Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2000, Page 26
26
LAUGARDAGUR 11. NÓVEMBER 2000
Helgarblað_________________________________________________________________________________________________DV
Er norden í orden?
Thorsson
skrifar í HelgarblaO DV.
Síðan Einar Már Guðmundsson
sagði um árið Norden er i orden virð-
ist ekkert skemmtilegt hafa borið fyr-
ir á þingum Norðurlandaráðs - né
eiga að gera það. Tímanum virðist
varið i langdreginn geispa; umræður
syfjulegt mas um það hvort þessar
samkomur séu yfirleitt til nokkurs,
enda norræn samvinna bara orðin
tóm um þessar mundir: norden er
ekkert i orden - norðrið er bara í
orði.
Það var því nýstárleg reynsla að
heyra að einhver maður á nýafstöðnu
Norðurlandaráðsþingi hefði í raun og
veru sagt eitthvað og hressandi að
heyra í útvarpinu brot úr þrumu-
ræðu færeyska ráðherrans Tórbjöms
Jacobsens þar sem hann átaldi þing-
heim harðlega fyrir að ræða ekki á
þessum samráðsvettvangi Norður-
landanna ofríki og yfirgang Dana
gagnvart Færeyingum sem viö höfum
fylgst agndofa með síðasta árið, en
eyða timanum í að velta því fyrir sér
hvort bjóða eigi Eystrasaitsríkjunum
inngöngu i þennan mikla svefnsal.
Þar undanskildi Tórbjörn að visu
Steingrím J. Sigfússon sem virðist
hafa bjargað því sem bjargað varð af
sæmd íslendinga með því að taka
sköruglega undir málstað Færeyinga,
og tókst þannig enn að auka veg
Vinstri grænna í augum okkar lands-
manna.
Einn er þó sá stjómmálaflokkur í
landinu sem manni finnst að hefði átt
að láta sérstaklega að sér kveða í
þessu máli og það er Sjálfstæðisflokk-
urinn. Fulltrúar þess flokks virðast
hafa verið of önnum kafnir við að
skipa sér í raðir norrænna hægri
flokka sem settu á oddinn samkvæmt
fréttum að leiða Eystrasaltsþjóðir inn
í Norðurlandaráð til að átta sig á því
að í fyrsta lagi eru þeir ekki fulltrúar
hægri flokks og í öðru lagi ber þeim
fremur að styðja ófrjálsa Færeyinga
en nýfrjálsar Eystrasaltsþjóðir.
Sögulega séð stendur málstaður
Færeyinga Sjálfstæðisflokknum sér-
staklega nærri. Ef flokkurinn væri
bara eins og hver annar norrænn
hægriflokkur væri hann ekki í þeirri
aðstöðu sem hann hefur haft nánast
frá fyrstu áratugum 20. aldarinnar.
Þá væri ekki ósvipað umhorfs hér og
Síðan Einar Már Guð-
mundsson sagði um árið
Norden er i orden virðist
ekkert skemmtilegt hafa
borið fyrir á þingum
Norðurlandaráðs - né
eiga að gera það. Tíman-
um virðist varið í lang-
dreginn geispa; umrœður
syfjulegt mas um það
hvort þessar samkomur
séu yfirleitt til nokkurs,
enda norrœn samvinna
bara orðin tóm um þess-
ar mundir: norden er
ekkert í orden - norðrið
er bara í orði.
á hinum Norðurlöndunum - krata-
flokkur í miðju valdakerfisins og
smærri flokkar til hvorrar hliðar.
Stóri norræni krataflokkurinn á ís-
landi er Sjálfstæðisflokkurinn. Hann
er líka stóri hægriflokkurinn. Hann
er gamli ríkisforsjárflokkurinn. Hann
er nýja vinstrið, hann er nýfrjáls-
hyggjan, hann er þumbaralegi ein-
angrunarflokkurinn, hann er Evrópu-
flokkurinn, vettvangur kvótaeigenda
og kvótaandstæðinga; hann er Flokk-
urinn, hann er miðstöð Valdsins.
