Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Qupperneq 34
34 Helgarblað LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2000 DV Nýtt námskeið fyrir konur um kynlíf: Kynlíf er leikur fulloröna fólksins Hiúkrunarfræðingarnir Ragnheiður Eiríksdóttir og Helga Harðardóttir eru að bvria með kvnlífs- námskeið fvrir konur í nóvember. Þar verður konum kennt allt um siálfar sig sem kvnverur, kyn- hlutverkið. kvnlífsleikföng og ekki síst farið í fullnægingu. sem er að þeirra sögn eitthvað sem margar konur hafa aldrei upnlifað þrátt fvrir margra ára kvnlíf. „Námskeiðinu má líkja við mat- reiðslunámskeið, fólk fer á slík námskeið til að læra að meðhöndla „hráefnið", sem er í þessu tilfelli líkaminn, og fá krydd í tilveruna með nýjum og spennandi uppskrift- um, auk þess að öðlast sjálfstraust til að þora að gera tilraunir í sínu „tilraunaeldhúsi“,“ segir hjúkrun- arfræðingurinn Helga Harðardóttir, en hún stendur ásamt stöllu sinni úr sömu starfsstétt, Ragnheiði Ei- ríksdóttur kynlífspistahöfundi, fyrir námskeiði sem hlotið hefur nafnið konur og kynlíf. Eins og nafnið gef- ur til kynna er námskeiðið einungis fyrir konur og ijallar um kynlíf í sinni víðustu mynd. Allir í fötunum Það hefur litið farið fyrir nám- skeiðum er varða kynlíf hér á landi, en þó rámar líklega einhverja í námskeiðin sem kynlifsfræðingur- inn Jóna Ingibjörg hélt hér á landi fyrir 10 til 15 árum. Námskeiðið sem þær Ragnheiður og Helga ætla að halda verður þó með allt öðru sniði en það. „Við erum engir töframenn, við ætlum ekkert að galdra fullnæging- ar í þessar konur. Þetta er sjálfs- hjálparnámskeið þar sem við kom- um með ákveðin innlegg og þekk- ingu sem við teljum skipta máli. Námskeiðin byggjast mikið á þátt- töku allra sem eru í hópnum en þó erum við ekki að biðja fólk um að segja reynslusögur af sjálfu sér heldur að það sé með í umræðun- um. Síðan erum við með æflngar sem snúast aðallega í kringum slök- un og öndun og heimaverkefni," út- skýrir Ragnheiður og tekur það skýrt fram að það þarf enginn að fara úr fötunum á námskeiðunum hjá þeim. Allir geta fenglð fullnægingu Meðal þess sem tekið verður fyrir á námskeiðinu eru efni eins og: lif- fræði kynfæranna, langanir og þarf- ir í kynlífi, G-bletturinn, grindar- botnsþjálfun og kynlífsleikfong, svo fátt eitt sé nefnt. Einnig verður far- ið 1 það hvemig ná á fullnægingu, en að sögn þeirra Ragnheiðar og Helgu er fullnægingarvandi eitt- hvað sem margar konur glíma við. „Markmiðið með námskeiöunum er ekki að þáttakendur fái fullnæg- ingu en við vonumst til að þær kon- ur sem eiga í fullnægingarvanda geti hugsanlega fengið einhverja hjálp við sínum vanda á námskeið- inu. Það er hins vegar ekki til neitt ákveðið töfralyf sem maður tekur inn til þess aö fá fullnægingu, þetta er spurning um að ala kynvitundina og virkja orkuna sem við búum yfir og nýta okkur hana til góðs,“ segir Helga og bætir við að það sé alls enginn skömm að hafa aldrei upplif- að fullnægjingu. „Nei, það er sko ekkert skammar- legt að vera kona sem hefur ekki enn upplifað fullnægingu, þvi það er ekkert sem segir að konan sem hef- ur ekki fengið fullnægingu eigi aldrei á ævinni eftir að geta það. Þetta er samt mál sem er mjög erfitt að taka á fyrir þessar konur. Gróð- inn af þvi getur hins vegar orðið ómetanlegur, svo að við hvetjum all- Ragnheiöur Eiríksdóttirr og Helga Haröardóttir standa fyrir fullnægingarnámskeiöi fyrir konur. Þær segja að enginn þurfi samt aö fara úr fötunum á namskeiöinu. ar til að reyna, hvort sem það er með hjálp námskeiðsins okkar eða heima i næði,“ segir Ragnheiður. „Það má fullyrða að allar konur hafi einhvern tímann fengiö full- nægingu, a.m.k. í svefni. Fullnæg- ing er eitthvað sem allar konur eiga að geta upplifað liffræðilega séð, en hitt er annað mál að konur skamm- ast sín gjarnan fyrir það að njóta ekki kynlífs almennt, því það er jú talið normið. Alvarlegast er þegar konur eru að stunda kynlíf án þess að njóta þess og e.t.v. kunna ekki leiðir til að fá fullnægingu. Þá er hætta á að konur fari í algjört þókn- unarhlutverk gagnvart makanum og leiðast jafnvel inn á brautir upp- gerðar, sem er hið versta mál,“ seg- ir Helga. Að hennar mati er það eina sem gildir í þessu sambandi að opna um- ræðuna og gera konum ljóst að það er ekkert sjálfgeflð