Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Qupperneq 66
74
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2000
Tilvera I>V
lí f iö
Antíkmessa í
Perlunni
í gær var opnuð svokölluð
Antikmessa í Perlunni. Tilgang-
urinn er að kynna antik á Is-
landi. Að sýningunni standa
Antíkhúsið, Antíkmunir, Antík-
húsgögn, ömmu-antík og Guð-
mundur Hermannsson úrsmiður.
Sýningin stendur í dag og á
morgun og er opin almenningi
frá 11 til 18.
POPP_________________________
. i ■ SUEPE I LAUGARDALSHOLL
lceland Alrwaves-hátíðin nær há-
marki í Laugardalshöll í kvöld. Egill
Sæbjörnsson, Súrefni og Mínus
koma fram og svo stíga stórhljóm-
sveitirnar Suede, Raming Ups og
Thievery Corporation á stokk og
setja punktinn yfir i-ið á mestu tón-
leikaveislu sem sést hefur í háa
herrans tíö.
■ GAUKURINN Stuöhljómsveitirnar
Sóldögg og Skítamórall spila á
Gauki á Stöng laugardagskvöld.
Klassík
■ ART-2000 Alþjóðleg raf- og tölvu-
tónlistarhátíö í fyrsta skipti á Islandi
í Salnum í Kópavogi.
Kabareti
■ BEE GEES A SOGU Fimm strákar
syngja vinsælustu lög þeirra Gibb-
bræðra og Hljómsveit Gunnars Þórð-
arsonar leikur undir í Súlnasal á
Hótel Sögu. Á eftir er dansleikur
með Saga Klass.
■ HRATT OG BÍTANPI Skemmtidag
skrá í kvöld í Kaffileikhúsinu f
tengslum við útkomu matreiðslubók-
arinnar Hratt og bítandi eftir Jó-
hönnu Sveinsdóttur. Sýningin hefst
kl. 19.30.
■ ÞJÓDBÚNINGAKYNNING HJÁ
HEIMILISIÐNAÐARFELAGINU Um
helgina er þjóðbúningakynning hjá
Heimilisiðnaðarfélaginu. Opið verður
kl. 13-17 laugardag og sunnudag í
Hornstofu Heimilisiðnaðarfélagsins
að Laufásvegi 2. Aðgangur er ókeyp-
is.
Opnanir
■ ILMUR HJÁ SÆVARI íímur María
Stefánsdóttir mun opna sýningu á
innsetningu sinni í Galleríi Sævars
Karls í dag. Sýningin er opin á af-
greiðslutíma versluninnar. Sýningin
stendur til 9. nóvember.
■ MARGRÉT GUÐMUNDSPÓTTIR
Margrét Guðmundsdóttir opnar kl.
16 í dag sýningu á verkum sínum í
kaffistofunni í Hafnarborg. Sýningin
nefnist Gluggi til austurs - blönduð
tækni/ infusion technique. Opið
alla daga nema þriöjudaga frá 11-
18. Sýningunni lýkur 6. nóvember.
■ SÉRSTAKUR PAGUR t dag kl. 16
hefst sýning á Ijósmyndum Nönnu
Bisp Buchert við Ijóð Kristínar
Ómarsdóttur í Hafnarborg. Sýningin
heitir Sérstakur dagur.
Fundir
■ FELAG ELPRÍ BORGARA Fundur
um gigtarsjúkdóma á vegum Félags
eldri borgara í Reykjvík í Ásgarði,
Glæsibæ. Fyrirlesarar eru Helgi
Jónsson og Arnór Víkingsson.
Klukkan 13.30.
■ FJÖLSKYLDURÁÐSTEFNA
FRAMSOKNARKVENNA Fjölskyldu-
ráðstefna Landssambands fram-
sóknarkvenna verður haldin aö
Hverfisgötu 33, Reykjavík, kl. 10.00
JK Sjá nánar: Líflð eftir vinnu á Vísi.is
Fyrsta rafræna MA-ritgerðin
Markaðssetning og skáldskap-
ur tengdari en margur ætlar
segir Jón Örn Guðbjartsson, framkvæmdastjóri og MA í bókmenntum
í dag verður lögð fram fyrsta rit-
gerðin til MA-prófs í rafrænu formi
við Háskóla íslands. Um er að ræða
lokaritgerð í íslenskum bókmennt-
um í formi margmiðlunardisks og
vefsvæðis með frjálsum aðgangi.
