Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Qupperneq 24
24 Helgarblað LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2000 DV mann (tifúlegt ögnu Oddný Sen rithöfundur Saga Rögnu Bachmann heillaði hana mjög, enda hefur Ragna fariö í gegnum ótrútegar hamfarir á sinni ævi. Á næstunni kemur út bók Odd- nýjar Sen, Úr sól og eldi - leiðin frá Kamp Knox, sem er ævisaga Rögnu Bachmann. Gerður var góður róm- ur að bókinni Kínverskir skuggar sem Oddný skrifaði fyrir nokkrum árum - um ömmu sína, Oddnýju Er- lendsdóttur Sen. Hún hefur einnig skrifað bókina Á flugskörpum vængjum um listakonuna Myriam Bat-Yosef, fyrrverandi eiginkonu Errós. Nú hefur Oddný tekið að sér að skrá sögu konu sem hefur farið í gegnum miklar hamfarir á sinni ævi. Oddný segir að hún hafi setið í London og flett gömlu Mannlífi þeg- ar hún kom auga á viðtal við Rögnu. Hún var sjálf að ganga í gegnum mikla erfiðleika á þeim tíma og fann strax til óskiljanlegra tengsla við hana, jafnframt því sem hún kom auga á að saga hennar yrði frábært efni í bók. „Þetta er saga konu sem hefur komist í gegnum hrikalegustu hluti,“ segir Oddný og það er ber- sýnilegt að söguefni hennar hefur heillað hana mjög. „Hún óst upp í Kamp Knox við mjög erfiðar að- stæður og hún lenti í miklum til- finningalegum áfollum sem barn og unglingur." Oddný heldur áfram að rekja meginsöguþráð bókar sinnar. Ragna giftist manni sem var þjónn á Naustinu og sannfærður nasisti að auki. Vegna hrifningar hans á að- skilnaðarstefnunni fara þau hjónin til Viktoríufossanna í Afríku 1974. Þar yfirgefur hann hana og gerist málaliði i her Ian Smith, þar sem hann var í ein tíu ár. Hans saga varð allskuggaleg en engu að síður fór hann í opinskátt viðtal fyrir nokkrum árum og lýsti reynslu sinni. Spilavítisþjálfun og demantasmygl „Ragna fór til Karíba, sem er mjög dularfullt land í Afríku, og Mansal Hér á eftir birtist lítiö brot úr bókinni Úr sól og eldi. Þegar hér er komið sögu hefur söguhetjan látiö glepjast til að fara frá Afriku til Ítalíu meö dansflokki undir stjórn fólks sem hún þekkti lítið. Fljótlega fer þó aö læöast aö henni illur grunur. Ég skildi nú hvemig í öllu lá. Við áttum ekki að sýna nein atriði, nema í neyð. Okkar aðalatvinna var að drekka kampavín með ókunnugum karlmönnum til að fá þá tU að eyða peningum i klúbbn- um. Við vorum kampavínsdömur, hvorki meira né minna. Ég varð svo ofboðslega reið að ég rauk út. Ég fór inn í herbergið mitt og reif mig úr kjólnum meðan reiðin ólgaði í brjósti mér. Mario barði að dyrum og kom inn þegar ég var að fara í sloppinn. „Hvað vilt þú?“ spurði ég reiði- lega og vafði aö mér sloppinn. „Þú ert ekki búin að vinna, Ragna mín,“ sagði hann vinsam- lega. „Þú getur ekki farið strax að sofa.“ Ég leit á hann með fyrirlitningu. Hann var réttur og sléttur mellu- dólgur. Hefði ég ekki verið alin upp í Kamp Knox hefði mér kannski fatast flugið en ég horfði aftur á móti beint í augun á honum og sagði höstuglega: „Heyrðu, góði minn, ég kæri mig ekki um svona lifnað! Ég ætla mér ekki að sóa öllum kvöldum í að drekka með ókunnugum karl- mönnum í þessum klúbbi. Þið Linda tölduð okkur trú um að við ættum að starfa sem skemmtikraft- ar, svo ég fer ekki aftur í klúbbinn fyrr en við eigum að sýna atriði. Ég læt ekki bjóða mér þetta og það kemur ekki tO greina að ég gerist drykkjupia!