Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2000, Síða 2
2
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000
DV
Fréttir
Dularfullt hvarf Einars Arnar Birgissonar:
Stend á gati og
hugsa í hringi
„Einar hringdi í mig klukkan rétt
rúmlega tíu á miðvikudagsmorgun-
inn og sagðist þá vera á leiðinni til
mín; yrði kominn innan fimm mín-
útna. Síðan hef ég ekki heyrt frá
honum. Ég stend á gati og hugsa í
hringi því ég skil þetta ekki,“ sagði
Atli Helgason lögmaður, félagi Ein-
ars Arnar Birgissonar, sem leitað
hefur verið undanfarna daga án ár-
angurs. Atli og Einar opnuðu í síð-
ustu viku tiskuvöruverslunina
GAPS Collection að Laugavegi 7 og
rættist þar með gamall draumur
Einars Arnar um eigið fyrirtæki.
Peningamálin á hreinu
„Við Einar vorum báðir búnir að
vinna mikið fyrir opnunina og vor-
um þreyttir en það var ekkert í fari
Einars sem benti til þunglyndis.
Hann er ákaflega jákvæður og hvers
manns hugljúfi og það var einmitt
þetta þægiiega og jákvæða viðhorf
hans sem varð til þess að hann
tryggði okkur GAP-umboðið hér á
landi,“ sagði Atli Helgason sem
þvertekur fyrir að tengja megi fjár-
hagsvandræði við hvarf félaga síns.
Búiö sé að fara yfir alla bankareikn-
inga og þar sé ekkert að fínna sem
bent geti til óreiðu eða vandræða af
peningalegum toga.
Vakti um nóttina
Atli Helgason var staddur á lög-
mannsstofu sinni að Borgartúni 33
þegar Einar Örn hringdi í hann upp
úr klukkan tíu að morgni miðviku-
dags. Skömmu síðar hringdi Einar
Öm í starfsfólk sitt í versluninni
GAP við Laugaveg og sagðist verða
kominn þangað fyrir hádegi. Báðar
segir meöeigandi hans í GAPS Collection
símhringingar Einars voru frá
heimili hans að Hlíðarhjalla 44 í
Kópavogi en Einar hafði farið seint
á fætur þennan morgun þar sem
hann hafði vakað fram eftir nóttu
og fylgst með bandarísku forseta-
kosningunum í sjónvarpi. Kvöldið
áður hafði hann kvatt starfsfólk sitt
í GAP-versluninni á léttum nótum
og farið inn í Valsheimili þar sem
hann lék handboltaleik með Hrað-
lestinni sem samanstendur af göml-
um handboltaköppum úr Val.
Reyndar tapaði Hraðlestin leiknum
um kvöldið og með það gantaðist
Einar Örn í fyrrgreindum símtölum
við starfsfólk sitt og meðeiganda.
Síðan ekki söguna meir.
Dularfull bifreið
Athygli vekur að bifreið Einars Arn-
ar farrnst á bílastæði við Hótel Loftleið-
ir á fimmtudagsmorgni en hún var þar
ekki klukkan þrjú um nóttina þegar
fjöldi leitarmanna fór þar um. Virðist
því sem bifreiðinni hafi verið lagt á
bílastæðið eftir klukkan þrjú aðfara-
nótt fimmtudagsins, annaðhvort af
Einari sjálfum eða einhverjum öðrum
því leitarhundar fundu engin spor frá
bifreiðinni. Flest bendir því til að Ein-
ar hafi fariö beint yflr í aðra bifreið á
bílaplaninu við Hótel Loftleiðir eða þá
að einhver annar hafi komið bílnum
þar fyrir. Allt er þetta þó óljóst og lög-
reglan vinnur sleitulaust að rannsókn
málsins.
Dreift á Netinu
Mynd af Einari Erni meöan hann iék meö KR en Einar var um tíma atvinnu-
maöur í knattspyrnu í Noregi. Meö honum á myndinni eru Bjarni Þorsteins-
son og Atli Eövaidsson. Mynd þessari hefur veriö dreift á Netinu.
Kvöldið fyrir hvarfið
Einar Örn í Valsheimilinu nokkrum
stundum áöur en hann hvarf.
Leitað til miðla
Fjöldi vina og félaga Einars Arn-
ar hefur skipulagt leit að honum og
hefur hvatningum um þátttöku ver-
ið dreift á Netinu auk mynda, gam-
alla og nýrra, af Einari Erni. Að
auki stóðu vinir og skyldmenni Ein-
ars fyrir bænastund í Hjallakirkju í
Kópavogi í gærkvöld og að sögn
Atla Helgasonar, félaga hans í GAP,
hefur verið leitað til miðla:
„Við stöndum öll ráðþrota
frammi fyrir þessu og skiljum ekki
hvað hefur getað gerst. Einar Örn
er ekki maður þeirrar gerðar að
hann láti sig hverfa á þennan hátt.
