Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2000, Síða 72
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Snyrtiborð, dúkkur,
dúkkuvagnar, vöggur,
þríhjól og bílar fyrir
litlar dömur.
Sími 567 4151 & 567 4280
Heildverslun með leikföng og gjafavömr
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2000
Guðmundur
áfram hjá KR
Knattspyrnumaðurinn snjalli Guð-
mundur Benediktsson samdi í gær
við KR um að leika með Islandsmeist-
urunum næstu þrjú árin.
- - Guðmundur, sem er 26 ára, héfur
verið lykilmaður í
sigrum KR síð-
ustu tvö sumur og
skorað samtals 13
mörk og lagt upp
önnur 20 á þess-
um tímabUuin.
Hann var kosinn
knattspymumað-
ur ársins 1999.
Guðmundur
var hættur samn-
ingaviðræðum við KR í vikunni en
utanaðkomandi aðilar komu viðræð-
unum aftur í gang. -ÓÓJ
Umferðarátak:
Guömundur
Benediktsson.
Bæjarstjór-
inn stöðvað*
ur þrisvar
Vestfirskir lög-
gæslumenn stóðu
fyrir víðtæku
umferðarátaki í
gær og fóru milli
fjarða. Á Patreks-
flrði stöðvaði ís-
firskur lögreglu-
maður bæjar-
stjórann í Vest-
urbyggð í þrí-
gang þar sem
hann ók bifreið sinni í heimabyggð:
„Maður verður að gæta að sér í
umferðinni. Ég er ekki vanur svona
ströngu eftirliti," sagði Jón Gunnar
Stefánsson bæjarstjóri sem slapp
með áminningu í öll þrjú skiptin.
Vestfirska umferðarátakið þótti
takast vel og skilaði slysalausum
degi á ísafirði sem þykir einstakt á
erilsömum fostudegi vestra. -EIR
Jón Gunnar
Stefansson.
\
brother P-touch 9400
r Stóra merkivélin sem þolir álagið
10 leturgerðir
margar leturstærðir
16 leturstillingar
prentar í 10 linur
borði 6 til 36 mm
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport
Gæði og glæsileiki
smoft
Csólbaðstofa)
Grensásvegi 7, sími 533 3350.
DV-MYND PJSTUR
Dyravöröurinn
Kalli kanína býr í Öskjuhlíðinni og tekur stundum að sér dyravörslu í Perlunni óumbeðinn. Hér bíður hann eftir að hópur skólabarna gangi inn
um dyrnar sem hann gætir svo vet.
Félagsþjónustan í Reykjavík:
300 þúsund króna húsa-
leiga fyrir skjólstæðing
- sem vill ekki í Grafarvog með tvö börn
„Þeir hjá Félagsþjónustunni
sögðu mér að finna gistiheimili fyr-
ir mig og börnin því ég fer ekki upp
í Grafarvog eftir allan þann flæking
sem ég hef verið á síðasta árið,“
sagði 36 ára einstæð móðir tveggja
bama sem búið hefur á gistiheimili
í austurbæ Reykjavikur í rúman
mánuð vegna húsnæðisvandræða.
Nóttin á gistiheimilinu kostar 7900
krónur þannig að mánaðarleigan er
300 þúsund krónur. „Börnin mín
hafa alist upp í vesturbænum og ég
legg ekki á það yngra að fara að
skipta um skóla og félagsskap eins
og ástandið er. Félagsþjónustan hef-
ur boðið mér íbúð i Grafarvogi en
þangað fer ég ekki bíllaus. Ég er
studd af Barna-
vemdarnefnd i
þeirri afstöðu
minni,“ sagði
móðirin sem er
í stöðugu sam-
bandi við Fé-
lagsþjónustuna,
að eigin sögn,
án þess að úr
húsnæðismál-
um hennar ræt-
ist. Hefur hún
einnig verið í
sambandi við þingmenn í Reykja-
vík og Ögmundur Jónasson alþing-
ismaður er meðal fjölmargra sem
reynt hafa að greiða úr flækju
móðurinnar.
Móðirin
missti félagslega
íbúð sem hún
haföi til umráða
í vesturbænum
þar sem hún
hafði ekki greitt
húsaleigu í lang-
an tíma en þá
skuld segist hún
nú hafa gert
upp. Öli loforð
um nýja íbúð i
hverflnu hafi verið svikin en böm
hennar tvö em 16 og 10 ára.
