Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Síða 34
34
Helgarblað
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2000
DV
Nýtt námskeið fyrir konur um kynlíf:
Kynlíf er leikur
fulloröna fólksins
Hiúkrunarfræðingarnir Ragnheiður Eiríksdóttir og Helga Harðardóttir eru að bvria með kvnlífs-
námskeið fvrir konur í nóvember. Þar verður konum kennt allt um siálfar sig sem kvnverur, kyn-
hlutverkið. kvnlífsleikföng og ekki síst farið í fullnægingu. sem er að þeirra sögn eitthvað sem
margar konur hafa aldrei upnlifað þrátt fvrir margra ára kvnlíf.
„Námskeiðinu má líkja við mat-
reiðslunámskeið, fólk fer á slík
námskeið til að læra að meðhöndla
„hráefnið", sem er í þessu tilfelli
líkaminn, og fá krydd í tilveruna
með nýjum og spennandi uppskrift-
um, auk þess að öðlast sjálfstraust
til að þora að gera tilraunir í sínu
„tilraunaeldhúsi“,“ segir hjúkrun-
arfræðingurinn Helga Harðardóttir,
en hún stendur ásamt stöllu sinni
úr sömu starfsstétt, Ragnheiði Ei-
ríksdóttur kynlífspistahöfundi, fyrir
námskeiði sem hlotið hefur nafnið
konur og kynlíf. Eins og nafnið gef-
ur til kynna er námskeiðið einungis
fyrir konur og ijallar um kynlíf í
sinni víðustu mynd.
Allir í fötunum
Það hefur litið farið fyrir nám-
skeiðum er varða kynlíf hér á landi,
en þó rámar líklega einhverja í
námskeiðin sem kynlifsfræðingur-
inn Jóna Ingibjörg hélt hér á landi
fyrir 10 til 15 árum. Námskeiðið
sem þær Ragnheiður og Helga ætla
að halda verður þó með allt öðru
sniði en það.
„Við erum engir töframenn, við
ætlum ekkert að galdra fullnæging-
ar í þessar konur. Þetta er sjálfs-
hjálparnámskeið þar sem við kom-
um með ákveðin innlegg og þekk-
ingu sem við teljum skipta máli.
Námskeiðin byggjast mikið á þátt-
töku allra sem eru í hópnum en þó
erum við ekki að biðja fólk um að
segja reynslusögur af sjálfu sér
heldur að það sé með í umræðun-
um. Síðan erum við með æflngar
sem snúast aðallega í kringum slök-
un og öndun og heimaverkefni," út-
skýrir Ragnheiður og tekur það
skýrt fram að það þarf enginn að
fara úr fötunum á námskeiðunum
hjá þeim.
Allir geta fenglð fullnægingu
Meðal þess sem tekið verður fyrir
á námskeiðinu eru efni eins og: lif-
fræði kynfæranna, langanir og þarf-
ir í kynlífi, G-bletturinn, grindar-
botnsþjálfun og kynlífsleikfong, svo
fátt eitt sé nefnt. Einnig verður far-
ið 1 það hvemig ná á fullnægingu,
en að sögn þeirra Ragnheiðar og
Helgu er fullnægingarvandi eitt-
hvað sem margar konur glíma við.
„Markmiðið með námskeiöunum
er ekki að þáttakendur fái fullnæg-
ingu en við vonumst til að þær kon-
ur sem eiga í fullnægingarvanda
geti hugsanlega fengið einhverja
hjálp við sínum vanda á námskeið-
inu. Það er hins vegar ekki til neitt
ákveðið töfralyf sem maður tekur
inn til þess aö fá fullnægingu, þetta
er spurning um að ala kynvitundina
og virkja orkuna sem við búum yfir
og nýta okkur hana til góðs,“ segir
Helga og bætir við að það sé alls
enginn skömm að hafa aldrei upplif-
að fullnægjingu.
„Nei, það er sko ekkert skammar-
legt að vera kona sem hefur ekki
enn upplifað fullnægingu, þvi það er
ekkert sem segir að konan sem hef-
ur ekki fengið fullnægingu eigi
aldrei á ævinni eftir að geta það.
Þetta er samt mál sem er mjög erfitt
að taka á fyrir þessar konur. Gróð-
inn af þvi getur hins vegar orðið
ómetanlegur, svo að við hvetjum all-
Ragnheiöur Eiríksdóttirr og Helga Haröardóttir standa fyrir fullnægingarnámskeiöi fyrir konur. Þær segja að enginn þurfi samt aö fara úr fötunum á
namskeiöinu.
ar til að reyna, hvort sem það er
með hjálp námskeiðsins okkar eða
heima i næði,“ segir Ragnheiður.
„Það má fullyrða að allar konur
hafi einhvern tímann fengiö full-
nægingu, a.m.k. í svefni. Fullnæg-
ing er eitthvað sem allar konur eiga
að geta upplifað liffræðilega séð, en
hitt er annað mál að konur skamm-
ast sín gjarnan fyrir það að njóta
ekki kynlífs almennt, því það er jú
talið normið. Alvarlegast er þegar
konur eru að stunda kynlíf án þess
að njóta þess og e.t.v. kunna ekki
leiðir til að fá fullnægingu. Þá er
hætta á að konur fari í algjört þókn-
unarhlutverk gagnvart makanum
og leiðast jafnvel inn á brautir upp-
gerðar, sem er hið versta mál,“ seg-
ir Helga.
