Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2000, Side 14
14
Hvers vegna notar þú
Rautt Eðal Ginseng?
Siguröur Steinþórsson,
eigandi Gull & Silfur:
„Ég býö starfsfólki mínu
alltaf upp á Rautt Eöal
Ginseng á álagstímum. Svo
er þaö líka frábært fyrir
nákvæmnisvinnu."
Heiga Eiríksdóttir
hjúkrunarfræðingur:
„Rautt Eöal Ginseng er án
úrgangsenda og reynist
best á álagstímum."
Hafsteinn Daníelsson
íþróttakennari:
„Þaö eykur snerpu og
úthald."
Blömin: Þroska fræ í
Rótarbolurinn:
Máttugasti hluti
jurtarinnar
Rautt Eöal GSnseng
Skerplr athygll og
eykur þol.
___________________________________________________________________________LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000
Fréttir r>V
Vinnusamir Pólverjar eftirsóttir af atvinnurekendum:
„íslendingar mega passa sig“
- unga kynslódin hérlendis oft agalaus og kann ekki aö vinna
I uppsveiflu atvinnulífs á lands-
byggðinni i kjölfar skuttogaravæð-
ingar á árunum upp úr 1970 var
víða í sjávarplássum unnið myrkr-
anna á milli til að „bjarga verðmæt-
um“ eins og það hét i þá daga. Fljót-
lega varð ljóst að ekki myndi hafast
undan að vinna allan þann afla sem
að landi kom nema fá aðkeypt
vinnuafl. ísfirðingar og Hnífsdæl-
ingar voru fyrstir til að bregðast við
þessu og á upphafsárum skuttogara-
væðingarinnar fór að streyma þang-
að fólk í gegnum breskar vinnu-
miðlunarskrifstofur. Var þar mest
áberandi fólk í atvinnuleit frá ríkj-
um breska samveldisins, svo sem
Ástralíu, Suður-Afríku og einnig
fólk frá Nýja- Sjálandi. Góð reynsla
var af þessum aðkeypta starfskrafti
og atvinnurekendur í fiskvinnslu
um alla Vestfirði sigldu í kjölfarið
og starfsfólk frá fleiri þjóðum tók að
streyma inn á vinnumarkaðinn
vestra.
Yfirleitt komst þetta fólk fljótt í
náin tengsl við íslendingana sem
fyrir voru og var tekið inn í félags-
lífið. Reyndar var um tíma áberandi
pörun ástralskra og ný-sjálenskra
kvenna og karla við íslendinga.
Settust margir að í vestfirskum
sjávarplássum. Sumir búa þar enn
og eins flutti töluverður fjöldi ís-
lendinga með erlendum mökum til
framandi heimsálfa. Fólk af ólíkum
uppruna fór í kjölfarið einnig að
koma inn á vestfirskan vinnumark-
að og árangurinn er sá að í dag er
búsett fólk á Vestfjörðum af meira
en 40 þjóðemum.
Á síðasta áratug hefur innflutn-
ingur á fólki frá Austur-Evrópuríkj-
um, einkum Póllandi, verið mjög
áberandi. Er svo komið að Pólverjar
eru langfjölmennastir af því vinnu-
afli sem flutt er til landsins og verða
líklega um eitt þúsund í ár. Fleiri
landshlutar hafa nýtt sér reynslu
Vestfirðinga af þessu vinnuafli og
Hörður Kristjánsson
blaöamaöur
nú streymir mestur hluti þess inn á
vinnumarkað á Reykjavíkursvæö-
inu þar sem nú ríkir uppgangur likt
og við upphaf skuttogarabyltingar-
innar vestur á fjörðum.