Það er óhugsandi," sagði Atli Helga-
son í gærkvöldi. -EIR
Arangurslaus leit
Ungur drengur skoöar mynd af Einari Erni sem dreift hefur verið á bensín-
stöövar og verslanir á höfuöborgarsvæöinu.
Draumaverslun Einars Arnar vlð Laugaveginn
Opnuö fyrir viku og allt fariö aö ganga vel.
Áróðursmeistarar
taka völdin
SST"
Erótík getur
líka verið
hundur
Rúnar Helgi
Vignisson
Islendingar
mega passa sig
íslenskur
bixímatur
Benedikt
Erlingsson
Innlent fréttaljós
Halldór og
kvótinn
Flökkukötturinn
Ragnar treystir
öllum
Eyrun betri
en augun
Ævisaga
Steingríms
Björk
Guðmundsdóttir
Gæludýrið mitt
Unni útsaumi
og garðyrkju
Inglríöur drottning
f - 32 Lesbía þakkar
f guði
Ný handbók femínista
1 . : J.
Skammvinn hamingja ekkjunnar Sérstæð sakamál
74 Léttur
spennufíkill
Jlk Dagbjört Ylfa módel
34 Fjársjóður á
Öldugötu
Konungsflygillinn
fundinn
Davíð gróf undan Þorsteini
■■■mh Davíð Oddsson
H gróf undan Þorsteini
Pálssyni þegar Þor-
M steinn var forsætis-
' w. pM ráðherra 1987-1988.
■ Þetta er meðal þess
sem kemur fram í
v,;., JHj þriðja bindi ævisögu
Steingríms Her-
mannssonar sem kemur út innan
skamms. Bylgjan greindi frá.
7,6% hækkun dagvinnulauna
Dagvinnulaun hækkuðu um 7,6% að
meðaltali á tímabilinu frá öðrum árs-
fjórðungi 1999 til annars ársfjórðungs
2000. Vísitala neysluverös hækkaði um
5,7% á sama tíma. Dagvinnulaun höf-
uðborgarbúa hækkuðu meira en lands-
byggðarfólks og kvenna lítið eitt meiri
en karla. Vísir.is greindi frá.
Breytt deiiiskipulag samþykkt
Bæjarstjóm Kópavogs samþykkti á
fimmtudagskvöld einróma breyttar til-
lögur að deiliskipulagi F-reits á Vatns-
endasvæðinu. Deilt hafði verið um fyr-
irhugaða byggingu hárra blokka við
vatnið. Vfsir.is greindi frá.
Flóamarkaður Engeyjar
Lionsklúbburinn Engey stendur fyr-
ir árlegum flóamarkaði sínum í Lions-
heimilinu að Sóltúni 20. Húsið verður
opnað klukkan 13 báða dagana og verð-
ur tombóla og fatamarkaður í fullum
gangi, að ógleymdum veiðikassa fyrir
bömin. Flóamarkaðurinn hefur í 14 ár
verið helsta tekjulind Engeyjar.
Kristján endurkjörinn
Kristján Ragnars-
son var enn og aftur
endurkjörinn for-
maður Landssam-
bands íslenska út-
vegsmanna á aðal-
fundi þeirra sem
lauk í gær. Kristján
hefur verið formaður
LÍÚ í 30 ár og var fyrst kjörinn 1970.
Vísir.is greindi frá.
Óánægðir starfsmenn RÚV
Fjórir af hverjum fimm starfsmönn-
um Ríkisútvarpsins era óánægðir með
mannaráðningamál hjá stofnuninni.
RÚV sker sig algjörlega frá öðrum rík-
isfyrirtækjum hvað varðar óánægju.
Dagur greindi frá.
Þriggja bíla árekstur
Þrír bUar lentu í árekstri á Sval-
barðsströnd í gær. Bíll keyrði aftan á
annan sem ætlaði að beygja út af Sval-
barðsstrandarvegi, með þeim afleiðing-
um að hann snerist og fór í veg fyrir
bU sem kom úr hinni áttinni. Enginn
meiddist i árekstrinum en tveir bU-
anna eru sagðir mikið skemmdir. Vís-
ir.is greindi frá.
Nýtt sendiráð í London
anríkisráðherra Danmerkur, var við-
staddur og færði skjaldarmerki að gjöf
frá þeim tíma er ísland var hlúti kon-
ungsríkisins Danmerkur. Vísir.is
greindi frá.
Bíll í sjóinn
BUl fór í höfnina f Garði í gær þeg-
ar brim hreif hann með sér af bryggj-
unni. Tveir ungir menn vora í bílnum
þegar hann fór í höfnina en þeir náðu
að koma sér út og á land af sjálfsdáð-
um. Ríkisútvarpið greindi frá.
-bþg