“ „Gerirðu þér grein fyrir að þú ert búin að skrifa undir samning?“ spurði Mario sallarólegur. „Já, en hann hljóðar varla upp á að drekka með ókunnugum karl- mönnum," sagði ég. „Þetta er löglegur samningur og samkvæmt honum áttu að starfa fyrir næturklúbba eins og við ósk- um,“ sagði Mario. „Þú getur ekki snúið þig út úr því fyrr en þú ert búin að sinna þeim verkefnum sem þú samdir um. Við borguðum fyrir þig ferðina hingað og uppi- haldið og þú skuldar okkur fyrir hvort tveggja." Ég verð að fá meiri tima, hugs- aði ég. Ég verð að finna einhver ráð. „Jæja þá,“ sagði ég og reyndi að sýnast rórri. „En hvar er vegabréf- ið mitt?“ „Þú færð það ekki strax,“ sagði Mario og með það fór hann út. Ég sat eftir á rúminu, gersam- lega lömuð af skelfingu. Daginn eftir lagði Linda okkur lífsreglumar. „Þiö þurfið að vera sniðugar," sagði hún. „Þið megið alls ekki drekka ykkur fullar. Hellið kampa- vininu ofan í kælihulstrið svo lítið beri á. Þið megið ekki heldur virð- ast of auöfengnar. Þið eigið að leiða herrana áfram; gefa þeim til kynna að þið hittið þá á morgun fyrir utan klúbbinn. Látið þá kaupa handa ykkur gjafimar sem eru til sýnis í verslunarglugganum frammi í anddyri. Reynið að fá þá til að gefa ykkur töskur, hálsfestar, hringa, bangsa og kampavínsflösk- ur. Því meiri peninga sem þið plokkið af kúnnunum, þeim mun betri erað þið. Ef þið getið ekki fengið þá til að kaupa neitt emð þið ekki upp á marga fiska.“ Ég hafði aldrei heyrt ömurlegri fyrirlestur. Linda sá svipinn á mér og tók mig tali. „Þú veist alveg hvað er að gerast Ragna Bachmann á þeim tíma sem um ræðir í bókarkaflanum Ég komst að því að Mario og Linda ferðuðust niöur eftir Afríku til aö smala saman stúlkum og lugu því að þeim að þær yrðu skemmtikraftar á Ítalíu. Síöan voru stúlkurnar leigðar út í næturklúbba. hérna," sagði hún. „Af hverju hættirðu ekki þessum mótþróa og fylgist með?“ „Hvað fæ ég út úr því?“ spurði ég. „Þú færð að minnsta kosti vega- bréfið þitt aftur,“ sagði hún. Þegar hún var farin reyndi ég að sýna stúlkunum fram á hver staða okkar væri í von um að þær mundu gera uppreisn. Ég benti þeim á að við værum vegabréfs- lausar í ókunnugu landi og það væri í rauninni hægt að gera hvað sem væri við okkur. Við værum bara ómerkilegar klúbbstelpur. Stúlkumar sem voru í uppáhaldi hjá Mario og Lindu fóru strax og kvörtuðu undan mér en ein stúlkn- anna, Marianne, settist hjá mér. Hún vissi upp á hár hvað var í gangi. „Ég veit að tvær stúlknanna eru vændiskonur og ég hef séð flestar hinna á vafasömum stöðum í Jó- hannesarborg,“ sagði hún. „Þær eru héma eingöngu til að selja sig.“ „Ég trúi því ekki,“ sagði ég og titraði öll. „Ertu svon græn?“ sagði Mari- anne. „Veistu ekki hvað Mario og Linda gera við Adrianne?" Adrianne var þroskaheft stúlka; ófríð en engill í hjarta sínu. Mari- anne sagði mér aö hún hefði verið valin í hópinn vegna þess að hún var með brókarsótt. „Þau setja á hana grímu til að leyna því hvað hún er ófríð,“ sagði hún. Ég stökk upp af stólnum. „Nei, nei, nei! Ég get ekki trúað því!“ Þetta var þó óumdeilanlega sannleikurinn. Ég komst að því að Mario og Linda ferðuðust niður
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.