Að hennar mati er það eina sem
gildir í þessu sambandi að opna um-
ræðuna og gera konum ljóst að það
er ekkert sjálfgeflð varðandi kynlíf
og aldrei hægt að búast við því að
allir hafi sams konar hvatir og
reynslu. „Hver og einn á sér sín
norm alveg óháð því hvað öðrum
finnst vera normal. Við vonumst til
að geta leiðbeint einmitt þessum
konum en viljinn verður að sjálf-
sögðu að vera til staðar, það er al-
gjört skilyröi," segir Helga.
Þörf fyrir kynfræðslu
Að sögn þeirra Helgu og Ragn-
heiðar finnst þeim miklu vera
ábótavant hvað varðar kynlifs-
fræðslu almennt í þjóðfélaginu.
„t gegnum starf mitt sem hjúkr-
unarfræðingur og kynlífspistlahöf-
undur hef ég fundið mikla þörf og
rétt eins og konur þurfa að læra
brjóstagjöf, það er ekki meðfætt, þá
verða þær einnig að læra á sig í
sambandi við kynlífið," segir Ragn-
heiður, en víða erlendis er boðið
upp á alls konar námskeið er varða
kynlif.
Þær hneykslast báðar á því hve
lítil kynfræðsla er í boði fyrir ung-
linga í dag og hafa áhyggjur af því
hvert sú þróun stefnir.
„Þjóðfélagið er orðið opnara fyrir
kynlífi og börnin verða meira fyrir
„Auðvitað má
flissa að ákveðnu
marki, þar sem
kynlíf er leikur
fullorðna fólksins,
og auðvitað eigum
við að hlœja og
vera með galsa-
gang þegar við
leikum okkur“
alls konar áreiti frá bíómyndum, út-
varpi, sjónvarpi, o.s.frv., en fá samt
enga kynfræðslu í skólum eða bara
heilbrigða umræðu um það hvað
það er að lifa góðu kynlífi. Það sem
þessir krakkar eru að sjá í fjölmiöl-
unum eru alls ekki góðar fyrir-
myndir. Foreldrar þessara krakka
fengu ekkert betri fræðslu sjálf þeg-
ar þau voru í skóla og eru því ekki
i stakk búin að taka sjálf í taumana
og fræða börnin sín,“ segir Helga og
Ragnheiður heldur áfram:
„Það er rosaleg pressa á konur að
þær eigi að vera einhvers konar
kynlifsdivur sem eru að springa úr
kynólgu.Umræðan gengur út á það
að allt sé svo rosalega sexý og aug-
lýsingar í sjónvarpi eru yfirleitt
hlaðnar kynferðislegum merkjum.
Ef þú ert hins vegar einhleyp kona
og sinnir þínu kynferöi á einhvern
hátt, sefur hjá eða stundar sjálfsfró-
un, þá ertu samt líka litin horn-
auga, sérstaklega ef þú ert að sofa
hjá, þá ertu bara kölluð dræsa,
þannig að þetta eru mjög tvöföld
skilaboð.
Þetta eru mjög slæm skilaboð fyr-
ir allar konur, ekki síst ungar stelp-
ur, sem hafa sínar fyrirmyndir ekki
frá foreldrum sínum heldur bara úr
fjölmiðlum. Þær eiga að vera i
wonderbra með beran maga og eins
sexý og Britney Spears en mega svo
ekki sinna sinni kynhvöt án þess að
vera álitnar druslur. Þetta er heil-
mikið mál,“ segir Ragnheiður og
bætir við að þær Helga vonist til
þess að fá konur sem eru uppalend-
ur á námskeiðið þar sem þær geta
styrkt sjálfsmynd sína og geta þar af
leiðandi frekar miðlað á eðlUegan
hátt upplýsingum til bama sinna.
Líka fyrir einhleypar
Námskeiðið segja þær stöllur að
sé jafnt fyrir konur sem eru í sam-
bandi sem og þær sem eru á lausu,
enda krefjist heimaverkefnin þess
ekki að þátttakendur hafi kynlífsfé-
laga til staðar.
„Ég er ekki í sambandi en samt
hef ég alveg fullan rétt á því að vita
ýmislegt um mitt kynferði og þróa
mina kynvitund á jákvæðan hátt og
fá fullnægingar eins og vindurinn,"
segir Ragnheiður og segir að þær
spyrji þátttakendur hvorki út í kyn-
ferði né hjúskaparstöðu. „Ég held
að það sé allt of algengt og alveg
týpískt fyrir konurnar að spyrja
hvort maðurinn megi ekki vera
með, enda eru þær alltaf svo fórn-
fúsar og umhyggjusamar. Nú viljum
við hins vegar að konur hugsi bara
um sjálfar sig og séu svolítið eigin-
gjarnar, enda gera þær allt of lítið af
því,“
„Á námskeiðinu fá konur leyfi til
að tala um kynlíf á opinn, heiðarleg-
an og heilbrigðan hátt án þess að
vera dæmdar og án þess að það sé
nokkur skömm eða asnalegheit í
kringum það,“ segir Helga.
„Auðvitað má flissa að ákveðnu
marki, þar sem kynlíf er leikur full-
orðna fólksins, og auðvitað eigum
við að hlæja og vera með galsagang
þegar við leikum okkur,“ bætir
Ragnheiður við.
En er þetta námskeiö þá einungis
fyrir konur sem upplifaö hafa slœmt
kynlíf?
„Nei, síður en svo. Kynlífið er
frumþörf sem hefur verið bæld nið-
ur þannig að hver og einn getur
kannski komist á örlitið hærra stig
með hjálp svona námskeiðs," segir
Ragnheiður að lokum, en allar nán-
ari upplýsingar um námskeiðið er
að finna á heimasíðunni
www.mandala.dk/gaia/konurog-
kynlif.shtml.
-snæ