Það er Jón Örn Guðbjartsson,
framkvæmdastjóri markaðs-
sviðs Vefju ehf., sem leggur
ritgerðina fram. Hann hef-
ur síðustu ár haslað sér
völl í hugbúnaðargeiran-
um og unnið sem
markaösstjóri hjá fyr-
irtækjum í upplýsinga-
tækni.
Staða bókarinnar
„í ritgerðinni
er flallað um
stöðu
bókarinnar í nútímanum og með
hvaða hætti hún keppir við aðra
miðla,“ segir Jón Örn í samtali við
DV. „Við upplifum geysilega öra
þróun við miðlun upplýsinga og
Internetið er að gerbylta landslag-
inu. Nýjar tegundir bóka
eru að koma fram
sem eru að öllu
leyti rafrænar og
pappír kann að
vera á hröðu
undanhaldi.
Tæknilegar for-
sendur til að
geyma allt að
milljón bókartitla
á einni kjöltutölvu
eru til staðar. Við
erum líka að horfa á
bókina fara halloka í
samkeppni við auðmelt-
anlegri miðla, eins og
kvikmyndir og tölvu-
leiki. Bókin
krefst
meiri
DVJVIYND GVA
Jón Orn Guðbjartsson
/ ritgeröinni er fjallaö um stööu bókarinnar í nútímanum og meö hvaöa
hætti hún keppir viö aöra miöla.
Tilvistarleg kreppa mannsins
Jón Öm segir að í ritgerðinni sé
tilvistarleg kreppa mannsins í nú-
tímanum skoðuð og tengsl hans við
raunveruleikann. „Við erum öll á
upplýsingafylliríi og í nánustu
framtíð munum við halda áfram að
glíma við ofgnótt áreitis frá fjölmiðl-
Internetinu, tölvupósti og SMS-
sendingum. í þessu yfirflæði upp-
lýsinga reynist okkur æ
þyngra að greina á milli
þess sem er veruleiki og
hins sem er skáldað; við
^ greinum varla á milli
þess sem er rétt og
rangt. Þetta skýrist ef
til vill best af því að
sj ónvarpsáhorfand-
inn i nútímanum situr
við matarborðið og
skóflar í sig kjötbollum með
brúnni sósu og kartöflumús á
sama tíma og hann glápir sviplaus
á morð, nauðganir og rannsóknir á
hálfkæstum mannslíkömum í
fjöldagröfum í sjónvarpsfréttum.
Nútímamanninum reynist næsta
auðvelt aö taka við upplýsingum
um hörmungar og mannfórnir. Það
veldur honum meiri áhyggjum
hvort batteríin í fjarstýringunni eru
Flís á djasstónleikum í Múlanum:
íslenskur framtíöardjass
Píanótríóið Flis leikur á Múlan-
um í Betri stofunni á Kaffi Reykja-
vík annað kvöld og hefur tríóið leik
kl. 21.00. Flís var stofnað haustið
1998. Meðlimir þess eru Davíð Þór
Jónsson, píanó, Valdimar Kolbeinn
Sigurjónsson, kontrabassa, og Helgi
Svavar Helgason, trommur. Allir
stunda nám við FÍH- skólann og eru
virkir tónlistarmenn innan hans
sem utan. Tríóið hefur haldið tón-
leika víðs vegar um Reykjavík sem
og úti á landi, einnig spilað á djass-
hátíð í Færeyjum sumariö 1999 og
nú síðast á Jazzhátíö Reykjavíkur.
Áhrifavalda má nefna Keith Jarrett-
tríóið, Branford Marsalis-kvintett-
inn og fleiri „inspirerandi risa“
íhugunar en aðrir miðlar því hún
gerist í höfðinu á lesandanum.
Kvikmyndin hefur tvihliða áreiti,
bæði sjónrænt og hljóðrænt, og því
er erfíðara að skilja við hana þegar
maður er einu sinni farinn að glápa.
Þegar krafan um aðgerðir bætist
viö, eins og í tölvuleikjum, er mað-
ur nánast orðinn háður miðlinum.
Til marks um undanhald bókarinn-
ar á síðustu árum má benda á að
fyrir réttum áratug voru unglinga-
bækur söluhæstar í hverju bóka-
flóðinu á fætur öðru. Núna seljast
þær hreinlega ekki. Þær falla bara
ekki að hraðanum í samfélagi nú-
tímamannsins. Unglingar vilja
miklu frekar liggja yfir tölvuleikj-
um sem geta jafnvel verið gagnvirk-
ar sögur þar sem þeir eiga þess kost
að ráða sjálfir úrslitum. Þannig
gæti hver þátttakandi í sjálfu sér
skrifað sína eigin bók,“ segir Jón
Örn.
djassins. Eigið efni er í bland við
verk annarra en þó er áhersla lögð
á „okkar tónlist".