varðandi kynlíf og aldrei hægt að búast við því að allir hafi sams konar hvatir og reynslu. „Hver og einn á sér sín norm alveg óháð því hvað öðrum finnst vera normal. Við vonumst til að geta leiðbeint einmitt þessum konum en viljinn verður að sjálf- sögðu að vera til staðar, það er al- gjört skilyröi," segir Helga. Þörf fyrir kynfræðslu Að sögn þeirra Helgu og Ragn- heiðar finnst þeim miklu vera ábótavant hvað varðar kynlifs- fræðslu almennt í þjóðfélaginu. „t gegnum starf mitt sem hjúkr- unarfræðingur og kynlífspistlahöf- undur hef ég fundið mikla þörf og rétt eins og konur þurfa að læra brjóstagjöf, það er ekki meðfætt, þá verða þær einnig að læra á sig í sambandi við kynlífið," segir Ragn- heiður, en víða erlendis er boðið upp á alls konar námskeið er varða kynlif. Þær hneykslast báðar á því hve lítil kynfræðsla er í boði fyrir ung- linga í dag og hafa áhyggjur af því hvert sú þróun stefnir. „Þjóðfélagið er orðið opnara fyrir kynlífi og börnin verða meira fyrir „Auðvitað má flissa að ákveðnu marki, þar sem kynlíf er leikur fullorðna fólksins, og auðvitað eigum við að hlœja og vera með galsa- gang þegar við leikum okkur“ alls konar áreiti frá bíómyndum, út- varpi, sjónvarpi, o.s.frv., en fá samt enga kynfræðslu í skólum eða bara heilbrigða umræðu um það hvað það er að lifa góðu kynlífi. Það sem þessir krakkar eru að sjá í fjölmiöl- unum eru alls ekki góðar fyrir- myndir. Foreldrar þessara krakka fengu ekkert betri fræðslu sjálf þeg- ar þau voru í skóla og eru því ekki i stakk búin að taka sjálf í taumana og fræða börnin sín,“ segir Helga og Ragnheiður heldur áfram: „Það er rosaleg pressa á konur að þær eigi að vera einhvers konar kynlifsdivur sem eru að springa úr kynólgu.Umræðan gengur út á það að allt sé svo rosalega sexý og aug- lýsingar í sjónvarpi eru yfirleitt hlaðnar kynferðislegum merkjum. Ef þú ert hins vegar einhleyp kona og sinnir þínu kynferöi á einhvern hátt, sefur hjá eða stundar sjálfsfró- un, þá ertu samt líka litin horn- auga, sérstaklega ef þú ert að sofa hjá, þá ertu bara kölluð dræsa, þannig að þetta eru mjög tvöföld skilaboð. Þetta eru mjög slæm skilaboð fyr- ir allar konur, ekki síst ungar stelp- ur, sem hafa sínar fyrirmyndir ekki frá foreldrum sínum heldur bara úr fjölmiðlum. Þær eiga að vera i wonderbra með beran maga og eins sexý og Britney Spears en mega svo ekki sinna sinni kynhvöt án þess að vera álitnar druslur. Þetta er heil- mikið mál,“ segir Ragnheiður og bætir við að þær Helga vonist til þess að fá konur sem eru uppalend- ur á námskeiðið þar sem þær geta styrkt sjálfsmynd sína og geta þar af leiðandi frekar miðlað á eðlUegan hátt upplýsingum til bama sinna. Líka fyrir einhleypar Námskeiðið segja þær stöllur að sé jafnt fyrir konur sem eru í sam- bandi sem og þær sem eru á lausu, enda krefjist heimaverkefnin þess ekki að þátttakendur hafi kynlífsfé- laga til staðar. „Ég er ekki í sambandi en samt hef ég alveg fullan rétt á því að vita ýmislegt um mitt kynferði og þróa mina kynvitund á jákvæðan hátt og fá fullnægingar eins og vindurinn," segir Ragnheiður og segir að þær spyrji þátttakendur hvorki út í kyn- ferði né hjúskaparstöðu. „Ég held að það sé allt of algengt og alveg týpískt fyrir konurnar að spyrja hvort maðurinn megi ekki vera með, enda eru þær alltaf svo fórn- fúsar og umhyggjusamar. Nú viljum við hins vegar að konur hugsi bara um sjálfar sig og séu svolítið eigin- gjarnar, enda gera þær allt of lítið af því,“ „Á námskeiðinu fá konur leyfi til að tala um kynlíf á opinn, heiðarleg- an og heilbrigðan hátt án þess að vera dæmdar og án þess að það sé nokkur skömm eða asnalegheit í kringum það,“ segir Helga. „Auðvitað má flissa að ákveðnu marki, þar sem kynlíf er leikur full- orðna fólksins, og auðvitað eigum við að hlæja og vera með galsagang þegar við leikum okkur,“ bætir Ragnheiður við. En er þetta námskeiö þá einungis fyrir konur sem upplifaö hafa slœmt kynlíf? „Nei, síður en svo. Kynlífið er frumþörf sem hefur verið bæld nið- ur þannig að hver og einn getur kannski komist á örlitið hærra stig með hjálp svona námskeiðs," segir Ragnheiður að lokum, en allar nán- ari upplýsingar um námskeiðið er að finna á heimasíðunni www.mandala.dk/gaia/konurog- kynlif.shtml. -snæ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.