Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Síða 28
28
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2000
Helgarblað_________________________________________________________________________________________________PV
DV-MVNDIR GVA
Lítt lesnir gagnrýnendur
„Því miður telja ýmsir sem hafa tjáð sig um þessi mál að niðurstöður þessara bandarísku vísindamanna séu öfgakenndar. / umræöum um þessi mál kemur nær alltaf í Ijós aö þeir hinir sömu
hafa ekki lesiö bækur þeirra. Þannig dæmir fólk án þess aö kynna sér rannsóknir. “
Jón Bragi Bjarnason, prófessor í lífefnafræði við Háskóla íslands, hefur ákveðnar skoðanir á sykurneyslu og
styður þær með rannsóknum erlendra vísindamanna og eigin þekkingu.
Svkur er fíkniefni
„Þaö er þó spurning hvort mað-
ur á aö fá umræöu og gagnrýni
fyrir að geysast fram og tala um
hlutina. Þaö er ekki bara þakkaö,
þaö er aöallega vanþakkaö. Ég
komst hins vegar aö þeirri niöur-
stööu aö ég gæti ekki þagaö. Ég
heföi þekkingu sem fáir byggju
yfir og œtlaöi ekki aö þegja í þessu
máli þótt sumum þœtti betra aö
svo vœri.“
Þetta segir Jón Bragi Bjarna-
son, prófessor í lífefnafraeði við
Háskóla íslands. Hann hélt á dög-
unum fyrirlestur á ráðstefnu um
sykur þar sem hann sagði að syk-
ur væri eitur. Jón Bragi kynntist
kenningum bandarískra lækna og
vísindamanna sem meðal annars
eru birtar í bókaröð sem nefnd er
Sugarbusters! Kenningar vísinda-
mannanna og reynsla hans sjálfs
hefur sannfært hann um skað-
semi sykurs.
„Sykur er eitur! Sykur veldur
fikn. Það er mikil fíkn tengd syk-
urneyslu. Sé tveggja til fimmtán
tonna neytt á 60 ára tímabili geta
komið fram alvarleg eituráhrif.
Sykumeysla íslenskra barna er
um 36 kíló á ári eða 2 tonn á 60
árum. Og það er einungis hvíti
sykurinn."
Fitulosun líkamans hindruð
Mikið sykurát veldur hærri blóð-
sykri sem veldur miklu insúlíni í
blóði sem hefur ýmsar alvarlegar af-
leiðingar. Aukið innsúlínmagn í
blóði hindrar fitulosun og eykur þar
af leiðandi fitusöfnun og eykur
hættuna á insúlínofnæmi. Af þessu
skapast heilsuvandamál eins og
offita, blóðfita og kólesteról eykst,
hætta er á sykursýki II, kransæða-
sjúkdómum og fleiru.
„Sykursýki II sem einnig er köll-
uð fullorðinssykursýki eða áunnin
sykursýki stafar af því að magn
insúlíns í blóðinu er svo mikið að
viðtakarnir dofna og meira og
meira af insúlíni þarf til að hafa
áhrif á þá. Þetta er svokallað
ónæmi,“ segir Jón Bragi. „Einnig
getur farið svo að geta brissins
minnki til að framleiða insúlín.
Insúlín bókstaflega hindrar fitulos-
un úr fituvef og veldur fitusöfnun í
fituvef. Þetta á sök á offitu og hefur
áhrif á blóðfituna og er talið að
insúlín valdi aukinni framleiðslu
kólesteróls í lifrinni. Kransæðasjúk-
dómar og sykursýki eru einnig vel
þekkt vandamál sem oft stafa af syk-
urneyslu."
Við erum ekki vélar
Jón Bragi segir að hollara sé að
borða fitu en sykur. Líkaminn
ákvarði sjálfur hvað hann gerir við
fituna ef sykumeysla er í lágmarki
og þar af leiðandi insúlínmagn í
blóði lágt.
„Ríkur maður sem á næga pen-
inga þarf ekki að safna þeim. Eins
er það með samanburð á sykur-
neyslu og fituneyslu."
Skaðsemi sykurs er sífellt að
verða fleiri vísindamönnum kunnar
að mati Jóns Braga.
„En svo er hin hlið málsins sem
er almenn skynsemi. Strásykur er
líklega eina hreina sameindin sem
talin er til matvæla fyrir utan salt.
Önnur sameind er etanól eða vín-
andi. Það er viðurkennt að vínandi
er eitur og salt hefur ýmis slæm
áhrif. Sama gildir um sykur.
Sykur er svipaður bensíni sem er
notað sem orkugjafi á vélar sem eru
ekki lifandi. Erum við þannig vélar
að við getum meðhöndlað slík efna-
sambönd og hversu lengi hefur
„Allri skuldinni er skéllt
á einn sökudólg - fituna.
En þar er verið að hengja
bakara fyrir smið. Fitan
er ekki vandamálið. Það
er það sem menn eru að
gera sér grein fyrir. Sagt
hefur verið að maður sé
það sem maður borðar og
af því leitt að ef fólk
borðar fitu þá sé það
feitt. Sannleikurinn er sá
að maður er það sem
maður er. “
mannskepnan notað slíka sameind?
í eitt hundrað ár. Maðurinn virðist
ekki vera gerður til að meðhöndla
slík efni. Hann getur meðhöndlað
sykur í náttúrulegu formi eins og í
hvítkáli. Sá sykur sem er í hvítkáli
þeytist ekki beint inn í blóðið við
meltingu. Líkaminn er gerður til að
neyta slíks sykurs.
Ef við umgengjumst sykur sem
eitur eða krydd færi betur fyrir okk-
ur. Ef við umgöngumst hann sem
matvæli og erum grandalaus við
neyslu hans þá erum við í hættu.“
Offita er stórkostlegt vanda-
mál
Fituneysla hefur minnkað mikið
á síðustu árum en samt er offita
stórkostlega vaxandi vandamál eins
og sykursýkin. Talið er að árið 2000
verði tíðni sykursýki II um átta pró-
sent í Bandaríkjunum. Það er tólfti
hver maður en af fólki um og yfir
sextugu er það miklu hærra hlut-
fall.
“Kenningin er sú að í raun sé
þetta allt saman óþarfi og að hægt
sé að koma í veg fyrir þetta allt með
breyttu mataræði. Ekki má borða
sykur nema í mjög litlu magni og
ekki heldur sykrur, mjölva og
sterkju sem hafa svipuð áhrif og
sykur; hækkar blóðsykur og kallar
á mikið insúlínflæði."
Jón Bragi segir að sykur sé af-
skaplega óheppileg fæða. Hann sé
óhollur og geri ekkert fyrir fólk. í
honum séu hvorki prótín né trefjar.
Að mati Jóns Braga eru þær vörur
sem ætti að fara varlega í að borða