Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Qupperneq 30
30 Helgarblað LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2000 I>V Christel Wunschmann varð ástfangin af margra barna móður: Eiginmaður- inn var í vegi hennar „Viö elskum hvor aðra og erum mjög hamingjusamar. Viö höfum bara við svolítið vandamál að glíma en þaö leysum við á okkar eigin hátt.“ Christel Wtinschmann, 39 ára tveggja barna móðir, tilgreindi ekki nánar við hvaða vandamál hún og ástkona hennar glímdu. Hún brosti í staðinn frammi fyrir sjónvarpstökuvélinni og lagði handlegginn ástúðlega um axlir konunnar sem sat við hlið hennar í sjónvarpsstúdíóinu, Manuelu Friedrichs. Manuela var 30 ára fráskilin fjögurra barna móðir. Hún horfði ástfangin á Christel. Það ríkti eintóm hamingja þennan dag í stúdíóinu SAT 1. Stjórnandi þáttarins, Vera Int Veen, var einnig glaður. Þetta var sennilega í fyrsta sinn sem þýsk sjónvarpsstöð sýndi tvær konur er komu út úr skápnum og viður- kenndu samkynhneigð sína opin- berlega. Skortur á ástúð og skilningi frá eiginmonnunum Konurnar tvær, sem voru frá Leipzig, sögðu frá því hvemig hjónabönd þeirra hefðu farið út um þúfur, meðal annars vegna skorts ástúð og skilningi frá eigin- mönnum þeirra, og hvemig þær hefðu loks fundið hamingjuna hjá hvor annarri. Christel Wúnschmann sagði ekki sjónvarpsáhorfendum frá vandamálinu sem þurfti að leysa. Hún fékk hins vegar tækifæri til þess tveimur mánuðum seinna í þéttskipuðum réttarsal í Chemnitz. Christel var vel klædd og hún virtist feimin. Hún líktist alls ekki því sem hún var í raun og veru: kaldrifjaður morðingi sem hafði drepið manninn sinn af því að hann stóð í vegi hennar. Morðiö líktist siátrun Ákærandinn sagði að morðið á Wolfgang Wúnschmann, sem var 41 árs verkfræðingur, hefði líkst aftöku eða jafnvel enn frekar slátrun. Réttarlæknarnir höfðu nefnilega fundið 41 stungusár á Wolfgang Wiinschmann Hann stóö í vegi fyrir því aö konan hans gæti notiö nýrrar vinkonu sinnar. „Wolfgang var snar- vitlaus yfir því að konan hans hafði orð- ið ástfangin af barns- hafandi fráskilinni þriggja barna móður. Reiði hans var þó ekki meiri en svo að hann langaði til að vita hvernig kynlífi þeirra væri háttað." líki hins myrta. Það kom ekki heim og saman við skýringu Christel sem kvaðst hafa drepið mann sinn í nauðvöm er hann reyndi að nauðga henni. Við réttarhöldin bað Christel kviödómendur og dómara um að sýna skilning vegna ástlausrar til- veru hennar með tilfinningaköld- um eiginmanni. Eiginmaður hennar hefði aldrei haft kynferðis- leg samskipti við hana á annan hátt en með því að nauðga henni. Hún hafði hitt Wolfgang árið 1981. Þegar hann hafði barnað hana krafðist hann þess að þau giftust. Fjölskylda hans var fin og sætti sig ekki við barn utan hjóna- bands. „En þetta var ekki hjóna- band sem stofnað var til af ást,“ sagði hin ákærða. Fæðing lítillar yndislegrar dóttur lagaði ekki hjónabandið. MSi „Hann hafði alls engan áhuga á tilfinningalífi mínu. Ég þurfti á öryggi og ástúð að halda. Ég vildi ekki bara vera notuð í rúminu. „Hann afvopnaði mig alltaf með því að segja að hann elskaði mig og að ég vissi það. En það var ekki nóg fyrir mig.“ Þegar Christel gekk með yngri dóttur þeirra fitnaði hún og henni tókst ekki að ná af sér aukakíló- unum. „Hann var óánægður með það og refsaði mér með þvi að hafna kynlífi með mér. Á árunum 1989 til 1994 stunduðum við ekkert kynlíf þótt mig langaði til þess.