýrir. Það er afar sjaldgæft að æfingar og vinnubrögð leikstjóra hreyfi svo við manni. Það á jafnt við um æf- ingar á Þremur systrum og Kirsu- berjagarðmum, að ég hló og grét til skiptis og fann til undrunar og aðdáunar í meira mæli en alla jafna. Og um leið líður manni svo vel í návist þessa manns, hann er hvorutveggja góður maður og mikill listamaður, það er aldrei neinn æsingur í gangi eða láta- læti, þótt verið sé að glíma við stórar spurningar og mikil átök. Og það sem gefur honum þetta áhrifavald er fyrst og fremst frá- bært innsæi. Rimas er mikill mannþekkjari og hefur ótrúlega djúpa innsýn í náttúru mannsins. Hann er dramatískur en hefur myljandi húmor og bræðir þessa tvo eiginleika saman á sniRdar- legan hátt.“ Engin tómleikakennd Skoðanir Rimasar á leikhúsi eru ekki allra. Hann sagði einhvers staðar að „á frumsýningu byrjar sýningin að deyja“ sem kann að virðast nokkuð eigingjamt viðhorf gagnvart áhorfendum. „Aðaltími leikstjórans er æfinga- DV-MYND ÞÖK Tilfinningaleg umbrot „Aldrei er jafn mikiö aö brjótast um í manni tilfinningalega og þegar Rimas leikstýrir. Þaö er afar sjaldgæft aö æfingar og vinnubrögö leikstjóra hreyfi svo viö manni. Þaö á jafnt viö um æfingar á Þremur systrum og Kirsuberjagaröinum, aö ég hló og grét til skiptis og fann til undrunar og aödáunar í meira mæli en alla jafna. “ timabilið þegar sköpunin fer fram þangað til búið er að teikna upp stærstu drætti sýningarinnar. Ekk- ert er endanlegt, hvorki í list né lífi. Endanleg niðurstaða er ekki til - eða hvað? Því er það að þegar að frumsýningu er komið er eins og búið sé að taka ákvörðun um hvemig hlutimir eigi að vera. Það er búið að negla niður. Ferlinu er lokiö og því fylgir oft söknuður.“ En söknuðurinn er ekki aðeins í huga leikstjórans. „Oft hendir það eftir gjöful æf- ingatímabil að þegar fmmsýningin er afstaðin hellist yfir mann tóm- leikakennd. Það gerðist þó ekki núna eftir frumsýninguna á Kirsu- berjagarðinum. Samt er ég ekki hissa, þrátt fyrir aö æfingamar hafi verið óvenju gjöfular og frjósamar; ég er bæði glaður og þakklátur, ég lít á það sem forrétt- indi að fá að starfa með Rimasi. Og ferlið heldur áfram. Það fylgir manni þegar vel er að hlutum stað- ið.“ Veldur hver á heldur Sigurður segir að það sé gifur- lega mikils virði að fá hingað heimsóknir frá erlendum leikstjór- um sem bera með sér nýja strauma. Hann tók á síðasta ári þátt í uppfærslu þeirra Stefans Metz og Philippe Bischof frá hinu virta og heimsfræga Theatre de Complicité i London á Krítar- hringnum í Kákasus eftir Bertolt Brecht. „Stefan lagði mikla áherslu á lík- amsfimi og næmi fyrir rými, sam- leikurunum og framvindu sögunn- ar í verkinu. Sýn hans byggist á heildinni. Hann lagði svo mikið upp úr smáatriðunum í sýning- unni að gárungamir voru famir að tala um svissneska úragerðar- nákvæmni en þeir Stefan og Phil- ippe eru einmitt frá Sviss. Krítar- hringurinn var frábært „hand- verk“. En það er erfitt og raunar frá- leitt að bera saman ólíka menn og ólík verk. Hvort sem eru útlend- ingar eða ekki. í raun er þetta ekki spurning um hvaðan leikstjóri kemur eða kyn hans eða aldur. Spumingin snýst um hjartalag við- komandi manneskju. Hér eins og alls staðar annars staðar á það við, að veldur hver á heldur.