Pólsk „gettó“ aö hverfa
Vegna hins mikla fjölda fóru Pól-
verjarnir fljótlega aö mynda eins
konar „gettó“ í sjávarplássum á
Vestfjöröum. Ástæðan var fyrst og
fremst vegna málsins. Ólíkt Áströl-
unum töluðu Pólverjarnir nánast
enga ensku og áttu því í erfiöleikum
meö tjáskipti viö Islendinga. Þeir
töluðu nær eingöngu pólsku auk
þess sem rússneska er kennd þar af
skyldurækni í skólum líkt og dansk-
an á íslandi. Þetta tjáskiptavanda-
mál leiddi síðan til þess að Pól-
verjamir héldu enn frekar hópinn
og uröu afskiptir í samfélaginu.
Þetta hefur hins vegar mjög breyst á
síðustu árum og með auknum sam-
skiptum viö íslendinga og aukinni
íslenskukunnáttu eru „gettóin"
smám saman að hverfa.
Pólsklr „agentar“
Einstaka Pólverja úr hópunum
sem fyrstir komu og tókst aö brjót-
ast út úr þessari einangrun með því
að læra íslensku nýttu sér þetta
ástand. Uröu þeir þannig eins konar
„agentar" sem tóku aö sér að vera
tengiliðir á milli Pólverjanna og ís-
lenska samfélagsins. Vitaö er aö
þetta stunduöu einstakir menn gegn
greiöslu og högnuöust trúlega vel.
Töldu menn sig t.d. vita um einstak-
Pólverjar í flskvlnnslu
„Pólska Hnan“ hjá Hraöfrystihúslnu- Gunnvöru hf. í Hnífsdal.
DV-MYND HKR.
ling sem m.a. hafði milligöngu um
að flytja inn starfsfólk frá Póllandi
og heyrst hefur talað um að slík við-
vik hafi kostað Pólverja sem hingað
vildu koma 1000 dollara. Fóru því
vinnulaun fyrstu vikurnar í að
greiða umboösmanninum. Mikill
þagnarmúr hefur ríkt um þetta í
hópi Pólverjanna. DV hefur heim-
ildir fyrir því að tekið hafi veriö fyr-
ir slíkt í a.m.k. einu tilfelli þegar
upp komst í einu frystihúsanna
vestra. Sá Pólverji býr reyndar enn
hér á landi, þó hann hafi nú flutt í
annan landshluta. DV hefur einnig
heimildir fyrir því að Islendingum
hafi af pólskum agentum verið
boðnar mútur fyrir að þegja um mál
af þessum toga varðandi pólskt
Rúnar Guðjón Loftsson.
Guömundsson.
kom hingað með þrjú börn, sem
heita, Robert, Violeta og Alexandra,
og segist ánægð með starfið.
VIII vera áfram
Öllu þessu fólki líkar dvölin hér
svo vel, flest eftir nokkurra ára bú-
setu, að þau vilja alls ekki fara til
baka, jafnvel þó þeim líki ekki sér-
lega vel kuldinn og rokið hér á
landi, sem þau eiga ekki að venjast
heima hjá sér í Póllandi. Þau taka
lífið á íslandi fram yfir, því hér eru
möguleikamir meiri til að hafa þaö
gott. Þá eiga þau orðið marga is-
lenska vini. Jacek nefnir launin
sem dæmi. í frystihúsinu í Hnífsdal
þarf hann að vinna I ca. eina viku
til að hafa jafn mikið og á einum
Pétur Sigurðs- Teresa Hellnska.
son.
starfsfólk Rauða hersins svokallaða
þegar reynt var að afhjúpa þessa
starfsemi.
Blaðamaður spurði nokkra Pól-
verja sem nú starfa hjá Hraðfrysti-
húsinu - Gunnvöru hf. í Hnífsdal
um tilurö slíkra umboðsmanna.
Þessu neituöu þeir allir sem einn og
sögöust ekki þekkja slík tilfelli í
dag.
