Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Side 31
31
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2000
PV___________________________________________________________________________________________________Helgarblað
Reykjavík:
Fórnarlamb forræðisdeilu
Þegar maður kom heim úr sveit-
inni í gamla daga var alltaf spenn-
andi að sjá hvað hafði gerst í bæn-
um á meðan sólin skein í Skaga-
firði.
Spennandi að sjá hvernig borgin
hafði breyst. Eitt haustið var búið
að byggja nýja brú yílr Elliðaár,
annað var komið nýtt íþróttahús
við skólann, hið þriðja var búið að
gera nýja höfn. Osfrv. Ég var úti
Hrísey í sumar. Þegar ég kom aftur
suður sá ég enga breytingu. Það
bólaði enn ekki á húsi uppúr grunn-
unum í Grafarholti, engin var sjáan-
leg Sundabraut, flugvöllurinn enn á
sínum stað, Geldinganesið stóð
óhreyft og öll gatnamót ennþá á
einni hæð og engar nýjar byggingar
risnar nema nýju hallirnar Ríkis-
lögreglustjóra og Sáttasemjara og
Pulsu-Plánetan í Austurstræti. Jú,
það var búið að gera strönd í Naut-
hólsvík, færa Borgarbókasafnið og
stöðumælarnar tóku nú tíkalla. Það
var allt og sumt. Ég þurfti að keyra
suður í Smára til þess að sjá hvar
hlutirnir eru að gerast. Til þess að
láta eitthvað koma mér á óvart.
Á síðustu tiu árum hefur
Reykjavík breyst úr Tromsö í
Amsterdam. Það hefur gerst þrátt
fyrir stefnu borgaryfirvalda. Það
eru einstaklingarnir sem hafa
breytt þessum bæ í borg. Við sem
kusum R-listann á sínum tíma gerð-
um það með nokkrum efa:
Við skulum gefa stelpunum séns
en ætli þær séu nógu fram-
kvæmdaglaðar, nógu framsýnar? Sá
efi nagar okkur sífellt meir þar sem
við bíðum í 30 bíla röð á öllum ljós-
unum í bænum. Eftir sex ára valda-
setu R-listans koma þessi afrek helst
upp í hugann: Menningamótt og
Menningarborg. Engin stórverk,
engar hugmyndir, engin framtíðar-
sýn. R-listinn hóf feril sinn með því
að jarða hina góðu hugmynd um
Listamiðstöð á Korpúlfsstöðum,
með hjálp háværra og lítilsigldra
misindislistamanna sem öfunduðu
Erró. Það var vist of dýrt að gera
upp Korpúlfsstaði. Samt er búið að
því núna. Nú eru þar golfskáli og
bamaskóli og bömin koma heim úr
skólanum á hverjum degi með kúlu
á hausnum. Þessi spamaðarráðstöf-
un virtist slá tóninn. í Kópavogi rís
nú „stærsta verslunarhús á ís-
landi“. Keflvíkingar eiga „stærsta
íþróttahús á íslandi“ og Hafnfirð-
ingar eru að reyna að hafa af okkur
Listaháskólann. Hvar er hið marg-
umtalaða Tónlistarhús? Hin marg-
umdeilda Sundabraut?
Hvenær fáum við að flokka ruslið
okkar? Og hvað er að gerast i hinu
mikla hitamáli síðustu kosninga;
Geldinganesinu? Þar voru kjósend-
ur hafðir að fiflum. Fyrir tveimur
árum eyddum við góðum parti úr
sunnudegi til þess að setja okkur
inn í það mál - höfn eða ekki höfn í
Geldinganesi? - mál sem síðan hef-
ur verið í hafsauga.
Nýlega kom fram að í Reykjavík
hafi ekki verið byggt jafn lítið á
þessu ári síðan 1956. Við hverja lóð
sem auglýst er standa 100 manns í
biðröð. í miðju góðærinu ríkir
stöðnun í Reykjavík. Við finnum
það best í hundrað bíla röðinni við
ljósin á mótum Miklu- og Kringlu-
mýrarbrautar. Á meðan heldur R-
listinn áfram að berja hausnum við
steininn í sínum and-bílisma og trú-
ir því enn að hægt sé að fá fólk í
strætó. Um daginn var „Bíllaus dag-
ur“ í höfuðborginni. Aðalhvatamað-
ur hans kom á sínum einkabO í við-
töl við fjölmiðla. Hvernig eigum við
að geta haldið „Billausa daginn"
heilagan eftir heilt sumar af
„Strætólausum dögum“? (Líklega
var sumarleyfi Strætisvagnanna
mesta niðurlæging borgarmeirihlut-
ans og gerði endanlega útaf við all-
ar frekari tilraunir til þess að fá
fleiri til þess „að nýta sér almenn-
ingssamgöngur". Hvernig getur
þetta fólk ætlast til þess að við för-
um í strætó ef því tekst ekki einu
sinni að fá fólk til að keyra þá?)
