Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Side 58
66
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2000
Tilvera_________________________ DV
Einar Már Jónsson skrifar frá París:
s
Alfur
eða eld-
flaug?
eins hátt uppi í skýjunum. En alls
staðar er Björk i öndvegi, eins og
venjulega er henni líkt viö álf, eða
þá kannski „eldflaug sem hefur
komist í gegnum poppstratosferj-
una og sett fútúríska og frumstæða
nikkel-ímynd á braut“. ...Og þrátt
fyrir ýmiss konar varnagla um
Lars von Trier og feril hans yfir-
leitt fær Björk jafnan lof. Hún er
poppstjarna þessarar kynslóðar,
eins og einhvers staðar var sagt,
og henni tekst að gera einfeldn-
ingslegt melódrama að einhverju
allt öðru.
Það er kannski gagnrýnandi
dagblaðsins Libération sem gefur
tóninn einna best. Hann byrjar á
að segja að eftir frammistöðu
frumkvöðla myndarinnar i Cann-
es, Lars von Trier sem var umvaf-
inn skýi af ákavítisgufu og sagði
að myndin væri kraftbirting
neyslu hans sjálfs á taugalyíjum,
og þeirra Bjarkar beggja sem
gerðu upp sakimar hvort við ann-
Á því leikur víst lítill vafi að
I einn helsti menningarviðburður
i líðandi stundar í París er kvik-
1 mynd Bjarkar og Lars von Trier,
Dancer in the Dark, sem frumsýnd
var miðvikudaginn 18. október sl.
Næstu daga á undan blöstu alls
staðar við risastór auglýsinga-
spjöld, bæði ofan jarðar og neðan,
sem gátu varla farið fram hjá nein-
um. í kringum frumsýninguna
^ voru dálkar flestra blaða og tíma-
rita yfirfullir af greinum og viðtöl-
um við báða frumkvöðla myndar-
innar, svo mjög að það er einum
fréttamanni ofviða að henda reið-
ur á því öllu.
Svo virðist þó sem andinn í
þessum skrifum sé dálítið breyttur
frá því sem var í vor þegar kvik-
myndin fékk tvenn verðlaun á há-
tíðinni í Cannes. Dómurinn í dag-
blaðinu Le Figaro er ekki alveg
eins neikvæður og þá, og dómam-
ir í öðrum fjölmiðlum ekki alveg
að í viðtölum við fjölmiðla, hefði
maður einna helst haft löngun til
að útbýta nokkrum hnitmiðuðum
kinnhestum. „En það hefði ekki
verið til neins,“ bætir hann síðan
við, „því myndin sjálf er til staðar,
og hún er svo augljóslega yfir-
gengileg, að maður getur velt þvi
fyrir sér, hvort ekki hefði verið
rétt að auka beinlinis meðala-
skammtinn vegna almennrar holl-
ustuverndar." Gagnrýnandinn,
sem segist ekki vera í hópi þeirra
sem breyttust í fljótandi höfuð-
skepnu á sýningu myndarinnar í
Cannes, lætur svo i ljós ýmsar efa-
semdir um verk Lars von Trier yf-
irleitt, hann vildi getaö vísað þeim
á bug en eigi að síður loði þau við
hann „eins og gamalt tyggjó við
peysu“. En niðurstaðan er sú að
snilldarverkið í myndinni hafi
verið að láta Björk leika aðalhlut-
verkið: „Eina fegurð myndarinnar
er fólgin í þeirri orku sem söng-
konan beitir til að gera uppreisn
gegn augljósri heimsku handrits-
ins og þeim fötlunum sem sagan
íþyngir henni með.“ Við hlið
greinarinnar er langt viðtal við
Björk og samanlagt eru tvær heil-
ar síður helgaðar henni og mynd-
inni.
í Le Figaro fær myndin eina
siðu, fremst í þeim hluta blaðsins
sem fjallar um kvikmyndir vik-
unnar, með viðtali við Lars von
Trier og tveimur greinum. Þær
eru báðar fremur neikvæðar, en
önnur endar á þessum orðum:
„Segja má að myndin standi og
falli eingöngu með nærveru Bjark-
ar, sem tekst að lokum að stjórna
böðli sínum og dáleiða hann, og
það svo mjög að það breytir þung-
lamalegri myndi í einhvers konar
langt myndband til dýrðar smáálfi
sem rennur manni jafnan úr greip-
um.“