Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Qupperneq 31
31 LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2000 PV___________________________________________________________________________________________________Helgarblað Reykjavík: Fórnarlamb forræðisdeilu Þegar maður kom heim úr sveit- inni í gamla daga var alltaf spenn- andi að sjá hvað hafði gerst í bæn- um á meðan sólin skein í Skaga- firði. Spennandi að sjá hvernig borgin hafði breyst. Eitt haustið var búið að byggja nýja brú yílr Elliðaár, annað var komið nýtt íþróttahús við skólann, hið þriðja var búið að gera nýja höfn. Osfrv. Ég var úti Hrísey í sumar. Þegar ég kom aftur suður sá ég enga breytingu. Það bólaði enn ekki á húsi uppúr grunn- unum í Grafarholti, engin var sjáan- leg Sundabraut, flugvöllurinn enn á sínum stað, Geldinganesið stóð óhreyft og öll gatnamót ennþá á einni hæð og engar nýjar byggingar risnar nema nýju hallirnar Ríkis- lögreglustjóra og Sáttasemjara og Pulsu-Plánetan í Austurstræti. Jú, það var búið að gera strönd í Naut- hólsvík, færa Borgarbókasafnið og stöðumælarnar tóku nú tíkalla. Það var allt og sumt. Ég þurfti að keyra suður í Smára til þess að sjá hvar hlutirnir eru að gerast. Til þess að láta eitthvað koma mér á óvart. Á síðustu tiu árum hefur Reykjavík breyst úr Tromsö í Amsterdam. Það hefur gerst þrátt fyrir stefnu borgaryfirvalda. Það eru einstaklingarnir sem hafa breytt þessum bæ í borg. Við sem kusum R-listann á sínum tíma gerð- um það með nokkrum efa: Við skulum gefa stelpunum séns en ætli þær séu nógu fram- kvæmdaglaðar, nógu framsýnar? Sá efi nagar okkur sífellt meir þar sem við bíðum í 30 bíla röð á öllum ljós- unum í bænum. Eftir sex ára valda- setu R-listans koma þessi afrek helst upp í hugann: Menningamótt og Menningarborg. Engin stórverk, engar hugmyndir, engin framtíðar- sýn. R-listinn hóf feril sinn með því að jarða hina góðu hugmynd um Listamiðstöð á Korpúlfsstöðum, með hjálp háværra og lítilsigldra misindislistamanna sem öfunduðu Erró. Það var vist of dýrt að gera upp Korpúlfsstaði. Samt er búið að því núna. Nú eru þar golfskáli og bamaskóli og bömin koma heim úr skólanum á hverjum degi með kúlu á hausnum. Þessi spamaðarráðstöf- un virtist slá tóninn. í Kópavogi rís nú „stærsta verslunarhús á ís- landi“. Keflvíkingar eiga „stærsta íþróttahús á íslandi“ og Hafnfirð- ingar eru að reyna að hafa af okkur Listaháskólann. Hvar er hið marg- umtalaða Tónlistarhús? Hin marg- umdeilda Sundabraut? Hvenær fáum við að flokka ruslið okkar? Og hvað er að gerast i hinu mikla hitamáli síðustu kosninga; Geldinganesinu? Þar voru kjósend- ur hafðir að fiflum. Fyrir tveimur árum eyddum við góðum parti úr sunnudegi til þess að setja okkur inn í það mál - höfn eða ekki höfn í Geldinganesi? - mál sem síðan hef- ur verið í hafsauga. Nýlega kom fram að í Reykjavík hafi ekki verið byggt jafn lítið á þessu ári síðan 1956. Við hverja lóð sem auglýst er standa 100 manns í biðröð. í miðju góðærinu ríkir stöðnun í Reykjavík. Við finnum það best í hundrað bíla röðinni við ljósin á mótum Miklu- og Kringlu- mýrarbrautar. Á meðan heldur R- listinn áfram að berja hausnum við steininn í sínum and-bílisma og trú- ir því enn að hægt sé að fá fólk í strætó. Um daginn var „Bíllaus dag- ur“ í höfuðborginni. Aðalhvatamað- ur hans kom á sínum einkabO í við- töl við fjölmiðla. Hvernig eigum við að geta haldið „Billausa daginn" heilagan eftir heilt sumar af „Strætólausum dögum“? (Líklega var sumarleyfi Strætisvagnanna mesta niðurlæging borgarmeirihlut- ans og gerði endanlega útaf við all- ar frekari tilraunir til þess að fá fleiri til þess „að nýta sér almenn- ingssamgöngur". Hvernig getur þetta fólk ætlast til þess að við för- um í strætó ef því tekst ekki einu sinni að fá fólk til að keyra þá?) Borgarfulltrúar benda á Ríkisstjórn og hún heldur að sér höndum í gatnaframkvæmdum í höfuðborg- inni í þeirri von að ökumenn kenni R-listanum