Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2000, Page 22
22
Helgarblað
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000
DV
Það er ekki auðvelt að taka
viðtal við Benedikt Erlings-
son, leikara og leikstjóra.
Samt er Benedikt vel máli farinn,
hraðmæltur, orðmargur og við-
ræðugóður. Það vantar ekki. En
hann öslar gegnum orðaflaum og
þegar verður djúpt á honum stekk-
ur hann stein af steini í leit sinni
að réttu samlíkingunni eða ná-
kvæmlega lýsingunni á þvi sem
hann vildi sagt hafa og viðmæl-
andi hans verður ringlaður. En
ekki nóg með það heldur finnst
manni eins og hann sé aldrei að
tala í fullkominni alvöru. Svona
menningarlegri, þungri, ábyrgri
alvöru sem er hafin yfir flím og
spott. Alvöru alvöru.
Hvar er Jónas Hallgrímsson?
Benedikt er að leggja síðustu
hönd á uppsetningu sína á nýju ís-
lensku leikriti sem heitir Skálda-
nótt. Þetta er verkefni á vegum
Reykjavíkur menningarborgar, leik-
rit sem Hallgrímur Helgason hefur
skrifað upp úr ljóði í bók sinni Ljóð-
mælum. Ljóðið hét og heitir Leitin
að Jónasi Hallgrímssyni. Það er ort
kringum hugmynd sem er í megin-
atriðum sú sama og leikritið byggir
á. Og um hvað er eiginlega leikritið,
Benedikt?
„Það fjallar um töfranótt í Reykja-
vík þegar skáldin lifna við og tala
saman í bundnu máli. Það er að
segja ungu skáldin í nóttinni gera
það. Þessa nótt vakna skáld fyrri
alda og ganga meðal hinna lifandi
og sitja síðan í dómnefnd þegar
rímorrustan mikla fer fram í nætur-
lok,“ segir Benedikt.
Halldór Kiljan Laxness er lelkinn af
Þór Tulinius sem leitaðl tll.Pálma
Gestssonar og Guömundar Ólafsson-
ar sem báöir hafa túlkaö jöfurinn.
Kjötsúpa eða bixímatur
Hvemig leikrit er þetta, Bene-
dikt?
„Þetta er ekki eins og neitt leikrit
sem ég hef séð. Þetta er svona kjöt-
súpa, eða eins og íslenskur bixímat-
ur. Þarna ægir öllu saman, allt get-
ur gerst, þetta er ævintýri. Þetta er
nóttin sem borgin er lostin töfra-
sprota og allir geta rímað og ríma
eins og óðir. Skáldin geta flogið og
hvað sem er en þau nenna ekki að
ríma. Þau eru búin að fá nóg af því.
Þetta er „total theater". Þetta er
ljóðaleikur, þetta er rappleikrit,
þetta er eins og Bart Simpson.
Þetta hefur verið leitin að form-
inu, rétta forminu sem hentar ná-
kvæmlega þessu leikriti og engu
öðru. Þess vegna er þetta ekki eins
og neitt annað.“
Hin horfnu skáld
Það leiðir af sjálfu sér að á svið-
inu vakna mörg skáld sem þjóðin
elskar þótt þau séu horfin. Á svið-
inu í Borgarleikhúsinu vaða uppi
þeir Steinn Steinarr, Jónas Hall-
grímsson, Einar Benediktsson,
Benedikt Gröndal og Agli Skalla-
grímssyni bregður fyrir. Síðast en
ekki síst mun höfundur Njálu koma
fram en Benedikt er gersamlega ófá-
anlegur til þess að fara nánar út í
sálmana um það hvers kyns hann
muni vera, hver leiki hann eða neitt
því tengt. Sumt verður fólk að sjá til
að trúa, segir hann og er áreiðan-
lega rétt.
Á þessari töfranótt reika hin
Töfranótt í Borgarleikhúsinu:
Eins og íslensk-
ur bixímatur
- Benedikt Erlingsson leikstjóri setur upp Skáldanótt eftir Hallgrím Helgason
Eggert Þorleifsson leikari túlkar
atómskáldiö Stein Steinarr.
liðnu skáld um en ung skáld og lif-
andi elta þau uppi og er hver á hött-
unum á eftir sínu uppáhaldsskáldi.
Umhverfið er næturlífið í Reykjavík
með öllum sínum ljósum og hljóð-
um, biðröðum og bílum, talandi
skáldum og skúrkum.
En enginn heimur er án hættu og
ein hætta steðjar að öllum skáldum.
Það er fjölmiðlasólin sem ekki má
skína á þau því þá hverfa þau.
Hverjir eru vondu kallarnir, Bene-
dikt?