„Ég skil ekkert í þessu,“ sagði
gistihúseigandinn þar sem litla flöl-
skyldan býr nú fyrir 300 þúsund
krónur á mánuði. „Ég hafði sam-
band við Félagsþjónustuna þegar
konan óskaði eftir að leigja hjá mér
því mér fannst nú heldur mikið í
lagt að greiða þessa upphæð fyrir
unga konu en mér var tjáð að þetta
væri allt í lagi. Félagsþjónustan hef-
ur þegar greitt fyrir hálfan mánuð
og mér er sagt að hinn helmingur-
inn sé á leiðinni,“ sagði gistihúseig-
andinn sem skilur lítið í þessari
hagkvæmni enda sé hann vanur að
leigja fólki aðeins eina og eina nótt
í einu en aldrei heilu mánuðina
Ekki náðist í Lám Bjömsdóttur fé-
lagsmálastjóra í gærkvöld vegna
þessa máls. -EIR
Félagsþjónustan í Reykjavík
Greiðir 7900 krónur fyrir nóttina á gisti-
heimili í austurbæ Reykjavíkur.
Erfðavísir
lyftir deCODE
Dómsmálaráðuneytið vinnur að nýju frumvarpi til laga:
Harðari refsingar
- meira en 10 ára fangelsi fyrir fíkniefnabrot
Hjá dómsmálaráðuneytinu er
unnið að því að skoða hvort ekki sé
rétt að hækka refsirammann i flkni-
efnamálum. Þannig verði heimilt að
dæma brotafólk i meira en 10 ára
fangelsi sem er hámarksrefsing fyr-
ir flkniefnabrot í dag.
Samkvæmt upplýsingum Ingva
Hrafns Óskarssonar, aðstoðar-
manns dómsmálaráðherra, er
stefnt að því að frumvarp verið
lagt fram síðar á yfirstandandi
þingi sem miðar að því að lög verði
sett til samræmis við dómavenju
þar sem stöðugt þyngri refsingar
eru dæmdar í flkniefnamálum.
Þyngri dómar endurspeglast sér-
staklega af æ meira magni af sterk-
um fikniefnum - t.a.m. innflutn-
ingi og dreifingu á e-töflum, sem
Hollendingurinn lelddur fyrir dómara.
talið er mjög hættulegt fíkniefni
fyrir neytendur.
Til marks um það hvers vegna
gjaman er litið svo á að
refsiramminn sé „sprunginn" er
hægt að benda á að ungur íslend-
ingur var fyrr á árinu dæmdur í 7
ára fangelsi fyrir innflutning og
dreifingu á rúmlega 4.000 e-töflum.
í dag hefur annar maður, Holiend-
ingur, verið ákærður fyrir að hafa
haft 14.200 e-töflur i vörslum sínum
er hann kom nýlega í Leifsstöð.
Þar sem refsiramminn er ekki
hærri en raun ber vitni er ljóst að
Hollendingurmn verður aldrei
dæmdur til þyngri refsingar en 10
ára fangelsis, reyndar finnst mörg-
um raunhæft að giska á 8 til 9 ára
fangelsi þannig að ekki verði dæmt
alveg upp „refsiþakið". Af þessu er
hins vegar ljóst aö Hollendingur-
inn mun fá „magnafslátt“ sé miðað
við unga manninn sem fékk 7 ára
fangelsi, enda var sá fyrmefndi
með hátt í fiórfalt meira af töflum
í sínum fórum en íslendingurinn.
-Ótt
Hlutabréf deCODE genetics, móðurfé-
lags Islenskrar erfðagreiningar, hækk-
uðu eftir að opnað var á
Nasdaq hlutabréfamark- |jj ^
aðnum í Bandaríkjun-
um. í fyrradag var loka- p|Sa
gengi bréfanna 18,0 doll- ,
arar, en fór vel yfir 19
dollara í gærdag. Lægst
varð gengið 16,2 dollarar. deCODE
hækkaði einnig á hlutabréfamarkaði
Easdaq i gær.
Þessar hækkanir komu i kjölfar til-
kynningar deCODE og svissneska lyfla-
fýrirtækisins Roche um að vísinda-
mönnum íslenskrar erfðagreiningar,
ásamt islenskum geðlæknum, hefði tek-
ist að einangra erfðavísi sem tengist
geðklofa. Vísindamenn Roche eru þegar
byrjaðir að nota niðurstöður þessara
rannsókna við þróun nýrra meðferðar-
og greiningarúrræða. Roche hefur greitt
íslenskri erfðagreiningu áfangagreiðslu
vegna hluta þessara niðurstaðna, sam-
kvæmt rannsóknarsamningi. -JSS