Borgarfulltrúar benda á Ríkisstjórn
og hún heldur að sér höndum í
gatnaframkvæmdum í höfuðborg-
inni í þeirri von að ökumenn kenni
R-listanum um. I hverju borgarmál-
inu á fætur öðru höfum við fylgst
með stríði R-anna tveggja: R-lista og
Ríkisstjómar. Ingibjörg Sólrún og
Davíð Oddsson eru líkt og fráskilin
hjón og Reykjavík er barnið sem
þau bítast um; fórnarlamb forræðis-
deilu sem stendur stóreygt hjá og
fylgist með rifrildi foreldra sinna og
R-listinn hóf feril sinn
með því að jarða hina
góðu hugmynd um Lista-
miðstöð á Korpúlfsstöð-
um, með hjálp hávœrra
og lítilsigldra misindis-
listamanna sem öfund-
uðu Erró. Það var víst of
dýrt að gera upp Korp-
úlfsstaði. Samt er búið að
því núna. Nú eru þar
golfskáli og bamaskóli og
börnin koma heim úr
skólanum á hverjum degi
með kúlu á hausnum.
fær ekki nýja strigaskó af því að
pabbinn neitar að borga meðlögin
og mamman er of bissý að öskra á
hann til þess að sinna því. „Farðu
út að leika þér“ er þaö eina sem þau
geta sagt og Reykjavík fer út að
leika sér á þessari litlu rönd sem
hún hefur til sinna afnota, þessari
mjóu rönd á milli hins ofbyggða
Smára og hins óbyggða Geldinga-
ness. Og skilnaðarbarnið endar há-
grátandi niðrí Hafnarstræti (sem
Strætó breytti í Rónastræti á ný)
með hjólabrettið i annarri hönd og
heimtar að komast inn á Maxims.
Þar fornar súlur flutu á land, nú
fletta þar klæðum eistneskar meyj-
ar. Kannski er verkurinn sá að
vesturbæingarnir Davíö og Ingi-
björg hafa bara aldrei komið inní
Bilafenin og uppá Kringlumýrar-
braut á háannatíma.
Það eru ekki allir sem geta „skil-
ið bílinn eftir heima“ og gengið til
vinnu niöur í Ráðhús eða látið bíl-
stjórann rúlla sér niður í Kvos og
heim aftur.
Á undanfórnum árum hefur
Reykjavík sprungið út. Á næstu
árum mun hún springa. Er ekki
kominn tími til að foreldrarnir láti
af sinni forræðisdeilu og fari að
hugsa um barnið sitt? Við bíðum og
vonum, í 200 bíla röðinni við gatna-
mót Miklu- og Snorrabrautar.
Sviðsljós
O.J. Simpson:
Játaði
morðið fyr-
ir kærust-
unni
- deyr innan þriggja ára
Hinn fyrrum geðþekki O.J. Simp-
son, sem margir vilja einungis
muna eftir út Naked Gun-myndun-
um, er enn í sviðsljósinu vegna
morðsins á Nicole Simpson og Ron
Goldman. Nýjasta fyrrverandi
kærasta O.J., Christine Prody, segir
að hann hafi játað fyrir sér að hann
hafi drepið skötuhjúin. Hún segir
enn fremur að O.J. kenni Nicole um
hvemig fór þar sem hún „hafi gert
hann brjálaðan". Að sögn Christine
fór hann oft yfir atburði hins af-
drifaríka kvölds með nákvæmni
sem einungis morðinginn sjálfur
gæti búið yfir.
Christine segir að OJ hafi neytt
hana til að gangast undir tvær fóst-
O.J. Slmpson.
ureyðingar en hann vilji ekki viður-
kenna þá fyrri því hann sé snilling-
ur í að loka af óþægilegar minning-
ar. Enn fremur segir Christine að
O.J. muni deyja innan þriggja ára
vegna nýmaveiki.
Skemmst er hins vegar frá því að
segja að O.J. Simpson neitar öllu -
að venju.
Hola í höfði
Ef þú ætlar að leika golf með
Samuel L. Jackson skaltu vera með
hjálm. Það er alltént reynsla stað-
gengilsins Rays Nicholas sem lék at-
riði í nýjustu kvikmynd Samuels,
The 51st State, en tökur stóðu yfir í
Liverpool þegar staögengillinn varð
fyrir áfallinu.
Samuel og Ray voru búnir að
undirbúa atriðið þar sem Samuel
sveiilar jámi fimm en allt kom fyr-
ir ekki. í sveiflunni lenti kylfan i
höfði Ray og spretti upp skinni hans
eina fimm cm. Ray fór á sjúkrahús
mun
meira
miður sín
Samuel L. Jackson. en Ray,
sem er
kannski skiljanlegt þar sem hann
var með fulla meövitund en ekki
Ray.
en áverk-
arnir
voru ekki
miklir.
Leikstjór-
inn sagði
að Samu-
el hefði
verið
^ptíkipessap í fcrluppi
20. '22. október
Eftirtalin fyrirtæki haía tekið hönduin
saman um að kynna antík á Islandi:
&qtíkþÚ8Íð,
Skðlay6r6n«tíg, s. 688 7278
Aijtíbnjuijir,
Mlapparetíg, s 896 3177
flnttfchúngóqn,
Glli, EJalarpc*!, s. 882 8041
—
OnjnjU'^iQtík,
Hycrfi8götu, %. 695 7933
Guðnjuijdur Henqaijqssoij,
úren?., Ðæjarlipd, ». 554 7770
Sýningin er opin frá ld. 11—18:30
Sölusýning