um. I hverju borgarmál- inu á fætur öðru höfum við fylgst með stríði R-anna tveggja: R-lista og Ríkisstjómar. Ingibjörg Sólrún og Davíð Oddsson eru líkt og fráskilin hjón og Reykjavík er barnið sem þau bítast um; fórnarlamb forræðis- deilu sem stendur stóreygt hjá og fylgist með rifrildi foreldra sinna og R-listinn hóf feril sinn með því að jarða hina góðu hugmynd um Lista- miðstöð á Korpúlfsstöð- um, með hjálp hávœrra og lítilsigldra misindis- listamanna sem öfund- uðu Erró. Það var víst of dýrt að gera upp Korp- úlfsstaði. Samt er búið að því núna. Nú eru þar golfskáli og bamaskóli og börnin koma heim úr skólanum á hverjum degi með kúlu á hausnum. fær ekki nýja strigaskó af því að pabbinn neitar að borga meðlögin og mamman er of bissý að öskra á hann til þess að sinna því. „Farðu út að leika þér“ er þaö eina sem þau geta sagt og Reykjavík fer út að leika sér á þessari litlu rönd sem hún hefur til sinna afnota, þessari mjóu rönd á milli hins ofbyggða Smára og hins óbyggða Geldinga- ness. Og skilnaðarbarnið endar há- grátandi niðrí Hafnarstræti (sem Strætó breytti í Rónastræti á ný) með hjólabrettið i annarri hönd og heimtar að komast inn á Maxims. Þar fornar súlur flutu á land, nú fletta þar klæðum eistneskar meyj- ar. Kannski er verkurinn sá að vesturbæingarnir Davíö og Ingi- björg hafa bara aldrei komið inní Bilafenin og uppá Kringlumýrar- braut á háannatíma. Það eru ekki allir sem geta „skil- ið bílinn eftir heima“ og gengið til vinnu niöur í Ráðhús eða látið bíl- stjórann rúlla sér niður í Kvos og heim aftur. Á undanfórnum árum hefur Reykjavík sprungið út. Á næstu árum mun hún springa. Er ekki kominn tími til að foreldrarnir láti af sinni forræðisdeilu og fari að hugsa um barnið sitt? Við bíðum og vonum, í 200 bíla röðinni við gatna- mót Miklu- og Snorrabrautar. Sviðsljós O.J. Simpson: Játaði morðið fyr- ir kærust- unni - deyr innan þriggja ára Hinn fyrrum geðþekki O.J. Simp- son, sem margir vilja einungis muna eftir út Naked Gun-myndun- um, er enn í sviðsljósinu vegna morðsins á Nicole Simpson og Ron Goldman. Nýjasta fyrrverandi kærasta O.J., Christine Prody, segir að hann hafi játað fyrir sér að hann hafi drepið skötuhjúin. Hún segir enn fremur að O.J. kenni Nicole um hvemig fór þar sem hún „hafi gert hann brjálaðan". Að sögn Christine fór hann oft yfir atburði hins af- drifaríka kvölds með nákvæmni sem einungis morðinginn sjálfur gæti búið yfir. Christine segir að OJ hafi neytt hana til að gangast undir tvær fóst- O.J. Slmpson. ureyðingar en hann vilji ekki viður- kenna þá fyrri því hann sé snilling- ur í að loka af óþægilegar minning- ar. Enn fremur segir Christine að O.J. muni deyja innan þriggja ára vegna nýmaveiki. Skemmst er hins vegar frá því að segja að O.J. Simpson neitar öllu - að venju. Hola í höfði Ef þú ætlar að leika golf með Samuel L. Jackson skaltu vera með hjálm. Það er alltént reynsla stað- gengilsins Rays Nicholas sem lék at- riði í nýjustu kvikmynd Samuels, The 51st State, en tökur stóðu yfir í Liverpool þegar staögengillinn varð fyrir áfallinu. Samuel og Ray voru búnir að undirbúa atriðið þar sem Samuel sveiilar jámi fimm en allt kom fyr- ir ekki. í sveiflunni lenti kylfan i höfði Ray og spretti upp skinni hans eina fimm cm. Ray fór á sjúkrahús mun meira miður sín Samuel L. Jackson. en Ray, sem er kannski skiljanlegt þar sem hann var með fulla meövitund en ekki Ray. en áverk- arnir voru ekki miklir. Leikstjór- inn sagði að Samu- el hefði verið ^ptíkipessap í fcrluppi 20. '22. október Eftirtalin fyrirtæki haía tekið hönduin saman um að kynna antík á Islandi: &qtíkþÚ8Íð, Skðlay6r6n«tíg, s. 688 7278 Aijtíbnjuijir, Mlapparetíg, s 896 3177 flnttfchúngóqn, Glli, EJalarpc*!, s. 882 8041 — OnjnjU'^iQtík, Hycrfi8götu, %. 695 7933 Guðnjuijdur Henqaijqssoij, úren?., Ðæjarlipd, ». 554 7770 Sýningin er opin frá ld. 11—18:30 Sölusýning
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.