Þetta er vegna þess að eftir að ís-
lendingar öðluðust fullveldi runnu öll
öflin sem stóðu í sjálfstæðisbarátt-
unni saman í þennan flokk. Sjálfstæð-
isflokkurinn öðlaðist þar með í ís-
lenskum stjómmálum sömu stöðu og
Afríska Þjóðarráðið hefur í Suður-
Afríku og Kongressflokkurinn á Ind-
landi. Og sé einhver arfleifð í þessum
flokki þá er það arfur sjálfstæðisbar-
áttunnar - arfur róttæklinga á borð
við Benedikt Sveinsson, afa núver-
andi Menntamálaráðherra sem gerðu
ýtrustu kröfur um sjálfstæði þjóðar-
innar af ámóta óraunsærri framsýni
og þeir sem nú berjast fyrir sann-
gjörnum skilnaði Færeyinga við
Dani, sem ganga fram af sömu þótta-
fullu óbilgiminni og íslendingar ættu
að þekkja.
Maður hefði því ætlað að Sjálfstæð-
ismönnum hefði runnið blóðið til
skyldunnar þegar færi gefst að
skamma stór-Danina. En því miður.
Þeir sváfú.
Britney Spears olli aödáendum sín-
um verulegum vonbrigðum þegar
gerð nýs myndbands dróst úr
hömlu.
Britney
sein með
nýtt mynd-
band
Britney Spears er sennilega í hálf-
gerðri ónáð hjá þeim sem halda úti
tónlistarrásinni MTV um allan
heiminn. Aðdáendur um víða ver-
öld biða með öndina í hálsinum eft-
ir að sjá nýtt myndband Britney við
lagið Stronger sem væntanlegt er á
markað. Tónlistariðnaðurinn hefur
alið á spenningi vegna þessa máls
vikum saman og á ákveðnum tíma
var boðuð heimsfrumsýning á
myndbandinu á MTV.
Þegar æstir aðdáendur stilltu á
rásina sína á tilsettum tíma fengu
þeir ekkert nýtt myndband, aðeins
slappan sjónvarpsþátt með Britney
sem menn líktu við misheppnað
karaokekvöld. Þetta átti sér þær
skýringar að gerð myndbandsins
hefði dregist svo lengi að ekkert
annað úrræði var fyrir hendi.
Talsmenn Britney segja að það
sem geri myndbandið erfitt í
vinnslu sé að stjaman á að vera al-
ein á skjánum allan tímann og sjá
um allan dans i myndbandinu. Þetta
verður að vera í góðu lagi og þess
vegna hafa fullkomunarsinnar í
hópi listamanna sem vinna með
söngkonunni ekki enn orðið ánægð-
ir.
Hefur átt fimm heimili á þremur árum:
Flökkukötturinn Ragnar
treystir öllum
„Ragnar hef-
ur alltaf verið
gæddur mikilli
aðlögunar-
hæfni. Hann
hefur átt því
láni að fagna að
það hafa alltaf allir verið góðir við
hann og hann treystir öllu fólki sem
hann sér og hittir," sagði Rósa Sig-
rún Jónsdóttir skúlptúrnemi sem
herbergjar flökkuköttinn Ragnar
um þessar mundir á heimili sínu í
Kópavogi.
Ragnar er eitt af þessu sérstæðu
gæludýrum sem víða hafa þvælst þó
ævi hans sé ekki löng. Ragnar fædd-
ist á Grettisgötu 74 14. desember
1996, einn fimm systkina i ástríkri
fjölskyldu. Hann flutti ungur á Víf-
ilsgötu þar sem hann komst í eigu
Jakobs Fals Garðarssonar og Vig-
dísar Jakobsdóttur konu hans. Þar
dvaldi Ragnar þó ekki nema um
nokkurra mánaða skeið því þegar
hjónin fluttu vestur í bæ varð Ragn-
ar eftir í Norðurmýrinni.