Davíð Þór Jónsson er fæddur á
Akranesi og lék fyrst á djasshátíð 17
ára gamall. Hann leikur einnig á
saxófón og hefur meðal annars leik-
ið með Stórsveit Reykjavíkur. Síð-
asta vetur dvaldi Davíð Þór i Noregi
og lék þar með ýmsum djassleikur-
um.
Helgi Svavar Helgason er fæddur
á Siglufirði og byrjaði ungur að
læra á píanó og gítar. Fór seinna að
spila a trommur. Helgi hefur leikið
með Funkmaster 2000, Drum’n
Brass og Stórsveit FÍH-skólans.
Valdimar Kolbeinn er fæddur í
Kópavogi og hefur spilað á kontra-
bassa frá 18 ára aldri. Hann hefur
spilað með böndum eins og
Funkmaster 2000 svo og hinum
ýmsu djassböndum. Hann stundar
einnig nám í klassískum kontra-
bassaleik. Valdimar er forfallaður á
sunnudaginn kemur en í hans stað
leikur Róbert Reynisson gítarleik-
ari. Hann hefur stundað nám við
FÍH-skóiann og verður gaman að sjá
hvemig honum tekst að fylla skarð
Valda Kolla með Flís.
í lagi, poppið brunnið eða hvort
diet-kókið sé kalt. Veruleiki hvers
manns er í raun ekkert annað en
það sem stendur honum næst.“
Yfirborðskenndur veruleiki
Jón Örn segir að ritgerðin fjalli
einnig um leit miðlunar frá innvið-
unum upp á yfirborðið. Hraðinn í
gangvirki nútímans er með slíkum
hætti að ekki vinnst timi til að
kryfja neitt eða komast að kjarna
málsins. „Við sjáum hvernig dag-
blöðin blása út fyrirsagnir og auka
rými mynda á kostnað textans.
Fréttir í sjónvarpi verða æ knappari
og tími til túlkunar er enginn.
Manneskjan er því farin að glíma
við yfírborðskenndan veruleika þar
sem gömul gildi eru að fletjast út,“
segir Jón Örn.
Að sögn Jóns Arnar var vefsvæð-
ið unnið undir leiðsögn Matthíasar
Viðars Sæmundssonar, dósents við
Háskóla íslands. „Matthías er fram-
sýnn maður og hefur, svo dæmi sé
tekið, staðið fyrir Kistunni sem er
veftímarit um hugvísindi. Þótt hann
sýsli að sumu leyti með gömul fræði
er hann afar opinn fyrir nýjum að-
ferðum við miðlun upplýsinga og
listgreina," segir Jón Örn.
En hvað veldur því að markaðs-
maður í hugbúnaðargeiranum sekk-
ur sér á kaf í bókmenntir? „Þótt
nám sé alltaf farsælt lærist það ekki
á skólabekk að vera listamaður
frekar en að fá góðar hugmyndir.
Api verður ekki maður þótt hann
setji upp hatt. Markaðssetning og
skáldskapur eru miklu tengdari fyr-
irbæri en margur gæti ætlað - hvort
tveggja nærist á hugmyndaflugi
manneskjunnar. Markaðssetning er
í raun ekkert annað en útfærsla á
góðum hugmyndum eins og skáld-
skapurinn," segir Jón Öm. -Kip
Leitin að
jólakorti
DV
Nú er hafin hin árlega samkeppni
um bestu myndina á jólakort DV
fyrir árið 2000 meðal krakka á
grunnskólaaldri. Undanfarin ár hef-
ur mikil þátttaka verið í þessari
samkeppni enda veglegir vinningar
i boði. Viðfangsefnið er jólakort DV
og þurfa innsendar myndir að vera
í sterkum litum og tengjast jólun-
um. Vinningsmyndin verður notuð
sem jólakort DV 2000. Vinningshaf-
ar hljóta 1. verðlaun: Playstation
leikjatölva með 2 stýripinnum og
Toy Story 2 leik frá BT. 2. verðlaun:
Toy Story 2 úr og myndband frá
Sammyndböndum. 3. verðlaun: Toy
Story 2 myndband frá Sammynd-
böndum.
Skila þarf myndunum inn til DV,
Þverholti 11,105 Reykjavík, fyrir 20.
nóvember, merkt „DV jólakort".
Flís
Leikur í Kaffi Reykjavík á sunnudagskvöld.