Hjálparsveit skálda
„Það eru fjölmiðlamenn og þau
sem hundelta skáldin eru hin 01-
ræmda Gyða sem skrifar í Menn og
mýs og ljósmyndari hennar Fjölnir
Stefánsson. En yfir skáldunum vak-
ir Hjálparsveit skálda sem gætir
þeirra fyrir hinum vondu öflum.“
Eins og nærri má geta er mikil
tónlist í leikritinu því hvað væri
næturlíf án tónlistar og það er
Ragnhildur Gísladóttir sem ber hit-
ann og þungann af henni með Bene-
dikt og félögum.
„Ragnhildur hefur samið fjögur
„hittlög" handa okkur til að nota í
sýningunni og búið til margar hljóð-
myndir."
í leikritinu er lifandi tónlist því
þar bregður fyrir hljómsveitum og
þar er leikið á mýmörg hljóðfæri,
bæði bassa, gítar, klarínettur,
trumbur, hristur og margt fleira og
allt þetta gera leikaramir.
Dæmigerður íslendingur
Benedikt hefur fjölbreytta
reynslu að baki í leikhúsi og hefur
brugðið sér í líki ýmissa kvikinda
en það hefur flogið fyrir að í sumar
hafi hann verið að leika í danskri
sápuóperu. Það má vel reyna að
spyrja Benedikt út í þetta einkenni-
lega verkefni en það má líka reyna
að draga úr honum tönn. Benedikt
vOl sem minnst gera úr þessari
landkynningu en þó tekst með mikl-
um eftirgangsmunum og frekjuleg-
um spumingum að draga eftirfar-
andi staðreyndir málsins upp úr
honum.
. Eiginkona Benedikts, Charlotte
Boving, er leikkona af dönsku bergi
brotin. Henni var boðið hlutverk í
þáttaröð sem danska sjónvarpið
gerði og er að sögn Benedikts háðsá-
deOa á lif nútímamannsins. Fram-
leiðendur þáttanna spurðu
Charlotte hvort hún þekkti ein-
hvern íslenskan leikara og hún
kannaðist vissulega við það.
„Ég var síðan skrifaður þarna inn í lit-
Theódór Júlíusson leikur
athafnaskáldiö og
milljónamæringinn
Einar Benediktsson.
ið hlutverk og kem fram í tveimur þáttum
af átta. Ég held að þeir hafi fengið auka-
styrk út á það að hafa íslending í þáttun-
um,“ segir Benedikt og ítrekar að hlut-
verkið sé svo lítið að það sé sambærOegt
við að fá hlutverk eins farþega í þáttunum
Taxi sem er hvað vinsælastur af dönsku
sjónvarpsefni á Islandi.
í hlutverki Benedikts í sápuóperunni
kristallast að hans sögn aUir fordómar
Jónas Hallgrímsson er leikinn af
Steini Ármanni.
Dana í garð íslendinga. Persóna Benedikts
er rustafenginn, drykkfelldur, hávær ís-
lendingur, giftur danskri konu. Islending-
urinn fæst við að kenna fmnskan tangó í
Kaupmannahöfn en hjónaband hans er í
molum og dregur tO skOnaðar.
„Það kemur í ljós þegar á að ganga frá
því.að þau hjónin hafa aldrei skOið hvort
annað og þurfa túlk tU að aðstoða sig við
skilnaðinn."
Þættirnir munu verða tUbúnir tU sýn-
ingar í lok þessa árs og við hljótum að
beina þeim óskum til innkaupastjóra sjón-
varpsstöðva á íslandi að þess verði ekki
langt að bíða að við fáum líka að sjá hug-
myndir Dana um íslendinga kristaUast í
Benedikt Erlingssyni. -PÁÁ
Árni Pétur Guöjónsson leikur hiö
drykkfellda bæjarskáld Benedikt
Gröndal eins og allir muna eftir
honum.
Leikarar geta allt
„Leikarar geta aUt,“ segir Benedikt
og tekst að láta það hljóma eins og
eitthvað sem aUir hafa aUtaf vitað.
Það er áreiðanlega ekki heiglum
hent að túlka á sviði nokkur ásæl-
ustu skálda þjóðarinnar fyrr og síð-
ar. Það kemur í hlut Þórs Tulinius
að túlka nóbelsskáldið sjálft, HaU-
dór KOjan Laxness, en Eggert Þor-
leifsson bregður sér i gervi Steins
Steinarrs. Steinn Ármann fær hins
vegar að leika Jónas HaUgrímsson
og Theódór Júlíusson leikur Einar
Benediktsson en Árni Pétur Guð-
jónsson leikur Benedikt Gröndal.