“ Christel stakk upp á því að þau færu til hjónabandsráðgjafa. „Hann hló bara og sagði að hjóna- band okkar kæmi öörum ekki við. En það kom honum sjálfum greinilega ekki við lengur. Þetta var óþolandi." Fann þjáningarsystur Christel fann þjáningarsystur þegar hún hringdi í símaþjónustu. Hinum megin á línunni var Manuela Friedrichs sem var þriggja barna móðir og átti von á því fjórða. Hún hafði einnig orðið fyrir vonbrigðum með sinn mann. „Mér geðjaðist strax aö rödd hennar og við hittumst á kcififihúsi viku eftir fyrsta samtalið. Frá fyrstu stundu vorum við báðar vissar um að við ættum samleið. Loksins fann ég þá ástúð sem ég hafði saknað. Loksins hafði ég fundið einhvem sem vildi taka mig í faðm sinn.“ Þegar Christel greindi eigin- manni sínum frá nýju ástinni í lífi sínu og að hún vOdi skilja varð hann bandvitlaus og samtímis skelfilega afbrýðisamur, ekki síst yfir þvi að missa konuna sína í faðm annarrar konu. Wolfgang var snarvitlaus yfir því að konan hans hafði orðið ást- fangin af barnshafandi fráskilinni þriggja bama móður. Reiði hans var þó ekki meiri en svo að hann langaði til að vita hvemig kynlífi þeirra væri háttað. „Hann neyddi mig til að segja frá samlífi okkar í smáatriðum og svo nauðgaði hann mér. Það brást aldrei. Og svo æpti hann á eftir að hann myndi aldrei leyfa að dætur okkar ælust upp í lesbísku sambandi." Með eldhúshnífinn í göngutúr Morðið var framiö i malar- gryfju á 11 ára afmælisdegi yngri dótturinnar. „Maðurinn minn kvaðst þurfa ferskt loft og hann vildi fara i göngutúr. Hann vildi fara að malargryfjunni þar sem við höfðum átt unaösstundir sam- Heimillö Christel og Woifgang bjuggu í þessu húsi. Nágrannarnir töldu hjónaband þeirra gott. Komnar úr skápnum Christel Wunschmann, til hægri, ásamt vinkonu sinni ManueiuFriedrichs þegar þær greindu frá því í sjónvarþi aö þær væru ástfangnar. Þær sögöust báöar hafa saknaö ástúöar og öryggis í hjónaböndum sínum. Dæmd í lífstíðarfangelsi Christel leidd úr réttarsal í handjárnum eftir aö hafa veriö dæmd í lífstíöarfangelsi. Hún kvaöst hafa myrt eiginmann sinn í nauövörn en enginn trúöi henni. an og hann neyddi mig til þess að koma með. Hann hafði drukkið og ég var hrædd um að hann myndi nauðga mér á ný. Þess vegna tók ég með mér eldhúshníf í öryggis- skyni. Það sem gerðist þegar við komum að malargryfjunni var al- ger nauðvörn." Rétturinn var á öðru máli. Wolfgang Wúnschman hafði verið stunginn 41 sinni, í hjart- að, magann, nýrun, lifrina og reyndar í öll helstu líf- færin. Það vó einnig þungt að Christel hringdi ekki til lögreglunnar eftir morðið til að tilkynna árás. Hún hélt bara heim, fór i bað og stakk blóðugum fotum sín- um í þvottavélina. Christel Wúnschmann var fundin sek um morð að yfirlögðu ráði og hún var dæmd í lífstíðarfangelsi. Þegar við réttarhöldin hafði móðir Christel, Christa Brandes, sagt við yfirheyrslu aö hún hefði naiTOiMi slitið öllu sambandi við dóttur sína. Hin ákærða tók því eiginlega með jafnaðargeði en hún brotnaði algerlega niður þegar hún fékk þessi skilaboð frá ástkonu sinni: „Ég vil aldrei sjá þig aftur.“ Morðinginn gengur laus Julia Schneider óttast morðingja móður sinnar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.