“ Kemur Rimas aftur? Sigurður er ekki viss um að Rimas komi aftur. „Rimas er ekki allra, hvorki leikhúsfólks né áhorfenda. Hann gerir kröfur til allra, jafnt til sjálfs sín sem samstarfsfólks, en hann gerir ekki síður kröfur til áhorf- enda. Það eru ekki allir tilbúnir að taka því. Ég veit ekki hvort við gemm okkur almennt grein fyrir því hvað við erum heppin að hafa fengið að njóta krafta hans jafn oft og raun ber vitni. Hann er mjög eftirsóttur leikstjóri núna um all- an heim og það streyma til hans viðurkenningar og vegtyllur nú síðustu árin. Til marks um þessa eftirsókn get ég sagt þér eitt lítið dæmi sem er danski leikarinn Jesper Vigant. Hann er mikill að- dáandi Rimasar og hefur komið nokkrum sinnum hingað til lands til að fylgjast með honum að starfi, bæði kom hann á æfingar á Þremur systmm og á Kirsuberja- garðinum, auk þess sem hann dúkkaði upp á frumsýningu á Kirsuberjagarðinum og hafði þá tekið með sér leikhússtjórann sinn til að fylgja málum eftir að fá Rimas til Danmerkur. Þessi áhugi og eftirfylgni Jespers er falleg og aðdáunarverð. Ég vona svo sann- arlega að Jesper verði að ósk sinni. Og ég á líka þá ósk að Rimas komi til okkar aftur, þó síð- ar verði. Mér finnst hann hafa svo mikið að gefa okkur.“ Vlö háiflifum lífinu Sigurður er mjög hrifinn af verkum Tsjekhovs og hefur, fyrir utan Þrjár systur og Kirstuberja- garðinn, tekið þátt í uppfærslum á Platonov í Þjóðleikhúsinu og í leiklestrum á verkum hans hjá Frú Emilíu. „Tsjekov fjallar fyrst og fremst um manneskjuna og eðli hennar. Hann skrifar um sitt samtímafólk, en með þeim hætti að hafið er yfir stund og stað. Mér er mjög minn- isstæð ein setning úr Platonov, þar sem ein persónan segir eitt- hvað á þessa leið: ‘Við lifum ekki lífinu til fulls. Við hálflifum líf- inu.’ Er þetta ekki einmitt dæmi- gerð lýsing á okkur nútímafóki. Við finnum ekki almennilega fyrir sjálfum okkur, við finnum til óhamingju og óánægju, en tök- umst ekki á við það í alvöru, við nennum ekki að horfast í augu við okkur sjálf og breyta okkur. Lát- um okkur bara fljóta.“ Ijós og hlýja leikhússins Greinilegt er að vinnan með Rimasi hefur átt vel við Sigurð. Hann hefur fimdið persónu Gajevs í sjálfum sér og er sannur á svið- inu. Hann virðist ekki leika - hann er. Það er því erfitt að ímynda sér Sigurð í öðru ævistarfi en starfi leikarans. Sigurður fékk þó á yngri ármn þá hugmynd að verða kaup- maðurinn á hominu og gekk því í Verzlunarskólann. Áður hafði hann þó kynnst leikhúsinu náið og þangað sneri hann aftur. „Ég kom fyrst inn á leiksvið tíu ára gamall í gegnum Listdansskóla Þjóðleikhússins. Sem bam skynj- aði ég jákvæða athygli í sviðsljós- inu og sótti í leikhúsið til að reyna að fullnægja óuppfylltum innri þörfum. Ég sótti i ljós, hlýju og æv- intýri leikhússins. Það gengur þó aldrei til lengdar. Það er ekki hægt að fela sig fyrir sársauka lífsins og þjáningu í starfi eða listsköpun, þó maður geti komist langt með það. Það kemur ekkert til móts við ófullnægða frumþörf nema það að lifa hana beint og umbúðalaust. Það er eitt af þvi sem mér hefur lærst. Og kannski hefur leikhúsið átt sinn þátt í þeirri lexíu. En und- anfarin ár hef ég aðeins reynt að hægja á mér og sleppa bindingunni við leikhúsið eftir því sem ég hef getað. Ég hef sótt um frí og leitað hlés til að slaka á og skoða það sem mér finnst skipta máli fyrir minn lífsveg. Leikhúsið er bara hluti af lífinu." -sm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.