Jacek Nieduzak kom frá litlu
sveitaþorpi í Póllandi ásamt móöur
sinni Jezefu Nieduzak. Hann sagöi
aö flestir Pólverjarnir hefðu frétt af
þessari vinnu vegna afspurnar og
vegna kunningsskapar viö fólk sem
farið hefði til Islands. Þannig hafi
heilu fjölskyldurnar komið til aö
vinna á íslandi, en í frystihúsinu
starfar einnig bróöir hans Dariusz.
Teresa Helinska fiskvinnslukona
hafði svipaöa sögu að segja. Hún
mánuði í Póllandi. Að vísu segir
hann verðlagið í Póllandi lægra, en
þar sé ekki hægt að gera sömu hluti
og hér og síöan sé mjög óvíst að
menn fái yfirleitt vinnu þar í landi.
Pétur Sigurðsson, formaður
verkalýösfélagsins Baldurs á ísa-
firði og forseti Alþýðusambands
Vestfjarða, segir að miðað viö taxta-
laun sérhæfðs fiskvinnslumanns,
sem sótt hafi námskeið og er búinn
að vinna í tíu ár, séu dagvinnulaun
með bónus í kringum 110 þúsund
krónur á mánuði. Miöaö við það má
ætla aö mánaöarlaun verkamanna í
Póllandi séu á bUinu 20 tU 30 þús-
und íslenskar krónur á mánuöi. Það
þarf því engan að undra að Pólverj-
ar, sem búa viö um 14% atvinnu-
leysi, sækist eftir því aö fá vinnu á
íslandi. Meira aö segja hafa veriö
dæmi í gegnum tíöina um hámennt-
að háskólafólk, jafnvel verkfræð-
inga, sem hafa komið tU íslands að
vinna í fiskvinnu á mun hærri laun-
um en buðust fyrir þeirra störf í
heimalandinu.
íslendingar mega passa sig
Reynsla atvinnurekenda er mjög
góð af þessu fólki, sem þeir hrósa í
hástert. Guðjón Loftsson, verkstjóri
hjá Hraðfrystihúsinu - Gunnvöru
hf. í Hnífsdal, hefur langa reynslu af
samskiptum við erlent verkafólk.
Hann segir það upp tU hópa vera
mjög vinnusamt.
Hann bendir á að ólíkt íslenskum
ungdómi í dag þekki Pólverjarnir
aga og hagi sér samkvæmt því. Þeir
séu mjög samviskusamir við vinn-
una og undan þeim þurfi ekkert að
kvarta. Hann líkir þessu við ís-
lenska unglinga sem fæddir eru á
sjötta áratug aldarinnar og voru að
stíga sín fyrstu skref á vinnumark-
aði I frystihúsum vestra á sjöunda
og áttunda áratugnum.
„Sjálfsagt yrði það kaUað barna-
þrælkun 1 dag, en þessi krakkar
lærðu að vinna 12-14 ára og ég get
ekki séð aö þeir hafi borið skaða af
því,“ segir Guðjón. „íslendingar
mega sannarlega passa sig ef þeir
ætla ekki að missa störfin í hendur
fólks eins og þessara duglegu Pól-
verja. I dag er mjög erfltt að taka
ungt fólk inn í svona störf. Það eru
tU hreint ágætir einstaklingar en
fjöldinn er svo agalaus að erfitt er
aö fá það fólk tU aö vinna nokkuð af
viti. Hjá þeim fer mestur tíminn í
aö bíða eftir útborgunardeginum."
Rúnar Guðmundsson, verkstjóri í
frystihúsinu, tekur undir góöa
reynslu af bæði Pólveijum og fólki
af öðrum erlendum uppruna. Sumir
séu búnir að vinna hjá þeim árum
saman og séu mjög ábyggilegir
starfsmenn. Hann segir aö í hópi
starfsmanna fyrirtækisins sé líka
fjöldi mjög dugmikiUa heima-
manna. Þar sé um að ræða ómetan-
legan traustan Kjarna sem unnið
hefur hjá fyrirtækinu í áraraðir og
kann sitt fag.