„Okkur þótti afar leitt þegar þing-
lýstar reglur í vesturbænum komu í
veg fyrir að Raggi gæti flutt með
okkur á nýjan stað. Þetta er
merkisköttur og við söknum hans
alltaf pinulítið og reynum að hafa
samband við hann reglulega,“ sagði
Jakob Falur í samtali við DV.
Ragnar fór ekki langt því hann
flutti til nýs eiganda sem er Lilja
Dröfn Pálsdóttir sem þá bjó á Mána-
götu 23. Hún hýsti Ragnar lengur en
nokkur annar hefur gert og er
reyndar skráður eigandi hans enn í
dag.
Raggi töffari
„Raggi er algjör töffari. Hann er
kóngurinn i hverfinu hvar sem
hann fer en er samt enginn harð-
stjóri því hann á gott með að eign-
ast vini,“ segir Lilja Dröfn.
Það átti samt ekki fyrir Ragnari
að liggja að verða virðulegur heim-
ilisköttur á sama stað. Hann lenti
næst hjá Ragnari Inga Reynissyni
Ragnar, hinn þolgóði og víðförli köttur sem hefur búið á fimm stöðum á þremur árum
Það er skráður eigandi Ragnars, Lilja Dröfn Pálsdóttir, sem er með honum á myndinni.
vegi í Kópavogi
og býr þar við
gott atlæti.
Hann er fyrir-
mynd listsköp-
unar umsjónar-
manns síns og
hefur setið fyr-
ir á olíumál-
verki, vatns-
litamyndum og
verið meitlað-
ur í finnskt
granit.
Ragnar er
þess vegna vön
fyrirsæta en
fram úr hófi
matvandur og
kræsinn eins
og titt er um
módel. Hann er
að eðlisfari
blíðlyndur og
alla jafna róleg-
ur heimilis-
köttur. Hann
er þó ekki haf-
inn yfir slæm
uppátæki og
hefur verið
staðinn að því
að veiða fugla,
myrða potta-
blóm, stela
fiski sem átti
að vera í kvöld-
og Önnu konu hans sem bjuggu á
Mánagötu 10, svo enn var Ragnar í
sínu gamla hverfl.
„Hann gekk út og inn á nokkrum
heimilum á þessum tíma. Hann
drottnaði yfir hverfmu en hann átti
einn einkavin sem var kötturinn
Tommi sem bjó í nágrenninu.
Tommi fékk að koma inn með Ragn-
ari og Raggi gaf honum mat úr sín-
um dalli sem er mjög óvenjulegt
með ketti. Þeir vinirnir gistu til
skiptis heima hjá hvor öðrum og
sváfu þá í sama rúmi.
Þetta sérstæða vináttusamband
varð til þess að margir sem þekkja
matinn og hafa
uppi ýmsar spekálur sem ráðsettir
heimiliskettir ættu að vera vaxnir
upp úr.
Hann liggur undir grun um að
hafa komið sér upp fósturfjölskyldu
í Kópavogi því stundum hverfur
Raggi í meira en sólarhring og skil-
ar sér samt þurr og saddur heim aft-
ur.
„Þetta er í hæsta máta grunsam-
legt en sýnir best innræti kattarins
og persónutöfra," sagði Rósa Sigrún
að lokum.
-PÁÁ
Ragga segja að hann sé trúlega sam-
kynhneigður," segir Lilja Dröfn þeg-
ar hún rifjar upp árin i Norðurmýr-
inni. í þessu sambandi er þó rétt að
taka fram að Ragnar er geltur og
því trúlega hafmn yfir slíkar vanga-
veltur.
Raggi módeiköttur
Lilja flutti fyrir skömmu í Eski-
hlíð og heldur heimili þar. Um svip-
aö leyti fluttu Ragnar og Anna af
Mánagötunni svo enn var Raggi
köttur heimilislaus. Þá endaði hann
í fóstri hjá Rósu Sigrúnu á Álfhóls-